Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						14

MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993

Sigurbjörn Jónsson: Panoramablús.

Sigurbjörn Jónsson

Listhönnun

Eiríkur Þorláksson

Ungt listafólk sækir misjafn-

lega fljótt inn á vettvang mynd-

listarinnar eftir að námi er lokið.

Flestir fá sér önnur störf til að

eiga fyrir salti í grautinn, og

stunda myndlistina aðeins í stop-

ulum frístundum; sýningarhald

dregst að sama skapi, og getur

liðið langur tími milli sýninga.

Nokkrir verða þó til þess að hella

sér út í listsköpunina af fullum

krafti sem aðalstarf, og sýna af-

raksturinn með myndarlegum

hætti, þannig að viðkomandi

verða fljótlega þekktir meðal list-

unnenda sem meðlimir upprenn-

andi kynslóðar myndlistarfólks.

Sigurbjöm Jónsson listmálari

tilheyrir síðarnefnda hópnum.

Eftir að hafa lokið námi við Mynd-

lista- og handíðaskóla íslands fór

hann til framhaldsnáms í New

York, og þar hélt hann sína fyrstu

einkasýningu 1988, en fyrsta sýn-

ing hans hér heima var haldin í

listasalnum Nýhöfn árið 1990;

hann hefur haldið sýningar árlega

síðan, og nú hefur verið opnuð

sýning á tæplega þrjátíu málverk-

um hans í Gallerí Borg við Póst-

hússtræti, en þau eru öll unnin á

þessu ári.

Áður hefur verið bent á að verk

Sigurbjörns bera nokkurn keim

af kynnum hans af myndlist Lou-

isu Matthíasdóttur og Leland Bell,

einkum hvað varðar meðhöndlun

litanna, en myndefni Sigurbjörns

eru nokkuð önnur. Að þessu sinni

eru mest áberandi myndefni sem

tengjast m.a. jassheiminum, þ.e.

myndir af hjóðfæraleikurum á

sviði. Önnur myndefni og gjörólík

tengjast munúðarfullri veröld

austurlenskra . kvennabúra eða

laxveiðimönnum á íslandi, og með

þeim kemur í ljós, að vinnulag

Sigurbjörns getur hentað ólíkum

viðfangsefnum jafnvel.

Uppbygging verkanna er oft

þannig að í forgrunni, sem liggur

ef til vill skáhallt inn í myndina,

eru heitir litir, en síðan lokast

myndin- áð baki persónanna með

heilum litfleti, - svo efninu er

þréngt fram í rýminu. Myndirnar

eru misstórar, þannig að þessi

„þrengsli" eru ekki ætíð áber-

andi, en í sumum tilvikum eiga

þau mestan þátt í að skapa það

jafnvægi, semmyndin byggirupp,

eins ogt.d. sést í „Panoramablús"

(nr. 2), þar sem hin lárétta áhersla

skapar afar sterka myndbygg-

ingu.

Það sem einkennir myndir Sig-

urbjörn <jo%u fremur er þannig

tilfinning hans fyrir litum og rými

í fletinum, en þessi atriði ráða

mestu um útkomuna hverju sinni.

Sigurbjörn vinnur með grófum

pensilförum, og byggir litinn upp

méð þunnum lögum; ólíkir litir

skapa fjölbreytta dýpt í fletinum,

eins og sést vel ef borin eru sam-

an verk" eins og „Miðnæturblús"

(nr. 4), „Take five" (nr. 7) og

„Loksins" (nr. 11), þar sem mynd-

unum er hverri fyrir sig lokað

með einum lit, sem er þó samsetn-

ing fjölmargra tóna við nánari

athugun.

Fígúrur myndanna eru aðeins

mótaðar með fáeinum pensildrátt-

um hverju sinni, og eru því frem-

um einn þáttur af mörgum í

myndskipun listamannsins en

meginviðfangsefnið. Engu að síð-

ur er þetta kveikja sem hentar

listamanninum vei við listsköpun-

ina, en það sést einna best þegar

skoðuð éru önnur verk sýníngar-

innar. Þar verður liturinn nokkru

flatari, og nær ekki upp sama

krafti og kemur fram við þær

andstæður, sem sjást t.d. í „Blá-

tónn" (nr. 4). Einna best gengur

efnið þó upp í „Viltu bera?" (nr.

15), þar sem hin lausmótaða fíg-

úra skapar gott mótvægi í fletin-

um.

Sigurbjörn hefur um nokkurt

skeið unnið út frá þeim mynd-

vaka, sem hljómlistarmenn eru.

