Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994 íslenskir þátttakendur á Vetrarólypíuleikum 1948-1984 10 1MB 1.1952 0 1972 <bv ibmh:;l-i ..... ✓ J .✓ J*. ✓ .jf .jJ .✓ v#\x < ✓ /// ^ ■ ÞJÁLFARAR liðanna úr A- og B-riðli úrvalsdeildarinnar í stjörnu- leiknum í körfuknattleik á laugar- dag, Jón Kr. Gíslason og Valur Ingimundarson, mættu heldur bet- ur reffílegir til leiks. Báðir voru í sínu fínasta pússi, í jakkafötum með hálstau og var sérstaklega tekið fram í kynningu á liðunum að fatnaður þjálfaranna væri frá versluninni Per- sónu í Keflavík. ■ DÓMARI frá tyrkneska hlutan- um á Kýpur hefur verið kærður fyr- ir að stinga þijá menn eftir knatt- spymuleik. Þannig var má! með vexti að bálreiðir áhangendur annars liðs- ins réðust inn í búningsklefa hans og línuvarðanna eftir leik í 2. deild- inni á Kýpur á sunnudaginn og hugðust beija þá. Yusuf Alkin dóm- yri neitar að hafa stungið mennina þrjá, því blaðið á hnífnum hans — sem var 2 sentímetra Iangt — hafi brotnað er hann lagði til þess fyrsta... ■ KYLFINGAR báru fram tillögu á ársþingi sínu um helgina að reyk- ingar skyldu bannaðar í opnum mót- ÍÞR&mR FOLK um. Eftir að einn þingfulltrúa hafði komið í pontu og lýst með skemmti- legum hætti skoðun sinni á tillög- unni, sem hanri var mótfallinn, var ákveðið að vísa málinu til stjómar. ■ ANDREAS Thiel, hinn kunni landsliðsmarkvörður Þýskalands í handknattleik, fótbrotnaði illa í leik með Dormagen gegn Essen um helgina. Hann verður ekkert meira með í vetur og litlar líkur eru á að hann verði með liði Þýskalands í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða í Portúgal í sumar. ■ SÆNSKI varnarmaðurinn Jan Eriksson er á leiðinni frá þýska knattspyrnuliðinu Kaiserslautern til Everton í Englandi. Hann er 26 ára. ■ TERRY Venables, nýráðinn landsliðsþjálfari Englands í knatt- spymu, er að hugsa um að gera Pau) Gascoigne að fyrirliða landsliðs- ins eftir því sem Sky sjónvarpsstöðin sagði fyrir helgi. Gascoigne lék und- ir stjóm Venables hjá Tottenham á sínum tíma. ■ KYLFINGUR á Nýja Sjálandi, náði draumahögginu í fyrsta skipti á laugardag, en lést skömmu síðar. Eric Johnson, sem var 7 ára, fór holu í höggi á velli í Southland þar sem hann tók þátt í móti og fékk sérstakt bindi afhent í tilefni árang- urs. Sæll og giaður hélt hann heim á leið, en hné örendur niður fyrir utan hús sitt. ■ ZICO, brasilíski knattspyrnu- maðurinn kunni sem leikið hefur með Kashima Antlers í Japan undanfar- ið, hættir með félaginu í júní þegar samningur hans rennur út og ætlar að flytja aftur heim til Brasilíu. Zico er orðinn fertugur og segist ekki hafa kraft til að leika lengur. ■ STEVE Bruce, fyrirliði enska meistaraiiðsins Manchester United hefur gert nýjan þriggja ára samning við félagið, sem rennur út þegar hann verður 36 ára. Samningurinn er sagður tryggja Bruce 600.000 pund — andvirði um 75 milljóna króna — með bónusgreiðslum ef lið- inu gengur vel, eins og búast má við. BIKAR Viss íhaldssemi þykir kostur í íþróttum. í vinsælum grein- um er reglum ekki breytt breyt- inganna vegna heldur að yfirveg- uðu og vel athuguðu máli. Skipulagning og framkvæmd, sem hafa sannað