MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 23 koti. Hvers eiga börnin að gjalda? Þegar málið er skoðað virðist sem sumir vitringanna líti fram hjá þeirri staðreynd að á Borgarspítal- anum eru meðhöndluð 18-20 þús- und börn á hverju ári. Mörg þess- ara barna eru mjög illa haldin eða bráðveik. Það er líkast til einsdæmi að á sjúkrahúsi þar sem 20 þúsund börn eru meðhöndluð á ári skuli ekki vera barnadeild. Þessa stað- reynd er vart hægt að skýra með öðru en því áhugaleysi sem virðist ríkja á högum barna og unglinga hér á landi. í mínum huga er það engin spurning að ef við ætlum að hafa velferð barnanna að leiðarljósi þá á að flytja barnadeildina á Landakoti á Borgarspítala. Félag íslenskra barnalækna skoðaði þetta mál fyrir nokkrum árum og komst að þeirri sjálfsögðu niðurstöðu að barnadeild ætti að vera á Borgar- spítala. Á meðan starfandi eru tvö stór sjúkrahús í Reykjavík, þ.e. Borgarspítali og Landspítali, og á Borgarspítala eru meðhöndluð 20 þúsund börn á ári, er óhjákvæmi- legt að þar sé rekin Öflug barna- deild. Ef ekki þá erum við að hugsa um eitthvað annað en velferð barna okkar. Lokaorð Þegar ég reyni að setja mig í spor barnsins og velti fyrir mér spurningunum þremur verður mér svarafátt. Ég tel það óviðunandi að barnaslys skuli vera helmingi algengari hér en í Svíþjóð. Ég tel það óviðunandi að áverkar eftir of- beldi skuli vera allt að þrisvar sinn- um algengari hér en í Noregi og að börn og unglingar verði fyrir ofbeldi eins og raun ber vitni. Jafn- framt tel ég það vera óafsakanlegt að menn skuli vera að rífast um hvert eigi að flytja barnadeildina á Landakoti þegar staðreyndir eru hafðar í huga. Við verðum að búa betur í haginn fyrir börnin. Höfundur eryfirlæknir á slysa- og bæklunardeild Borgarspítalans. *?'"J'' 0 ¦¦'mzÁ Stem \>r (6 STALDURS HAMBORGARI ^f NýBakað hatnborgarabrauð. a/ íslenskur úrvalsostur. a/ Fyrsta flokks íslenskt nautakföti /}\//PN ¦ *J!« ^ að stinga ískóinn AE)K\IKlGUR nanda Peim yn9$tu\ w Og verðið: ^^ ^ kr. - að sjálfsögðu PEPSl meðl (UNl). !5S Staldföðu \4ð ! beita færðu fivergi nema í. Bártbítííírfti! Stekkjarbakka 2, Reykjavfk Þú færð mikið fyrir lítið hjá okkur Úrval af búsáhöldum og gjafavörum á ótrúlegu verði. Verðdæmi: 18 glös í pk. kr. 910,- Eldföst form kr. 650,- Ávaxtasett kr. 690,- 12 manna matar- og kaffistell kr. 7.320,- Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12-19. Laugardaga kl. 10-17 og sunnudaga kl. 13-17. BÚSÁHALDAMARKAÐURMN, SMIÐJUVEGI30, rauð gata, kópavogi.