Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						28

MORGUNBLAÐIÐ PAGLEGT  LÍF   FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1093

jólahlaðborð eru

á nær öllum veitingahúsum

ÞRÓUN jólahlaðborða á íslandi hefur verið frekar ör, en

þann sið að snæða af hlaðborði í desember, má rekja til

Dana, þjóðarinnar sem stundum er sögð hugsa með magan-

um. Skráðar heimildir um jólahlaðborð á Islandi eru ekki

auðfundnar en líklegt er að Bjarni í Brauðbæ hafi riðið á

vaðið fyrir hartnær 15 árum.

„Á þessum tíma voru viðskipta-

vinir í hádeginu flestir kaupsýslu-

menn og á föstudögum vorum við

með hlaðborð. Þegar líða tók að

jólum ákváðum við að breyta til

fyrir fastagestina og settum á borð

ýmsa rétti sem tíðkuðust á dönskum

jólahlaðborðum. Á næstu árum,

uppúr 1980 þróaðist matseðillinn

og fleiri réttir bættust við," segir

Bjarni Árnason veitingamaður, bet-

ur þekktur sem Bjarni í Brauðbæ.

Hann segir að í desember í fyrra

hafi um 4.000 manns borðað af

jólahlaðborðum á Hótel Óðinsvé.

Fyrstu árin var jólahlaðborð að-

eins í hádeginu síðustu viku fyrir

jól. Bjarna minnir að 1984 eða 1985

hafi fyrst verið lagt á jólahlaðborð

að kvöldi.

Smám saman fjölgaði jólahlað-

borðum á reykvískum veitingahús-

um enda voru auraráð landsmanna

með skásta móti á 9. áratugnum.

Langflestir veitingastaðir leggja á

jólahlaðborð í desember og sumir

jafnvel fyrr. Meira að segja eru jóla-

hlaðborð eða tilboð á sumum asísku

veitingastaðanna þó ekki minni

réttirnir á þann mat sem reiddur

er fram uppúr hádegi á jóladag á

dönskum heimilum.

Skrúður

Áherslur í matseðli eru misjafnar

georgcs

SKIÐASOKKAR

á börn og fullorðna

Verð frá kr. 520-890

Útsölustaðir

Versl. Rafsjá, Bolungarvík

Sporthlaðan, Isafírði

Siglósport, Siglufírði

Skíðaþj. Viðars, Akureyri

jj      Versl. Sún, Neskaupstað

'            K-Sport, Kefíavík

GLÆSIBÆ. SÍMI 812922

eftir stöðum og einnig fjöldi þeirra

rétta sem í boði eru. I Skrúði á

Hótel Sögu eru til dæmis margvís-

legar steikur í boði auk fjölda smá-

rétta. Einnig hefur staðurinn flutt

sérstaklega inn „vínsyrpu" frá

Bordaux í Frakklandi. Vínin heita

Montesquieu og eru sögð henta ólík-

um réttum.

Meðal rétta á hlaðborði Skrúðs

má nefna síldarrétti, hreindýrapate,

svínasultu, reyksoðinn lunda, jóla-

skinku, svínasíðu með puru og

hangikjöt. Verð í hádegi er 1.590

kr. en á kvöldin 2.300 krónur.

Fjörukráin

í Fjörukránni í Hafnarfirði er

lögð áhersla á jólastemmningu,

enda sjá gömlu góðu jólasveinarnir

um framreiðslu. Boðið er upp á jóla-

hlaðborð á föstudögum og laugar-

dögum. Tónlistarmenn leggja einn-

ig sitt af mörkum til að auka jóla-

stemmninguna meðal gesta.

Verð í hádeginu er 1.650 kr. en

á kvöldin 2.350.

Jónatan mávur

Á Jónatan Livingston mávi byrja

menn gjarnan á að fá sér snaps

með graflaxi, rauðrófusíld, krydd-

leginni gæs, sviðasultu eða öðrum

köldum réttum. Meðal heitra rétta

má nefna fyllta rifjasteik og reykt-

an grísahnakka.

Verð í hádeginu er 1.700 krónur

en á kvöldin 2.400 krónur. Hægt

er að sitja við kertaljós í koníaks-

stofunni, borða piparkökur og skola

þeim niður með jólaglöggi fyrir 250

krónur.

Hótel Lind

Verð á jólahlaðborði Hótel Lindar

er í lægri kantinum, 1.590 krónur

hvort sem snætt er í hádegi eða á

kvöldin. Meðal rétta á hlaðborðinu

má nefna krabbasúpu, lifrarpate,

reyksoðinn lunda, hangikjöt og hrá-

an skelfisk.

Gaukur á Stöng

Danskra áhrifa gætir á Gauknum

þessa dagana, en þar er boðið upp

á jólahlaðborð um helgar. 15 Réttir

eru á borðum og er verðið með því

lægra sem sést, eða 1.490 krónur.

Meðal rétta eru andapate, síldar-

réttir, svínasulta og laxafrauð. Eft-

ir mat bjóða Gauksmenn uppá jóla-

púns og eplaskífur eða piparkökur

fyrir 420 krónur.

