Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						26

MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993

Sveigjanlegur vinnutími

ákveðinn hjá Akureyrarbæ

Er í samræmi við ákvæði í jafnréttisáætlun sem hefur verið samþykkt í bæjarstjórn

SVEIGJANLEGUR vinnutími verður tekin upp á skrifstofu

Akureyrarbæjar og Hitaveitu Akureyrar nú í desembermán-

uði, en fyrirhugað er að fleiri starfsmönnum bæjarins gefist

kostur á sveigjanlegum vinnutíma eftir áramótin. Þetta er í

samræmi við ákvæði í jafnréttisáætlun Akureyrarbæjar.

é?*r<sferæ.

Morgunblaðið/Rúnar Þór

Jólatré frá Randers sett

upp á Ráðhústorgi

LJÓS verða kveikt á jólatrénu frá Randers, vinabæ Akureyrar í Dan-

mörku, við athöfn á Ráðhústorgi á laugardag. Starfsmenn umhverfis-

deildar bæjarins komu trénu fyrir á torginu í gær. Athöfnin hefst, kl.

16 með ávörpum Halldórs Jónssonar bæjarstjóra, Hreins Pálssonar

formanns Norræna félagsins og Sigurðar Jóhannessonar konsúls Dana

á Akureyri. Eftir að ljós hafa verið kveikt á trénu syngur Kór Akur-

eyrarkirkju jólalög og jólasveinar koma í heimsókn. Nokkru áður en

þessi athöfn hefst leikur Lúðrasveit Akureyrar nokkur lög.

Ný jafnréttisáætlun Akureyrar-

bæjar hefur verið samþykkt í

bæjarstjórn Akureyrar og í þeirri

áætlun er gert ráð fyrir að allir

starfsmenn bæjarins skuli eiga

kost á sveigjanlegum vinnutíma,

hlutastarfi eða annarri hagræð-

ingu vinnutíma þar sem því verður

við komið.

Einnig er í áætluninni gert ráð

fyrir að bæði konur og karlar geti

minnkað við sig vinnu tímabundið

til að sinna fjölskylduábyrgð. Litið

er svo á að starfsfólk eigi þannig

rétt á einhverri vinnuhagræðingu

til að samræma fjölskylduábyrgð

og ábyrgð í starfi, nema gild rök

séu fyrir öðru. Með auknu atvinnu-

leysi er hægt að áætla að slík hag-

ræðing geti verið liður í að veita

fleirum atvinnu.

Hægt af stað

Valgarður Baldvinsson bæjarritari

sagði að fyrst í stað yrði starfs-

fólki á skrifstofum Akureyrarbæj-

ar við Geislagötu og hjá Hitaveitu

Akureyrar boðið upp á sveigjanleg-

an vinnutíma. „Við förum hægt

af stað, fólk hefur ekki vanist

þessu, en við gerum ráð fyrir að

Lúsíuhátíð

Karlakórsins

ÁRLEG Lúsíuhátíð Karlakórs

Akureyrar-Geysis verður hald-

in um helgina í kirkjunum á

Akureyri.

Hin fyrri verður í Glerárkirkju

föstudagskvöldið 10. desember og

hefst það kl. 20.30 og sú síðari

verður á sama tíma í Akureyrar-

kirkju laugardagkvöldið 11. des-

ember.

Lúsía verður Anna Guðrún Jó-

hannesdóttir, einsöngvari Þorgeir

J. Andrésson, stjórnandi Roar

Kvam og undirleikari Richard

Simm. Barnakór Lundarskóla

syngur nokkur lög undir stjórn

Elínborgar Loftsdóttur.

(Fréttatilkynning.)

þetta verði komið í fast horf eftir

áramótin," sagði Valgarður.

Með sveigjanlegum vinnutíma á

áðurnefndum vinnustöðum gefst

starfsfólki kostur á að velja hvenær

það hefur störf, eða á tímabilinu

frá kl. 7.30 að morgni og fram til

kl. 9. „Það skila allir umsömdum

vinnutíma, en það þurfa ekki allir

að byrja og hætta á sama tíma,

þannig hafa sumir starfsmennirnir

lokið vinnudeginum kl. 15 á dag-

inn," sagði Valgarður. „En það er

gert ráð fyrir að flestir starfsmenn-

irnir verði hér til staðar á almenn-

um afgreiðslutíma." Hann sagði

að síðar væri hugsanlegt að sveigja

vinnutímann enn meira til eftir því

hver reýnslan yrði.

Ungir gítar-

leikarar með

tónleika

FJÓRIR gitarleikarar og vin-

ir verða með tónleika í kvöld,

fimmtudag, 9 desember, kl.

20.30 í Deiglunni.

Lýður Ólafsson, Elma Dröfn

Jónasdóttir, Sölvi Antonsson,

Tryggvi Már Gunnarsson gítar-

leikarar og Rut Ingólfsdóttir,

fiðla, Sigríður Rut Franzdóttir,

þverflauta, og Elma Atladóttir,

söngur, standa fyrir tónleikun-

um.

