Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.01.1994, Blaðsíða 1
64 SIÐUR LESBOK/C STOFNAÐ 1913 23. tbl. 82. árg. LAUGARDAGUR 29. JANUAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hvít-Rússar vilja nánari tengsl við Rússa Kommúnisti sigr- ar í leiðtogakjöri Mínsk. Reuter. KOMMÚNISTINN Metsjíslav Gríb var kjörinn forseti þings Hvíta-Rússlands og þar með leiðtogi landsins í gær. Gríb kveðst stefna að auknum samruna sovétlýðveldisins fyrrverandi og Rússlands. Metsjíslav Gríb fékk 183 at- kvæði í seinni umferð leiðtoga- kjörsins á þinginu og eini mótfram- bjóðandinn, Míkhaíl Marínítsj, sem Stjórn Færeyja Sjóðirnir aðtæmast Þórshöfn. Frá Grækaris Djurhuus Magn- ussen, fréttaritara Morgunblaðsins. FÆREYSKU landstjórninni tókst á síðustu stundu að endur- greiða jafnvirði 1,8 milljarða ís- lenskra króna lán frá japanska bankanum Dai-Ichi í gær. Til þess þurfti stjórnin að nýta sér nánast alla lánamöguleika sína í færeyskum bönkum, þannig að greiðsluþolið er orðið afar lítið. Landstjórnin og stjórnvöld í Dan- mörku höfðu samið um að Danir greiddu af erleridum lánum hennar. Danir settu þó það skilyrði að land- stjórnin og færeyska lögþingið settu lög um framseljanlega kvóta á fær- eysku hafsvæði fyrir 1. febrúar. Andstaðan við framseljanlega kvóta er hins vegar svo mikil í Færeyjum að lögin hafa ekki enn verið sett. Það varð til þess að danska stjórnin neitaði að endur- greiða japanska lánið. Marita Petersen, lögmaður Fær- eyja, sagði í samtali við Dimmalætt- ing að landstjórnin gæti staðið við skuldbindingar sínar næstu 3-4 vikurnar, eftir það yrði greiðsluget- an engin. Finnbogi Isakson fjár- málaráðherra sagði að svo gæti farið að landstjórnin gæti ekki greitt laun ríkisstarfsmanna og eft- irlaun. er einnig kommúnisti, fékk 51 at- kvæði. Gríb tekur við embættinu af Staníslav Shúshkevítsj, sem varð að segja af sér á miðvikudag eftir að þingið samþykkti vantrauststil- lögu á hann. Shúshkevítsj hafði í tvö ár beitt sér fyrir efnahagsum- bótum og vildi að Hvíta-Rússland yrði hlutlaust ríki. Hann átti hins vegar undir högg að sækja í barátt- unni við afturhaldsöflin á þinginu og í stjórninni. Gríb er 55 ára gamall, fyrrver- andi hershöfðingi í sovéthernum og yfirmaður innanríkisráðuneytis- ins í Mínsk. Hann naut stuðnings öflugrar fylkingar sem vill koma á ríkjasambandi Hvíta-Rússlands og Rússlands. „Ég styð þau áform þingsins og stjórnarinnar að auka efnahags- tengslin við nágrannana í austri," sagði Gríb í ræðu á þinginu fyrir atkvæðagreiðsluna. „Tengslin við austrið og hið mikla Rússland eru allra mikilvægust fyrir okkur.“ Hvíta-Rússland er eitt aftur- haldssamasta sovétlýðveldið fyrr- verandi og hefur tengst Rússlandi nánari böndum undanfarna mán- uði. Ríkin hafa meðal annars sam- ið um að mynda varnar- og mynt- bandalag. Reuter Sex látnir í óveðri AÐ MINNSTA kosti fimm Þjóðveijar og einn Belgi hafa látist í óveðri sem gekk yfir Vestur-Evrópu í gær. Flestir hinna látnu voru ökumenn sem óku á tré sem féllu á vegi í veðurhamnum, sem náði 170 km hraða á klukkustund þegar mest var. Miklar umferð- artafir og skemmdir urðu vegna veðursins. Myndin er tekin af starfsmanni skíðasvæðisins í Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi beijast áfram í snjóbyl en fresta varð keppni í bruni kvenna vegna veðurs. Könnun á Ítalíu Bandalög- in tiltölu- legajöfn Rómaborg. Reuter. ÍTALSKIR kjósendur skiptast tiltölulega jafnt milli þriggja fylkinga í þingkosningunum í mars - vinstriflokka, hægri- flokka og miðflokka - sam- kvæmt skoðanakönnun sem birt var í gær. Bandalag vinstriflokka, undir forystu Lýðræðisflokks vinstri- manna, kommúnistaflokksins fyrr- verandi, fékk 35,2% fylgi, af þeim sem tóku afstöðu. 