Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 Guðjón B. Ólafsson, forstjórí — Minning Fæddur 18. nóvember 1935 Dáinn 19. desember 1993 Ástkær bróðir minn, Guðjón Bald- vin Ólafsson, er látinn eftir nær þriggja ára baráttu við erfiðan og óvæginn sjúkdóm. Enda þótt ég hafi vitað að hveiju stefndi, er óum- ræðilega erfitt að horfast í augu við þessa staðreynd. Ég hef fylgst náið með hetjulegri baráttu hans, sem lengst af einkenndist af bjartsýni hans á að honum tækist að hafa betur. Hann tókst á við sjúkdóm sinn af mikilli skynsemi, gerði allt sem í hans valdi stóð til að auka líkur á bata en gerði sér jafnframt fulla grein fyrir alvöru sjúkdómsins. Baddi bróðir minn var frumburður foreldra okkar, þeirra Filippíu Jóns- dóttur og Ólafs Kjartans Guðjóns- sonar. Hann fæddist í Hnífsdal 18. nóvember 1935 og bjó fyrstu æviár- in ásamt foreldrum okkar á heimili föðurafa okkar og ömmu. Aldrei heyrði ég talað um hann öðruvísi en sem sérstaklega ljúfan og góðan dreng, og þannig eru líka allar mín- ar minningar um stóra bróður minn, sem var tæpum fimmtán árum eldri en ég. Mér fannst ekkert eins dásam- legt eins og að eiga stóran bróður, sem var óspar á að sýna systur sinni einlægar tilfínningar, leika við hana og dekra á alla lund. Ein af mínum fyrstu minningum er þegar hann var í Gagnfræðaskólanum á ísafírði. Hann kom brunandi út í Hnífsdal á mótorhjólinu sínu til þess eins að svæfa mig, og fór síðan aftur inn á ísafjörð til að spila á harmonikkuna sína á skólaballi. Stuttu seinna var Baddi farinn að heiman, fyrst í skóla í Reykjavík og síðan erlendis til starfa. Það var því beðið með óþreyju eftir jóla- og sumarfríum, að ógleymdum ófáum gjöfunum sem hann sendi mér frá útlöndum. Við systkinin ólumst upp við mik- ið ástríki foreldra okkar og ömmu, sem lengi bjó á heimilinu. I mínum huga lék þó aldrei vafí á hver væri bestur, það var Baddi bróðir. Enda þótt faðir okkar reyndi oft á sinn glettna hátt að fá mig til að segja að hann væri betri en Baddi, t'ókst honum það aldrei, ekki einu sinni þó að hann gæfí mér sælgæti. í mörg ár sáumst við systkinin stop- ult vegna langvarandi búsetu hans og Qölskyldu hans erlendis. Nú hin síðustu ár höfum við fengið tæki- færi til að bæta okkur þennan að- skilnað upp og fundið að þræðirnir sem mynduðust milli okkar í upp- hafí voru jafn sterkir og væntum- þykjan jafn innileg og fyrrum. Úm jólin þegar ég var sjö ára, kom Baddi í fyrsta skipti heim með unnustu sína, Guðlaugu Brynju Guð- jónsdóttur, sem síðar varð eiginkona hans og dyggur lífsförunautur. Lúlú mágkona mín hefur staðið með manni sínum í blíðu og stríðu og hefur sýnt einstaka umhyggju og dugnað í veikindum hans. Sama er að segja um Bryndísi, dóttur þeirra, sem hefur verið stoð þeirra og stytta hér heima og síðustu mánuðina fengu hin börnin þeirra fjögur, sem öll eru í Bandaríkjunum, tækifæri til að vera nálægt föður sínum. Baddi var mikill fjölskyldumaður og sýndi það sig best í veikindum hans hve fjölskyldan mat hann mikils. Þá var hann umhyggjusamur og stoltur afi, en hann átti orðið tvo afastráka. Annar þeirra, Ólafur Friðrik, hefur verið mikið á heimili afa síns og ömmu og saknar nú sárt afa síns. Baddi bróðir var tilfinninganæm- ur maður, hafði einstaklega gott skap og var léttur í lund. Þessir eig- inleikar hans hafa án efa hjálpað honum að takast á við veikindi sín. Frá því að hann veiktist hefur hann ekki einungis þurft að takast á við afleiðingar sinna eigin