Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1994 Stefán íslandi Kveðja að heiman Ég hafði verið að dunda eitthvað suður í Bæjarnesi. Þegar ég kom heim í hlaðvarpann heyrði ég að einhver var að syngja inni í bæ. Það var engin nýlunda því mikið var sungið í Eyhildarholti en þessa rödd þekkti ég ekki. „Hver er kom- inn?“ spurði ég Svein afa, sem ég mætti á hlaðinu. „Það er hann Stebbi söngur," svaraði afi. Ég var nú litlu nær því ég kannaðist ekki við neinn, sem hét „Stebbi söngur“. Ég ákvað að athuga þetta betur og hraðaði mér upp í norðurstofu, því þaðan bárust þessir tónar. Og Tnikið rétt, þarna sat pabbi við org- elið og við hlið hans stóð unglingur og söng með þeirri fegurstu rödd, sem ég hafði heyrt. Ég læddist fram hjá söngvaranum, settist flötum beinum á gólfið í norðausturhorni stofunnar og bærði ekki á mér fyrr en þessari ógleymanlegu söngveislu var lokið. Og þetta var þá hann „Stebbi söngur“, sem afí nefndi svo, og ég heyrði síðar fleiri gera, með öðrum orðum: Stefán Guðmundsson. Og hvað var eðlilegra en að þessi piltur væri nefndur „Stebbi söngur“? Feg- urri söngrödd hafði ég aldrei heyrt. Hann söng jafnvel betur en Sveinn afi en það hafði ég nú, til þessa, álitið að ekki væri hægt. Og enn man ég sum lögin, sem hann söng þarna í norðurstofunni þennan sunnudag: Friðarins guð, Miranda, Brúnaljósin blíðu, Heimi, Kirkju- hvol, Sunnudag selstúlkunnar. Þessi för Stefáns fram í Eyhildar- holt var aðeins ein af mörgum slík- um á meðan hann átti heima í Hegranesinu. Stefán Guðmundsson mun um þessar mundir, frá vori 1924 til vors 1925, hafa verið vinnumaður í Ási í Hegranesi. Engan mun þá hafa órað fyrir því hver framtíð þessum fátæka vinnupilti var búin. En hann átti ómetanlegan íjársjóð þar sem var söngröddin og sá fjár- sjóður entist honum, með góðra manna hjálp, til þess að verða ást- sælasti söngvari íslenskrar þjóðar. Ég er ekki viss um að það sé á margra vitorði hvenær Stefán söng „opinberlega" í fyrst sinn. Á Læk í Viðvíkursveit hafði verið byggt samkomuhús, lítið og ófullkomið á allan hátt en kom sér þó vel og var mikið notað í þá daga, bæði til hverskonar fundahalda og dans- leikja. Kvenfélagið í sveitinni hafði nú ákveðið að efna til samkomu í Lækjarhúsinu og mæltist til þess við vinnupiltinn í Ási að hann syngi þarna nokkur lög. Stefán skoraðist aldrei undan því að taka lagið, enda var það hans eftirlætis-„iðja“, og varð auðvitað við þessari beiðni kvennanna í Viðvíkursveitinni, að því tilskildu þó, að pabbi fengist til þess að annast undirleikinn. Það var auðvitað sjálfsagt að verða við því. Stefán kom fram í Eyhildar- t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RÓSA ÁRNADÓTTIR, Laufvangi 16, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þríðjudaginn 25. janúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Hafnarfjarðarkirkju. Karl Brynjólfsson, Kristín Kristjánsdóttir, Sóley Brynjólfsdóttir, Bjarni Ágústsson, Haukur L. Brynjólfsson, Ásgerður Hjörleifsdóttir Bragi Brynjólfsson, Guðlaug Björgvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. J + Ástkær móðir okkar og systir, GUÐRÚN ALFONSDÓTTIR, Barmahlíð 42, Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju þriðju- daginn 25. janúar kl. 13.30. Björn Jóhann Guðjohnsen, Sigurður Kristinn Guðjohnsen, Jón Alfonsson. t Móðir okkar og tengdamóðir, ANNA BEKK GUÐMUNDSDÓTTIR frá Seyðisfirði, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 25. janúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningarsjóð Skjóls. Vilborg Einarsdóttir, Einar Einarsson, Jórunn Einarsdóttir, Hreggviður Þorgeirsson, Einar Runólfsson, Ólöf Stefánsdóttir, Fríðþjófur Másson, Herborg H. Halldórsdóttir. