Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993

55

Guðbjartur Magna-

son - Minning

Þegar ég frétti að ég ætti ekki

oftar eftir að sjá vin minn Bjart í

þessu jarðlífi, birtust minningarn-

ar um samveru okkar svo skýrar

og ljóslifandi.

Kynni okkar hófust þegar Bjart-

ur og Þórey komu að austan og

hófu nám í Flensborg. Það fyrsta

sem ég hugsaði er ég sá þau var

að mikið hlyti að búa gott fólk í

Neskaupstað. Bjartur hafði mikla

persónutöfra, alltaf glaður og

hress og bjó yfir þeim dýrmætu

mannkostum að líka vel við allt

og alla. Það var alltaf gaman að

setjast niður og spjalla við Bjart,

oftar en ekki snerust umræðurnar

um knattspyrnu. Á því sviði sem

og fleirum stóð hann framarlega.

Gjarnan þegar mótherjar voru að

lýsa honum sem knattspyrnu-

manni var talað um þennan litla

dökkhærða, rosalega sprettharða.

Ég var alltaf feginn að þurfa ekki

að leika í vörn á móti honum því

að hann var svo fljótur og leikinn.

Hvers vegna svo góður drengur

í blóma lífsins er tekinn frá yndis-

legum lífsförunaut sínum og fjöl-

skyldu er með öllu óskiljanlegt.

En lífið heldur áfram og minning-

in um glaðværa strákinn að austan

mun lifa ofarlega í hugum þeirra

sem fengu að kynnast honum á

lífsleiðinni. Brosið, hláturinn og

lífsgleðin voru hans einkenni og

ég veit að hann vill að þannig lif-

um við hin áfram.

Elsku Þórey, ég votta þér inni-

lega samúð mína og vqna að Guð

styrki þig og styðji. Ég veit að

harmur þinn og fjölskyldunnar er

mikill.

Bjartur minn, megir þú hvíla í

friði.

Birgir Össurarson.

Minning

Hlöðver Hlöðversson,

Björgum, Köldukinn

Það var haustið 1987 að ég fór

austur á Hérað með nokkrum fé-

lögum til að ræða stöðu félagsins

„Samtaka um jafnrétti milli lands-

hluta" (síðar Útvörð) og framtíð

þess. Skuldir voru miklar og fram-

tíðin óviss. Því hittist nýkjörin

stjórn þarna um haustið til að ráða

ráðum sínum undir stjórn nýkjör-

ins formanns, Hlöðvers á Björgum.

Þarna hitti ég Hlöðver í fyrsta

sinn, og áttum við eftir að sýsla

margt saman á komandi árum.

Hlöðver vakti á ýmsan hátt eftir-

tekt mína á þessum fundi. Yfir

honum var ákveðin reisn og hann

hafði ákaflega fallegt og stundum

sérstakt tungutak.

Á þessum fundi okkar þarna

austur á Héraði í septemberbyrjun

1987 var ákveðið að hefjast handa

um að endurreisa fjárhag félagsins

og efla starfsemi þess. Þar var

Hlöðver fremstur í flokki. Hann

gekk ótrauður á fund forstjóra

stærstu fyrirtækja landsins og

óskaði eftir fjárstuðningi við starf-

semi félagsins. Hann lagði einarð-

lega fyrir þá röksemdafærslu um

nauðsyn þess að breyta stjórnskip-

un landsins til að efla landsbyggð-

ina og ná á þann veg betra og

nauðsynlegu jafnvægi í byggð

landsins. Það væri forsenda fyrir

því að hérlendis gæti þrifist traust

og farsælt þjóðfélag. Kjarnyrt

málfar og rökfesta hins þrekvaxna

þingeyska bónda var á þann veg

að sjaldan fór hann bónleiður til

búðar úr slíkri för, enda var fjár-

hagur félagsins réttur við á undra-

skömmum tíma. Undir forystu

Hlöðvers efldist starfsemi þess og

urðu áhrif þess veruleg í almennri

umræðu um byggðamál og þróun

þeirra mála almennt í þjóðfélag-

inu. Félagið kom á fót viðræðum

við hóp alþingismánna til að flytja

mál sitt. Einng var á þess vegum

unnið að samantekt á fyrirkomu-

lagi stjórnskipunar á hinum Norð-

urlöndunum sem gefin var út í

sérstakri bók. Tímaritið Útvörður

var eflt og sá Hlöðver að mestu

um efnisöflun í tvö tölublöð á ári

hverju, ásamt því að safna í þau

auglýsingum. Maður undraðist oft

hverju hann áorkaði og hvað und-

an honum gekk, þegar af stað var

farið. Sú umræða sem átt hefur

sér stað að udanförnu um nauðsyn

þess að færa völd og áhrif frá

miðstýrðu ríkisvaldi út til byggð-

anna er án efa að hluta eftirtekja

af þessu starfi, enda þótt ekki

hafi það verið fyrirferðarmikið í

fjölmiðlum.

