Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						16

MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993

F

Sinfóníutónleikar

Hornleikari frá Vín

Opið hús verður í Borgarleikhúsinu laugardaginn 11. desember.

Opið hús verður í

Borgarleikhúsinu

LEIKFELAG Reykjavíkur býður

til sín gestum laugardaginn 11.

desember kl. 14.00-17.00.

Leikarar úr Ronju ræningjadóttur

ganga um Kringlu og Borgarkringlu

og syngja síðan nokkur lög í forsal

Borgarleikhússins. Sýningin um

Ronju hefur nú verið í fullum gangi

í nær heilt ár og er ekkert lát á

aðsókn. Ætlun Leikfélags Reykjavík-

ur er að halda sýningum áfram á

nýju ári.

Á stóra sviðinu verður opin æfing

á Evu Lunu, nýju leikriti með söngv-

um eftir Kjartan Ragnarsson og

Óskar Jónasson sem byggt er á

skáldsögu Isabel Allende. Söngva og

tónlist semur Egill Ólafsson' en

dansahöfundur er Michaela von Ge-

gerfeld. Mikill fjöldi leikara og hljóð-

færaleikara tekur þátt í sýningunni

og gefst gestum á opnu húsi tæki-

færi tii að sjá fyrstir allra kafla úr

sýningunni tæpum mánuði fyrir

frumsýningu sem verður þann 7. jan-

úar.

Þá verður hægt að líta inn á Litla

sviðið og fylgjast með leikstjóra og

leikurum æfa atriði úr Elínu Helenu

eftir Árna Ibsen, sem sýnd hefur

verið fyrir fullu húsi í allt haust.

Leikarar úr Spanskflugunni, hinu

sívinsæla gamanleikriti þeirra Arn-

olds og Bach, skemmta gestum með

söng í forsalnum.

Tveir fastráðnir leikarar Leikfé-

lagsins, Guðmundur Ólafsson og Jón

Hjartarson, lesa úr nýútkomnum

bamabókum sínum, Emil og Skundi,

Ævintýri hjá afa og Snoðhausar.

Boðið er upp á skoðanaferðir um

leikhúsið og staldrað við í æfingasal

þar sem tveir af ástsælustu gaman-

leikurum landsins, Bessi Bjarnason

og Árni Tryggvason, æfa leikritið

Gleðigjafa eftir Neil Simon undir

stjórn Gísla Rúnars Jónssonar. Þessi

gamanleikur segir frá samvinnu

tveggja aldinna skemmtikrafta sem

ætla að Ijúka ferli sínum með stuttu

atriði í sjónvarpi, en Gísli Rúnar hef-

ur staðfært leikinn. Gleðigjafar verða

frumsýndir í byrjun mars.

KK-bandið mætir á staðinn kl.

16.00 og skemmtir gestum til kl.

17.00.

TONLEIKAR Sinfóníuhtjóm-

sveitar íslands í Háskólabíói á

morgnn, fimmtudagskvöldið 9.

desember kl. 20. Stjórnandi Petri

Sakari. Efnisskrá: L. van. Beet-

hoven: Egmont forl. Franz Liszt:

Forleikirnir. Richard Strauss:

Hetjulíf.

Á þessum tónleikum teflir SÍ

fram tæplega 100 manna hljóm-

sveit. Meðal annarra gestahljóð-

færaleikara fyllir flokk hornleikara

SÍ fyrsti hornleikari Vínarfíl-

harmóníunnar.

Þessir tónleikar tilheyra GULRI

áskriftarröð þar sem aðaláhersla

er lögð á stór hljómsveitarverk og

má með sanni segja að þeirri reglu

sé fylgt á þessum tónleikum.

Fyrst á efnisskrá er forleikur að

„Egmont", leikriti Goethes. Síðan

leikur hljómsveitin tónaljóðið Les

Preludes (Forleikirnir) eftir Franz

Liszt. Les Preludes er verk sem

lýsir mannlegum tilfinningum svo

sem ást, angist, von og þrá. Eftir

hlé verður flutt Heldenleben (Hetju-

líf) eftir Richard Strauss. Þetta er

frumflutningur verksins hér á landi

enda krefst tónvetkið stórrar hljóm-

sveitar. Tónverkið hefur einu sinni

verið flutt áður hér á landi en það

var á Listahátíð 1972 þegar sænska

útvarpshljómvseitin lék hér undir

stjórn Sixten Erling.

