Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER1993

33

Reuter

Árs vera íSómalíu

BANDARÍSKUR hermaður fylgir sómalskri konu í gegnum eftirlitsstöð í suðurhluta Mogadishu. Ár er nú

liðið frá því að bandarískar hersveitir komu til Sómalíu.

Olíuverð heldur

áfram að lækka

Luiirion. Reuter.

VERÐ á olíu hélt áfram að lækka á mörkuðum í gær í kjölfar

þess að samtök olíuframleiðsluríkja, OPEC, sögðust ekki hafa

neina kraftaverkalausn á reiðum höndum til að takmarka fram-

leiðslu.

Verð á tunnu féll niður í 13,27

dollara í London og er það lægsta

verð sem skráð hefur verið frá því

árið 1988. Fyrir ári var verðið á

tunnu í kringum 20 dollara. Er olíu-

verð að raungildi nú svipað og það

var fyrir olíukreppuna miklu árið

1973.

Ástæðan fyrir þessu mikla verð-

falli er fyrst og fremst lítil eftir-

spurn vegna hins slæma efnahags-

ástands í heiminum og að OPEC-

ríkjunum hefur ekki tekist að draga

úr framleiðslu. Abdullah al-Attiyah,

forseti OPEC, sagði í gær að nú

væri komið að olíuframleiðsluríkjum

utan samtakanna að draga úr út-

flutningi til að koma í veg fyrir verð-

fall.

OPEC-ríkin hafa aldrei þessu vant

haldið sig við framleiðslukvóta sína

en ríki utan samtakanna, tii dæmis

Bandaríkin, hafa stóraukið fram-

leiðslu sína á olíu að undanförnu.

Hins vegar skýrði Alþjóða orkumála-

stofnunin (IEA) í París frá þvi í gær

að það hefði lækkað mat sitt á al-

þjóðlegri olíuneyslu um 100 þúsund

tunnur á dag vegna efnahagserfið-

leika í Japan.

Enn eru framin fjölda-

Margaret Thatcher yfirheyrð vegna sölu á búnaði til íraks  mOrð í Baildaríkjimillll

Reglur um bannið

ekki „eiginleg lög"

London. Reuter.

MARGARET Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands,

sagði við yfirheyrslur í gær vegna rannsóknar á hergagnasölu

til íraks, að reglur, sem bönnuðu hana, hefðu ekki verið „lög í

eiginlegri merkingu". Þetta er í fyrsta sinn í breskri sögu, að

f orsætisráðherra eða fyrrverandi f orsætisráðherra er yfirheyrð-

ur í opinberri rannsókn af þessu tagi.

Thatcher sagði, að reglurnar,

sem settar hefðu verið 1985, hefðu

aðeins verið til leiðbeiningar fyrir

opinbera embættismenn meðan

stríðið stóð milli íraka og írana

en ekki til að fara eftir við eðlileg-

ar aðstæður. „Það var ætlast til,

að embættismenn færu eftir þeim

en þær voru ekki eiginleg lög,"

sagði Thatcher.

Rannsóknarnefndinni leikur

hugur á að vita hvort Thatcher

hafi sagt þinginu ósatt þegar hún

fullyrti 1989, að sala á búnaði, sem

unnt er að nota til hergagnafram-

leiðslu, til Saddams Husseins færi

eftir ströngum reglum, sem settar

hefðu verið 1985. John Major for-

sætisráðherra skipaði rannsóknar-

nefndina eftir að þrír breskir kaup-

sýslumenn, sem störfuðu fyrir

íraskt fyrirtæki, voru sýknaðir

fyrir ári af ákæru um að hafa

brotið lög um útflutning á búnaði

til hergagnaframleiðslu.

Neitaði að svara

Thatcher var í miklum ham við

yfirheyrslurnar í gær en unga

konan, sem spurði hana spjörunum

úr, þykir eiga auðvelt með að koma

fólki úr jafnvægi. Hún spurði til

dæmis Thatcher mikið að því hvers

vegna ráðherrar í ríkisstjórn henn-

ar hefðu í raun sett reglurnar

1984 en ekki tilkynnt þær þinginu

fyrr en ári síðar. Því vildi Thatc-

her ekki svara. Hún vildi heldur

ekki svara spurningum um inni-

hald þúsunda skjala, sem gengu á

milli ráðherra í ríkisstjórn hennar

á síðasta áratug, og sagði, að hefði

hún reynt að kynna sér efni hvers

einasta skjals, hefði hún aldrei

gert neitt annað.

Rannsóknarnefndin   er   einnig

að kanna útvegun ýmissa hluta í

svokallaða „risabyssu" í írak

skömmu fyrir innrás íraka í Kú-

veit 1990 og hún hefur þegar kom-

ist að því, að eftir íran-írak-stríð-

ið var túlkun fyrrnefndra reglna

breytt þannig, að gerður var grein-

armunur á banvænum búnaði og

öðrum. Thatcher heldur því hins

vegar fram, að hún hafi aldrei

verið látin vita af þeirri breytingu.

Þá hefur Eric Beston, háttsettur

embættismaður í viðskipta- og iðn-

aðarráðuneytinu, borið, að Thatc-

her hafi séð upplýsingar frá bresku

leyniþjónustunni þar sem komið

hafi fram, að bresk fyrirtæki hafi

verið viðriðin tilraunir íraka til að

smíða kjarnorkusprengju.

