Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 274. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						Gæfan fylgi þér

í umferðinni

SJOVAIHHÁLMENNAR

tt&unblábfo

MORGUNBLAÐIB, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK

SlMl 691100, SÍMBRÉF 69/181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85

MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993

VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.

Onýt pera

Morgunblaðið/RAX

ALDREI er mikilvægara en í dimmasta skammdeginu að götulýsing

sé í góðu lagi og hvergi sjáist ónýt pera. Til þess er að sögn Aðal-

steins Guðjohnsen, rafmagnsstjóra, haft reglulegt eftirlit með allri

lýsingu og oft skipt um perur í ljósastaurum í heilu götunum í einu.

Hver ljósapera endist að jafnaði í um 2 ár og eru ljósastaurar á

svæði Rafmagnsveitu Reykjavíkur um 26.000. Sjálfvirk stýring sér

um að kveikja og slökkva á staurunum eftir birtuskilyrðum.

Útsöluverð á fituminni mjólkurafurðum hækkar í dag

Smjör lækk-

ar um 28%

ÚTSÖLUVERÐ á mjólkurvörum breytist í dag. Verð á fitulitlum og

próteinríkum vörum lækkar en verð á fitumeiri vörum hækkar. Þannig

hækkar verð á undanrennu um 38%, skyri um 23% og fituminni osti

um 9% en smjörverð lækkar um 28%. Nýnijólluuiílrinn lækkar um eina

krónu en Fjörmjólk hækkar um 2 krónur.

Fimmmannanefnd, sem ákveður

verður á búvörum í heildsölu, ákvað

breytingar á útsöluverði mjólkurvara

í kjölfar breytingar á verðlagningu

mjólkur til bænda, þar s<;m meira er

greitt út á próteininnihald framleiðsl-

unnar en minna út á fitu. 75% af

verði afurðastöðva til bænda verður

í framtíðinni miðað við prótein í

mjólkinni og 25% miðað við fitu.

Fitan safnast fyrir

Vilhelm Andersen, skrifstofustjóri

Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, seg-

ir að nauðsynlegt hafi verið að breyta

verðlagningunni vegna þess að birgð-

ir af fitu séu orðnar vandamál.

Hann segir að nú sé verið að

færa verð til bænda og neytenda

nær því sem tíðkast í nágrannalönd-

unum og einnig nær því sem fram-

boð og eftirspurn á íslenskum mark-

aði kalli eftir. Gert sé ráð fyrir að

heildartekjur mjólkuriðnaðarins

verði óbreyttar. Vilhelm segir að

gert sé ráð fyrir samdrætti í sölu

þeirra afurða sem nú hækki verulega

í verði og því taki mjólkuriðnaðurinn

á sig nokkra áhættu með þessum

tilfærslun, en þær hafi verið taldar

nauðsynlegar.

Verð-

breytingar

á mjólkur-

afurðum

V E R Ð I Ð     %

varkr. ernú   breyt.

Skyr,1kg

0stur17%,1kg

Fjörmjólk, 11

Nýmjólk, 11

Léttmjólk, 11

Rjómi, V4l

Ostur26%, 1kg

Smjör, 1 kg

120

592

66

66

66

136

709

532

62 +37,8	

148 +23,3	

647	+9,3

68	+3,0

65	-1,5

65	-1,5

134	-1,5

696	-1,8

382	-28,2

Starfsfólk Landakots

vann biðlaunamálið

SEX konur, fyrrum starfsmenn

St. Jósepsspítala á Landakoti,

fengu í gær viðurkennda með

dómi Héraðsdóms Reykjavíkur

kröfu sína til biðlauna í 6 mánuði

frá því að uppsagnir þeirra tóku

gildi þann 1. maí 1992. Þær fjár-

hæðir sem sjúkrahúsið var dæmt

til að greiða hverri konu voru á

bilinu 77-482 þúsund krónur. Fyr-

irhugað er að kveða upp dóma í

málum tveggja kvenna til viðbótar

í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Konurnar voru félagsmenn í

Starfsmannafélagi ríkisstofnana og

gegndu ýmsum störfum, svo sem

skrifstofustörfum og starfi læknarit-

ara eða ræstingastjóra. Landakot er

sjálfseignarstofnun en konurnar

töldu sig eiga rétt til biðlauna eins

og um starfsmenn ríkisins væri að

ræða þar sem SFR var tilgreint sem

stéttarfélag þeirra í ráðningarsamn-

ingi og réttindi starfsmannanna skil-

greind með tilvísun til kjarasamninga

þess félags.

í niðurstöðum dómsins þar sem

fallist var á allar kröfur þeirra kem-

ur fram að SFR og stjórn St. Jós-

epsspítala hafi gert samning í maí

1987 þar sem samið hafi verið um

að réttindi og skyldur félagsmanna

SFR í starfí hjá sjúkrahúsinu skuli

vera hliðstæð þeim sem kveðið sé á

um í lögum um réttindi og skyldur

starfsmanna ríkisins en þar er ríkis-

starfsmönnum tryggð biðlaun séu

störf þeirra lögð niður án þess að

þeim bjóðist annað sambærilegt starf

eins og dómarinn taldi við eiga í

þessu tilviki.

