Morgunblaðið - 25.03.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.03.1994, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1994 Minning Jón Oddsson frá Siglunesi - Minning Fæddur 8. ágúst 1903 Dáinn 17. mars 1994 Skarð er höggvið í stóran frænd- garð. Góður drengur hefur kvatt þetta tilverustig eftir langan ævidag. Dugnaður og hreysti dugðu honum yfir níu áratugi. Þreyttum er hvíldin góð, eftir liðinn vinnudag. Á Dalabæ í Úlfsdölum bjuggu á nítjándu öldinni merk heiðurshjón, Þorvaldur Sigfússon og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir, bónda á Staðarhóli í Siglufírði. Þau bjuggu lengi rausnarbúi á góðri bújörð og ráku einnig mikla útgerð á þeirra tíma mælikvarða. Um tíma ráku þau einnig búskap á næsta bæ, Engidal í Úlfsdölum. Drýgstar munu tekjur þeirra hafa verið af sjófanginu og þá einkum af hákarlaveiðum, sem oft voru stundaðar á fleiri en einu skipi. Þegar Þorvaldur lést, um átt- rætt, kom í ljós að hann hafði átt 16 jarðir og mikið lausafé, enda kall- aður „hinn ríki“. Út af þessu fólki eru miklar ættir komnar. Sonarsonur Dalbæjarhjóna var Oddur Jóhannsson, bóndi og hákarla- skipstjóri á Engidal og Siglunesi. Kona hans var Guðrún Ingibjörg Sig- urðardóttir frá Nesi í Flókadal. Þau eignuðust átta börn, en aðeins fjögur þeirra komust til fullorðinsára. Börn þeirra, sem upp komust voru: Oddur Oddsson, trésmiður, síðast í Reykja- vík, f. 20. júlí 1894, d. 3. mars 1981. Sæunn Oddsdóttir, húsfreyja, Siglu- firði, f._ 18. júlí 1895, d. 24. júní 1938. Ólöf Oddsdóttir, húsfreyja í Lónkoti, f. 10. júlí 1896, d. 13. júní 1976. Jón Oddsson, sem hér er minnst. Hann var yngstur systkin- anna, fæddur 8. ágúst 1903 á Siglu- nesi. Jón Oddsson og Oddur bóðir hans tóku við búskapnum á Siglunesi eft- ir að faðir þeirra fórst í hákarlalegu með skipi sínu „Samson" og allri áhöfn, sjö mönnum, í Krossmessu- garðinum 14. maí 1922. Árið 1926 flutti Oddur inn til Siglufjarðar og stundaði þar iðn sína, trésmíðar. Tók Jón þá við búinu og bjó á Siglunesi til ársins 1972 eða í 46 ár. Þá hætti hann búskap og flutti inn í kaupstað- inn. Siglunes var til foma fjölmennasta byggðarlagið á þessu svæði. Þar em landkostir góðir og stutt á fengsæl fiskimið. Þar er talið að hafi verið elsta útver á Norðurlandi. Þama var prestsetur og aðalkirkja þessara byggða fram til 1614 og hálfkirkja síðan til 1765. Þingstaður var þar og miðpunktur hins foma Siglunes- hrepps. Hlunnindi margs konar hafa löngum einkennt þetta byggðarlag, m.a. mikill tijáreki og selveiði. Á þessum góða stað bjó Jón Oddsson allan sinn búskap, ásamt nokkmm öðmm bændum. Jón byijaði sjómennsku ungur að ámm. Hann var aðeins 14 ára gam- all þegar hann fór í fyrstu hákarla- leguna með föður sínum. Hann tók stýrimannspróf á Akureyri árið 1924 og fékk réttindi á 60 tonna skip, sem skipstjóri. Búskapinn stundaði hann jafnframt sjómennskunni, en hafði jafnan frekar lítið bú, en mjög nota- dijúgt. Einnig vora hlunnindin notuð til búdrýginda, eftir því sem til féll hveiju sinni. Árið 1931, þann 8. apríl, kvæntist