Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 49 fískréttaverksmiðju. Þessi tvíþætta starfsemi á sér langa sögn. Góðan árangur Guðjóns má tvímælalaust rekja til þess að hann náði strax afburða góðum tökum á þessum þáttum báðum. f stjórnunartíð hans vestra efldist sölustarfið mjög; í magni jókst salan í margfeidinu 2 til 3 en í verðmætum um 4 til 5. Framleiðslu- og geymslurými var stækkað mikið og eldri húsakostur endurnýjaður. Reist var vel búin þróunarstöð sem gegndi lykilhiut- verki við þróun nýrra afurða. Guðjón hafði mikinn áhuga á nýjungum í framleiðsluháttum og hafði vakandi auga með nýjum framleiðslutækjum sem á markaðinn komu. Það gat ekki farið fram hjá okk- ur, sem áttum samleið með Guðjóni, hverrar virðingar og trausts hann naut hjá ölium þeim sem skipti áttu við Iceland Seafood Corporation. Þetta átti jafnt við um þá, sem afurð- ir keyptu af fyrirtækinu, og hina sem lánuðu því rekstrarfé; og ekki skulu kollegar á markaðstorginu heldur undan skildir, þeir sem stýrðu fyrir- tækjum í hliðstæðum viðskiptum. Guðjón var eftirsóttur fyrirlesari á ráðstefnum þar sem fjallað var um frystar afurðir. Hjá honum fóru sam- an yfirburða þekking á viðfangsefn- inu og afburða góður flutningur. Hann var stjórnarmaður frá 1981 til 1986 í National Fr.ozen Food Association, bandarískum samtök- um fyrirtækja sem framleiða fryst matvæli og versla með þau, og frá 1984 til 1989 var hann stjórnarfor- maður í NASA (North Atlantic Se- afood Association) en það eru sam- tök fiskveiðiþjóða við Norður-Atl- antshaf sem selja afurðir sínar á Bandaríkjamarkaði. Forvígismenn International Seafood Conference, alþjóðlegrar ráðstefnu um sjávaraf- urðir sem haldin er víða um lönd, sæmdu Guðjón sérstakri heiðurs- nafnbót fyrir störf hans að markaðs- málum sjávarafurða og sæmdur var hann riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Sá var háttur Guðjóns að haida einn stjórnarfund á ári vestra og var hann haldinn að hausti til. Mér eru þessir fundir minnisstæðir fyrir góð- an, faglegan undirbúning Guðjóns og samstarfsmanna hans; auðvitað jók það á ánægju okkar fund- armanna að fréttirnar voru jafnan góðar og svo sannarlega nutum við þess að sjá fyrirtækið eflast frá ári til árs. Og þá vil ég ekki síður minn- ast frábærrar gestrisni sem þau hjónin, Lúlú og Guðjón, auðsýndu okkur við þessi tækifæri. í því efni spöruðu þau hvorki sig sjálf né heim- ili sitt og var jafnan svo til hagað að mannfagnaður yrði ekki einasta til gleði heidur og til gagns í því efni að skapa tengsl við þýðing- armikla kaupendur. Eins og fram hefur komið gerðist Guðjón forstjóri Samb'andsins 1. september 1986. Næstu árin urðu ár mikilla erfiðleika og mikilla átaka sem víst er að enginn gat séð fyrir þegar Guðjón hvarf frá því blómlega búi sem hann hafði skapað starfs- fólki og eigendum Iceland Seafood Corporation. Fljótlega eftir for- stjóraskiptin upphófust umræður um skipulagsmál Sambandsins og komu þá þegar fram af hálfu stjórn- armanna hugmyndir um að breyta aðaldeildum í sérstök fyrirtæki. Þessar hugmyndir voru Guðjóni ekki að skapi og hygg ég að framtíðarsýn hans hafi snúist um stórt deildaskipt fyrirtæki, þar sem hver aðaldeild byggi við mikið sjálfstæði, svo stjórnunarlega sem