MORGÚNBLA'ÐÍS FIÉMTÚDÁGUR 9. DESEMBEft >Wé Sameiginlegar friðar- gæslusveitir hers og ANC í burðarliðnum Jóhannesarborg, Höfðaborg, London. Reuter. VOPNAÐAR sveitir Afríska þjóðarráðsins, ANC, lýstu því í gær yfir að skammt væri að bíða samkomulags við suður-afríska herinn um sameiginlega sljórn herafla þeirra. Munu fyrrum skæruliðar, lögreglumenn, Hðsmenn hers heimalandanna og varnarliðsins mynda friðargæslusveitir en verkefni þeirra verður að koma á friði á svæð- um svartra. F. W. de Klerk, forseti Suður-Afríku sagðist í gær myndu sjá til þess að mótspyrna hægrimanna við valdaafsali hvítra yrði brotin á bak aftur. Siphiwe Nyanda, yfirmaður vopnaðra sveita ANC sagði í gær að þær hefðu ekkert á móti því að vera stjórnað. Sveitirnar vildu ekki að litið væri á þær sem hóp manna sem æddi um í stjórnleysi og skyti fólk. Sagði Nyanda að fyrstu sveit- ir ANC myndu að öllum líkindum koma á svæði heraflans væntanlega í janúar en slík svæði verða sett upp víðs vegar um landið. Bandaríkin Leynd aflétt afkjarnorku- tilraunum Washúijrton. Reuter. BANDARÍKJASTJÓRN lét gera alls 204 leynilegar kjarnorku- sprengingar á tilraunastöð í Nevada á síðustu þremur áratug- um. Nemur magnið um fimmt- ungi allra tilraunasprenginga landsins. Hazel O'Leary, orku- málaráðherra sagði í viðtali á NBC-sjónvarpsstöðinni að aðal- ástæða þess að sprengingarnar voru leynilegar þá að Banda- ríkjamenn vildu ekki að Sovét- menn hefðu upplýsingar um kjarnorkuvopn þeirra. O'Leary hélt í fyrradag fund með fréttamönnum þar sem hún upp- lýsti um fjoldamörg Ieyndarmál í tengslum við kjarnorku. Hvatti hún önnur lönd til að gera slíkt hið sama. O'Leary hefur lofað að leynd verði aflétt af upplýsingum um tilraunir sem gerðar voru á fimmta og sjötta áratugnum á áhrifum plútóníums á menn. Alls tóku um 800 manns þátt í þeim. Kvað O'Leary það áhyggjuefni hversu greiðlega hefði gengið að fá samþykki fyrir tilraun- unum. Bandaríkjamenn höfðu áður við- urkennt alls 721 tilraunaspreng- ingu í Nevada. Flestar leynilegu sprenginganna voru á sjöunda og áttunda áratugnum, að sögn NBC, 17 á þeim níunda og síðasta spreng- ingin var árið 1990. Alls gerðu Bandaríkjamenn 1.051 tilrauna- sprenginu, þar á meðal í Atlants- hafí og Kyrrahafí. Samkvæmt upplýsingum orku- málaráðuneytisins eru yfir 30 tonn af plútoníumi til vopnaframleiðslu væru nú geymd í Washington-ríki, Idaho, Colorado, Nýju Mexíkó og Suður-Karólínu. Stofnun friðargæslusveitanna er mikilvægur þáttur í undirbúningi kosninganna sem fram fara 27. apríl n.k. en þá kjósa svartir fyrsta sinni. Er sameining mannafla og og vopn þessara fyrrum óvina við- kvæmt málefni og sigldu samningar í strand fyrir nokkrum mánuðum. De Klerk, sem kom við í Lundún- um á leið sinni til Óslóar þar sem hann tekur við friðarverðlaunum Nóbels á morgun, sagði að von væri á andspyrnu hægrimanna í Suður-Afríku en yfirvöld yrðu að takast á við það. Þeim sem brytu lögin^ yrði refsað í samræmi við það. í London hitti De Klerk Elísa- betu Bretlandsdrottningu en það var í fyrsta skipti sem leiðtogi Suð- ur-Afríku hittir drottningu Sam- veldisins frá því að landið sagði sig úr því 1961. Hægri öfgamenn sem hernámu fornfrægt Búavirki í fyrradag til að mótmæla stofnun Framkvæmd- aráðsins nýja, TEC, gáfust upp í gær eftir sólarhrings umsátur. Munaðarvara auglýst GOMUL kona gengur framhjá auglýsingaskilti í miðborg Moskvu. Aldrað fólk í Rússlandi fær yfirleitt um 40.000 rúblur á mánuði í ellilífeyri og það nægir fyrir átta dósum af kaffi eins og því sem auglýst er á skiltinu. Þýskaland Dæmdir fyrir íkveikju og morð Schleswig. Reuter. TVEIR ungir