Efnið hentar listamanninum vel;

honum tekst einna best upp með

litinn þegar myndefnið er þröngt

og afmarkað. Hins vegar er engin

ástæða til að efast um að vinnu-

brögð hans geta einnig skilað

góðum árangri í glímunni við önn-

ur viðfangsefni, og þær tilraunir

sem getur að líta hér eru væntan-

lega aðeins fyrstu skrefin á þeirri

braut.

Sýning Sigurbjörns Jónssonar

í Gallerí Borg við Pósthússtræti

stendurtil fimmtudagsins 16. des^

ember.

Leikfélag Norð-

fjarðar endurvakið

Neskaupstað.

LEIKFÉLAG Norðfjarðar sýndi

nýlega leikritið Blessað barnalán

eftir Kjartan Ragnarsson undir

leikstjórn Jóns Júlíussonar.

Leikfélagið var endurvakið nú í

ár en undanfarin sex ár hefur það

ekki sett upp neina sýningu. Fjórar

sýningar voru á leikritinu og komu

á sjötta hundrað áhorfendur á þær,

eða nálægt 30% íbúa hér. Sýningar

þóttu takast mjög vel en leikararn-

ir voru allir kornungt fólk sem lítið

sem ekkert hefur komið nálægt

leiklist áður.

Formaður Leikfélags Norðfjarð-

ar er Lilja Sólný Gunnlaugsdóttir.

- Agúst.

Morgunblaðið/Ágúst Blöndal

Frá einni sýningu á leikverkinu Blessað barnalán sem Leikféíag

Norðfjarðar sýndi.

Búkolla sýnir Stútungasögu

NÚ eru hafnar æfingar á Stút-

ungasögu hjá Leikfélaginu Bú-

kollu í S-Þingeyjarsýslu. Það er

Orn Ingi Gíslason frá Akureyri

sem leikstýrir verkinu. Alls taka

um 27 leikarar þátt í sýning-

unni, auk hljómsveitar.

Stútungasaga er „léttgeggjaður"

gamanleikur með fornu ívafi. Sýn-

ingin kitlaði hláturtaugar þeirra

sem lögðu leið sína í Tjarnarbíó sl.

vetur, en þá setti Hugleikur verkið

á svið undir stjórn Sigrúnar Val-

bergsdóttur.

Það voru félagar úr Hugleik, sem

sömdu Stútungasögu, þau Hjördís

Hjartardóttir, Ármann Guðmunds-

son, Þorgeir Tryggvason og Sævar

Sigurgeirsson.

Sýningar verða í Félagsheimilinu

Ýdölum í Aðaldal, en þar er aðsetur

Búkollu. Frumsýning er áætluð

þann 15. jánúar 1994.

Leikhópurinn Búkolla, aðstandendur Stútungasögu.

MENNING/LISTIR

Myndlist

Samsýning

Ómars og Arnar

Samsýning þeirra Ómars Stefáns-

sonar og Arnar Ingólfssonar verður

opnuð í dag, fimmtudag, á Kaffi Sautj-

án á Laugavegi 91.

í fréttatilkynningu segir: Ómar út-

skrifaðist úr Nýlistadeild MHÍ 1981

og seinna úr málaradeild HDK í Vest-

ur-Be'rlín sálugu 1986. Ómar hefur

haldið nokkrar einkasýningar auk

fjölda samsýninga og verða málverk

til sýnis eftir hann. Örn Ingólfsson

hefur verið starfandi listiðnaðarmaður

síðastliðna tvo áratugi og vinnur aðal-

lega í leður og sýnir hann verk unnin

úr leðri og ýmsum öðrum efnum. Þetta

er sölusýning og stendur hún til 9.

janúar 1994.

Ingunn og Kjartan

sýna á Hvolsvelli

Nú stendur yfír málverka- og hús-

gagnasýning í Bólstrun Kjartans á

Hvolsvelli. Það er Ingunn Jensdóttir

sem sýnir 30 vatnslita- og olíumyndir

en Kjartan Einarsson bólstrari, sem

er eigandi Bólstrunar Kjartans, sýnir

húsgögn sem hann hefur smíðað. Sýn-

ingin er í nýju húsnæði bólstrunarinnar

við Ormsvöíl og mun standa fram að

jólum.

- SÓK

Gunnar J. Guðjónsson

sýnir í Grensásbæ

Gunnar J. Guðjónsson sýnir nú mál-

verk í Grensásbæ, Grensásvegi 12 í

Reykjavík.

