Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 » 72 Með morgunkaffinu Kauptu hann, eiskan. Gott grín er það sem fólk þarfn- ast á þessum síðustu og verstu tímum. Nú, fannstu krónu? Til ham- ingju, en erum við ekki að leita að giftingarhring? Jttargnttlifefeife BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Látum ljósin lifa lengur! Innlegg í baráttuna Frá Ragnarí Halldórssyni: Innblástur þessarar blaðagreinar er önnur smágrein sem birtist á ólíkt tilkomuminni vettvangi en Morgunblaðinu: muggunni á les- endasíðu Dagblaðsins V. Þar leggur Guðjón nokkur Sigurðsson fram sinn skerf til lífsbaráttu ljóssins, og ég get alls ekki látið sem sú viðureign komi mér ekki við og ræki því einungis skyldu mína með þessum orðum. Honum finnst eins og flestum að vel hafi tekist til með upphengingu á fallegum jólaljósum og skreytingum í borginni nú fyrir jólin. En tilefni skrifa minna er fyrst og fremst tillaga Guðjóns um að jólaljósin fái að hanga lengur í mið- borginni en venjulega, fram í febr- úar að minnsta kosti, helst í allan vetur, í stað þess að fjarlægja þau áður en nokkur fær rönd við reist. Þetta er ein vitrænasta uppástunga sem ég hef lengi haft spurnir af. Eins og allir vita er venja eftir þrettándann að koma jólaljósunum burt og þá flæðir myrkrið, sem þau halda í skefjum og flúið hefur upp- lýst og glaðvær stræti borgarinnar, hindrunarlaust niður að gangstétt- arbrúnum og hreiðrar þar um sig. Sjálfur hef ég alltaf unnað þessum tírum. Mér finnst líftími þeirra grát- lega stuttur og get alls ekki tekið undir með þeim sem fínnst jólaljós- in verða að óþægilegum minnis- vörðum um nokkurra vikna sjálfs- gleymi sitt þegar þeir vakna á fyrstu dögum nýs árs. Hveijum finnst ekki falleg þessi fjarlægðargulu, undrarauðu, gleði- grænu og tregabláu ljós á svala- handriðum og í trjám og gluggum? Svo ekki sé talað um ljósadýrðina sem nú slútir yfir strætum miðborg- arinnar gömlu. Því sviptum við okk- ur svo fljótt þessu sakleysislega en árangursríka vopni sem vekur ekki aðeins fögnuð í sálum á ferð heldur ógnar skammdegisdrunganum og aftrar sókn myrkursins og gerir hana beinlínis hlægilega? í jafn C-vítamínlausu umhverfi og okkar, sem drögum andann á íslandi, er áskapað ættum við að leggja áherslu á að njóta sem lengst birtunnar sem stafar frá litglöðum sólum og stjömum sem Rafmagns- veita Reykjavíkur lætur okkur í té í desember. Þessi ljós hafa alveg sérstakt gildi. Ástæðan fyrir upp- hengingu þeirra stafar ekki af allra brýnustu nauðsyn heldur er hún tilfinningalegs eðlis og er marktæk- ur vitnisburður um hlý hjörtu þeirra sem stjórna borginni og Rafmagns- veitu Reykjavíkur. Hlutverk þeirra er að kallast á við hjörtu okkar og stappa í okkur stálinu. Einmitt það sem við þrufum. Þau hlæja að myrkrinu og við líka. Tökum ekki niður jólaljósin og stjörnurnar! Bíðum með það þangað til í febrúar eða mars. Mömmur, pabbar, afar og ömmur: Þið öll sem ráðið því hvort ljósin fá að vera lengur: Ekki taka þau niður. Pabb- ar! Neitið að príla út og taka niður ljósin. Mömmur! Gerirði það, leyfið þeim að hanga lengur. Kæra borg- arráð! Þið sem hafið svo næman skilning á þörfum borgarbúa: Stoppið starfsmenn Rafmagnsveit- unnar af og segið þeim að þeir megi ekki taka ljósin niður strax. Leggjum öll lífsbaráttu ljóssins lið. Látum ljósin lifa lengur! RAGNAR HALLDÓRSSON, Bræðraborgarstíg 4, Reykjavík. Flautaþyrlar framsóknar Frá Gunnlaug Eiðsson: Nú gengur maður undir manns hönd í Framsóknarflokknum við að sannfæra sjálfa sig og aðra um það að allt í lagi sé að skipta um skoðun. Meira að segja á það að vera merki um alveg einstakan vit- urleika að snúast. Tilefnið er það að í haust lauk flokkurinn allur upp einum munni um það að rétt væri að lækka virðisaukaskatt á mat- væli um áramótin. En nú talar all- ur flokkurinn einum rómi um það að rangt sé að lækka þennan skatt. Segja aukinheldur núna að matar- skattslækkun sé afspyrnu vitlaus - ekkert minna. Allir, nema kannski