Á síðustu jólum var flutt ein-

göngu nútímatónlist, nú verður

tekið fyrir klassískátímabil gít-

arsins, en öll verkin eru sér-'

staklega samin fyrir gítar. Það

eru verk frá 1750 til 1850,

m.a. eftir N. Paganini, Fern-

ando Sor, M. Guiliani, M. Carc-

asse og marga fleiri.

Allir eru velkomnir.

<Fréttatilkynning.)

Morgunblaðið/Rúnar Þór

Jólahlaðhorð í Lindinni

LINDIN í Leirunesti býður upp á jólahlaðborð að dönskum hætti fram

til jóla. Viðbrögð viðskiptavina hafa verið góð og nokkrir hópar hafa

þegar komið og reynt hina ýmsu rétti sem á boðstólum eru að sögn

Hauks Hannessonar matreiðslumanns sem umsjón hefur með jólahlað-

borðinu. Þar kennir margra grasa og má nefna síld, graflax, fiskikæfu,

nýja medisterpylsu á brúnkáli, ribbensteik, byonesskjnku, eplaflesk og

að sjálfsögðu jólagraut. Á myndinni er starfsfólk Lindarinnar við jólahlað-

borðið.

Námskeið og tónleikar

norskra listamanna hér

NORSKU listamennirnir Einar Steen-Nokleberg píanóleikari og

óperusöngkonan Ingrid Bjöner halda námskeið og tónleika á

vegum Tónlistarskólans í Reykjavík laugardaginn og sunnudaginn

11. og 12. desember. Námskeið þessi og tónleikar eru Iiður í list-

viðburðum hins svokallaða Grieg-árs en 15. júní sl. voru 150 ár

liðin frá fæðingu Edvards Griegs. Af því tilefni stofnaði norska

ríkið svokallaðan Grieg-afmælissjóð og styrkir hann námskeið

þessi og tónleika.

Ingrid Bjoner stundaði söngnám

við Tónlistarháskólann í Ósló en

síðar framhaldsnám við Tónlistar-

háskólann í Frankfurt am Main.

Hún hélt sína fyrstu tónleika í

Ósló 1952. Árið 1961 var Ingrid

Bjoner fastráðin við Ríkisóperuna

í Miinchen og sama ár kom hún

fyrst fram í Metropolitan-óperunni

í New York, þar sem hún hefur

árum saman komið fram í mörgum

stórhlutverkum. Frú Bjoner hefur

komið fram í mörgum óperuhúsum

heims eins og La Scala í Míianó,

Covent Garden í London, ríkisóper-

unni í Vín, ríkisóperunni í Ham-

borg, Þýsku óperunni í Berlín,

Parísaróperunni, óperuhúsunurri í

Aþenu, Buenos Aires og á óperuhá-

tíðunum í Salzburg og Bayreuth.

Einar Steen-Nekleberg er einn

af fremstu píanóleikurum Noregs,

en hann hefur komið fram víða

um heim og leikið inn á 20 hljóm-

plötur. Meðal annarra verðlauna

og viðurkenninga sem hann hefur

hlotið má nefna Norsku píanó-

keppnina 1972, verðlaun norskra

gagnrýnenda fyrir besta tónlistar-

flutning 1975 (Píanókonsert Gri-

egs á Tónlistarhátíðinni í Bergen),

viðurkenningu fyrir bestu norsku

hljómplötuna 1976, Lindeman-

verðlaunin 1984 og auk þess Gri-

eg-verðlaunin 1985 og '92.

Árin 1975 til 1981 var Einar

Steen-Nekleberg prófessor í píanó-

leik við Ríkistónlistarháskólann í

Hannover, en hann var þá yngsti

starfandi prófessor í Þýskalandi.

Námskeið ' Einars Steen-Nokle-

bergs verður haldið í sal Tónlistar-

skólans í Reykjavík, Skipholti 33,

laugardaginn 11. desember kl.

11-13 og 14-17 og sunnudaginn

12. desember kl. 11-13. Námskeið

Ingrid Bjoner verður haldið í sal

Tónlistarskólans     í     Reykjavík,

Iogrid Bjoner

Laugavegi 178 á 4. hæð (STEKK)

sömu daga og á sama tíma. Að-

gangur að námskeiðum þessum er

ókeypis. Áheyrn er heimil öllum

kennurum og lengra komnum

nemendum tónlistarskóla.

•   Á sunnudagskvöldið 12,-desem-

Einar Steen-Nakleberg

ber halda Ingrid og Einar tónleika

í Norræna húsinu kl. 20.30. Á

efnisskrá tónleikanna eru ein-

göngu verk eftir Edvard Grieg.

Ingrid Bjoner syngur sönglög, en

Einar Steen leikur 17 „Slátter" op.

72.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68