Jón Oddsson Báru Tryggvadóttur frá Akureyri. Hún var fædd 27. júní 1908 og andaðist 11. júní 1990. Þau eignuðust tvo syni, þeir eru: Oddur, fæddur 6. desember 1930, útgerðarmaður á Siglufirði, sem kvæntur er Svövu Aðalsteinsdóttur og eiga þau sex böm. Einar, fæddur 8. janúar 1932, skipstjóri í Grindavík. Hann var kvæntur Helgu Jónsdóttur, en hún andaðist 17. ágúst 1972. Þau eign- uðust fimm börn. Allt er þetta myndar- og dugnað- arfólk, sem ber einkenni forföðurins á Dalabæ, sem var langafí Jóns Oddssonar. Hann varð stúdent sumarið 1935 í sama árgangi og ég, en kynni okk- ar hófust í íjórða bekk. Þá bættust margir nýir nemendur við þá er fyr- ir vora. Þegar langt var liðið að stúd- entsprófínu flutti Stefán heim til mín og bjó þar fram yfir prófið. Síðan lá leið okkar beggja austur á land til heimkynna hans, en hann bauð mér að slást í förina. Fórum við fyrst sjóleiðina með ms. Esju til Reyðarfjarðar en þaðan að Skjöldólfsstöðum í kláffeiju yfir Jökulsá. Þá sýndi Stefán framúrskar- andi dirfsku og meiri en ég nokkra sinni hef orðið vitni að er hann fór úr feijunni út á strengina yfir straumþungt jökulvatnið, sem beljaði niðri í gljúfrinu. Hvílík hugdrifska. Dvaldi ég í foreldrahúsum hans um hálfs mánaðar skeið í góðu yfír- læti. Stefán var söngmaður góður, traustur vinur og félagi, en lét ekki mikið á sér bera. Leiðir okkar lágu ekki oft saman síðar á ævinni, því hann aflaði sér frekari menntunar í útlöndum og bjó og starfaði lengst af utan Reykjavíkur. Við áttum þó margar ánægjulegar samverastundir með bekkjarsystkin- um á stúdentsafmælum. Ég flyt konu hans Ingu Ólafsdóttur hugheilar samúðarkveðjur svo og fjölskyld- unni. Blessuð veri minning hans. Bjarni Konráðsson. Hnefilsdalur er stórbýlisjörð sem liggur fyrir miðjum Jökuldal austan Jöklu. Þar, sem annars staðar á þess- um slóðum, era ijárlönd eindæma góð og tíðkaðist þar að halda fé til beitar allan veturinn nema í verstu harðviðrum. í byijun þessarar aldar hófu bú- skap í Hnefilsdal Guðríður Jónsdóttir og Bjöm Þorkelsson. Foreldrar Guð- ríðar vora hjónin Sigríður Jónsdóttir og Jón Magnússon á Skeggjastöðum á Dal en Bjöm var frá Klúku í Hjalta- staðaþinghá^ sonur hjónanna Guðnýjar Ólafsdóttur og Þorkels Bjömssonar bónda þar. Ungu hjónin í Hnefilsdal höfðu bæði notið þeirrar gæfu að hleypa heimdraganum og komast í skóla, hún í Kvennaskólann á Akureyri, hann í Flensborg í Hafnarfirði. Sú undirstaða nægði til þess að í Hnef- ilsdal var um þeirra daga menning ; og mennt svo í heiðri höfð að ein- stætt má telja. Þeim Hnefilsdalshjónum varð ell- efu bama auðið og var Stefán, sem hér er minnst, sjötti í röðinni, fædd- ur 11. nóvember 1908. Nú eru að- Jón var hraustleikamaður sem bar háan aldur vel. Fyrir tæpum ijórum áram vistaðist hann á Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Þar hafði hann fótavist þar til fyrir ári síðan, að hann varð eins tvö þessara systkina á lífi, Þor- kell og Helga. Bimi og Guðríði þótti sjálfsagt að senda börn sín í skóla og fóra þau, er á legg komust, eitt af