fjárhagslega. Undir mitt ár 1990 komust stjórn Sambandsins og aðalfundur að þeirri niðurstöðu að ráðlegast væri að breyta öllum aðaldeildum Sam- bandsins í hlutafélög. Guðjón lýsti því þá yfir að hann mundi vinna heils hugar að framgangi skipulags- breytingar í þessa veru, enda væri hún byggð á lýðræðislegri ákvörðun stjórnar og aðalfundar. Við þetta fyrirheit stóð hann og sparaði sig hvergi við það starf sem framundan var. Svo minnisstæður sem Guðjón er rnér frá þeim tíma er hann stóð á hátindi frama síns, þá mun mér og heldur aldrei úr minni líða hetjuleg barátta hans við erfiðan sjúkdóm. Með því hugrekki, sem þar gat að líta, mundi hver maður vilja mæta örlögum sínum en eins víst er hitt, að það mun fáum gefið. Á kveðjustund minnist stjórn Sambandsins með þökk og virðingu starfa Guðjóns B. Ólafssonar fyrir Sambandið og fyrirtæki þess, bæði utan lands og innan. Fyrir hönd stjórnarinnar og okkar Ingu votta ég Lúlú, börnum hennar og allri fjöl- skyldunni dýpstu samúð. Með mikl- um trega minnumst við hjónin þess tíma sem liðinn er og aldrei verður endurheimtur. Guð blessi minningu Guðjóns B. Ólafssonar. Sigurður Markússon. Fréttin um andlát vinar okkar, Guðjóns B. Ólafssonar, sem barst okkur hjónunum sunnudagskvöldið 19. desember sl. var ekki óvænt. Erfið veikindi voru að baki, en lengi var þó lifað í voninni um að endalok- um yrði hægt að fresta um sinn. Kynni okkar Guðjóns, sem fljótlega þróuðust í nána vináttu, hófust árið 1957. Guðjón sneri þá heim frá störf- um hjá SIS skrifstofunni í New York og tók við starfí í sjávarafurðadeild Sambandsins en sjálfur hóf ég, þá nýfluttur til Íslands frá Danmörku, störf í hagdeild Sambands ísl. sam- vinnufélaga í nóvember 1956. For- stöðumanni hagdeildar var tíðrætt um þennan glæsilega og dugmikla unga mann, Guðjón, sem var vænt- anlegur heim frá Bandaríkjunum og sem greinilega voru bundnar miklar vonir við og mér fannst sem ég þekkti hann áður en við hittumst í fyrsta sinn á skrifstofu Sambandsins haust- ið 1957. Störfuðum við síðan saman hjá Sambandinu í um fjögur ár og með okkur og fjölskyldum okkar hófust náin kynni og vinátta sem aldrei féll skuggi á. Arið 1960 kom- um við upp okkar fyrstu íbúðum, í Álfheimunum, og bjuggum með íjöl- skyldum okkar þar í nálægð hvor við annan í um þijú ár eða þangað til leiðir okkar lágu til Evrópu. Guð- jón tók við starfi framkvæmdastjóra skrifstofu SÍS í London árið 1964 en ég hóf störf hjá OECD í París 1963. Var okkur því vandalaust að halda tengslunum áfram yfir Ermar- sundið. Ber þar hæst í minningunni jólin 1964 þegar við hjónin og börn- in okkar dvöldum hjá íjölskyldu Guð- jóns í London. Seinna hafði ég þá ánægju að heimsækja Guðjón og Lúlú í Harrisburg í Bandaríkjunum þar sem hann starfaði sem forstjóri Iceland Seafood Corporation á árun- um 1975 til 1986. Ég var þar árið 1977 og aftur 1983. Sá ég því með eigin augum þær breytingar, m.a. stækkun verksmiðjunnar, sem orðið höfðu á þessu tímabili undir farsælli stjórn Guðjóns og skynjaði þá starfs- orku sem með honum bjó og hversu vinsæll hann var meðal starfsmanna verksmiðjunnar. Mér er ennfremur kunnugt um að þegar líða tók á tím- ann sem Guðjón var í Bandaríkjunum var hann orðinn mjög eftirsóttur fyr- irlesari í