Þjóðverjar voru í gær fundnir sekir um að hafa valdið dauða þriggja Tyrkja á síðasta ári með íkveikju. Voru þeir -báðir dæmdir til þyngstu refsingar sem lög leyfðu. Michael Peters, 26 ára, var dæmdur í lífstíðarfangelsi en Lars Christiansen, 20 ára, í tíu ára fangelsi. Réttarhöldin stóðu alls í sex mánuði en mennirnir voru sakaðir um að hafa kveikt í tveimur húsum í bænum Mölln, skammt frá Ham- borg, í nóvember í fyrra. Eldri kona og tvær ungar telpur létu lífíð í brunanum. Hinir ákærðu höfðu í upphafi játað sök sína en síðan dregið játn- ingarnar til baka. Dómararnir fimm voru hins vegar alveg sann- færðir um sekt þeirra en ákæru- valdið byggði málflutning sinn að verulegu leyti á vitnisburði átta ára gamallar stúlku, sem varð vitni að íkveikjunni. Grígoríj Javlínskíj gagnrýnir stjórn og forseta Rússlands harðlega Nýtt þing setji n&ja stjórn- arskrá innan tveggia ára Moskvu. Reuter, The Ðaily Telegraph. HAGFRÆÐINGURINN Grígoríj Javlínskíj, leiðtogi eins af um- bótaflokkunum sem bjóða fram í þingkosningunum í Rússlandi á sunnudag, gagnrýndi í gær efnahagsstefnu stjórnarinnar og sagði að óðaverðbólga væri óhjákvæmileg næstu þrjú árin. Hann sagði ennfremur að verði drög Borísar Jeltsíns Rússlands- forseta að nýrri stjórnarskrá samþykkt yrði hún aðeins til bráða- birgða. Forgangsverkefni nýs þings yrði að setja nýja stjórnar- skrá innan tveggja ára. Flokkur Javlínskíjs, sem kallaður er Jabloko" (Epli), er að öllum lík- indum næststærsti flokkur Rúss- lands, en flokkur Jegors Gajdars, Valkostur Rússlands, er talinn stærstur. Javlínskíj sagði að mikill munur væri á efnahagsstefnu sinni og Gajdars. Vandamálið er að eng- ar raunverulegar breytingar hafa orðið á efnahag okkar. Einokunin er enn við lýði, samkeppni hefur ekki skapast, einkafyrirtæki eru ekki enn orðin ráðandi afl í atvinnu- lífínu," sagði hann. Ríkið hefur hætt afskiptum af efnahagnum en látið einokunarfyrirtækin um verð- myndunina." Javlínskíj gagnrýndi áform Gajd- ars um að draga úr verðbólgunni í áföngum, en hún er nú rúmlega 20% á mánuði. Gajdar er alltaf að lofa 5-10% verðbólgu. En ég segi að það verði ógjörningur næstu þrjú árin." Javlínskíj sagði að flokkur sinn gæti gert sér vonir um 15-20% at- kvæða í þingkosningunum. Hann sagði að forgangsverkefni nýs þings yrði að setja lögmæta stjórnarskrá" Fráfall Houphouet-Boignys forseta á Fílabeinsströndinni Arftakinn festir sig í sessi Aljidjan. Reuter. ALLT virtist með kyrrum kjörum á Fílabeinsströndinni í gær en for- seti þess frá lýðveldisstofnun 1960, Felix Houphouet-Boigny, lést úr krabbameini í fyrradag. Forseti þingsins og eftirmaður hins látna forseta samkvæmt sljórnarskránni, Henri Konan Bedie, hefur þegar hafið viðræður um stjórnarmyndun en hann kom fram í sjónvarpi strax í fyrrakvöld og lýsti yfir því að hann hefði tekið sér forsetavald. Deilur hafa verið milli þjóðabrota Baoule-maður frá miðhluta iandsins um völdin í landinu og Alassene Quattara forsætisráðherra reyndi i fyrstu að koma í veg fyrir valdatöku Bedie en sú tilraun virðist hafa mis- tekist. Andstæðingar Bedie töldu að hann gæti ekki tekið við völdum strax þar sem hæstiréttur væri ekki fullskipaður. Bedie er eins og fyrirrennarinn en Quattara frá norðurhlutanum þar sem mönnum fínnst Baoule-menn sitja yfír hlut annarra landsmanna. Fílabeinsströndin er fyrrverandi frönsk nýlenda og Frakkar lýstu þegar yfír stuðningi við Bedie. íbúar Fílabeinsstrandarinnar eru um 12 milljónir. Bedie var fjármála- ráðherra á áttunda áratugnum en þá voru efnahagslegar framfarir miklar, landið varð mesti kakó- útflytjandi í heimi og opinberar framkvæmdir