i MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 45 LIFANDIOG KRÖFTUGT ORÐ eftir Sigurbjörn Þorkelsson I fjórða kafla fimmtu Mósebókar í Biblíunni getum við lesið: Þar munt þú leita Drottins Guðs þíns, og þú munt finna hann, ef þú leitar hans af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni. Þegar þú ert í nauðum staddur og allt þetta kemur yfir þig, þá munt þú á komandi tímum snúa þér til Drottins Guðs þíns og hlýða á hans röddu. Því að Drottinn Guð þinn er miskunnsamur Guð. Hann mun eigi yfirgefa þig né afmá þig og hann mun eigi gleyma sáttmál- anum er hann sór feðrum þínum." I náttborðsskúffunni var bók, sem hún kannaðist við Eitt sinn gaf kona sig á tal við mig, sem sagði mér eftirfarandi: Fyrir nokkrum árum var ég lögð inn á sjúkrahús vegna veikinda. Eg þurfti á sérstakri meðferð að halda. Eftir að hafa dvalið á sjúkrahúsinu , í nokkurn tíma tók ég eftir því að í náttborðsskúfunni minni var bók, sem ég kannaðist eitthvað við. Þetta var Nýja testamentið alveg eins og ég hafði fengið gefins frá Gídeonfé- laginu þegar ég var ung stúlka í skóla. Eg fór að lesa í Nýja testa- mentinu og ég man að ég las fyrst Jóhannesarguðspjall. í því voru orð sem styrktu mig mjög, orð sem ég þurfti á að halda einmitt á þeirri stundu. Eftir nokkra daga og frekari lest- ur í Nýja testamentinu fór ég að biðja til Guðs. Ég bað hann um að taka við mér, sem barni sínu. Ég ákvað að gefa Kristi bjarta mitt og líf. Upp frá þessari stundu hef ég reynt að lifa með honum og tek ég Sigurbjörn Þorkelsson. Ég get ekki annað en talað það sem ég hef séð og heyrt." nú virkan þátt í fjölbreyttu starfi míns safnaðar." Komið til mín Jesús tók svo til orða: Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld." (Matt. 11:28). Að lokum Ég get ekki annað en talað það sem ég hef séð og heyrt. Höfundur er framkvæmdasljórí Gídeonfélagsins á íslandi. Zé * * Hin sívinsælu KAWAI hljómborð frá kr. 7.900,- JÍAWAlí l!l»M,IJJH!liiy REYKJAVÍKUR Laugavegi 96 - Sími: 600935 PÖNTUNARSÍBI:M18S0 4