Skólabrú

„Þetta er hið rómaða hlaðborð

Skúla   Hansen,"   segja

menn   á     Hlaðborðið á Skrúði á Hótel Sögu

Morgunblaðið/Þorkell

Morgunblaðið/Sverrir

í Skíðaskálanum í Hveradölum gefst mönnum færi á að bregða sér

í heitan pott milli rétta

Skólabrú um jólahlaðborð-

ið þar á bæ. Meðal rétta

má telja villibráðarpate,

grísasultu, reykta nauta-

tungu, sænska jólaskinku,

kalkún og hangikjöt. Af

eftirréttum er til dæmis

hægt að segja frá fimm

tegundum af ostatertum

og hinum hefðbundna ris a

la rnande.

í hádeginu kostar 1.695

krónur að snæða af jólhal-

aðborðinu á Skólabrú og á

kvöldin 2.395 krónur.

Cafe' Ópera

íslenskir    og    erlendir

listamenn   flytja   gestum

Cafe'  Óperu tónlist fram

að jólum.  Á  staðnum  er

lögð áhersla á lifandi and-

rúmsloft   og   persónulega

þjónustu að sögn talsmanna veit-

ingahússins. Meðal rétta á jólahlað-

borðum Cafe' Óperu eru síldarréttir

ýmiskonar,    hangikjöt,    kalkúna-

bringur,  innbakaðir nautabögglar

og villibráð. Vérð í hádegi er 1.450

krónur en á kvöldin 1.950. Glas af

glögg er innifalið.

Naustið

Ragnar Bjarnason syngur jólalög

Morgunblaðið/Árni Sæberg

í Fjörukránni í Hafnarfirði ganga jóla-

sveinar um beina

á Naustinu í desember, fyrir matar-

gesti sem geta valið úr 52 réttum

af hlaðborði. Meðal þeirra eru síld-

arréttir,   hreindýraterrin,   reyktur

lundi, reykt og grafið naut, reykt

svín og gæsalæri. í hádeginu er

verðið 1.850 kr. og á kvöldin 2.490

krónur.

Búmannsklukkan

Á   Búmannsklukkunni   eru   fimm

Bjarni Árnason bauð fyrst upp

á jólahlaðborð í Brauðbæ fyrir

um 15 árum

síldarréttir á hlaðborðinu og sem

dæmi um aðra rétti má nefna reykt-

an ál, hangikjöt, reykta skinku og

lifrarkæfu. Verð í hádegi er 1.190

kr. og 1.890 krónur á kvöldin, en

þá er sjúss af Jöklakrapi innifalinn.

Hótel Örk

Hótel Örk hefur útbúið dagskrá

fyrir hópa sem í eru a.m.k. 20

manns. Þá kostar 2.900 krónur á

mann að snæða af jólahlaðborði,

taka þátt í dansleik og brágða á

jólaglöggi, auk þess sem hótelið

annast akstur frá Reykjavík og til

baka að loknum dansleik. Gestir

hafa frían aðgang að sundlaugarað-

stöðu hótelsins, þ.m.t. gufubaði og

líkamsræktarsal.    "'

Ekki er eiginlegt jólahíaðborð í

Kínahúsinu, en þar er boðið upp á

þríréttaða máltíð og súpu fyrir 595

krónur í hádeginu og djúpsteiktar

rækjur og súpa kosta 495 krónur.

5-rétta máltíð með súpu og kaffi

kostar 1.325 krónur í hádegi og á

kvöldin.                                        ¦

BT

Kennir fólki að búa

til jólagjafir úr íslenskri ull

GARN-OG efnisafgangar verða að listaverkum í höndum Dóru Sigfús-

dóttur. Hún vefur, heklar, prjónar og saumar alls kyns nytja-og skraut-

íiiuni og á næstunni hyggst hún miðla af þekkingu sinni sem leiðbein-

andi á stuttum námskeiðum í vefnaði, hekli og prjónaskap.

Dóra hefur s.l. ár leiðbeint eldri

borgurum í handavinnu, en auk þess

hannar hún fatnað. Hún segist hafa

dálæti á íslensku ullinni. Ekki er

langt síðan hún kenndi handavinnu

úr íslenskri ull á námskeiði sem var

á Hvanneyri í tengslum við samnorr-

æna menningarviku.

Þau námskeið sem Dóra stendur

fyrir núna verða í versluninni Ála-

foss við Vesturgötu. „Verslunin

leggur til vefstóla en þátttakendur

þurfa að kaupa garn í verkefni sín

og fá 10% afslátt af því," segir Dóra.

Hún gerir ráð fyrir því að halda tvö

námskeið fyrir jól og byrjar hið fyrra

Morgunblaðið/Sverrir

Dóra Sigfúsdóttirj „Þetta er svo einfalt að það getur hver sem er

gert þetta"

á morgun, föstudag. Síðari hluti

kennslunnar er á laugardag og um

næstu helgi ver;ður sami háttur hafð-

ur á. Þátttökugjald er 2.500 krónur.

„Vefstólarnir sem við notum eru

mjög einfaldir og hentugir. Þeir eru

til í tveimur stærðum og er önnur

heppilegri í fínleg veggteppi og hin

í grófari vinnu. Ungar stúlkur geta

auðveldlega unnið 4 þessa stóla þó

þær hafi litla sem enga reynslu af

handavinnu. Þetta er svo einfalt að

það getur hver sem er gert þetta,"

segir Dóra og vefur af fingrum fram

í orðsins fyllstu merkingu.           ¦

BT

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68