Steingrímur. Og síðan framsóknar- menn urðu svo vel gefnir og vitrir að skipta um skoðun síðast, hefur sjálfumgleði þeirra og drýldni flætt yfir alla bakka. Því nú mun það vera sannað og sýnt að þeir séu ekki nátttröll. Þeir eru vitrir menn, geta hugsað og skipt um skoðun. Vitanlega er það mikilsverður hæflleiki að geta breytt um skoð- un. En til þess að vitur maður geri það, verður eitthvað annað að breytast fyrst. T.d. að ný rök komi fram, aðstæður breytist og þar fram eftir götunum. Er það ekki nokkuð dularfullt, þegar heill stjórnmálaflokkur snýst gersam- lega við á svo stuttum tíma? Hvað er það í efnahagsmálum okkar sem hefur breyst svona alveg síðan í haust? Það er rétt að miklu betra væri að hækka skattleysismörk t.d. frekar en að hafa margs konar og flókinn virðisaukaskatt. En hver voru þá rök framsóknarmanna í haust fyrir hreint og beint vitlausri skattalækkun? Gæti ekki einhver þeirra útskýrt það, hvers vegna þá var svo gáfulegt að stefna að lækk- un skattsins um áramót? Staðreyndin er sú að Framsókn hefur aldrei breyst neitt. Ekkert vitkast eða lagast. Hún er opin í báða enda og snýst og snýst bara eftir því hvaðan vindurinn blæs. Svona hringlandaháttur og sýndar- mennska heitir í pólitík lýðskrum. GUNNLAUGUR EIÐSSON, Lindargötu 42, Reykjavík. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar ,, HANN SENOIR þéfZ. UÖLAUÓS i (SÖMSlN þlM." Einn af viðmælendum Víkveija hafði orð á því á dögunum, að Öryrkjabandalag íslands eyddi óþarflega miklum peningum í út- gáfustarfsemi. Til marks um það sýndi hann Víkveija tvö eintök af fréttabréfi Öryrkjabandalagsins, sem borizt höfðu á heimili hans, annað til hans sjálfs en hitt til eiginkonu hans. Hann sagði að hvorugt þeirra hjón væru félags- menn í einhveiju aðildarfélaga Öryrkjabandalagsins og þar að auki væri ástæðulaust að senda tvö eintök af sama ritinu inn á sama heimili. Annað færi beint í ruslaföt- una. Þessi athugasemd á áreiðanlega við í fleiri tilvikum en þessu. Prent- að mál er sent á heimili fólks í miklu magni, í sumum tilvikum til beggja hjóna eða sambýlisfólks. Þau félagasamtök, sem að slíkri útgáfu standa geta áreiðanlega fundið þörf verkefni fyrir þá pen- inga, sem sennilega er hægt að spara með hófsamari útgáfustarf- semi og dreifingu. Þessu er komið hér á framfæri til umhugsunar fyrir Öryrkjabandalagið og aðra. xxx Sú ákvörðun Guðmundar Árna Stefánssonar, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, að skipa mág sinn formann stjórnamefndar rík- isspítala sólarhring áður en ný stjómsýslulög tóku gildi er meira en hæpin. í hinum nýju lögum er m.a. gert ráð fyrir að ráðherra megi ekki hafa afskipti af meðferð máls, sem varðar nána vandamenn þ.á.m. mága. Guðmundur Árni sagði í samtali við Morgunblaðið á gamlársdag, að lögfræðingur ráðuneytis hans teldi þessa ráðstöfun ekki stangast á við hin nýju lög. Ráðherrann verður að gera frekari grein fyrir þessu sjónarmiði. Það dugar ekki að ráðherrar geri ráðstafanir af þessu tagi, sem rök benda til að samræmist ekki lögum, sem þegar hafa verið sett á Alþingi, þótt þau hafi ekki tekið gildi, þegar viðkom- andi ákvörðun er tekin. xxx að verður fróðlegt að fylgjast með því hvað matvælaverð lækkar mikið nú um áramótin. Það .er full ástæða til fyrir neytendur að fylgjast vandlega með hinni lof- uðu verðlækkun. Víkveiji kynntist því fyrir nokkrum dögum, að ekki er allt sem sýnist. í einni af verzlunum tíu-ellefu var sérstakt auglýsingaspjald yfir kartöflupok- um, þar sem fram var tekið að tveggja kílóa poki af kartöflurú kostaði 298 krónur. Við skoðun á kassakvittun eftir að viðskiptum var lokið kom í ljós, að kartöflupok- inn kostaði 348 krónur. Kaup- mönnum ber skylda til að verð- merkja vörur sínar á þann veg, að hægt sé að taka mark á þeim merkingum. I sumum tilvikum eru merkingar svo óljósar og verðmið- ar límdir hver ofan á annan að neytandinn getur tæpast áttað sig á uppgefnu verði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.