Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.01.1994, Blaðsíða 24
 24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994 Bush gagn- rýnir stefnu í málum Sómalíu GEORGE Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gagn- rýndi á mánudag stefnu Banda- ríkjastjórnar í málefnum Sóm- alíu og sagði Bandaríkjamenn hafa fengið á baukinn um heim allan, vegna stefnunnar í land- inu þar sem ýmist væri verið að hefja eða stöðva aðgerðir. Á fimmtudag heldur Bush til Kína í sex daga heimsókn í boði þarlendra stjórnvalda. Óeirðir skipu- lagðar? KOMIÐ hefur í ljós að óspektir sem urðu á Norðurbrú í Kaup- mannahöfn í fyrra eftir at- kvæðagreiðsluna um Maastric- ht-samninginn voru skipulagð- ar, segir í nýrri skýrslu danskra yfirvalda. Lögreglumenn skutu alls 113 skotum í átökunum þegar ráðist var á þá með gijótkasti. Vitni segja nú að nokkrir menn hafi stjórnað að- gerðum og samræmt þær. Kanada ræðst gegn ólögleg- um veiðum KANADÍSK yfirvöld lýstu því yfir á mánudag, að þau hyggðu á aðgerðir gegn þeim skipum sem stunduðu ólöglegar veiðar, rétt utan fiskveiðilögsögu Kanada. Um er að ræða skip frá Panama, Hondúras, Belize og fleiri löndum, sem moka upp fiski úr stofnum sem halda sig á mörkum kanadískrar lögsögu og alþjóðlegra hafsvæða. Segja Kanadamenn skipin ekki eiga kvóta til að veiða á svæðinu. Abkhasar og Georgíumenn til viðræðna FULLTRÚAR georgískra stjómvalda og fulltrúar Abk- hasa hófu friðarviðræður í gær í Genf fyrir milligöngu Samein- uðu þjóðanna, en auk fulltrúa þeirra er aðstoðarforsætisráð- herra Rússlands, Boris Pastuk- hov, viðstaddur til að greiða fyrir viðræðunum. Þjóðimar undirrituðu vopnahléssáttmála 1. desember sl. í Genf. Embætt- ismenn SÞ sögðu viðræðurnar fyrst og fremst snúast um möguleika þess að Abkhasía yrði sjálfstjómarríki í Georgíu og með hvaða hætti það gæti orðið. Spá vaxandi verðbólgu BRESKT fyrirtæki, Dun & Bradstreet, sem sérhæfir sig í viðskiptaupplýsingum, spáði því á mánudag að verðbólga myndi vaxa á næstunni vegna þess að fyrirtæki myndu hækka verð til að vega upp minni hagnað en búist hafi verið við. Að öðru leyti væru horfur í efnahag Breta góðar. Fleiri bílar til Japans SALA bandarísku bílaverk- smiðjanna Fords og Chryslers i Japan eykst hratt þrátt fyrir kreppu í japönsku efnahagslífí en hlutfall þeirra af markaðn- um er þó enn mjög lágt. Chrysl- er seldi Japönum um 5,700 bíla í fyrra, Ford um 5.000. Alls seldust um 200.000 erlendir bflar í landinu. Reuter Zhírínovskíj á þingi ZHÍRÍNOVSKÍJ, leiðtogi þjóðernissinna, lét nokkuð til sín taka á fyrsta degi rússneska þingsins í gær þegar samflokksmaður hans og forseti þingsins, Georgíj Lúkava, missti alla stjórn á þinghaldinu. „Slökktu á hljóðnemunum, rektu þingmenn í sæti sitt og láttu lögregluna hirða þá, sem ekki gegna,“ hrópaði hann til Lúkava, sem reyndi strax að hlýða skipun leiðtoga síns. Rúmenskt verðbréfafyrirtæki ríðar til falls Bálreiðir sígaun- ar hóta að leggja skrifstofuna í rúst Cluj í Rúmeníu. Reuter. ANDRÚMSLOFT yfirvofandi ofbeldis var ríkjandi í rúmensku borg- inni Cluj i gær er hundruð manna hótuðu að gera árás á skrifstofu verðbréfafyrirtækisins Caritas. Ottast er að fyrirtækið sé að komast í greiðsluþrot en fólk sem skaut fé í sjóðinn fékk í fyrstu fjárhæð- ina áttfalda til baka. „Ég skal lúbeija þessa náunga og rústa skrifstofurnar þeirra ef þeir borga mér ekki aftur peningana mína“, sagði Ion Gane, þreklega vaxinn sígauni, og reyndi að fela járnstöng undir frakkanum. Hann sagðist hafa