MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 Héraðsdómur Reykjavíkur telur að kirkjugarðarnir hafi haft 666 útfarir af Líkkistuvinnustofu Eyvindar Arnasonar frá 1985-1992 Dæmdir ta að graða 15 milljónir í bætur KIRKJUGARÐAR Reykjavíkur voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða Líkkistuvinnustofu Eyvindar Árnasonar tæpar 15 milljónir króna í skaðabætur fyrir að hafa valdið hruni í viðskiptum fyrirtækisins með því að verja kirkjugarðsgjöldum til þess að niðurgreiða útfararþjónustu á vegum kirkjugarðanna í trássi við fyrirmæli reglugerðar um að útfararþjónustu kirkjugarða skuli haldið aðskilinni frá öðrum rekstri. Dómurinn byggist á því að frá 1985-1992 hafi Líkkistuvinnustofa Eyvindar Ámasonar orðið af um það bil 666 útförum til kirkjugarðanna miðað við fyrri markaðshlut- deild. Hefðu kirkjugarðarnir ekki notið niðurgreiðslu af kirkjugarðs- gjöldum hefðu þeir orðið að hækka gjald fyrir hverja útför um 22.500 krónur til að vega upp þann mismun sem niðurgreiðslurnar ollu í verðlagningu. Hreinn Loftsson hrl., lögmaður Likkistuvinnustofunn- ar, segir í'samtali við Morgunblaðið að niðurstaða Héraðsdóms sé athyglisverð því í henni sé fallist á að þeir sem samkvæmt lðgum fá afmarkaðan tekjustofn skuli ekki misnota þá aðstöðu sína. Líkkistuvinnustofan annaðist að meðaltali 267 útfarir á ári á árunum 1970 til 1984; 214 árið 1985 en síðan dró úr viðskiptum ár frá ári og 1992 annaðist fyrirtækið 95 út- farir. Þar til Kirkjugarðar Reykja- víkur fóru að annast útfarir frá sóknarkirkjum en ekki aðeins frá Fossvogskirkju árið 1977 hafði fyr- irtækið haft 25-30% markaðshlut- deild en eftir 1977 dró úr ár frá ári. í dóminum var rakið að í útfarar- þjónustu kirkjugarðanna hafi verið innifalin ýmis útgjöld sem aðstand; endur látinna hafi ekki verið krafð- ir um greiðslu á heldur greidd af mörkuðum tekjustofni kirkjugarða í landinu, kirkjugarðsgjöldum. Dómurinn telur að óheimilt hafi verið að nota kirkjugarðsgjöldin með þessum hætti og að kirkjugörð- um Reykjavíkurprófastsdæmis hafi átt að vera það ljóst í síðasta lagi eftir að reglugerð var sett 1976 þar Sjómannafélag Reykjavíkur Nýjar kröfur lagðar fram STJÓRN og trúnaðarmannaráð Sjómannafélags Reykjavíkur komu saman í gær til að fjalla um viðbrðgð við þeirri niður- stöðu Félagsdóms að vinnustöðv- un sú sem félagið hafði boðað til hjá Eimskipafélaginu væri ólög- mæt. Að sögn Jónasar Garðarssonar, framkvæmdastjóra félagsins, var ekki ákveðið á fundinum að grípa til frekari aðgerða heldur myndi félagið leggja fram nýjar kröfur í deilunni en það væri forsenda þess að hægt yrði að boða til aðgerða síðar. Sagði hann að óskað yrði eftir fundi deiluaðila hjá ríkissátta- semjara á næstu dögum. sem kveðið var á um heimild kirkju- garðanna til að veita almenna útfar- arþjónustu en halda sérstakt reikn- ingshald um þá starfsemi. Einnig hafi mátt vera ljóst að eftir ákvörð- un um að færa út kvíarnar í útfarar- þjónustu kirkjugarðanna árið 1977 að verðlagning útfararþjónustunnar kæmi fyrr eða síðar niður á Lík- kistuvinnustofunni sem hafi verið eini keppinauturinn á markaðinum. Kirkjugörðunum hafi ekki tekist fyrir dómi að sýna fram á að aðrir þættir í viðskiptaþáttum fyrirtækis- ins hafi valdið hruni í viðskiptunum. Við útreikning tjónsins var niiðað við að Líkkistuvinnustofan hefði að 250þús.