Heldenleben er síðasta tónaljóð

Strauss og fjallar það um hann

sjálfan. Þótti sumum það gagnrýn-

isvert að hann semdi slíkt verk um

sjálfan sig en Strauss svaraði: „Ég


Petri Sakari á æfingu með Sin-

fóníuhyómsveit Islands.

sé ekki hvers vegna ég ætti ekki

að skrifa sinfóníu um sjálfan mig;

ég er ekki síður merkilegur en

Napóleon eða Alexander mikli."

Hljómsveitarstjóri er Petri Sakari

núverandi aðalgestastjórnandi Sin-

fóníuhljómsveitarinnar.

•

I

Nýjar bækur

Saga Hauks Morthens

UT ER kömin bókin Til eru fræ.

Undirtitill bókarinnar er: Hauk-

ur Morthens - saga söngvara og

séntilmanns. Bókin er eftir Jón-

as Jónasson, rithöfund og út-

varpsmann.

í kynningu útgefanda segir:

„Eins og titill bókarinnar ber með

sér fjallar bókin um Hauk Morth-

ens, sem var einn ástsælasti söngv-

ari sem Islendingar hafa átt. Með

söng sínum og framkomu, sem

jafnan einkenndist af hógværð og

lítillæti, eignaðist Haukur sam-

hljóm í þjóðarsál íslendinga og

snerti strengi í brjóstum fólks, fékk

það til að hrífast, brosa og jafnvel

fella tár.

Þegar Jónas Jónasson hófst

handa við að skrifa sögu Hauks

Morthens var Haukur orðinn hel-

sjúkur af krabbameini og hann

lé'st þegar vinnsla bókarinnar var

í miðjum klíðum. En Ragnheiður

Magnúsdóttir, eiginkona Hauks,

og fjölmargir vinir hans hlupu í

skarðið og fylltu upp í þá mynd

sem bókin bregður upp af Hauki

sem söngvara og persónu."

Útgefandi er Fróði. Til eru

fræ er 180 bls. Bókin er prent-

unnin hjá G. Ben. Prentstofu hf.

Kápuhönnun    annaðist    Hug-

•

Haukur Morthens.

verkasmiðjan, Helgi Sigurðsson.

Verð bókarinnar er kr. 2.980

krónur.

Lvkill að Hótel Örl

í boði eru © mismunandi lyklar

SÆLU

HELG

SPARI

1 iióu (2 ílagar)

alla daga vikunitar

kr. 11.000,- fyrir tvo.

2 nælur (3 dagar)

iíáuðrivlku ;

kr. 17.800,-fyrirtvo.

2 iiætur (5 dagar)

liistud. tíl suiimnl.

kr. 21.800,- fyrirtvo.

4 nætiir (5 dagar)

ímlðri viku

kr. 29.800,- fyrir tvo.

Imiif'alió í lyklum: Gisting, morgunverður af

hlaðborði og þríréttaður veislukvöldverður auk

aðgangs að öllum þægindum hótelsins svo sem

jarðgufubaði, útisundlaug, heitum pottum,

þrekæfingasal, tennisvelli, m'u holu golfvelli o.fl.

Eiimig stcndur til boða ýmis sérþjónusta svo

sem snyrti- og hárgreiðslustofa, nuddstofa,

hestaleiga, bflaleiga, stangveiði og margt fleira.

Giafaiyklarnir eru til sölu í Jólagjafaliúsi okkar í

Kringlunni, Borgarkringlunni eða í síma 98-34700

og þú færð lykilinn sendan hcún.

Sendum í póstkröfu. Visa • Euro raðgreiðslur

Gjafalyklarnir gilda attt árið 1994

nömöx

Skíðagallar

frákr:4.900

Skíðapakkar íöllum stærðum

frá kr. 12.900.-

ELAN skíði - ALPINA skíðaskór

GEZE öryggisbindingar - ELAN stafir

Tilboð

m/pökkum

Skíðapokasett:

Skíðapoki

og skíðataska

kr. 3.500,-

Gönguskíða-

pakki frá kr.

13.900,-

TOKUM NOTAÐAN

SKÍÐABUNAÐ

UPP í NÝJAN

SPOST

Wmi. EIGANI    .

ÚTIVISTARBÚÐIN s

við Umferðarmiðstöðina,

símarl 9800 og 13072.

•

I

i

V

f

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68