veikinda, því að meðan hann háði sína baráttu, létust báðir foreldrar okkar af völd- úm sama sjúkdóms. Þeim var hann afar kær sonur og sýndi hann þeim mikla umhyggju alla tíð. Nú, þegar ég er ein eftir af litlu fjölskyldunni okkar, verð ég að trúa því að þau séu öll sameinuð á ný. Um leið og ég bið Guð að styrkja Lúlú mágkonu mína, börn hennar, tengdadóttur og barnabörn, bið ég þess að minningin um yndislegan eiginmann og fjölskylduföður lýsi þeim áfram veginn. Blessuð sé minning míns kæra bróður. Ásgerður Ólafsdóttir. Guðjón B. Ólafsson, afí minn, hann var góður maður. Hann var duglegur maður. Hann starfaði allavega í Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga, Frí- múrurum og Samband of Iceland. Hann var góður í skapi. Hann hjálpaði mér mjög mikið í lífínu. Og hann var mjög gjafmildur. Hann var mér mjög mikið f lífinu. Hann gerði mjög mikið fyrir mig. Hann var og er okkur mikils virði. Sem dóttursonur hans hefði ég viljað að hann hefði ekki dáið. Ég hefði viljað að hann hefði lifað yfír jólin. Bara aðeins yfir jólin. Það væri þó miklu, miklu betra ef honum hefði batnað. En það gerðist, að hann andaðist á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum. Það þykir mörgum leitt, til dæmis Ásgerði systur Guðjóns, Bryndísi, dóttur Guðjóns, Lúlú, konu Guðjóns, Ásu, dóttur Guðjóns, Brynju, dóttur Guðjóns, Jenna, syni Guðjóns, og Ólafí Kjartani, syni Guðjóns. Mér þótti mjög vænt um afa minn. Hann gaf mér lífíð, hann gaf mér ást. Mér þykir jafn vænt um hann og honum J>ótti vænt um mig. Olafur Friðrik Magnússon, 10 ára. Hann opnaði bílgluggann og bauð mér far. Hann vissi hvert ég var að fara og að við áttum stutta samleið. Ég þáði farið og þannig hófst sú langa samleið sem við áttum. Þetta var fyrir þrjátíu árum og þó tveimur mánuðum betur. Guðjón var þá tæpra tuttugu og átta ára að aldri, beinvaxinn og stæltur, maður sem sá enga ástæðu til að opna garðs- hlið sem hægt var að stökkva yfír, glaðvær og fullur áhuga á öllu því sem kom starfinu við og sjálfsagt mörgu öðru, þó að ég vissi minna um það. Og nú er Guðjón allur, langt um aldur fram. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem ég sá Guðjón. Við höfðum fyrr átt orðaskipti, en í þessari stuttu öku- ferð varð mér ljóst hvern mann hann hafði að geyma. Dugnaður og áhugi voru mest áberandi í fari hans, ásamt hjálpsemi og góðvild, hrein- lyndi og drengskap. Síðar varð mér það ennþá betur Ijóst að hann kom jafnan til dyranna eins og hann var klæddur, við hvern sem við var að eiga. Þó að það sé mikill kostur gr því ekki að leyna að síðar á lífsleið- inni varð Guðjóni þetta oft þungt í skauti. Skömmu eftir þetta fór Guðjón til starfa sem framkvæmdastjóri Lundúnarskrifstofu Sambandsins. Af starfí hans þar bárust þær frétt- ir einar að þegar ráða þurfti nýjan framkvæmdastjóra að sjávarafurða- deild Sambandsins með stuttum fyr- irvara síðla vetrar 1968 var valið auðvelt. Guðjón var framkvæmda- stjóri sjávarafurðadeildar í nærri sjö ár, uns hann lét undan þrýtingi um að taka að sér forystu í Iceland Seafood Corp. í Bandaríkjunum. Guðjón tók til starfa í sjávaraf- urðadeild í djúpri kreppu í sjávarút- vegi og raunar þjóðlífínu öllu. Sfldin hvarf og það varð afiabrestur á þorskveiðum, jafnhliða miklu verð- falli. Þessu fylgdi folksflótti úr landi. Kreppan kom harðar niður á sjávar- afurðadeild Sambandsins og þeim fyrirtækjum sem framleiddu fyrir hana en almennt gerðist. Ástæða þess verður ekki rakin