í sektfyrir sterasmygl VAXTARRÆKTARMAÐUR á þrítugsaldri hefur gengist undir að greiða 250 þúsund króna sekt auk 40 þúsund króna sakarkostnaðar í Hér- aðsdómi Reykjaness vegna innflutnings á rúmlega 8.000 töflum af steralyfjum. Maðurinn var stöðvaður í flugstöðinni á Keflavíkurflug- velli þegar hann kom með töfl- urnar í farangri sínum. í ákæru fyrir brot á tolla- og lyfsölulög- um var honum gefið að sök að hafa flutt lyfin inn í því skyni að selja þau eða afhenda með öðrum hætti. Maðurinn þáði til- boð ákæruvaldsins um að ljúka málinu með svokallaðri viður- lagaákvörðun, sem er ígildi þess sem áður hét dómsátt, og gekkst við öllum sakargiftum og gerði héraðsdómari honum að greiða fyrrgreinda fjárhæð, 250 þús- und krónur, í sekt til ríkissjóðs. jafnaði annast um 250 útfarir á ári áður en umsvifin fóru að dragast saman og hefði fyrirtækið orðið af um þriðjungi þeirra viðskipta sem það hefði haft frá 1985-1992 hefði ekki komið til niðurgreiðsla á þjón- ustu kirkjugarðanna. Dómurinn tók mið af því að til að aðilarnir hefðu orðið jafnsettir hefðu kirkjugarð- arnir orðið að hækka verð á hverri útför um 22.500 krónur og dæmdi Líkkistuvinnustofu Eyvindar Árna- sonar 14,985 milljónir króna í skaðabætur frá Kirkjugörðum i Reykjavíkur auk 1,3 milljóna í máls- kostnað. Kirkjugarðsgjald til viðhalds og rekstrar Lögmaður Líkkistuvinnustofunn- ar, Hreinn Loftsson hrl, sagði að dómurinn staðfesti að kirkjugarðs- gjald skuli nota til viðhalds og rekstrar á kirkjugörðum. Kveðið sé á um það í nýjum lögum um kirkju- garða að útfararþjónusta skuli skil- in frá öðrum lögboðnum verkefnum. Einnig sé ákvæði í samkeppnislög- um um það að stofnanir megi ekki nýta sér slíka tekjustofna í sam- keppni við einkafyrirtæki. Nú sé spurningin sú hvernig kirkjumála- ráðherra hyggist framfylgja lögun- um um kirkjugarða. Hvorki náðist í Ásbjörn Björns- son, forstjóra Kirkjugarða Reykja- víkur, né Atla Gíslason hrl., lög- mann kirkjugarðanna, í gærkvöldi en haft var eftir Atla í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær að líklega yrði málinu áfrýjað en ákvörðun um það verður tekin á stjórnarfundi fljótlega. Morgunblaðið/Rúnar Þór / Akureyrarkirkju Á AÐVENTUNNI koma börn af leikskólum bæjarins í heimsókn í Akureyrarkirkju til að fræðast og skoða kirkjuna. Séra Þórhallur Höskuldsson sóknarprestur tók í gær á móti barnahóp af Iðavelli og skýrði þeim m.a. frá sögu kertanna á aðventukransinum. Útboð spariskírteina ríkissjóðs 315millj. seldar með 5% ávöxtun í ÚTBOÐI á verðtryggðum spari- skirteinum ríkissjóðs í gær barst 21 gilt tilboð að fjárhæð 395 milljónir kr. Tók rikissjóður til- boðum fyrir 315 millj. kr. frá 15 aðilum og var meðalávöxtun samþykktra tilboða í spariskír- teini til 5 ára 5,00% og til 10 ára 4,99% en með útboðinu skuldbatt ríkissjóður sig til að taka tilboð- um að fjárhæð 100 til um 400 millj. kr. Ég tel að þetta útboð styrki mjög tiltrú á vaxtaaðgerðir ríkis- stjórnarinnar og sýni að það er góður grundvöllur fyrir henni. Ég á von á því að bankarnir lækki óverðtryggðu vexti sína í síðasta lagi um áramótin, sem ætti enn að styrkja vaxtalækkunina í sessi," sagði Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra í samtali við Morgunblað- ið. Af þeim tilboðum sem samþykkt voru í gær var hæsta ávöxtun 5,00% og lægsta ávöxtun 4,98%. Er heild- arfjárhæð tekinna tilboða nokkru hærri en í seinasta útboði sem f ram fór 8. nóvember en þá var meðal- ávöxtunin einnig