Karl ætlar sér að

verða konungur

Lundúnum. Reuter.

KARL Bretaprins kunngerði í gær að hann væri staðráðinn í að

verða konungur og myndi ekki láta misheppnað hjónaband og frétt-

ir um meintan hórdóm svipta sig bresku krúnunni.

Karl heimilaði aðstoðarmönnum

sínum og breskum ráðherra að

skýra frá þessu. „Krúnuna ekki

Camillu; Karl hefur valið á milli

þeirra," sagði í fyrirsögn The Daily

Mirror, sem hélt því fram að Karl

hefði ákveðið að fórna langvarandi

ástarsambandi sínu við Camillu

Parker Bowles, sem er gift breskum

herforingja.

Nánum vini prinsins, Nicholas

Soames matvælaráðherra, var falið

að koma afstöðu Karls til skila í

fjölmiðlum, sem höfðu verið með

miklar vangaveltur um hvort frá-

skildum krónprinsi væri stætt á því

að taka við konungdómi.

„Það að verða konungur er ekki

spurning um metnað - það er

skylda," sagði Soames, sem er fyrr-

verandi yfirhestavörður konungs-

fjölskyldunnar. „Það er ekki eins

og að vakna einn morguninn og

segjast ætla að verða lestastjóri.

Þannig gengur það einfaldlega ekki

fyrir sig."

Deilt er um hvort það sé siðferði-

lega rétt að fráskilinn prins og

meintur hórdómsmaður verði æðsti

maður ensku biskupakirkjunnar,

sem leggur áherslu á helgi hjóna-

bandsins. „Ef fráskilinn prins - eða

það sem verra er: fráskilinn og tví-

kvæntur prins - yrði konungur

myndu margir af þeim prestum,

sem hafa hefðina í heiðri, eiga afar

erfitt með að sverja hollustu við

þjóðhöfðingjann," sagði George

Austin, erkidjákni af Jórvík, í grein

sem birt var í The Times.

Alal

Pajero dísil Turbo '87, háþekja, 8

sœti, upph. álf. Skipti. V. kr. 1.250 þ.

Patrol dísil '91, ek. 14 þ. km. V. kr.

2.750 þ. Skipti á nýjum Landcruser

eða Explorer. Stgr.

Feroza EL-2 '89. V. kr. 950 þ. Sk. á

Blazer '85 til '86.

Ford Econoline '91, XLT Cluþ Wago-

on 4x4, ek. 55 þ. km., 7.3 d., 11

sæti, dekk 35", álf. M/öllu.

V. kr. 2,9 m.

Toyota Landcruiser'90 L, ek. 55

þ. km., 35" dekk, álf., loftlæs. o.fl.

Skipti. V. kr. 2,4 m.

Lada Sport '88, grænn, ek. 55 þ.

km., ný dekk. V. kr. 265 þ.

Peugeot 405 GR '92, nýr þíll, ek. 1

þ. km., sk. ód. (nýr kr. 1,7 m.).

V. kr. 1.350 þ.

Toyota Corolla GLI '93, 1600, ek. 8

þ. km., sjálfsk., liftþ., ABS o.fl.

V. kr. 1,4 m.

Lancer EXE '92, blár, 5 d., sjálfsk.,

ek. 27 þ. km., V. kr. 1,1 m.

Nissan Sunny SLX '92, ek. 33 þ.

km., 5 d., álf. V. kr. 1.050 þ.

Fólks-, sendi- og jeppabílar -

kr. 200-500 þ.

imm&^-

vlt tstjutn atla 6í4a

ViðerumáMIKLATORGI

fyrir neðan Perluna.

Stórt sölusvæði í miðborginni.

VANTAR SÖLUBÍLA STRAX.

Seljtim fjóra bíla á dag ídes-

ember. Símar 15014 og 17171.

Garden City. Reuter.

FJÓRIR létu lifið og 17 særðust þegar maður nokkur hóf að skjóta

á fólk í Iest á leið frá New York í fyrrakvöld.

Vitni segja, að maðurinn hafi

allt í einu tekið að skjóta á fólkið

með hálfsjálfvirkri byssu og end-

urhlaðið hana tvisvar en þegar

hann ætlaði að hlaða hana í þriðja

sinn tókst þremur farþeganna að

yfirbuga hann. Þá lágu fjórir ménn

í valnum og 17 særðir, þar af að

minnsta kosti einn alvarlega.

Þetta er í þriðja sinn á skömm-

um tíma, að menn gagna berserks-

gang með byssu og skjóta á fólk

af' handahófi og mun vafalaust

verða til að kynda enn frekar und-

ir umræðunni um hert eftirlit með

byssueign í Bandaríkjunum.

Morðinginn er blökkumaður og

að sögn lögreglunnar nefndi hann

þá ástæðu fyrir manndrápunum,

að hann hefði viljað hefna þess

misréttis, sem svertingjar i Banda-

ríkjunum væru beittir.

Gjöfin handa

henni!

Náttfatnaöur

valentino

Nýkomin sending af þýskum kvenbuxum,

3snið,4litir,st.36-46.

Einnig glæsilegt úrval af drögtum,

btússum,kjólum og töskum.

©SJ

Laugavegi 97 • Sími 17015

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68