voru einhverjar hinar mestu í Vestur-Afríku. Síðar seig á ógæfuhliðina vegna fallandi afurða- verðs, einnig lét Houphouet-Boigny reisa einhverja stærstu kirkju heims í fæðingarþorpi sínu. Erlendar skuldir eru nær 20 milljarðar Banda- ríkjadollara, glæpir og atvinnuleysi hrjá landið og verkföll hafa verið tíð vegna þess að ríkið getur stundum ekki greitt starfsmönnum sínum laun. og kosningalöggjöf svo h'ægt yrði að efna til nýrra kosninga á öllum stjórnsýslustigunum, til sveitar- stjórna, héraðsstjórna, landsþings, og einnig forsetakosninga. Javlínskíj hefur ekki farið leynt með að hann hyggst bjóða sig fram í næstu forsetakosningum og á und- anförnum vikum hefur hann gagn- rýnt Jeltsín og varað við hættu á einræði. Hann sagði að reglur þing- kosninganna hefðu verið settar af valdboðsstjórn sem hugsar aðeins um að styrkja stöðu sína". Jeltsín tvöfaldaði í vikunni kaup hinna lægstlaunuðu í landinu og er hækkunin talin greinileg tilraun for- setans til að auka eigin vinsældir og þeirra frambjóðenda sem styðja hann í kosningunum. Fáir þurfa að draga fram lífið á lágmarkslaunum, en þau eru notuð til viðmiðunar er ellilífeyrir og aðrar félagslegar greiðslur eru reiknaðar út. Lág- markslaunin hækkuðu í 14.620 rúbl- ur, um 860 krónur íslenskar á mán- uði. Meðalmánaðarlaun eru um 5.000 kr. Zhírínovskí í sókn Nýfasistinn og þjóðrembumaður- inn Vladímír Volfovítsj Zhírínovskí er talinn hafa styrkt nokkuð stöðu sína í kosningabaráttunni, er jafnvel talinn geta fengið 10% atkvæða. Hann heitir því m.a. á kosningafund- um að endureisa gamla Rússaveldið með því að leggja gömlu sovétlýð- veldin og Finnland á ný undir Rúss- iand og laga efnahaginn með því að selja vopn um allan heim. Hann seg- ir ennfremur að Rússar ættu að iðr- ast þess að hafa ekki gert nokkrar milljónir Þjóðverja að þrælum sínum eftir síðari heimsstyrjöld. Hylli Zhírínovskís meðal þjóðern- issinna er merkileg fyrir þá sök að faðir hans var gyðingur. Er sonurinn stofnaði Frjálslynda lýðræðisflokk- inn árið 1990 töldu margir að sov- éska leynilögreglan KGB stæði á bak við Zhírínovskí en ekki er Ijóst hvert markmiðið var. Þótt hann gagnrýni margt í stefnu Jeltsíns studdi hann forsetann í baráttunni við þingið og hvetur kjósendur til að samþykkja stjórnarskrána. Ýmsir heimildar- menn benda á að Zírínovskí dreifi kröftum afturhaldssinna með fram- boði sínu, ekki síst kommúnista- flokksins sem er vel skipulagður. Aðrir benda á að nái Zhírínovskí kjöri og afturhaldsmenn verði öflug- ir á nýja þinginu geti Jeltsín síðar notfært sér ábyrgðarleysi og ofstæk- isyfírlýsingar Zhírínovskís sem af- sökun fyrir því að leysa þingið upp og stjórna með tilskipunum. Órói í lýðveldunum Skrifstofustjóri Jeltsíns forseta, Sergej Fílatov, sagði í gær að leið- togar þriggja rússneskra lýðvelda, Tatarstans, Tuva og Bashkortost- ans, væru að grafa undan einingu Rússlands og það ylli hermönnum innanríkisráðuneytisins í lýðveldun- um miklum áhyggjum. Ákveðið yrði á næstunni hvernig bregðast ætti við því. Jeltsín fór í gær í þriggja daga heimsókn til Brussel til viðræðna um nýjan viðskiptasamnmg við Evrópu- bandalagið. Áður hafði hann ferðast um Kákasushéruð Rússlands og lát- ið undan kröfum margra héraðsleið- toga þar um að efla landamæra- vörsiu við uppreisnarhéraðið Tsjetsjeníu. Leiðtogar Tsjetsjena, sem er múslimaþjóð, lýstu yfír sjálf- stæði fyrir tveim árum. Á fundi með Jeltsín lýstu héraðsleiðtogarnir yfir stuðningi við stjórnarskrárdrög for- setans, að sögn blaðafulltrúa hans. I drögunum er sleppt öllum skírskot- unum til sjálfstjórnar" 21 héraðs og lýðveldis í Rússlandi.