Morgunblaðið - 11.12.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1993
27
Vígsla fyrri áfanga Grafarvogskirkju á sunnudag
Kirkjusókn verði eins
konar félagsleg athöfn
„OKKUR langaði til að skapa kirkjulega kirkjubyggingu. Jafnframt
að kirkjusókn yrði eins konar félagsleg athöfn. Fólk færi t.d. ekki
beint heim eftir messu heldur kæmi fyrr og settist niður með öðrum
kirlqugestum á eftir,“ segir Finnur Björgvinsson, annar tveggja
arkitekta Grafarvogskirkju, en fyrri áfangi kirkjunnar verður vígð-
ur á sunnudag kl. 16. Hinn arkitekt kirkjunnar er Hilmar Þór Björns-
son. Sóknarprestur í Grafarvogi er séra Vigfús Þór Arnason.
Morgxinblaðið/Kristinn
Yígsla í nánd
MAGNÚS Ásgeirsson, formaður sóknarnefndar, Hilmar Þór Björns-
son, arkitekt, Finnur Björgvinsson, arkitekt, og séra Vigfús Þór
Árnason í kjallara Grafarvogskirkju. Þann hluta á að vígja á sunnu-
dag.
Grafarvogskirkja
GRAFARVOGSKIRKJA er áberandi séð frá Vesturlandsvegi og
Gullinbrú. Með kjallara undir öllu húsinu er brúttógólfflatarmál
þess 2.528 fm og heildarrúmmál 13.805 rm. Gert er ráð fyrir sætum
fyrir um 700 kirkjugesti á efri hæðinni og um 300 í kjallara. Þess
má geta að í Grafarvogssókn eru níuþúsund sóknarbörn.
Hilmar rifjar upp að um árabil
hafi kirkjur aðeins verið byggðar
með einu rými fyrir guðsþjónustur.
Eyrbekking-
ar hlynntir
sameiningu
MEIRIHLUTI íbúa í Eyrarbakka-
hreppi er hlynntur sameiningu
hreppsins við önnur sveitarfélög
samkvæmt könnun sem gerð var
fyrir skömmu. Mest fylgi er við
sameiningu Eyrarbakkahrepps,
Stokkseyrarhrepps og Olfus-
hrepps.
Hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps
sendi könnunarseðla öllum íbúum
hreppsins 18 ara og eldri, en þeir
eru alls 388. í fréttatilkynningu frá
hreppsnefndinni segir að 294 eða
76% hafi tekið þátt í könnuninni. 168
sögðust vera hlynntir sameiningu,
100 voru andvígir sameiningu við
önnur sveitarfélög, 25 seðlar voru
auðir og 1 ógildur. Mest fylgi var
við sameiningu Eyrarbakkahrepps,
Stokkseyrarhrepps og Ölfushrepps.
Töluvert fylgi var við að Árnessýsla
öll sameinaðist.
„Nú er stefnan smám saman að
verða önnur og í þessari kirkju er
aðeins einn fimmti hluti rýmisins
sérstaklega ætlaður fyrir guðsþjón-
ustur. Meirihluti þess er hins vegar
ætlaður annarri starfsemi," segir
hann og Finnur rifjar upp að á efri
hæðinni komi gestir inn á Via
Sacra, heilagan veg. Eftir því sem
nær dragi altarinu hækki til lofts
og birta aukist í kirkjunni. Á báða
vegu séu hliðarsalir undir annars
konar starfsemi.
„í kjallaranum er svo fjölnotasal-
ur,“ segir Hilmar. „Byijað verður
að messa hér en í framtíðinni er
gert ráð fyrir margs konar starfi,
t.d. barnaguðsþjónustum, upplestr-
um og tónleikum. Svo verður líka
fermingarfræðsla hérna niðri og
annað safnaðarstarf fyrir ungl-
inga,“ sagði Hilmar en þess má
geta að í kjallaranum verður einnig
bókasafn hverfisins.
Eins og fæðing
Finnur og Hilmar unnu sam-
keppni um hönnun kirkjunnar í árs-
byijun 1991. Ráðgjafar þeirra voru
séra Karl Sigurbjörnsson og séra
Pálmi Matthíasson. Arkitektarnir
segja að leiðbeiningar þeirra hafi
komið sér afar vel en hvað aðra
þætti í skipulagi kirkjunnar varðaði
segjast þeir hafa lagt áherslu á að
kirkjan yrði stílhrein og traust.
„Við vildum að hún yrði enn í gildi
eftir 1000 ár,“ segir Hilmar og
svarar sposkur þegar hann er
spurður hvernig sé að sjá kirkjuna
rísa að það sé eins og áð sjá barn-
ið sitt fæðast heilbrigt. „Og finna
hvernig allir puttar virka,“ segir
hann en þeir Finnur vildu sérstak-
lega koma til skila kæru þakklæti
til sóknarnefndarinnar fyrir frá-
bæra samvinnu við verkið.
Stór stund
„Að fá kirkju eftir næstum 5 ára
bið er gífurlega stór stund fyrir
sóknarprest," sagði séra Vigfús Þór
Árnason um tímamótin á sunnudag.
Jafnframt segist hann afar ánægð-
ur með sjálfa kirkjubygginguna.
„Ég var formaður dómnefndarinnar
þannig að ég get varla verið annað
en hæst ánægður. Teikningin er
sérstök og gefur gífurlega mikla
möguleika," segir Vigfús og minn-
ist þess að hann hafi ásamt arki-
tektunum tveimur skoðað fjölmarg-
ar kirkjur á Norðurlöndunum vegna
byggingarinnar. „Við sáum þá fjöl-
margar vinnukirkjur, eins og við
viljum að verði hér í framtíðinni."
Vigfús segir að mikill áhugi sé
fyrir kirkjulegu starfi í Grafarvogi.
„Ég verð oft var við að fólk spyr
með hvernig gangi með unga fólkið
og býst við neikvæði svari. Því er
hins vegar alls ekki þannig farið.
Kannski er það vegna samkenndar-
innar hér en unga fólkið hér sýnir
safnaðarstarfinu mikinn áhuga.
Mikið er um að ungir foreldrar fylgi
börnum sínum í barnamessur og
foreldrar fermingarbarna hafa fylgt
þeim vel eftir. En við reynum auð-
vitað á móti að gera ýmis konar
tilraunir án þess að gleyma því að
kirkja er alltaf kirkja,“ segir Vigfús
og minnir á að messur í Fjörgyn
hafi verið afar vel sóttar í haust.
ÓKEYPIS VEGGSPJALD FYLGIR!
Aladdín og
Ljóti andarunginn
Aladdín og Ljóti andarunginn
eru fyrstu bækurnar í nýjum
bókaflokki, Æfintýrabókum
Reykholts. Þessi heimsfrægu
æfintýri birtast hér í fallegum
búningi, teiknuð afVan Gool,
einum helsta teiknara Walt
Disney til margra ára.
Fjársjóður jólanna
Norman Vincent Peale
Bók með ómetanlegan boðskap
sem varðað hefur leið milljóna
manna um aflan heim til sannrar
lífshamingju.
Fjársjóður jólanna - Mikið
fyrir lítið.
Michael Jordan
„Eg stökk bara upp, upp fyrir
þá báða og tróð" Michael
Jordan snjallasti körfuknatt-
leiksmaður allra tíma. Bókina
prýðir fjöldi ljósmynda í lit.