hér. En þetta varð til þess að gerðar voru skipu- lagsbreytingar í starfsemi sjávaraf- urðadeildar, hún varð sjálfstæðari en aðrar deildir Sambandsins, og starfaði í nánari tengslum við fram- leiðendur. Við þetta hófst mikill upp- gangur í starfsemi deildarinnar. Á sjöunda áratugnum snerist þjóðlífíð um síld, allt þar til síldin hvarf haustið 1967. Þá varð ófyllt skarð í atvinnulífínu. Á síldarárun- um sat margt annað á hakanum í sjávarútvegi, meðal annars frysti- húsin, sem áttu örðugt með að halda í horfinu hvað þá að sækja verulega fram. Það átti ekki síst við um frysti- hús á vegum sjávarafurðadeildar, sem mörg voru á aðal síldarsvæðinu á Austur- og Norðausturlandi, en þau voru mörg um það bil að verða ónothæf í þann mund er síldin hvarf. Um þetta leyti voru kröfur um vöru- meðferð og hollustuhætti líka að aukast og jók það á vanda þessara gömlu og úreltu húsa. Á sama hátt snerist útgerðin að mestu um síldina og leið meira en hálfur annar áratug- ur frá því að skuttogarar komu fram á sjónarsviðið þangað til sú tækni náði hingað til lands. Ný ríkisstjórn sem mynduð var í júlímánuði 1971 hafði enduruppbyggingu frystiiðn- aðarins og fískiskipaflotans að for- gangsverkefni og kom það í hlut sjávarútvegsráðherra að leiða það verkefni, meðal annars með útvegun fjármagns. En það þurfti fleira til en stjórnvaldsaðgerðir og átti Guð- jón dijúgan hlut í þeim stórstígu framförum sem urðu á næstu árum, ekki síst í því að stýra endurupp- byggingunni í þann farveg að ís- lenskur frystiiðnaður kæmist í fremstu röð í heiminum, en þar hef- ur hann verið síðan, þó að nú sé fast að honum sótt. Á þessum árum ávann Guðjón sér traust langt út fyrir raðir samverka- manna sinna, viðskiptavina og keppinauta og átti hann margra kosta völ, en kaus að starfa áfram á sama vettvangi. En svo fór að hann lét undan þrýstingi í ársbytjun 1975 að fara vestur til Bandaríkj- anna og gerast forstjóri Iceland Se- afood Corporation, sem ,þá hét reyndar Iceland Product Inc., en ég kýs að nefna það nýrra nafninu. Bandaríkjamarkaður er erfiður við- fangs og má lítið út af bera. Það hafa mörg fyrirtæki, bæði bandarísk og erlend, fengið að reyna. Iceland Seafood hafði nokkru áður reynt fyrir sér um nýja markaðssetningu, sem fólst meðal annars í því að slíta í sundur framleiðslustarfsemina og markaðssetninguna og var það í samræmi við kenningar í rekstrar- fræðum á þeim tíma. Þessi tilraun tókst ekki og þó að nokkur tími væri liðinn átti fyrirtækið i erfíðleik- um með að ná sér á strik að nýju, og kom raunar fleira til. Viðskiptabanka Iceland Seafood Corp. leist ekki alltof vel á blikuna þegar Guðjón kom vestur og byijaði feril sinn á því að eyða fé í að laga til í fyrirtækinu, ytra sem innra, og planta blómum. Hann var kallaður á teppið en honum tókst að sann- færa bankann um að hann væri á réttri leið. Og á undraskömmum tíma breytti fyrirtækið um svip, ekki eingöngu í útliti, afkoman varð við- unandi á skömmum tíma og síðar mjög góð. Og innan skamms hafði fyrirtækið tileinkað sér alla nýjustu tækni á sínu sviði og raunar haft forgöngu um áður óþekkta tækni og unnið sér það traust sem nauð- synlegt var til þess að halda velli á þessum erfiðasta markaði heims og leggja grunn að markvissri sókn til langrar framtíðar. Þrátt fyrir að Ice- land Seafood væri smátt fyrirtæki á bandarískan mælikvarða leið ekki á löngu þar til Guðjón varð þekktur í bandarísku viðskiptalífi og raunar meðal allra þeirra sem fengust