sig, eru í föst- um skorðum. Ákveðn- ir leikdagar eru í heiðri hafðir. Hefðin hefur mikið að segja. Þessi atriði vega þungt í knattspyrn- unni, vinsælustu íþróttagrein heims, og aðrar greinar hafa þau að leiðarljósi. Uppskrift, sem leið- ir til vinnings, stendur ávallt fyr- ir sínu. í boltagreinum eru bikarúr- slitaleikir hápunktur hvers tíma- bils. Fyrir leikmenn. Fyrir félög. Fyrir stuðningsmenn. Fyrir sam- bönd. Allir eiga sér þann draum að taka þátt í bikarúrslitum. Bið- in er löng, en þess virði fyrir þá, sem ná alla leið. Þegar hindrun undanúrsiita er úr vegi liggur fyrir að sjálf úrslitin eru skammt undan. Á fyrirfram ákveðnum degi. Samkvæmt settum reglum á svipuðum tíma og árið áður. Eins og það hefur alltaf verið síðan hefðin komst á. Handboltatímabilið byggir annars vegar á deildarkeppni með úrslitakeppni í lokin og hins veg- ar bikarkeppni, sem lýkur í Þorra eða þar um bil. í fyrra fóru úr- siitaleikir bikarkeppni karla og kvenna fram aðra helgina í febr- úar, og var framkvæmdin ölium til sóma. í ár áttu leikirnir að fara fram 20. febrúar samkvæmt mótaskrá, en breyting varð á um helgina. Mótanefnd flýtti kvenna- leiknum um einn dag, en seinkaði karlaleiknum um hálfan mánuð. Óæskilegt er að riðla fyrirfram ákveðnu skipulagi, einkum þegar um úrslitaleik er að ræða, þvi úrslitaleikur er fyrir íþróttafíkla sem sprengidagur fyrir matháka. Á sama degi, ár eftir ár. Fastur viðburður í tilverunni, tilhlökkun- arefni. Bollur í gær, saltkjöt og baunir í dag, öskupoki í frakkann á morgun. Við fyrstu sýn virðist HSÍ hafa farið út á hála braut með fyrr- nefndum breytingum, einkum hvað varðar karlaleikinn. En þeg- ar betur er að gáð stóð HSÍ frammi fyrir tveimur kostum og hvorugum góðum, þegar á heild- ina er litið. Annars vegar að láta mótaskrána standa, sem hefði þýtt tekjutap fyrir viðkomandi félög og sambandið, og hins veg- ar að fresta leiknum, sem gæfí aðilum meira í aðra hönd. Reglugerð HSÍ um bikarkeppni býður uppá óvissu og óná- kvæmni. Teygjanleika og óstöð- ugleika. Skiljanlega vill samband- ið úrslitaleiki í beinni útsendingu sjónvarps. Það gefur auknar tekj- ur, beinar sem óbeinar, og er íþróttinni til framdráttar. Félögin fólu HSÍ að ná samningum við sjónvarp. RÚV svaraði boði fyrir tilskilinn frest, Stöð 2 svaraði ekki. RÚV gat ekki sýnt beint á áður ákveðnum tíma og með mik- ilvægi beinnar útsendingar í huga var leiknum frestað um hálfan mánuð. í sjálfu sér skiptir ekki máli hvort bikarúrslitaleikurinn fari fram í Þorra eða Góu, en þegar til lengri tíma er litið er aðalatrið- ið að hann fari fram á sama tíma árlega. Að allir viti að ákveðinni dagsetningu verði ekki breytt. Líka sjónvarpsstöðvar. Þá er hvorki hætta á dylgjum um að verið sé að hygla einum eða öðr- um né athugasemdum um of skamman undirbúningstíma. Þá verður bikarúrslitaleikur eins og hann á að vera, einn með öllu á föstum stað í dagatalinu. Um- ræddri reglugerð þarf að breyta í þessa veru. Steinþór Guðbjartsson Fastir leikdagar, ekki síst í bikarúrslitum, grunnur hefðar ErHólmarinn BÁRÐUR EYÞÓRSSOIM ekki þreyttur á að keyra alltafvestur? Geríþettaekki næsta vetur BÁRÐUR