34% sögðust styðja hugsanlegt kosningabanda- lag hægriflokka; Norðursambands- ins, sem vill sjálfstjórn Norður-ítal- íu, Forza Italia („Áfram Ítalía“), flokks fjölmiðlakóngsins Silvios Berlusconis og Þjóðarbandalagsins, undir forystu ný-fasista. 30,7% studdu hugsanlegt bandalag mið- flokka, undir forystu ítalska sátt- málans (leiðtogi hans er Mario Segni) og Þjóðarflokksins, sem for- ystumenn Kristilega demókrata- flokksins stofnuðu í vikunni sem leið. 15% aðspurðra voru óákveðin. Hægri- og miðflokkarnir hafa ekki enn myndað kosningabanda- lög en fréttaskýrendur telja líklegt að þeim takist það. Ekki er ljóst af könnuninni hvernig þingsætin gætu skipst á milli bandalaganna þar sem tveir þriðju þingmannanna verða kjörnir í einmenningskjör- dæmum. Stjórn Króatíu sökuð um hemaðaríhlutun í Bosníu Allt að 12 þúsund hermenn sendir til landsins að sögn bosnísku stjórnarinnar Zhírínovskíj breytir landa- mærum Evrópu RÚSSNESKI þjóðernissinninn Vladímír Zhírínovskíj var í gær á ferð um Slóveníu og að sögn júgó- slavnesku fréttastofunnar Tanjug hafa þarlend yfirvöld beðið hann að fara þaðan sem allra fyrst vegna óláta fylgdarliðs hans á hóteli nokkru. Frá Slóveníu hyggst Zhír- ínovskíj fara til Belgrad. Franska dagblaðið Le Monde kvaðst í gær hafa komist yfir kort sem Zhír- ínovskíj hefði breytt í samræmi við hugmyndir sínar um landamæri Evrópuríkja í framtíðinni. Austur- ríki, Slóvenía, Eystrasaltsríkin, Tékkland og Bosnía voru máð af kortinu, auk þess sem Pólland og Rúmenía voru minnkuð verulega. Myndin var tekin þegar Zhír- ínovskíj ræddi við blaðamenn á prédikunarstóli í Bled í Slóveníu. Reuter Sar^jevo. Reuter. STJORN Bosníu sakaði í gær stjórnvöld í Króatíu um að hafa sent allt að 12.000 hermenn, m.a. skriðdreka- og þyrlusveitir, til Bosníu og hvatti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til að stöðva þessa hernaðarílilutun. Haris Silajdzic, forsætisráð- herra Bosníu, sagði að hermenn- irnir tækju þátt í bardögum Bosn- íu-Króata við stjórnarherinn. Áður hafði stjórn hans óskað eftir bráðafundi í öryggisráðinu „til að fordæma þessa hernaðaríhlutun lýðveldisins Króatíu“ og gera ráð- stafanir til að binda enda á hana. Silajdzic sagði að stjórnvöld í Króatíu hefðu alltaf stutt tilraunir Bosníu-Króata til að stofna smá- ríki innan landamæra Bosníu frá því stríðið í landinu blossaði upp í apríl 1992 en hernaðaríhlutunin hefði hafist fyrir um viku. Stjórn- völd í Serbíu hefðu einnig sent sérsveitir til hjálpar Bosníu-Serb- um fyrr í mánuðinum og svo virt- ist sem Króatar og Serbar hefðu komið sér saman um stórsókn gegn múslimum í Bosníu. Stjórn- völd í Króatíu og Serbíu ákváðu fyrir tíu dögum að taka upp stjórn- málasamband. Stjórnvöld í Serbíu hafa ekki farið leynt með þátttöku sína í stríðinu í Bosníu en stjórn Króatíu hefur alltaf neitað því að hermenn hennar hafi stutt Króata í landinu, enda óttast hún refsiað- gerðir af hálfu Sameinuðu þjóð- anna. Harðir bardagar geisuðu í gær í bænum Mostar í suðvesturhluta Bosníu og þrír starfsmenn ítalska ríkissjónvarpsins biðu þar bana. Þá eru múslimar grunaðir um að hafa skotið breskan starfsmann Sameinuðu þjóðanna og sært tvo í miðhluta landsins. Ellefu starfs- menn samtakanna hafa látið lífið í stríðinu. Sjá „Múslimar myrða bresk- an ...“ á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.