við fískviðskipti að einhveiju marki um allan heim. Mér er til efs að meira orð hafi nokkurn tíma farið af nokkr- um íslendingi í viðskiptum á alþjóða- vettvangi. Það var- mikið átak að slíta sig frá þessu þegar til orða kom að hann gerðist forstjóri Sambands ís- lenskra samvinnufélaga. Guðjón B. Ólafsson sjálfur og Iceland Seafood höfðu á vissan hátt tvinnast saman, þannig að ekki varð auðveldlega sundur slitið, eins og greinilega kom í ljós þegar hann fór þaðan og kom það víðar niður en réttmætt var. En það er til marks um þá virðingu og vinsældir sem hann naut í fyrirtæk- inu að nú, meira en sjö árum eftir að hann hvarf á braut, óskaði starfs- fólkið eftir því að haldin yrði minn- ingarathöfn um hann áður en jarð- neskar leifar hans yrðu fluttar til íslands. Árið 1986 var ennþá full þörf fyrir Guðjón fyrir vestan, en hins vegar voru margir þeirrar skoð- unar að þörfín fyrir starfskrafta hans hér heima væri brýnni. Og Guðjón varð við kallinu að koma heim. Ég hygg að langur tími líði áður en menn átta sig til fulls á því sem gerðist í Sambandi íslenskra sam- vinnufélaga áður og eftir að Guðjón kom heim. Enn sem komið er veldur það því að erfitt er að meta síðustu ár starfsævi hans og skipa honum sess í sögunni. Það verður auðveld- ara þegar horft verður yfir sviðið úr meiri fjarlægð. En þegar kapp var lagt á að fá Guðjón til þess að koma heim var það vegna þess að mörgum var ljóst að þörf var fer- skrar forystu. Margir telja að Sam- bandið hafi ekki getað lifað við já- kvæða raunvexti og í þeim hafí fall þess verið falið. Þetta er mikill mis- skilningur. Það er að vísu rétt að sveiflan frá neikvæðum raunvöxtum til óeðlilegra hárra raunvaxta var öllu atvinnulífí þung í skauti, Sam- bandinu einnig. Mörg fyrirtæki hafa lotið að moldu að undanförnu og hafa háir vextir vissulega komið þar við sögu. En þeir réðu ekki úrslitum um örlög Sambandsins. Flest fellur injianfrá, fyrirtæki, stofnanir; stefnur, ríki, heimsveldi. Og flest það sem er, á’eftir að falla, fyrr eða síðar. Það er lögmál lífsins. Þó að hart væri löngum sótt að Sambandinu að utan og miklar kröf- ur til þess gerðar, ekki síst af ríkis- valdinu, þá var hitt þó þyngra á metunum að kröfurnar innan frá urðu sífellt háværari. Og undan þeim kröfum var látið í ríkari mæli en að undir yrði risið. Það hefur löngum verið einkenni á íslenskri samvinnuhreyfingu að leggja áherslu á allsheijar framfarir, ekki síst á sviði atvinnusköpunar, fremur en að leggja höfuðáherslu á verslun og viðskipti, eins og víðast annars stðar. Þegar tók að halla undan fæti í framieiðsluiðnaðinum, ekki síst fyrir sókn fjarlægra þjóða á því sviði, kom það hart niður á Sambandinu eins og fleirum. Sam- dráttur varð í atvinnu við hefð- bundna Iandbúnaðarframleiðslu. En í kjölfarið á þessu tvennu var sú krafa gerð til Sambandsins að bæta þetta upp með stuðningi við upp- byggingu nýrra framleiðslugreina, þar sem áhættan var oft mikil, og að styðja greinar þar sem lítil von var um arð í nánsutu framtíð. Jafn- framt þessu jukust áhrif Suðvestur- landsins í Sambandinu og þar með fékk sú skoðun vaxandi fylgi að Sambandið hefði vanrækt þann hluta landsins. Úr því var talið að þyrfU að tyæta. Margir sáu augljós hættumerki framundan. Og það var einmitt þá sem Guðjón var kallaður til. Þegar hann kom heim frá Ameríku kom hann í efnahagsumhverfí, sem var gerólíkt því sem hann hafði starfað í um hríð. Sjálfur hefur hann sagt að það.hafi tekið sig tvö ár að