Eyþórsson, aðalskytta úrvalsdeildarliðs Snæfells í körfuknattleik hefur ekki setið auðum höndum í vetur. Um hverja helgi sest hann upp íbíl sinn og ekur frá Reykjavík vesturtil Stykkishólms til liðs við Snæfell. Bárður er í Stýri- mannaskólanum í Reykjavík, æfir körfuknattleik með Leikni f Reykjavfk en leikur með sínu heimaliði, Snæfelli, f úrvalsdeild- inni. Bárður lék einnig með Snæfelli ífyrra en þá bjó hann fyrir vestan. Bárður, sem er nýorðinn 26 ára, ætlar að ljúka við annað stigið í Stýrmimannaskólanum næsta vetur og Eftir taka þar með Skúla Unnar „fiskimanninn", Sveinsson en þá hefur hann réttindi til að stjórna öllum fiskiskipum. En ætlar kappinn ekki að taka „frakt- arann“ líka? „Nei, ég held það sé ekkert fyrir mig og læt fiskimanninn því duga. Ég hef alltaf verið talsvert á sjónum og núna síðustu árin hef ég verið á 100 til 150 tonna bátum með tengdó,“ segir Bárður en hann er trúlofaður. „Mér líkar vel á sjónum og við fiskiríið. Það er ágætt að taka fiskimanninn og geta þá farið að ráða yfir tengdó!" Er ekki þreytandi að hcndast um hverja helgi til Stykkishólms? „Jú, það er eiginlega ekki hægt að neita því, þetta er mjög erfitt, og ég held mér sé óhætt að full- yrða að ég geri þetta ekki aftur. Ég og kærastan förum vestur á hveijum föstudegi og þá næ ég að æfa með liðinu á föstudögum og laugardögum, þegar ekki eru leikir. Ég held að þetta gangi hreinlega ekki upp því ég næ ekki árangri með svona lítilli æfingu og liðið getur varla náð mjög langt með svona flakkara. Annars hef ég æft með Leikni í Reykjavík tvisvar í viku, en þar ræður Torfi Magnússon ríkjum. Ef Leiknir er hins vegar að leika á mánudögum þá dettur niður æfing hjá mér. Þegar við eigum heimaleiki í miðri viku fer ég auð- vitað vestur og fæ þá stundum að fljúga með dómurunum; ég er besti vinur dómaranna!" Morgunblaðið/Sverrir Bárður Eyþórsson fyrir utan Stýrimannaskólann í góða veðrinu í gær. Hvað evtu lengi að keyra til Stykkishólms? „Verður maður ekki að segja tvo og hálfan til þijá tíma,“ segir Bárður og hlær við eins og hann hafi einhvern tíma verið fljótari í förum. Hvenær byrjaðir þú í körfunni, og hvers vegna? „Við vorum alltaf að fikta í körfubolta heima í Hólmi þegar ég var yngri en ég fór ekki að æfa og keppa af neinu viti fyrr en ég kom hingað suður í skóla, 16 ára gamall. Annars hef ég verið í öllum íþróttum og nokkuð mikið í fótbolta og fijálsum og keppti þar í öllu nema kastgrein- um. Ég var aldrei nógu sterkur til þess. Þegar ég fór suður ákvað ég að hætta í öðrum íþróttum, þar sem ég hafði bara verið meðal- maður, og svo fannst mér karfan skemmtilegust." Báður er 182 sentimetra hár en treður engu að síður eins og honum sé borgað fyrir það. „Já, maður verður að bæta sér upp hversu lágvaxinn maður er,“ út- skýrir hann hæglátur en segist ekki æfa troðslur sérstaklega. Þú lékst með Val þegar þú komst í bæinn. Kom ekkert annað félag til greina? . „Ég fékk auðvitað engu ráðið um í hvaða félag ég færi því Rikki [Ríkharður Hrafnkelsson] var bú- inn að ganga frá félagaskiptum fyrir mig þannig að ég hafði ekk- ert með það að gera!“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.