öðra í Al- þýðuskólann á Eiðum og aðra fram- haldsskóla. Er röðin kom að Stefáni hafði hann ákveðið að halda í lang- skólanám og fékk ekkert því haggað enda hafði hann tekið þá ákvörðun er hann stóð yfir fénu á Múlhúsunum vetur eftir vetur á unglingsárum sín- um, oft í rysjóttri tíð. Þegar Stefán hóf nám í MR var kreppan skollin á og má nærri geta að skapfestu og kjark þurfti til að láta ekki deigán síga. Stúdentsprófí lauk hann vorið 1935 og hélt að því búnu til háskólanáms í Kaupmanna- höfn og lauk þaðan prófí í mjólkur- verkfræði vorið 1940. Þá var stríðið í algleymingi og siglingar milli landa lágu niðri. En í október um haustið gafst færi er Esjan fór í Petsamoför- ina frægu. Um farsælan starfsferil Stefáns ætla ég ekki að íjölyrða, það munu aðrir gera, en um hríð starfaði hann sem framkvæmdastjóri Mjólkurbús Flóamanna og um aldarfjórðungs skeið sem forstjóri Mjólkursamsöl- unnar í Reykjavík. Stefán Björnsson var knár maður og sterkbyggður, dökkur á brún og brá á yngri árum ein sog þeir Hnefl- ungar allir, vel eygur, hægur í fasi, einarður. Hann var greindur vel, skáldmæltur og sannur fagurkeri. Hann bar ekki tilfinningar sínar á torg en var gegnheill maður, hlýr og gjafmildur. Er Stefán hélt áleiðis til Petsamo forðum var honum bannað að taka með sér fátæklegar reytur sínar. Allslaus skyldi hann heim halda enda var skipið bókstaflega troðið fólki. Þegar heim kom heimsótti hann fljót- lega Þorkel bróður sinn og fjölskyldu hans. Dró hann þá úr pússi sínu handa börnunum dýrindis gjafír sem hann hafði keypt af litlum éfnum og laumað með sér úr útlandinu. Þá eignaðist ég minn fyrsta bíl og systk- ini mín fengu svipaðar gjafir sem okkur eru ógleymanlegar enn þann dag í dag. Svona var Stefán og þann- ig reyndi ég hann alla tíð. Fljótlega eftir heimkomuna kynnt- ist Stefán ungri og glæsilegri heima- sætu úr Hreppunum, Ingu Ólafsdótt- ur frá Eystra-Geldingaholti. Gengu þau í farsælt hjónaband og lifir Inga bónda sinn. Þau hjónin eignuðust tvö böm, Hrafnhildi og Sigurð. Hrafn- hildur er lögfræðingur að mennt og var gift Hjalta Björnssyni lækni, sem t Móðir okkar, JÓNÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR, Brekastíg 10, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 26. mars kl. 14.00. Heiðar Magnússon, Jóhann Magnússon, Emilía Magnúsdóttir. t Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR JÓNATHANSDÓTTIR, Vegamótum, verður jarðsungin frá Bústaðarkirkju í dag, föstudaginn 25. mars, kl. 10.30. Guðfinna Guðmundsdóttir, Rafn Thorarensen, Sigrún Thorarensen, Dagný Thorarensen, Selma Thorarensen, Sigurður R. Jónsson, Rakel Sif Sigurðardóttir. t GUÐNÝ GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, Flekkudal, Kjós, sem lést 20. mars sl., verður jarðsungin í Reynivallakirkju laugar- daginn 26. mars kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Reyni- vallakirkju. Fyrir hönd vina og vandamanna, Ragna Lindberg, Guðný Guðrún Ivarsdóttir, Sigurlína Jóhanna Jóhannesdóttir, Guðni Kristinn Ólafsson, Guðrún Sigriður Þorsteinsdóttir, Ólöf