Eftir nokkurra ára forystu fyrir

samtökin kaus Hlöðver að láta af

forystu fyrir þau, enda tekinn að

lýjast eftir langt dagsverk. Hlut-

verki hans var þó síður en svo

lokið í félagslegu samhengi. Þegar

umræðan um hið Evrópska efna-

hagssvæði fór að láta á sér kræla

var athygli hans strax vakin og

verkin látin tala. Hann varaði

sterklega við því að íslensk stjórn-

völd tækju þátt í þessum viðræðum

og taldi þátttöku í hinu Evrópska

efnahagssvæði vera andstætt

hagsmunum íslands sem fullvalda

ríkis.

Hann varð þegar í upphafi einn

af styrkustu stuðningsmönnum

samtakanna „Samtök um óháð

ísland", sem stofnuð^ voru til að

berjast gegn því að ísland gengi

hinu evrópska samfélagi á hönd.

Hann gekk þegar í upphafi í farar-

broddi fýrir undirskriftasöfnun um

að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu

um EES-samninginn. Arangur

hans á þeim vettvangi vakti at-

hygli fjölmiðla, enda vel og rösk-

lega unnið. Hlöðver sat í stjórn

samtakanna til dauðadags, og var

ráðhollur í því starfi, enda þótt

hann ætti ekki hægt umvik að

sækja stjórnarfundi. Eg hitti hann

síðast á aðalfundi samtakanna

síðastliðið vor. Þá var greinilegt

að heilsunni hafði hrakað, en

krafturinn og andinn var óbilaður.

Hann stappaði í fundarmenn stál-

inu um að láta ekki deigan síga,

enda þótt stjórnvöld hefðu hunsað

kröfu 35.000 íslendinga um þjóð-

aratkvæði um EES-samningana.

Þrátt fyrir mikil vonbrigði um

málsmeðferð alla varðandi undir-

búning samninganna og endan-

lega afgreiðslu þeirra, þá hvatti

hann menn ótrauður til dáða.

Kjarnmikið og hreint málfar hans

gerði það að verkum að ræður

hans vógu þyngra en ella.

Það er einn af kostum þess að

taka þátt í félagsstörfum, að þar

kynnist maður svo ólíku og oft og

tíðum gefandi fólki. Ég tel það

persónulega mikinn feng að hafa

kynnst Hlöðveri í Björgum á þess-

um félaglega vettvangi. Kraftur

hans, þrautseigja og málafylgja

var á þann veg að til eftirbreytni

er öðrum.

Ég sendi eftirlifandi konu hans

og öðrum aðstandendum bestu

samúðarkveðjur.

Gunnlaugur Júlíusson.

+

Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,

tengdamóðir og amma,

TORFHILDUR

ÞORVALDSDÓTTIR,

Stigahlíð 41,

Reykjavík,

verður  jarðsungin   frá   Fossvogskirkju

föstudaginn   10.  desember  kl.   10.30.

Þeim sem vildu minnast hinnar látnu

er bent á Félag nýrnasjúkra.

Ragnar Guömundsson,

Þorvaldur Ragnarsson,    Fanney Einarsdóttir,

Jakob Ragnarsson,            Guðrún Birgisdóttir,

Sigurrós Ragnarsdóttir,  Stefán Á. Einarsson,

Svandís Ragnarsdóttir,    Sigurður Sigurjónsson

og barnabörn.

t

Móðir okkar, tengdamóðir, amma

og langamma,

RAGNHEIÐUR G. BACHMAIMN

frá Siglufirði,

sem   lést   á   Hrafnistu   4.   desember

sl., verður jarðsungin frá  Borgarnes-

kirkju laugardaginn 11. desember nk.

kl. .14.00.

Þeim,  sem vildu  minnast hennar,  er

bent á Heilsugæslusjóð Hrafnistuheimil-

anna.

Helga S. Bachmann,  Haraldur Hjartarson,

Gunnar Bachmann,    Bára Ragnarsdóttir,

barnabörn og barnabarnabörn.

+

Þökkum auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts móður okkar,

AÐALHEIÐAR HALLDÓRSDÓTTUR

frá Siglufirði.

Jarðað var í kyrrþey að ósk hinnar látnu.

Jónfna Jóhannsdóttir,

Stefani'a María Jóhannsdóttir,

Jóhann Heiðar Jóhannsson.

¦ FERÐAMALANEFND

Reykjavíkurborgar hefur ákveð-

ið að halda fimmtu ráðstefnuna í

Ráðhúsi Reykjavíkur í. dag,

fimmtudaginn 9. desember, kl. 15

til 19. Ráðstefnan ber yfirskriftina:

Ferðamálaráðstefna Reykjavík-

ur 1993: Markviss sókn - Meiri

árangur. Á ráðstefnunni flytja

erindi Sigurður Helgason, for-

stjóri Flugleiða hf., sem ræðir um

framtíðarhorfur á erlendum mörk-

uðum, Arngrímur Hermannsson,

eigandi Ferðaskrifstofunnar Addís

hf., sem fjalla mun um ævintýra-

ferðir á Islandi, og Norman C.