komið alla leið frá Moldovu, sem er í um 400 km ijar- lægð, ásamt 200 félögum sínum sem einnig hefðu verið sviknir og þeir ætluðu að ná aftur fé sínu. Síðustu tvo mánuðina hefur Caritas ekki getað greitt skuldunautum sínum en alls áttu fjórar milljónir Rúmena um 70 milljarða króna hjá fyrirtæk- inu. Á mánudag kom til átaka er Gane og félagar hans reyndu að ráðast á skrifstofurnar, sem eru í ráðhúsinu. Þeir voru vopnaðir hnífum og kylfum og kröfðust þess að Ion Stoica, for- stjóri Caritas, léti sjá sig en hann mun ávallt hafa forðast sviðsljós fjöl- miðla. Eiginkona hans hét því að öllum yrði greitt það sem þeir aettu inni. Lögregla rak loks árásarmenn- ina út úr húsinu en enginn var hand- tekinn. Mikil fátækt er í Rúmeníu og stjórninni, þar sem fyrrverandi kommúnistar ráða ferðinni, gengur illa að koma á umbótum. Umbótasinnar í Rússlandi sjá fram á erfitt og óróasamt þinghald Studmngsmenn Jeltsíns í minnihluta á þinginu Moskvu. Reuter. „ÉG fer ekki fram á, að þingmenn leggi til hliðar skoðanaágreining, heldur að þeir standi saman um grundvallargildi samfélagsins, frið, stöðugleika, þjóðareiningu og endurnýjun," sagði í ávarpi Borís Jelts- íns, forseta Rússlands, við setningu rússneska þingsins í gær. Fund- uðu sambandsráðið og dúman, neðri deildin eða löggjafarsamkundan, hvort í sínu lagi en fyrsta atkvæðagreiðslan í dúmunni virðist ekki boða neitt gott fyrir Jeltsín. Þá sameinuðust þjóðernissinnar, kommún- istar og bændaflokksmenn gegn umbótasinnum og stuðningsmönnum forsetans. Nýja þingið var kjörið í kosning- unum 12. desember sl. en þá var einnig samþykkt ný stjórnarskrá fyrir Rússland. Samkvæmt henni er forsetinn óumdeilanlega vaidamesti maður í landinu og vegur þingsins hefur að sama skapi minnkað. Sýndi það sig meðal annars í því, að ekki var sjónvarpað frá þingsetningunni og aðeins örfáir mættu á mótmæla- fundi, sem boðaðir höfðu verið í til- efni af henni. „Ég er fullkomlega eðlilegur" Vladímír Wolfovítsj Zhírínovskíj, leiðtogi þjóðernissinna eða fijálsra demókrata eins og flokkurinn heitir, fór ekkert með veggjum á fyrsta Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, tilkynnti á leiðtogafundi NATO í Brussel á mánudag að stjórn Úkraínu hefði samþykkt að afsala sér kjamavopnunum. Tals- maður utanríkisráðuneytisins í Úkraínu, Júrí Sergejev, sagði hins vegar að enn lægi aðeins fyrir upp- kast að samkomulagi og það væri ekki enn fullfrágengið. „Ef okkur tekst að ná samkomulagi og skjal liggur fyrir verður það undirritað. Formið er þó ekki alveg á hreinu ennþá, úr þessu gæti orðið sátt- degi þingsins og byrjaði á því að lýsa yfir, að hann yrði ekkert kveð- inn í kútinn. „Ég hef aldrei verið kommúnisti, aldrei setið í fangelsi, aldrei verið á geðveikrahæli og aldrei verið áfeng- issjúklingur. Ég er fullkomlega eðli- legur. Ég er vel máli farinn og vel menntaður," sagði hann við frétta- mennina, sem þyrptust um hann. Kona hans, Ljúdmíla, svartklædd eins og hann, virtist kunna vel við sig i sviðsljósinu og lét brosið aldrei niður falla. Andstæðingar Jeltsíns og umbóta- sinna eru í meirihluta á þingi og þótt Gennadíj Zjúganov, leiðtogi kommúnista, héti því að reyna að máli, samningur, yfirlýsing eða op- inber tilkynning." Leoníd Kravt- sjúk, forseti Ukraínu, og stjóm hans tjáðu sig ekki um samkomu- lagið opinberlega. Clinton breytti ferðaáætlun sinni á síðustu stundu til að geta hitt Kravtsjúk að máli á flugvellinum í Kíev áður en hann heldur til Moskvu frá Brussel í dag. Kravtsjúk fer einnig