Helga Þorsteinsdóttir. t Innilegar þakkir til allra fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför fósturmóður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU BJÖRNSDÓTTUR, Vatnshömrum, Andakfl. Sérstaklega þökkum við nágrönnum hennar í heimabyggð fyrir órofa tryggð og umhyggju í gegnum árin. Guð blessi ykkur öll. Ruth Fjeldsted, Þráinn Sigurjónsson, Þorsteinn Fjalar Þráinsson, Eva Friðþjófsdóttir, Elfn Helga Þráinsdóttir, Lasse Rosengren, Anna Sigríður Þráinsdóttir, Victor Helgason, Sigurjón Einar Þráinsson, Friðþjófur Þrosteinsson, Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Sonja Kristina Rosengren, Steinunn Victorsdóttir. Stefán Bjömsson forstjóri - Minning t Eiginkona mín og móðir okkar, KOLBRÚN MAGNÚSDÓTTIR, Fagrabæ 5, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum þann 22. mars. Sveinn Gíslason. að mestu nímliggjandi og þar lést hann. Á sjúkrahúsinu fékk hann mjög góða umönnun, sem hér með er þökkuð. Hann hafði verið röskur til allra verka, bæði á sjó og landi, var mjög léttur á fæti og mikill göngumaður. Oft fór hann fótgang- andi hinar illræmdu Siglunesskriður en þær era mjög erfíð gönguleið inn til kaupstaðarins. Hann var glaðvær og hress í sínum hópi og hafði mik- inn áhuga á landsmálum. Jón var gætinn og glöggur og einstaklega minnugur og fróður um menn og málefni og kunni frá mörgu að segja. Til þess var tekið hvílík ógrynni af vísum, einkum rímum, hann kunni og kvað við raust, með ýmsum rímnalögum. Fyrir nokkram áram kvað hann 120 vísur inn á segul- band, án þess að hafa blað eða minn- ispunkta. Slíkt var hans frábæra minni. Þessi ágæti drengskaparmaður er kært kvaddur af vinum og vensla- mönnum og ástvinum hans eru sendar innilegar samúðarkveðjur frá okkur hjónunum og börnum okkar. Þ. Ragnar Jónasson. lést langt um aldur fram. Börn þeirra era tvö^ Sigurður er læknir, kvæntur Mörtu Ólafsdóttur líffræðingi og eiga þau einn son. Inga og Stefán ólu einnig upp frá unga aldri systurdótt- ur Ingu, Hafdísi Ólafsdóttur mynd- listarmann. Maki hennar er Atli Hauksson tæknifræðingur og eiga þau eina dóttur. í fyrra gaukaði Stefán að mér ljóðakveri sínu sem hann gaf út handa vinum sínum og vandamönn- um. Sú gjöf er mér dýrmæt. Um leið og ég sendi ykkur ástvinum Stefáns innilegustu samúðarkveðj- ur frá mér, fjölskyldu minni og öldr- uðum föður er við hæfi að kveðja með eigin orðum Stefáns Björns- sonar: Nú er göngustígurinn upp brekkuna þaícinn plu og rauðu laufi og ég þarf trefil um hálsinn. Lygnu sólskinsdagarnir óvenju mörgu eru liðnir og heyjast hefur forði af lífsgleði og ánægju. Kannski endist þessi forði, þótt veturinn verði langur, dimmur og kaldur, Ég ætla að yrkja annað ljóð, þegar daginn fer að lengja. Ingvi Þorkelsson. Slæm mistök urðu við vinnslu myndar af Stefáni Björnssyni sem birtist með minningargrein- um um hann I blaðinu í gær. Morgunblaðið biður fjölskyldu Stefáns innilega afsökunar á þessum mistökum. ÍERFIDRYKKJURl HÉTEL ESJA sími 689509 v y

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.