Chumley,         framkvæmdastjóri

markaðssviðs Scottish Tourist Bo-

ard í Skotlandi, sem fjallar um

mikilvægi ferðamannaiðnaðarins

þar í landi. Júlíus Hafstein, borg-

arfulltrúi ogformaður ferðamála-

nefndar Reykjavíkur, setur ráð-

stefnuna pg að því loknu flytur

Markús Örn Antonsson borgar-

stjóri ávarp. Að loknum framsög-

um ávarpar Davíð Oddsson for-

sætisráðherra ráðstefnugesti. Ráð-

stefnustjóri verður Júlíus Hafstein.

¦ LISTMARKAÐUR Hlað-

varpans, sem er stærsti markaður

með íslenskan listvarning, býður

upp á mikið úrval af jólavörum.

Opnunartími     í     Hlaðvarpanum

verður eins og við Laugaveginn.

Betri stofan er kaffihús í Hlað-

varpanum. Nýir eigendur haf a tek-

ið við rekstrinum. Búið er að

breyta og bæta Betri stofuna. Þar

er boðið upp á súpu, salatbar,

pasta og osta í hádeginu og heima-

bakað góðgæti með kaffinu. Verði

á veitingum er mjög stillt í hóf. -Á

laugardögum í desember verður á

boðstólum lítið jólahlaðborð á 950

krónur. í kjallara Hlaðvarpans er

jólabókamarkaður með bókum frá

Bókaútgáfunni Bjarti, Smekk-

leysu, Orlaginu, Birtingi, Rauða

húsinu, Skýjum og Goðorði, auk

bóka eftir Elísabetu Jökulsdóttur,

Önnu S. Björnsdóttur, Eyvind Ei:

ríksson, Hrafn Jökulsson o.fl. I

porti Hlaðvarpans eru seld barr-

heldin jólatré, norðmannsþinur,

greinar og jólatrésfætur.

¦ SAMFOK, samband for-

eldrafélaga í grunnskólum

Reykjavíkur, stendur fyrir fundi

í Alftamýrarskóla í kvöld,

fimmtudaginn 9. desember, kl.

20.30-22. Þar verður m.a.' fjallað

um foreldravaktina, skipulagðar

vettvangsferðir foreldra um hverfi

borgarinnar og í miðbæinn um

helgar. Einnig verður rætt um

útivistartíma barna og hvernig

hægt sé að færa þau mál til betri

vegar.

+

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

HELGA EYÞÓRSDÓTTIR,

Suðurgötu 25,

Sandgerði,

verður jarðsungin frá Útskálakirkju föstudaginn 10. desember

kl. 14.00.

Jón Erlingsson,

Margrét Erlingsdóttir,

Ólafía Þ. Erlingsdóttir,

Stefam'a Lóry Erlingsdóttir,

Ingibjörg Erlingsdóttir,

Sjöfn Erlingsdóttir,

Jóhanna Sigurjónsdóttir,

Hannes Þ. Sigurðsson,

Eiríkur J. Helgason,

Sigurður Einarsson,

Bjarni Einarsson,

Oddný S. Gestsdóttir,

barnabörn og barnabarnabörn.

+

Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-

faðir, afi og langafi,

JÓN GUÐJÓNSSON

fyrrv. brunavörður,

Brúnalandi 9,

verður jarðsunginn  frá   Bústaðakirkju

föstudaginn 10. desember kl. 10.30.

Blóm og kransar vinsamlegast afþakk-

aðir, en þeim, sem vildu minnast hans,

er bent á líknarstofnanir.

Guðrún H. Karlsdóttir,

Kristín Gyða Jónsdóttir,

Sigrún Hulda Jónsdóttir, Bjarni Björnsson,

Inga Dóra Jónsdóttir,        Valur Valtýsson,

Guðjón Már Jónsson,       Ólafía Þ. Stefánsdóttir,

barnabörn og bárnabarnabörn.

+

Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og

útför móður minnar, tengdamóður og ömmu,

ELÍNAR guðrúnar EINARSDÓTTUR,

Goðabyggð 9,

Akureyri.

Sérstakar þakkir til  starfsfólks í Seli,  Fjórðungssjúkrahúsinu á

Akureyri, fyrir frábæra umönnun.

Ólöf Stefanía Arngrímsdóttir,

Baldur Jónsson,

Arngrímur Baldursson.

Þetta er minningarkort

Slysavarnafélags íslands

Skrifstofan sendir þau bæði

innanlands og utan.

Þau fást með enskum, dönskum eða

þýskum texta.

SímiSVFÍer 627000.

Gjaldið er innheimt með gíró.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68