átta sig á málefnum Sambandsins. Það voru ár sem ekki mátti missa. Þeir sem lögðu kapp á að hann kæmi heim árið 1986 væntu þess að hann tæki þegar í stað þá forystu, sem á þurfti að halda, forystu í að breyta hugarfari, breyta viðhorfum innan Sambandsins og sambandsfyrirtækj- anna. Að hann snerist til varnar en blési jafnframt til nýrrar sóknar. En Guðjón var ekki á því augnabliki tilbúinn að leggja til atlögu. Þar að auki voru ekki allir tilbúnir að taka við Guðjóni og þeim nýju viðhorfum sem þeir töldu að hann flytti heim með sér. En hinu má svo ekki gleyma að þó að Sambandið hætti starfsemi standa veigamiklir þættir starfsem- innar eftir og blómstra í nýjum far- vegi. Það skiptir ekki öllu máli að Sam- bandið hverfur af sjónarsviðinu. Sá lagarammi sem samvinnustarfi er settur er orðinn of þröngur og þar með taka við ný rekstrarform sem búa við rýmri skilyrði. Það sem skipt- ir máli er að sú hugsun lifí að mönn- um sé farsælast að hafa samvinnu. Sú hugsun fleytti okkur dijúgum 'Tram á veg á þessari öld á leiðinni frá örbirgð til efna. Sú hugsun hefur átt örðugt uppdráttar um skeið, hef- ur vikið fyrir tískustraumum, sem væntanlega lifa ekki lengi. En lifa sennilega samt sem áður nógu lengi til þess að við verðurm að hefja nýja framfarasókn í byijun nýrrar aldar, á sama hátt og um síðustu aldamót. Það er verðugt til umhugs- unar yfír moldum Guðjóns B. Ólafs- sonar. í dag kveðjum við Guðjón B. Ólafsson með miklum söknuði. Ég ' átti við hann langt og gott sam- starf, sem var nánast á árunum 1968-1975. í því samstarfi var Guðjón veitandinn og ég á honum mikið að þakka. Hann var helsjúkur maður síðustu þijú æviárin. Þrátt fyirr það bognaði hann ekki, því að hann var þeirrar gerðar að brotna fremur en bogna. En þetta varð til þess að erfiðara var að fylgja honum eftir. Þess vegna urðu samskipti okkur minni en áður síðustu tvö árin, einmitt þegar hann þurfti mest á stuðningi að halda. Það verður mér ævinlegt harmsefni. Við hjónin sendum Guðlaugu og fjölskyldunni samúðarkveðjur á þessari stund sorgarinnar. Þeir sem mikið hafa átt hafa mikið misst. Árni Benediktsson. Hvar hafa dagar lífsins lit sínum glatað? Og ljóðin er þutu um þitt blóð frá draumi til draums, hvar urðu þau veðrinu að bráð, ó bam, er þig hugðir borið með undursamleikans eigin þrotlausan brunn þér í bijósti! Hvar...? Þessar upphafslínur úr Söknuði Jóhanns Jónssonar koma í hugann við ótímabært fráfall vinar míns Guðjóns B. Ólafssonar. Hann var eins og margir framúrskarandi menn borinn með „undursamleikans brunn í brjósti", en hvar og umfram allt hvernig og hversvegna, gerist það að líf og starf góðra manna verður „veðrinu að bráð“. Þegar litið er yfir ævi míns kæra vinar síðasta áratuginn, þá finnst mér líkt og for-’ sjónin sé að endurtaka tragísk efni úr leikritum Forn-Grikkja. Svo dramatískt er allt sviðið og Guðjón sjálfur í sporum harmsögulegrar persónu sem lætur að lokum lífíð með reisn hetjunnar. Leiðir okkar lágu saman á skóla- bekk í Reykjavík fyrir fjórum ára- tugum og náin kynni og vinátta tókst fljótt með okkur, því við áttum það sameiginlegt að hafa mun meiri áhuga á íþróttum en bókfærslu og vélritun. I stað þess að lesa heima var farið beint út í íþróttahús KR í Kaplaskjóli eftir að skóladeginum lauk, og þar var hamast fram á kvöld. Guðjón var þá aðeins 18 ára, en stór og feykilega knár; hann var augljóslega efni í afreksmann í íþróttum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.