Kvikmynd Stal-

lones tekin að

hluta hér á landi

ALLAR líkur eru á því að hluti næstu stórmyndar sem kvikmynda-

leikarinn Sylvester Stallone leikur í verði tekinn hér á Iandi á

næsta ári, en um er að ræða spennumynd sem byggð er á teikni-

myndasögunni Judge Dread sem gerist í framtiðinni. Leikstjóri

myndarinnar verður breski lciksfjóriim Danny Cannon sem leik-

stýrði The Young Americans sem nú er sýnd í Háskólabíói. Tök-

ur á kvikmyndinni fara að mestu leyti fram í Englandi, en kvik-

myndagerðarmennirnir áætla að tökur hér á landi standi yfir í

2-3 vikur næsta haust.

Að sögn Sigurjóns Sighvats-

sonar hjá Propaganda Films í

Los Angeles var Danny Cannon

ásamt fleirum staddur hér á landi

í síðustu viku að kanna aðstæður

fyrir tökur myndarinnar, en þeir

eru væntanlegir til landsins á

nýjan leik um áramótin. Áætlað-

ur kostnaður við gerð myndar-

innar er, að sögn Sigurjóns, 50

millj. dollarar, en framleiðandi

myndarinnar er sá sami og fram-

leiddi mynd Olivers Stone, Wall

Street, með Michael Douglas í

aðalhlutverki. Augu kvikmynda-

gerðarmannanna beinast fyrst

og fremst að Landmannaíaugum

og Sprengisandi, en gert er ráð

fyrir að um 150 manna hópur

komi hingað til að vinna að gerð

myndarinnar,

og er talið full-

víst að Sylvest-

er Stallone

verði í þeim

hópi.

Einnig

víkingamynd

Fleiri erlend-

ir kvikmynda-

gerðarmenn

hyggja á tökur hér á næsta ári,

en bandaríski leikstjórinn Mich-

ael Chapman hyggst gera hér

víkingamynd á vegum New Line

Cinema. Hann var staddur hér á

landi fyrir skömmu á vegum Sig-

urjóns Sighvatssonar til að kanna

aðstæður.

Stallone

13 mánns hafa setið í varðhaldi vegna rannsóknar á máli fíkniefnahrings

Framsals krafist yfir Islend-

ingi með sænskan borgararétt

ÍSLENDINGUR með sænskan ríkisborgararétt er í gæsluvarð-

haldi í Stokkhólmi þar sem til umfjöllunar er krafa íslenskra yfir-

valda um að maðurinn verði framseldur hmgað til lands vegna

rannsóknar á starfsemi umfangsmikils fíkniefnahrings, sem talinn

ér hafa flutt inn a.rn.k. hátt á annan tug kílóa af hassi og 3 kg

af amfetamíni á árunum 1992 og 1993. Maðurinn er grunaður um

aðild að innflutningi fíkniefnanna í málinu en þau voru jafnan

keypt í Amsterdam og send flugleiðis til landsins þaðan eða frá

Lúxemborg. Gæsluvarðhald yfir meintum höfuðpaur þessa máls

var framlengt til 27. desember í Héraðsdómi í fyrradag. Hann

hefur verið í gæsluvarðhaldi frá 1. september og mun sitja einn

í haldi eftir að einum vitorðsmanninum verður sleppt úr haldi í

dag. Alls hafa gæsluvarðhaldsúrskurðir yfir 13 aðilum verið upp

kveðnir hér á landi vegna rannsóknarinnar.

Fíkniefnalögreglan varðist í

gær frétta af rannsókn málsins

og því hve mikið magn og hversu

margar smyglferðir væru komnar

upp á yfirborðið en fyrrgreindar

tölur um á annan tug kílóa af

hassi og 3 kg af amfetamíni komu

fram í Morgunblaðinu í septem-

ber, fljótlega eftir handtöku

meints höfuðpaurs fíkniefna-

hringsins í september og fjögurra

af þeim „burðardýrum" sem hann

er talinn hafa notað í viðskiptum

sínum.

Niðurstöður rannsóknar máls-

ins bíða samkvæmt upplýsingum

Morgunblaðsins m.a. úrslita fram-

salsmálsins. Meðal þeirra þrettán

sem setið hafa í gæsluvarðhaldi

hér á landi yegna rannsóknarinnar

er annar íslendingur búsettur í

Svíþjóð. Sá hafði íslenskan ríkis-

borgararétt og gekk því greiðlega

að fá hann framseldan.

Hæstiréttur felldi í upphafi vik-

unnar úr gildi gæsluvarðhaldsúr-

skurð yfir konu sem Héraðsdómur

hafði gert að sitja í viku varðhaldi

vegna rannsóknarinnar. I dag

verður látinn laus maður sem set-

ið hefur inni í 10 daga vegna rann-

sóknarinnar og situr þá einn eftir

hér á landi meintur höfuðpaur

málsins sem er 38 ára gamall

maður.

Rannsókn máls þessa hófst þann

25. júlí síðastliðinn þegar tveir

menn, voru handteknir á Keflavík-

urflugvelli með um 3 kg af hassi

og 1 kg af amfetamíni í fórum sín-

um.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60