A sýningunni eru  20 olíumálverk

Ein mynda Gunnars á sýning-

unni í Grensásbæ. Hér er mynd-

efnið Nigel Kenndy, fiðluleik-

arinn breski.

sem sýna m.a. Iandslag frá Snæfells-

nesi, Hellnum og Arnarstapa.

Sýningin er opin frá kl. 19.30 til 21

mánudaga til fimmtudaga. Föstudaga

Ömar Stefánsson og Örn Ing-

ólfsson.

og laugardaga er opið frá kl. 9 að

morgni til kl. 3 að nóttu. Lokað er á

sunnudögum. Sýningin stendur út des-

embermánuð.

Leiklist

Týnda teskeiðin

á Suðurlandi

Leikfélag Þorlákshafnar frumsýndi

á heimaslóðum um síðustu helgi gam-

anleikinn Týndu teskeiðina eftir Kjart-

an Ragnarsson í leiksjótn Signýjar

Pálsdóttur. Um þessa helgi verður far-

in leikferð um Suðurland og verða

sýningar í Þingborg í dag fimmtudag,

Gunnarshólma föstudag og Leikskál-

um í Vík í Mýrdal á laugardag. Sýning-

ar á leikferð hefjast kl. 21.

Um 30 manns hafa unnið að undir-

búningi þessarar sýningar undafarið

en leikarar eru þau Sigríður Garðars-

dóttir, Stefán Pétursson, Gunnuar

Hafsteinsdóttir, Jón Ingi Jónsson, Elín

Jónasdóttir, Vignir Arnarson, Jóhanna

Sveihsdóttir, Gunnar Sigurðsson, Sæv-

ar Geirsson og Hlynur Hilmarsson.

Leikstjórinn, Signý Pálsdóttir ber

jafnframt ábyrgð á útliti leikmyndar

en Ijósahönnuður er Benedikt Þór Ax-

elsson. Formaður Leikfélags Þorláks-

hafnar er nú Jón Ingi Jónsson.

Tónlist

Jólahátíð í

Bústaðakirkju

Söngsmiðjan heldur jólahátíð í Bú-

staðakirkju í dag fimmtudaginn 9.

desember kl. 20. Þar koma fram byrj-

endur og framhaldshópar Söngsmjðj-

unnar. Dagskráin er fjölbreytt, m.a.:

íslensk jólalög, Jólakantata eftri D.

Buxtehude, negrasálmar og jólarokk.

Aðgangur er ókeypis.

Þá munu söngleikjahópar Söng-

smiðjunnar halda sýningu í Tjarnarbíói

laugardaginn 11. desember kl. 16 og

þriðjudaginn 14. desember kl. 20.30.

Þar verður sungið, leikið og dansað.

Miðaverð er 500 krónur.

Nýjar bækur

¦   I flokknum Skemmtilegar til-

raunir koma nú út tvær bækur.

Önnur um tilraunir til að kanna

breytingar á eiginleikum efna við

mismunandi hitastig og hin um ein-

faldar tilraunir með ræktun. í bók-

unum eru hugmyndir að fjölmörgum

viðfangsefnum og eru allar leiðbein-

ingar skýrðar með Ijósmyndum.

Bækurnar eru ætlaðar sex til tíu ára

börnum. Hildur Hermóðsdóttir þýddi.

Utgefandi er Mál og menning.

Hvor bók er 30 bls. og kostar 875

krónur.

¦   Helnauð, bók um afreksverk og

hetjudáðir sjómanna og björgun-

armanna, er komin út. Höfundur er

Eiríkur S. Eiríksson. í bókinni eru

níu þættir um einstæða hrakninga,

sem íslenskir sjómenn hafa lent í,

og um frækileg björgunarafrek við

Island þar sem björgunarmenn lögðu

líf sitt í sölurnar til þess að koma

nauðstöddum mönnum til hjálpar.

Útgefandi er Fróði. Bókin Hel-

nauð er prentunnin hjá G.Ben.

prentstofu hf. Kápuhönnun ann-

aðist Hugverkasmiðjan, Helgi Sig-

urðsson. Verð bókarinnar er 2.980

krónur.

¦   Út er komin bókin Ævintýri

af Eyrinni eftir Sigrúnu Birnu

Birnisdóttur.

Ævmtýri af Eyrinni er stutt skáld-

saga. í henni er að sögn höfundar

velt upp spurningunni: Hvað gerist

þegar ævintýri verða í raunveruleik-

anum? Þegar ung stúlka sest að á

æskustöðvum sínum á Eyrinni verður

veruleikinn að draumi eða draumur-

inn að veruleika.

Bókin er 42 blaðsíður unnin hjá

Odda. Hún er gefin út af höfundi

og kostar 1.254 krónur.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68