starfsgrein sinni, þ.e. físk- vinnslu og -sölu, enda var hann tal- inn með reyndustu og fróðustu mönnum á þessu sviði í Bandaríkjun- um og þótt víðar væri leitað. Starfsþrek og afkastageta Guð- jóns var hreint með ólíkindum og entist honum löngu eftir að veikindi hans gerðu fyrst vart við sig fyrir um þremur árum. Guðjón var einnig með afbrigðum viljasterkur og snöggur að átta sig á kjarna mála. Hlutskipti hans síðustu árin sem for- stjóri Sambands ísl. samvinnufélaga, varð eflaust annað en hann sjálfan og aðra hafði órað fyrir. En þegar staða fyrirtækisins lá ljós fyrir og viðhlítandi aðgerðir reyndust óumf- lýjanlegar varð Guðjón að taka ákvarðanir, sem sumar voru óvinsæl- ar en þó vafalaust nauðsynlegar og gerðar með það fyrir augum að sem allra fæstir yrðu fyrir fjárhagslegu tjóni við uppgjör og síðan endalok Sambandsins. Viljastyrkur Guðjóns kom ekki síst í ljós um og eftir pásk- ana 1991 þegar honum var skýrt frá sjúkdómsgreiningu læknanna. Sagði hann okkur sjálfur frá því nokkrum dögum síðar á sinn æðrulausa hátt um leið og við urðum vitni að því með þvílíku skipulagi og styrk hann hóf varnarbaráttu sína við þennan skæða sjúkdóm sem þó náði undir- tökum að lokum. En það var ekki baráttulaust og uppgjafartónn var Guðjóni fjarlægari en nokkuð annað. Ekki er unnt að minnast á persónu- styrk án þess að geta þáttar eigin- konu Guðjóns, Guðlaugar (Lúlúar) í lífi hans og þá sérstaklega síðustu árin í veikindum hans. Við vinir hans fylgdumst með aðdáun með Lúlú og hvernig hún stóð styrk og án þess að víkja frá hlið hans, í starfi hans sem og veikindum. Síðustu tíu vik- urnar var Guðjón á spítala í Mec- hanicsburg í Bandaríkjunum og vék Lúlú tæplega frá sjúkrabeði hans allan þann tíma en bókstaflega bjó á spítalanum hjá honum. Það var henni án efa mikill styrkur að hafa börnin sín nálægt, en fjögur af fimm börnum Guðjóns og Lúlúar búa sem stendur í eða nálægt Mechanicsburg. Þegar við í dag kveðjum vin okkar Guðjón B. Ólafsson er það með trega og sorg í hjarta. Tregi og sorg voru þó ekki að skapi Guðjóns og hugsum við einnig með gleði til allra þeirra samverustunda sem við áttum saman og með þakklæti til vináttu hans mörg, mörg undanfarin ár. Guðjón var ógleymanlegur persónuleiki. Öft hefur sú spurning vaknað hjá okkur sem höfum þekkt Guðjón frá því hann var ungur maður, hvað það væri við persónuleika hans sem heill- aði mest. Var það traustið sem geisl- aði frá honum, tryggðin, hlýjan eða þessi mikla einlægni í vináttu hans sem fáum er gefin? Við Margrét og börn okkar vottum Lúlú og börnunum þeirra okkar dýpstu samúð við fráfall Guðjóns en vitum að þau munu sækja styrk í sorg sinni í minninguna um frábæran eiginmann og fjölskylduföður sem í einu og öllu hafði hag og velferð fjöl- skyldunnar í fyrirrúmi. Samfylgd við slíkan mann skilur einungis eftir góðar minningar. Torben Friðriksson. Fleiri minningargreinar um Guðjón B. Ólafsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. '93 '94 og 24.801 kr. mánaöargreiðslur r I if - '94 Honda Cmc frá aöeins ki. 1.190.000,- (H) HONDA Vatnagörðum - Sími 689900 -kjaraboð! *Meðalmánaðargreiðsla án vaxta til 3ja ára fyrir Honda Civic 3ja Hyra DX árg. 1994 93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.