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, INDRIÐI BJÖRNSSON, áður Blómvallagötu 13, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 27. janúar kl. 13.30. Björn Indriðason, Elsa Gunnarsdóttir, Einar Bragi Indríðason, Þóra Elín Helgadóttir, Aðalheiður Björk Indriðadóttir og barnabörn. holt og þeir pabbi komu sér saman um hvaða lög hann skyldi syngja. Samkoman átti að vera á annan jóladag, ef ég man rétt. Að undan- förnu hafði verið asahláka og mikil leysing og var svo enn. Stefán hafði komið fram í Eyhildarholt seinni- part dagsins. Um kvöldið var svo hesti beitt. fyrir sleða og ekið út Eylendi, _í svartamyrkri og sunnan- stormi. ísinn virtist vera nokkuð traustur en vatnsagi var mikill og skóf vatnið yfir þá félaga í stormin- um. Reyndist sleðaferðin því ærið vatnsborin og fremur kaldsöm þeg- ar vatnið fór að síast inn úr fötun- um. Á Læk var þeim félögum tekið með kostum og kynjum. Kvenfé- lagskonur báru þeim þegar brenn- heitt kaffi og hefur áreiðanlega fylgt með sá „kaffibætir" sem löng- um hefur þótt duga vel veðurhrökt- um mönnum. Og svo hófst söngur- inn. Samkomusalurinn var svo þétt- skipaður að þar stóð maður við mann. Allt gekk áfallalaust þótt eitt óhapp henti, sem þó kom ekki að sök. Stefán var að syngja lagið „Friðarins guð“. Lagið var prentað á eina opnu í bókinni og byrjaði auðvitað á síðunni til vinstri. En þegar kom að síðunni hægra megin var það blað á bak og burt. Blöðin voru orðin laus úr kilinum og hefur þetta blað einhvernveginn lent á skökkum stað. Stefán hélt auðvitað sínu striki og ekki dugði að hætta undirleiknum í miðju lagi svo pabbi spilaði seinni hlutann bara „eftir e_yranu“ og mun það hafa blessast. Áheyrendur munu einskis hafa orð- ið varir enda beindist athygli þeirra fremur að söngnum en undirleikn- Stefán Guðmundsson 21 árs gam- all. Myndina tók Loftur Guð- mundsson í september 1929. um. Söng Stefáns var tekið með miklum fögnuði. Varð hann ekki aðeins að endurtaka flest lögin held- ur einnig að bæta við aukalögum. Sagði Stefáns síðar, að aldrei hefði sér þátt vænna um neinar undir- tektir við söng sinn en þær, sem hann fékk þetta skammdegiskvöld í litla húsinu á Læk. Nú fór að styttast í veru Stefáns í Skagafirðinum. Hann hvarf að söngnámi, fyrst hér heima og síðan erlendis. Er sá ferill alkunnur og verður ekki rakinn hér. Skagfirð- ingar, sem og þjóðin öll, glöddust yfir frama hans og fögnuðu hverj- + Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, frá Kaldárbakka, lést í Kumbaravogi 16. þ.m. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 24. janúar nk. kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Bergsveinsdóttir Corbin. + Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs föður míns, afa og langafa, MAGNÚSAR V. FINNBOGASONAR mag. art., Drápuhlíð 32. Hjördís Magnúsdóttir, Kristín Anna Einarsdóttir, Guðmundur Örn Einarsson, Helga Einarsdóttir, Áslaug Helga Hálfdánardóttir og barnabarnabörn. + Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðar- för móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTRÍÐAR J. VIGFÚSDÓTTUR, Kleppsvegi 40, Reykjavik. Sérstakar þakkir færum við Heimastoð og læknum og hjúkrunar- fólki á deild 12-G, Landspítalanum. Guð blessi ykkur öll. Þóra M. Hreiðarsdóttir, Haraldur E. Magnússon, Ástríður Haraldsdóttir, Guðbjörg Haraldsdóttir, Hreiðar Páll Haraldsson, Erla Ólafsdóttir og barnabarnabörn. + Við þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls bróður okkar, REYNIS HELGA ÓLAFSSONAR, Hólabergi 56. Útförin hefurfarið fram. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarfélag vangefinna. Svala, Smári, Ómar og Sigriður. um nýjum sigri. En þótt hann dveldi langdvölum erlendis þá gleymdi hann ekki löndum sínum hér heima. Hann kom heim svo oft, sem föng voru á, hélt þá jafnan tónleika víðs- vegar um land og ávallt við ein- dæma fögnuð og hrifningu áheyr- enda. Ég hygg það hafi verið síðsum- ars 1937 að Stefán fór sem oftar í söngför um landið og annaðist Páll ísólfsson undirleikinn. Þá söng Stefán í Varmahlíð í Skagafirði og var það í fyrsta skipti sem ég heyrði hann syngja hér heima eftir að hann hafði lokið námi. Samkomu- salurinn í Varmahlíð troðfylltist svo að út úr flóði, í bókstaflegri merk- ingu. í ganginum framan við sal- inn, stóð maður við mann. Samt komust ekki allir undir þak og urðu sumir að standa utan húss en gluggar höfðu verið opnaðir svo að einnig þeir gætu notið söngsins. Óli minn í Álftagerði, sem kynntist Stefáni þegar hann var að alast upp í Syðra-Vallholti og tók þá miklu ástfóstri við þennan unga söngfugl, stóð fast upp við senuna, starði beint framan í Stefán og tárfelldi af hrifningu. Páll ísólfsson hafði lagt töskuna sína ofan á orgelstólinn til þess að hækka sig í sessi. Nú tóku þeir, sem næstir stóðu senunni, eftir því, að einhver vökvi var farinn að renna niður stólinn. Sjálfsagt hefur þeim sem sáu þótt þetta kyndugt fyrir- bæri en Páll lét ekki á neinu bera, þeir félagar luku við lagið og lófa- klappið dundi. Þá stóð Páll á fæt- ur, opnaði töskuna og tók upp úr henni koníaksflösku, en í henni hafði tappinn eitthvað gefið sig og af því stafaði lekinn. Páll þrýsti tappanum betur niður í flöskustút- inn og sagði: „Þetta er nú bara eins og maður sé að fara í göngur.“ Og þá var mikið klappað. Síðan héldu tónleikarnir áfram. Já, þetta var eftirminnilegt ágústkvöld fyrir margra hluta sakir. Hér er ekki ætlunin að rekja af- reka- og æviferil Stefáns íslandi, það hafa aðrir gert vel og maklega, aðeins að rifja upp bernsku- og æskuminningar mínar um þennan ástsæla listamann. Að lokum löng- um frægðarferli erlendis flutti hann hingað heim. Hann kom ekki til heimalandsins hlaðinn gulli og öðr- um verðmætum líkt og títt var um víkinga forðum daga. En hann kom með annað verðmætara: orðstír sem varpað hefur ljóma á litla eyþjóð norður við heimskautsbaug. Stefán Islandi andaðist hinn 1. janúar síðastiðinn, 86 ára að aldri. Útför hans fór fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 7._ janúar. Séra Guðmundur Óskar Ólafsson flutti minningarorð en Karlkór Reykja- víkur annaðist sönginn að öðru leyti en því að Söngsveitin Drangey söng fyrsta erindið af Skagaíjarðarkvæði séra Matthíasar og hinn gamli fé- lagi og vinur Stefáns, Guðmundur Jónsson óperusöngvari, söng Lof- söng Beethovens. Likamsleifar Stefáns íslandi voru fluttar til Skagafjarðar og jarðsett- ar þ_ar, að eins eigin ósk. „Á vöggunar landi skal varðinn standa.“ Væringinn verður endan- lega kominn heim. Magnús H. Gíslason. tíl kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.