f\ la HEWLETT PACKARD HP Á ÍSLANDi HF Höfðabakka 9, Reykjavík, s(mi (91) 671000 Frá möguícika tíl vendeika *t$mM$foib MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLÁN 1 103 REYKJAVlK SÍMl 691100. SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Fleiri kynferðisbrotamenn í fangelsum en nokkru sinni áður Þrefalt fleiri nú en fyrir rjorum arum ÞAÐ sem af er árinu hafa 28 einstaklingar setíð inni í fangelsum eða lokið afplánun vegna kynferðisafbrota. Allt árið 1989 sátu 12 einstaklingar í fangelsum vegna kynferðisbrota, og hefur því tala þeirra sem afplána refsingu vegna kynferðisbrota nær þre- faldast á þessum tíma. Þetta kom fram í erindi sem Ari Edwald, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, hélt á fundi í gærkvöldi hjá Orator, félagi laganema, um nauðgun og önnur kynferðisbrot. Ari vitnaði í tölur frá Fangelsis- málastofnun þar sem fram kom að árið 1988 sem og 1989 voru 12 manns í fangelsum vegna kynferð- Jsbrota, árið 1990 fór talan upp í 21, árið 1991 sátu 18 í fangelsum vegna þessara brota, árið 1992 voru þeir 20 og í ár er tala þeirra komin upp í 28. Ari sagði að samkvæmt þessum tölum hefði hlutfall kyn- ferðisafbrotamanna í fangelsum aukist úr 4,1 af hundraði árið 1988 í 9,6 prósent í ár. Ari sagði einnig að hægt væri að slá því föstu að refsingar fyrir kynferðisafbrot væru nú harðari en fyrir rúmum þremur árum. Dómar fyrir nauðgun þar sem ekki hefði Framkvæmdastjóri fiskvinnslu ákærð- rur vegna vsk.-svika FRAMKVÆMDASTJÓRI fiskvinnslufyrirtækis á Suðurnesjum hefur verið ákærður fyrir að hafa í september í haust útfyllt bráðabirgða virðisaukaskattskýrslu um tæplega 26 milljóna króna hráefniskaup sem ekki höfðu átt sér stað og afhenda þá skýrslu í því skyni að fá innskatt fyrir 6,3 milh*ónir króna greiddan frá ríkissjóði. Um var að ræða fyrirhuguð kaup fyrirtækis þess sem maðurinn stýr- ir á þorski úr rússnesku skipi í gegnum miðlunarfyrirtæki í Reykjavík. Af kaupunum varð ekki. Maðurinn framvísaði hins vegar virðisaukaskattskýrslunni en við athugun hjá embætti skattstjórans í Reykjanesumdæmi kom í ljós að kaupin höfðu ekki verið gerð og kom ekki til þess að fyrirtækið fengi innskattinn greiddan. Málið verður tekið til meðferðar i héraðsdómi á næstunni en mann- inum er gefið að sök að hafa brot- ið lög um virðisaukaskatt en brot á þeim geta varðað sektum, varð- haldi eða fangelsi. verið beitt öðru ofbeldi hefðu verið frá 14 til 18 mánaða fangelsi, en væru nú í kringum 20 mánaða fang- elsi. Guðrún Jónsdóttir, starfskona Stígamóta, flutti einnig erindi á fundinum, og sagði hún í samtali við blaðið að hún væri að sjá þess- ar tölur í fyrsta sinn. Þetta segir manni að kærum vegna kynferðis- afbrota hefur fjölgað, en einnig gæti þetta sagt manni að kynferðis- legt ofbeldi væri að aukast," sagði Guðrún. Aðspurð sagði hún að sú umræða sem vaknað hefði um þessi mál fyrir nokkrum árum hefði óbeint leitt til þess að kærum hefði fjölgað. En ég er nú treg til að viðurkenna að um einhverja gjör- byltingu í réttarkerfinu sé að ræða," sagði Guðrún. n|^n^HH^^H|^nggBnHHHg ¦ Svifið um loftin blá Morgunblaðið/PPJ Verkfræðistofa sett á fÓt á Gaza - svæðinu ÞRJÁR íslenskar verkfræðistofur, Verkfræðistofa Sigurðar Thorodd- sen, Verkfræðistofa Stefáns Ólafssonar og Fjarhitun, hafa gert óform- legt samkomulag við Palestínumenn um stofnun verkfræðistofu á Gaza-svæðinu sem ætlunin er að taki þátt í þeirri uppbyggingu sem mun eiga sér stað á svæðinu í kjölfar sjálfstjórnar Palestinumanna. Gert er ráð fyrir að íslensku aðilarnir eigi 70% í fyrirtækinu en þeir erlendu 30%. Tveir fulltrúar frá íslensku verk- fræðistofunum, Viðar Ólafsson for- stjóri VST og Stefán Pétur Eggerts- son framkvæmdastjóri VSÓ, fóru til Gaza-svæðisins til að ganga frá sam- komulaginu um síðustu helgi. Viðar Olafsson sagði í samtali við Morgun- blaðið að samkomulagið væri gert við aðila í viðskiptalífinu sem væru stuðningsmenn Fatah-samtakanna serh væru samtök Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna. Fyrirtækið yrði skráð í Palestínu og yrði talið palestínskt fyrirtæki, en gert væri ráð fyrir að íslenskir