um eða rétt undir 5,00%. Tvö eignarleigufyrirtæki í eigu Landsbanka íslands Sameining Lindar og Lýsingar til skoðunar HUGMYNDIR liggja nú fyrir hjá Landsbankanum um breytingar á eignarhaldi á eignarleigufyrirtækjunum Lind og Lýsingu. Bankinn á Lind að öllu leyti en 40% hlutafjár í Lýsingu. Meðal þess sem rætt hefur verið um innan bankans er að leita eftir samningum um sameiningu fyrirtækjanna eða að bankinn selji hlutabréfin í öðru hvoru eða báðum fyrirtækjunum. Jafnframt þykir koma til greina að Landsbankinn yfirtaki samninga Lindar og starfsemin þannig færð inn í bankann, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. í samningi Landsbankans við við- skiptaráðuneytið og fjármálaráðu- neytið frá því í mars um tveggja í dag Dómstólar Hjón og lögmaður dæmd fyrir fjár- drátt 24 Akureyrí Sveigjanlegur vinnutími ákveðinn hjá bænum 26 Vaxtamál JHorjsmtbiaM!) VIÐSKIPnJOTINNULÍF Fyrírtækbi spá 3,9% verðbótgu '-'- 3K:. ''¥¦ %rr&.. %tík laekkaou lekjuskattian {jinn Viðskiptaráðherra gagnrýnir líf- eyrissjóði eftir útboð húsnæðis- bréfa.34-35 Leiðarí Björgum Lakagígum34 Dagskrá ~ ? Stuttbylgjusendingar Rfldsút- varpsins um jólin Djöfull í mannsmynd með Helen Mirren Sophia Loren brátt sextug Lögfræðingar vinsælir Viðskipti/Atvinnulíf ? Spástefna Sljórnunarfélagsins Hræringar í sportvöruverslun Yfii-sljórii seðlabankans í sviðs- Ijósinu íslenskt tónlistarforrit markaðssett í Evrópu milliarða króna eiginfjárframlag til bankans er m.a. fjallað um eignar- hald á hlutdeildar- og dótturfélög- um. Var þá talið að með því að þoka eignarhaldi bankans í h]ut- deildarfélögum upp í 50% mætti hækka eiginfjárhlutfall hans. Sam- kvæmt reglum um eiginfjárhlutfall viðskiptabanka, eða svonefndum BlS-reglum, má banki telja meiri- hlutaeign í öðrum félögum að fullu til eignar. Ef hins vegar er um minnihlutaeign að ræða er eignar- hlutinn dreginn frá eigin fé þannig að eiginfjárstaðan skerðist sem því nemur. Hlutur Landsbankans í Lýs- ingu sem er aðeins 40% telst því ekki til eigin fjár heldur skerðir það þvert á móti. Hins vegar myndi 50% hlutur Landsbankans í sameinuðu eignarleigufyrirtæki teljast að fullu til eiginfjár. Útreikningar sem gerðir voru nýverið gefa til kynna að sameining fyrirtækjanna myndi hafa lítil áhrif á eiginfjárhlutfall Landsbankans. Hins vegar er sameiningin talin hafa þau áhrif að dreifa áhættu í þessari starfsemi og treysta rekstr- argrundvöll hennar á vegum bank- ans, samkvæmt upplýsipgum Morg- unblaðsins. Landsbankinn tók þátt í stofnun Lýsingar og lagði fram 40% hluta- fjár á móti 40% hlut Búnaðarbank- ans, 10% hlut Sjóvár-Almennra og 10% hlut Brunabótafélags íslands. Bankinn eignaðist síðan 30% hlut Samvinnubankans í Lind á sínum tíma og með kaupum á hlut Sam- vinnusjóðs komst fyrirtækið alfarið í eigu hans. » ? ? Dýr lentu í lögreglunni LÖGREGLAN í Reykjavík hand- samaði hunda, hesta og páfagauk í fyrradag. Hundaeftirlitsmaður tók hundana og hestaeftirlitsmað- ur hestana en páfagaukurinn var fluttur til síns heima. I Fossvogsdal voru lausir hundar til vandræða og handsamaði lögregla þá ásamt hundaeftirlitsmanni. Við Kollafjörð voru hestar lausir á göngu á veginum og var för þeirra heft og þeim komið í umsjá vörslu- manns. Síðar um dapnn flaug páfagaukur ¦ út um glugga á heimili sínu í Selás- nverfi. Lögregla var fengin til þátt- töku í leit að fuglinum og bar sú leit fljótlega árangur.