MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 Fyrirhuguð sala hlutabréfa ríkisins í SR-mjöli hf. Ríkið vill vita full deili á þeim sem áhuga hafa SIGURÐUR B. Stefánsson, framkvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar íslandsbanka, segir að ríkið vilji vita full deili á þeim aðilum sem það ætti viðskipti við um sölu á SR-mjöli hf. sem stofnað var upp úr Síldarverksmiðjum ríkisins. Þegar þær upplýsingar lægju fyrir yrði farið út í formlegt útboð og fengju þátttakendur í því viðhlít- andi upplýsingar um fyrirtækið. Haraldur Haraldsson, forstjóri Andra hf., sem segist hafa hug á að bjóða í SR-mjöl hf. ásamt fleiri innlendum fjárfestum, gagnrýnir hvernig staðið er að sölu fyrirtækis- ins í frétt í blaðinu í gær. Hann gagnrýndi að ekki hefðu verið veitt- ar upplýsíngar um verð, söluskíl- mála og fleiri þætti og sagði að það yrði erfiðleikum háð að gefa upplýs- ingar um alla aðila sem væru við- riðnir málið, áður en tilboð yrðu lögð fram, vegna ýmissa viðskipta- legra hagsmunatengsla sem þyrfti VEÐUR að virða. Sigurður B. Stefánsson sagði að sér væri ókunnugt um þessi gagnrýnisatriði, hann hefði aðeins séð þau í Morgunblaðinu. Hann sagði að á annan tug aðila hefði sýnt áhuga á kaupum á hluta- bréfunum og þeim hefði nú verið sent bréf með ósk um ákveðnar upplýsingar. Sagðist hann ekki vita til þess að Haraldur væri meðal þeirra. Mikil vægt fyrirtæki í bréfinu til þeirra sem sýnt hafa áhuga á kaupum á SR-mjöli hf. er óskað eftir upplýsingum um vænt- anlega þátttakendur í tilboðsgerð. Sigurður sagði að síðan yrði gengið til formlegs útboðs og þá myndu þátttakendur í því fá viðhlítandi upplýsingar viðvíkjandi fyrirtæk- iriu. Sigurður sagði að seljandinn, það er ríkið, hefði í þessu tilviki viljað vita full deili á þeim aðilum sem hann ætti viðskipti við. Hér væri um að ræða langstærsta fyrirtæki I fiskimjölsiðnaði hér á landi og mjög mikilvægt fyrir Ioðnuútveg- inn. Ríkið vildi ekki aðeins fá marg- ar krónur í kassann fyrir það held- ur væri því einnig í mun að nýir eigendur gætu talist trúverðugir eigendur að því og áframhaldandi rekstraraðilar. IDAGkl. 12.00 Heimíid: Véðúrstofa íslands (Byggt ó veðurspá kl. 16.15 ígær) VEÐURHORFUR I DAG, 9. DESEMBER YFIRLIT: Yfir Norður-Grænlandi er 1028 mb hæð en 958 mb lægð við vesturstrðnd Skotlands hreyfist austur. Hægfara en heldur vaxandi 988 mb lægð á sunnanverðu Græntandshafí. SPÁ: Fremur hæg austlæg eða norðaustlæg átt fram eftir morgní en heldur vaxandi vindur sfðdegis, einkum um vestanvert landið. Bjart veð- ur að mestu sunnanlands og -vestan og einnig f innsveitum vestantii á Norðurlandí eri dálítii éi við norður- og austurströndina. Lfkiegá heldur vaxandi éljagangur á norðausturiandi síðdegis. Tatsvert frost um mest- alit iand, einkum í innsveitum norðan- og vestantil á landinu. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðaustanátt, víðast kaldi eð stinningskaldi. Snjókoma eða slydda suðaustan- og austanlands, en að mestu úrkomu- laust annars staðar. Frost 2 til 3 stig. HORFUR Á LAUGARDAG: Aiihvöss eða hvöss norðaustanátt vestan- lands, en mun hægari austan- og suðaustanátt annars staðar. Á Norð- ur- og Vesturlandi verða él, en sfydda austanlands. Annars staðar verð- ur úrkomutítið. Hiti um eða rétt undir frostmarki. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.4$, 12.45, 16.30, 19.30, 99. 30. Svarsími VaAiirsfnfn islanrifi V»fliirfrggnir- SSnfinn.________ o Heiðskírt r r r r r r r r Rigning Léttskýjað Hálfskýjað * r * * r r * r Slydda * * * * * Snjókoma Alskýjað * V Skúrir Slydduél Él Skýjað v v Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig y súid ra Þoka FÆRÐA VEGUM: m.nmi^ Það er yfirleitt góð vetrarfærð á þjóðvegum landsins. Þó eru einstaka heiðar ófærar, t.d. Dyniandis- og Hrafnseyrarheiðar á Vestfjörðum og Klettháls er þungfær. Á Norðuriandi er Lágheiði ófær og Hellisheiði eystri á Austfjörðum. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftiriiti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. » *» tmp > 1 VEÐUR VÍÐA UM HEIM ki 12.001 'gær að ísl. tfma hitl veður Akureyri +6 skýjað Reykjavík *8 léttskýjað Bergen 1 snjóélásíð.kls. Helsinki 1 rigning Kaupmsnnahöfn 4 léttskýjað Narssarssuaq +18 léttskýjað Nuuk *11 heiðskírt Osló +1 léttskýjað Stokkhólmur 4 rigning Þórshöfn 3 snjóélásíð.klst. Algarve 16 heiðskírt Amsterdam 4 rigningogsútd Barcelona 14 hálfskýjað Berlín 4 skýjað Chicago *1 skýjað Feneyjar 6 þokumóða Frankfurt 4 rigning Glasgow vantar Hamborg 4 skýjað London 12 rigning og súld LosAngeles 9 þokumóða Lúxemborg vantar Madrid 5 þokumóða Malaga 17 léttskýjað Mallorca 17 skýjað Montreal +1 alskýjað NewYork 8 alskýjað Orlando 11 hálfskýjað Parfs 12 skýjað Madeira 16 skýjað Rom 18 iéttskýjað Vín 4 léttskýjað Washington 3 mistur Winnipeg +16 ísnálar Morgunblaðið/Sverrir HARALDUR Sveinsson framkvæmdasfjóri Árvakurs hf. afhendir Ellert B. Schram forseta ÍSÍ ljósmyndagjðf frá Morgunblaðinu. Milli þeirra er Markús Örn Antonsson borgarstjóri. ISI færðir tugir ljósmynda að gjöf MORGUNBLAÐIÐ annars vegar og Reykjavíkurborg hins vegar færðu Iþróttasambandi íslands (ÍSI) í gær að gjöf tugi Ijósmynda úr iþróttalífi hðfuðborgarinnar. Elstu ljósmyndirnar eru teknar á framanverðri öldinni en þær nýjustu eru aðeins ársgamlar og skýra þær frá íþróttaviðburðum á þessum tíma. Þær voru settar upp og hafðar til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur í fyrra- haust í tengslum við Iþróttaþing sem haldið var þar en íþróttahreyfingin varð fyrst fjöldasamtaka í lahdinu til þess að halda fund í Ráðhúsinu. Myndirnar afhentu Haraldur Sveinsson, framkvæmdastjóri Ár- vakurs útgáfufélags Morgunblaðs- ins, og Markús Örn Antonsson borg- arstjóri við athöfn í Höfða í gær. Við þeim tók Ellert B. Schram for- seti ISÍ. Gat Ellert þess er hann tók við myndunum að þær myndu prýða veggi íþróttamiðstöðvar ISÍ í Laug- ardal í Reykjavík. .- Morgunblaðið/Sverrir Ólympíuverðlaun GÍSLI Halldórssön formaður Ólympíunefndar íslands (t.v.) afhendir Markúsi Erni Antonssyni verðlaunagripinn. Ólympíustytta afhent ÓLYMPÍUNEFND íslands afhenti í gær borgarstjóranum í Reykja- vík, Markúsi Erni Antonssyni, viðurkenningu fyrir frágang og um- hverfi íþróttamannvirkja. Var sérstakur gripur sem Alþjóðaólympíu- nefndin gaf af þessu tilefni afhentur við athöfn í Höfða. Gísli Halldórsson formaður Ólympíunefndar afhenti Markúsi Erni viðurkenninguna. I ræðu gat Gísli þess að Alþjóðaólympíunefndin hefði gefið verðlaunagrip sem veita skyldi fyrirgóðan frágang umhverfis íþróttamannvirki. Sagði harin að Olympíunefnd íslands hefði einróma ákveðið að veita Reykjavíkurborg viðurkenninguna. Flugleiðir taka að sér rekstur á Boeing 757 SAMNINGAR um að Plugleiðir hf. taki að sér rekstur á Boeing 757- vél fyrir japanskt fjármögnunarfyrirtæki eru nú á lokastigi og verða undirritaðir í þessari viku. Er reiknað með að vélin komi hingað til lands á morgun eða í síðasta lagi eftir helgina. í samningnum er gert ráð fyrir að Flugleiðir leigi vélina þegar og ef verkefni finnast. Félagið mun nota vélina í fáeinar ferðir í áætlanaflugi sínu fyrir jólin en þreifingar hafa verið varðandi leiguverkefni fyrir vélina í Evrópu. Viðræður hafa átt sér stað um að Boeing-vélin verði notuð í flug frá Þýskalandi til eyja í Karíbahafinu og Mið-Austurlanda en of snemmt að spá fyrir um hvort samningar nást. Samningurinn um umsjón með rekstri vélarinnar er gerður tii sex mánaða með möguleika á framleng- ingu en Flugleiðir greiða aðeins leigu fyrir notkun á vélinni. Verður reynt að leigja vélina með áhöfn í þau verk- efni sem kunna að fást. Þá munu Flugleiðir gera tilboð í stóra skoðun á japönsku vélinni sem á að fara fram á næsta ári og ríkir bjartsýni um að félagið fái þannig stórt verk- efni fyrir viðhaldsstöðina í Keflavík.