verkfræðingar yrðu þarna að störfum við hlið Pal- estinumanna. Viðar sagði að í kjölfar þess að Palestínumenn tækju við stjórn eigin mála myndi hefjast mikil uppbygg- ing. Til stæði að byggja þúsundir íbúða fyrir fólkið í flóttamannabúð- unum strax á næsta ári, auk þess sem til stæði að byggja upp almenn- ingsþjónustu, samgöngukerfi og ein- hvern iðnað til að skapa störf fyrir fólk á svæðinu. Bandaríkjamenn og Evrópuþjóðir, þar á meðal Norður- landabúar, hefðu gefið fyrirheit um miklar fjárveitingar til uppbyggingar þarna. Fyrsta skrefið yrði að taka þátt í forvali verkfræðistofa um verk- efni á vegum þeirra hjálparstofnana sem væru að hefja uppbyggingu á Vísitala framfærslukostnaðar lækkar um 0,5% milli nóvember og desember Verðbólguhraðinn 0,2% síðustu 3 mán. VÍSITALA framfærslukostnaðar í desember lækkar frá því sem var í nóvember um 0,5%. Þessi lækkun er óvænt, því spár gerðu ráð fyrir lítilsháttar hækkun í desember, en síðan var búist við að vísitalan lækkaði í janúar vegna lækkunar virðisaukaskatts á matvælum. Vísitaian hefur ekki lækkað jafn mikið milli mánaða síðustu þtjú ár að minnsta kosti. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði umreiknað til árs hækkunar er 0,2%. Ástæða lækkunar vísitölunnar i t 'm6 einkum rekja annars vegar til þeirrar raunvaxtalækkunar sem varð í síðasta mánuði, en vextir vega talsvert í húsnæðislið vísi- tölunnar. Hins vegar lækkar græn- meti um rúm 10% frá nóvember- mánuði vegna innflutnings, þar sem ekki var nægjanlegt framboð á inn- lendum markaði. * í frétt frá Hagstofu íslands kem- ur fram að verð á matvöru lækkaði að meðaltali um 1,8%, sem olli 0,31% lækkun vísitölunnar. Ýmsar tegundir grænmetis lækkuðu um 10,4% að meðaltali, sem olli um 0,25% lækkun og verð á smjöri lækkaði um 41%, sem olli 0,04% lækkun vísitölu. Þá lækkaði hús- næðiskostnaður vegna lækkunar fjármagnskostnaðar um 1,4%, en það svarar til 0,21% lækkunar vísi- tölu og bensín lækkaði um 2,5%, sem lækkaði vísitöluna um 0,1%. FramfærsluVÍSÍtalan Ídesember1993 (169,9) Ferðir og f lutningar (18,6) Húsnæði, rafmagn og hiti (18,5) Matvörur(17,1) Tómstundaiðkun og menntun (11,5) Húsgögn og heimilisbún. (6,8) Föt og skófatnaður (6,3) Drykkjarvörur og tóbak (4,3) Heilsuvernd (2,5) Aðrar vörur og þjónusta (14,3) Vísitala vöru og þjónustu FRAMFÆRSLUVÍSITALAN Tölur í svigum visa tíl vaagis elnstakra liða af 100. -0,2% Breyting frá fyrri mánuði -0,4% svæðinu. Það er mikil spenna á þessum slóðum og það var sérkennileg reynsla að koma þarna," sagði Við- ar. Hann sagði að efnt hefði verið til verkfalla á meðan þeir voru á Gaza-svæðinu vegna þess að skæru- liði sem gert hefði árás á strætisvagn hefði verið skotinn. Þar með hefði allt athafnalíf og opinberar stofnanir lamast og lítið verið hægt að gera. Viðar sagði að íslenskar verk- fræðistofur væru mjög víða að reyna fyrir sér erlendis. Til dæmis hefðu nokkrar verkfræðistofur leitað fyrir sér í Kína og verkefni í Eystrasalts- löndunum og Kamtsjatka væru einn- ig í athugun svo eitthvað væri nefnt. ? ? ? Fjórum sinnum áður á síðustu þremur árum hefur framfærsluvísi- talan lækkað milli mánaða, en þá hefur lækkunin í öllum tilfellum numið 0,1%. 0,5% lækkun umreikn- að til heils árs jafngildir 6,1% verð- hjöðnun á heilu ári. Hækkun fram- færsluvísitölu síðustu sex mánuði umreiknað til heils árs jafngildir 4,5% verðbólgu. Fyrirspurn um spilakassa HHÍ Vísað til borgar- stjórnar BEIÐNI Böðvars Bragasonar, lög- reglustjóra í Reylgavík, til dóms- málaráðuneytis um skilgreiningu á hugtökunum spilakassi og happ- drættisvél til að hægt sé að skera úr um það hvort rekstur happ- drættisvéla þeirra sem Happ- drætti Háskóla íslands hyggst taka í notkun á næstunni sé leyfis- skyldur hefur verið send til borg- arsljórnar. Að sögn Ólafs Walters Stefánsson- ar, skrifstofustjóra í dómsmáiaráðu- neytinu, verða borgaryfirvöld að skera úr um málið þar sem um lög- reglusamþykkt Reykjavíkurborgar sé að ræða. Menn þurfa að finna út hvort einhver veit við hvað var átt þegar talað er um spilakassa. Við skrifum borgarstjóra og spyrjum hvað til sé í gögnum borgarinnar."