56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 fclk í fréttum HJALPARSTARF Ekur með hjálpargögn til hrjáðra í Bosníu James Alexandersson, þrítugur íslendingur, fór sl. miðvikudag í annað sinn til fyrrum Júgóslavíu á einu ári á vegum alþjóðaráðs Rauða krossins. I janúar sl. fór. hann til Zagreb í Króatíu og þang- að liggur leiðin einnig nú. Starf hans sl. vetur var að aka flutninga- bílum með hjálpargögn til nauð- staddra í Bosníu og fær hann sama verkefnið aftur, þ.e. að flytja mat, fatnað, teppi og ofna til flestra staða nema Sarajevo þar sem ástandið er einna verst. íslenskir bílstjórar hafa getið sér gott orð fyrir hæfni til að aka um þrönga fjallvegi í slæmri færð á veturna. Það er t.d. fyrir þeirra tilstuðlan að flutningabílarnir eru nú almennt með keðjur þegar færðin er verst," sagði Sigríður Guðmundsdóttir hjá Rauða krossi íslands í samtali við Morgunblaðið. í fyrra voru hópar staddir í Split, Zagreb og Belgrad. Þaðan var ekið með hjálpargögn til Bosníu. Hins vegar mun nú vera búið að sam- ræma aðgerðir og höfuðstöðvar hjálparstarfsins á einum stað í Zagreb. Nú verður farið inn í Bosn- íu { gegnum bæinn Banjaluka. Þar er ekki beinlínis stríð en einhverjar óeirðir, því þarna búa bæði múslim- ar og Serbar," sagði James við Morgunblaðið áður en hann fór frá íslandi. Ekkí hættulaust starf James segir að vissulega sé alltaf einhver hætta fyrir hendi við dreif- ingu á hjálpargögnum, Það hefur ýmsu verið hent í bílana og við feng- DeLonghi JÓLAT1LBOÐ P-71________9.980,- stgr. Litli sælkeraofninn, sem getur allt - steikt og grillað, bakað kökur og ristað brauð. Og nú getur þú eldað pizzu á hinn eina og sanna ítalska máta. W-81S 10.220,-stgrT 12,5 Itr. nettur borðofn með yfir- og undirhita og grilli. Einnig gerð W791 tux með tímarofa á 12.310,- og X-19SB með eldunarhellu ofanáá 14.230,- EO-280 19.940,- stgr. 28 Itr. ofn með yfir- og undir- hita og grilli. Einnig gerð EO-289CMR með blæstri á 24.890,-. ^¦in'VIViiij) boröofnar tilvalin jólagjöf til sælkera /ponix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91 (24420 um stundum grjót í framrúðuna. Okkur var einnig hótað mjög oft, en það var aldrei skotið beint á okkur." Þegar bílstjórarnir þurfa að dvelj- ast utan Zagreb er reynt að finna örugga staði eins og herstöðvar Sameinuðu þjóðanna. Þótt við gætum í raun sofið öruggir víðast hvar þá er verið að hugsa um að vistunum verði ekki stolið. Þarna spilar einnig inn í að á nóttunni er ekki hægt að gera greinarmun á farartækjum, þannig að hættan á skotárásum eykst." Vistunum er yfirleitt ekið í skemmur þaðan sem deildir Rauða krossins sjá um úthlutun. Einstaka sinnum lenda bílstjórarnir í því að aka vistum til bændasamfélaga, þar sem búa aðeins örfáar fjölskyldur. Tilfínningarnar eru nokkuð blendnar í hjálparstarfinu og í raun erfitt að útskýra hvernig manni líð- ur. Maður gefst aldrei upp, því bíl- stjórarnir standa vel saman og ánægja er að sjá að mikið af hjálp- argögnunum kemst tií réttra aðila." MÖRG húsanna eru rjúkandi rústir, en víða býr fólk í rústunum. íbúarnir þustu út þrátt fyrir hættuna sem fylgdi því Við fórum eitt sinn til múslima- þorspsins Srebrinitsja í fyrra. Það afmarkast af háum fjöllum allan hringinn og aðeins ein leið er út úr þorpinu. Skriðdrekar Serba voru í fjöllunum og voru ósparir á skot- færin. Lítið stóð eftir af þorpinu, Morgunblaðið/Þorkell James við einn Rauða kross bíl- anna og fleiri eru fyrir aftan. Oft eru 10-12 bílar saman í flutn- ingalestunum. en fólkið bjó í