MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 41 Höfundur bókar um Ayatollah Khomeini Erkiklerkurinn dæmdi Rushdie ekki til dauða KHOMEINI erkiklerk í Iran var ókunnugt um dauðadóm- inn sem kveðinn var upp yfir Salman Rushdie, höfundi bók- arinnar Söngvar satans" og hann hefði aldrei samþykkt þessa niðurstöðu. Þetta kemur fram í nýrri bók um Kho- meini, sem fyrrum sendimaður írana hefur unnið að undan- farin átta ár. Höfundur bókarinnar, Dr. Mir Montazam, segir í samtali við vikublaðið The European að Kho- meini hafi verið nánast meðvitund- arlaus er dauðadómurinn, fatwa, var til meðferðar hjá trúaryfirvöld- um í íran en forsendur hans voru þær að Salman Rushdie hefði gerst sekur um guðlast í bók sinni. Eng- inn núverandi ráðamanna í íran hefur hins vegar vald til að aftur- kalla dauðadóminn sem birtur var í nafni Khomeini. Andlegt og líkamlegt flak" í bókinni sem fjallar um líf og starf Ayatollah Khomeini heldur höfundurinn því fram að valda- sjúkum klerkum í Teheran hafi verið umhugað um að sýna fram á hollustu sína við bókstafinn þeg- ar ljóst varð að Khomeini myndi innan tíðar safnast til feðra sinna. Síðustu átta mánuði ævi sinnar hafi Khomeini verið andlegt og líkamlegt flak". Hugur hans hafi verið öldungis bundinn næsta til- verustigi og hann hafi ekki sýnt veraldlegum málum minnsta áhuga. Dauðadómurinn var birtur í fe- brúarmánuði 1989. Klerkar í Te- heran skipuðu stjórnendum ír- anska ríkisútvarpsins að skýra frá því að Khomeini hefði dæmt Rus- hdie til dauða. Frá því þetta gerð- ist hefur dómurinn verið túlkaður á þann veg að allir þeir sem standa að útgáfu bókarinnar erlendis skuli teljast réttdræpir líkt og dæmin sanna en nú síðast var útgefanda bókarinnar í Noregi sýnt banatilræði. Dauðvona erkiklerkur í NÝRRI bók um Khomeini er fullyrt að síðustu átta mánuði ævi sinnar hafi hann verið and- legt og Iíkamlegt flak". kveðst hafa heimildir fyrir því að fremstir í flokki hafi farið þeir Ali Akhbar Rafsanjani, sem þá var forseti þingsins, og Sayed Ali Khameini, sem gekk næstur Kho- meini að völdum. Khameini er nú trúarleiðtogi írana og segir höf- undur bókarinnar að metorðagirnd hans sé djöfulleg". Rafsanjani er nú forseti írans. Montazam segir að á meðal heimildamanna sinria sé Ayatollah Montazeri.sem var tengdur Kho- meini, náinn aðstoðarmaður hans og á meðal þriggja valdamestu klerkanna'í íran er dómurinn var upp kveðinn. Að sögn Montazeri vildu hvorki hann né næstráðendur hans lýsa yfir stuðningi við dóminn þar eð þeir vissu að Khomeini hafði hvergi komið þar nærri. Salman Rushdie sagði í viðtali við sjónvarpsmanninn David Frost að þessi skýring kynni að vera rétt. Alltjent væri vitað að dauða- dómurinn sem birtur var í nafni erkiklerksins væri ekki skjalfestur; plagg í þessa veru með undirskrift Khomeinis væri ekki til. Dr. Mir Montazam kveðst hafa unnið að bókinni í átta ár en hann var á sínum tíma hátt settur í ír- anska utanríkisráðuneytinu en starfaði síðan erlendis í Bonn og Lundúnum. HLAÐBORÐ í #H Á D E G I N U Freistandi forréttir. , HÁDEGISVEISLA ALI-grísakjót: Grísahryggur með puru, hamborgar- , #ANTANIR hryggurogsöltuð í SÍMA25700 ALLA ÐAGA FRAM TIL JÓLA svinasiða matreitt að hætti meistaranna. Eftirréttur. 1.395 kr. lHlllBHlHllW«ia.-.