á fund við Clinton og Borís Jeltsín Rússlandsforseta í Kreml á föstudag og ráðgert er að sam- komulagið verði þá undirritað. vinna með ríkisstjórninni, var annað uppi á teningnum í fyrstu atkvæða- greiðslu í dúmunni. Þá stóðu komm- únistar, þjóðernissinnar Zhír- ínovskíjs og bændaflokksmenn sam- an að tillögu um lágmarksfjölda þingmanna í þingflokki. Voru at- kvæði þeirra 220 gegn 189 atkvæð- um umbótasinna. Gennadíj Búrbúlís, einn af leiðtogum Valkosts Rúss- lands og fyrrum ráðgjafi Jeltsíns, spáði því í gær, að Vladímír Zhír- ínovskíj myndi haga störfum sínum eingöngu með tilliti til næstu for- setakosninga og því mætti búast við erfíðu og óróasömu þinghaldi. Slakað á umbótunum Víktor Tsjernomyrdín, forsætis- ráðherra Rússlands, sagði í gær, að ríkisstjórnin myndi fara sér nokkru hægar í róttækum efnahagsumbót- um og forðast illa grundaðar ákvarð- anir. Hann varaði hins vegar við lýðskrumi og gervilausnum og sagði, að engin auðveld leið væri út úr erfíðleikunum. Clinton sagði eftir að leiðtoga- fundi NATO lauk í gær að hann væri bjartsýnn á að Kravtsjúk tæk- ist að fá þing Úkraínu til að fallast á samkomulagið. „Ég tel að Kravt- sjúk virði samkomulagið. Forsetar verða oft að fá löggjafarþingin til fylgis við hluti sem þeir vita að þjóna hagsmunum ríkisins.“ Þjóðernissinnar á úkraínska þinginu sögðust andvígir samkomu- laginu en frjálslyndir þingmenn sögðu að þingið myndi að öllum lík- indum fallast á að láta kjarnavopn- in af hendi ef Úkraínumenn fengju loforð um meira en milljarð dala, rúmlega 70 milljarða króna, í að- stoð. í dúmunni sitja 450 þingmenn og er skiptingin milli flokka þessi: Fijálsir demókratar (Zhírínovskíj) 64; Valkostur Rússlands 58; Komm- únistar 48; Bændaflokkurinn 33; Kvennaflokkurinn 23; Jablonko 22; Pres 19; Lýðræðisflokkurinn 15; Lýðræðisl. umbótafl. 4; Óháðir 154;. Flokkur virðingar og umhyggju 2 og Borgarabandaiagið 2. -----» ♦ ♦ EES-samningur Reyiia á vín- innflutning vegna EES Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunbladsins. FYRSTI vínfarmurinn, sem reynt verður að flytja inn án milligöngu áfengisverslunar finnska ríkisins, er væntanlegur til Finnlands inn- an fárra daga. Finnsk áfengisiög banna einkainnflutning en hópur veitingahúsa- og hóteleigenda hyggst nú láta reyna á hvort regl- an um frjáls viðskipti í Evrópu vegna EES-samningsins nái einnig til víns. Samtök finnskra veitingahúsa hyggjast áfrýja væntanlegu banni á þennan innflutning til hæstaréttar og knýja þar með fram úrskurð um hvort fínnska áfengislöggjöfín bijóti í bága við EES-sáttmálann, sem á að vera gildandi lög. Veitingahúsaeigendur segja að ríkiseinkasalan Alko hafí allt of dýr- ar vörur á boðstólum og lélegt úr- val. Nú gefíst veitingahúsum tæki- færi til að koma sér upp eigin vín- kjallara og hafa sjaldgæfar tegundir á boðstólum. Finnsk yfirvöld eru hins vegar uggandi. Félagsmálaráðuneytið, sem sér um áfengismál, er þeirrar skoð- unar að EES-samningurinn breyti engu varðandi innflutning áfengis til Finnlands. Tollurinn er furðu lostinn og hefur sent út fyrirmæli til allra tollstöðva um að fylgja gömlu reglun- um þar til og ef lögum verður breytt. Úkrainumenn semja við Rússa og Bandaríkjamenn um kjamavopn Sanikomulagið er samt ekki fullfrágengið enn Kíev. Reuter. TALSMAÐUR utanríkisráðuneytisins í Úkraínu sagði í gær að eftir væri að ganga frá samkomulaginu við Rússa og Bandaríkjamenn um að Úkraínumenn létu kjarnavopn sín af hendi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.