rústunum; Þetta var í fyrsta skipti sem maður sá ánægj- una koma svo berlega í ljós, Ibúarn- ir komu allir út úr rústunum, eltu bílana niður í miðbæinn og tóku utan um okkur í gleði sinni. Þarna fann maður hvers virði hjálparstarf- ið er." James kveðst alltaf hafa haft áhuga á að sinna einhvers konar hjálparstarfi. Og nú þegar hann hefur prófað það getur hann ekki beðið eftir að komast aftur utan. Upphaflega gerði hann þriggja mánaða samning við Rauða kross- inn, en framlengdi honum um nokkra mánuði. Hann segist ekki geta útskýrt þá tilfinningu sem ýtir á eftir honum en segir að ákveðið tómarúm myndist þegar heim er komið. Morgunblaðið/RAX Ari Trausti Guðmundson og Jón P. Kristinsson Iétu eins og ekkert væri auðveldara en klifra nokkra kílómetra. Kristín varð að hætta eftir 20 þúsund fet vegna meiðsla. AFREK Klifruðu 29 þúsund fet á sex tímum Ari Trausti Guðmundsson, Jón P. Kristinsson og Júlía Kristín Albertsdóttir lögðu í innanhúss fjallgöngu" sl. sunnudag þegar þau reyndu við 29.028 feta klifur, sem er hæð Mount Everest. Ari Trausti og Jón luku svo að segja samtímis við fjallgönguna" eftir tæpra sex klukkustunda klifur, en Kristín varð að hætta eftir fjóra tíma vegna gamalla meiðsla sem tóku sig upp. Þá hafði hún klifrað um 20 þúsund fet. Höfðu þeir tekið sér tvisvar sinnum hlé á tímabilinu. Við lukum verkinu fyrr en við áætluðum," sagði Ari Trausti og bætti við að þeir hefðu reiknað út að áreynslan hefði verið samsvarandi um 8.000 hnébeygjum. Þeir félagar létu vel af sér eftir afrekið, voru dálítið aumir í fótunum en kváðust ekki hafa fengið neinar harðsprerrur daginn eftir, enda hefðu þeir æft stíft undanfarna tvo mánuði. Segir sagan að Jón, sem að öllu jðfnu er kallaður Jón klifur- mús innan Iíkamsræktarstöðvarinn- ar GYM 80, hafi lést um 30 kíló síðan hann hóf að klifra. . a Morgunblaðið/Kristinn Forseta Islands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, var nýlega afhent ein- tak af nýútkominni bók, Ekkert 'mált, sem fjallar um Jón Pál Sigm- arsson. Sigmar Freyr, sonur Jóns Páls, tyllti sér í forsetastólinn og áritaði bókina til forsetans. ARITUN Færði forsetanum bókaðgjöf Happdrætti bókaútgefenda Vinningsnúmer dagsins í happdrætti bókaútgefenda er 1856, en happdrættisnúmerin eru á baksíðu íslenskra bó- katíðinda. Vinningshafi getur vitjað vinnings síns, bókaút- tektar að andvirði 10 þúsund krónur, í næstu bókabúð. Sigmar Freyr Jónsson, 10 ára gamall sonur Jóns Páls Sigm- arssonar heitins og Ragnheiðar Jón- ínu Sverrisdóttur, gerði sér í vik- unni ferð til forseta Islands, Vigdís- ar Finnbogadóttur, og færði henni eintak af bókinni Ekkert mál!. Bók- in er rituð af Ólafi H. Torfasyni og segir í máli og myndum frá ævi Jóns Páls Sigmarssonar, uppvexti hans, íþróttaafrekum, landkynning- arstörfum og fleiru. Sigmar Freyr lét vel af fundinum með forsetanum. Hann fékk að prófa forsetastólinn og átti skemmtilegt samtal við frú Vigdísi. Sigmar Freyr er ekki búinn að lesa bókina um föður sinn, en ætlar að taka hana með sér í skólann og lesa hana þar í lestrarstundum. Hann hefur gaman af íþróttum og eins og hjá flestum strákum á hans aldri er NBA deildin ofarlega á blaði þessa dagana. Hann safnar körfu- boltamyndum og á nokkra bolta. Ég leik mér mikið í körfubolta. Svo hef ég líka æft handbolta, fót- bolta, júdó og karate. Stundum hef ég æft í æfingastöðinni GYM 80, en passa mig að lyfta ekki mjög þungu. Mér fínnst nú eiginlega skemmtilegast að æfa handbolta og fótbolta," sagði Sigmar Freyr Jónsson.