MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994 25 Sýning á bestu blaðaljósmyndum síðasta árs Kristirai Ingvarsson átti bestu myndina KRISTINN Ingvarsson ljósmyndari á Morgunblaðinu tók blaðaljós- mynd ársins 1993 að mati dómnefndar Blaðamannafélags íslands. Mynd Kristins er af Jóni Guðmundssyni menntaskólakennara og birtist með viðtali við Jón i Morgunblaðinu. Úrval blaðaljósmynda síðasta árs er nú til sýnis í Listhúsinu i Laugardal. Besta fréttamynd siðasta árs var tekin af Ragnari Axelssyni, Morg- unblaðinu, af bónda við rústir af útihúsum eftir að ein dýpsta lægð sem sögur fara af fór yfir landið. Besta myndröðin var einnig eftir Ragnar. Brynjar Gauti Sveinsson, DV, átti bestu andlitsmyndina, Bjarni Eiríksson, Morgunblaðinu, átti bestu íþróttamyndina og Árni Sæberg, Morgunblaðinu, átti bestu myndina í opnum flokki. Besta fréttasyrpan er eftir Gunnar V. Andrésson, DV. Dómnefndina skip- uðu Sigurjón Jóhannsson kennari, Ólafur Ragnarsson útgefandi og Leifur Þorsteinsson ljósmyndari. Verðlaun fyrir bestu myndirnar voru veitt á laugardag við opnun sýningar Blaðamannafélags íslands á bestu blaðaljósmyndum síðasta árs. Sýningin er í Listhúsinu í Laug- ardal til 13. apríl og er sýningin opin daglega frá 12 til 19. Alls eiga 16 ljósmyndarar myndir á sýning- unni. Besta ljósmyndin ÞESSI Ijósm.vnd Kristins Ingvarssonar af Jóni Guðmundssyni kenn- ara var valin besta blaðaljósmynd liðins árs. Fundur um lífeyris- sjóðamál í Hafnarfirði ÞÓR, félag sjálfstæðismanna í launþegastétt í Hafnarfirði, gengst fyr- ir fundi um lífeyrissjóðamálið 7. apríl nk. Fundurinn verður haldinn í Veitingahúsinu Gaflinum við Reykjanesbraut og hefst kl. 20.30. Verðlaunaljósmyndarar VERÐLAUNALJÓSMYNDARAR á sýningu á bestu blaðajjósmyndum síðasta árs. Frá vinstri eru Brynj- ar Gauti Sveinsson, Árni Sæberg, Gunnar V. Andrésson, Bjarni Eiríksson og Kristinn Ingvarsson með ívar son sinn. í fréttatilkynningu frá félaginu segir: Á undanförnum árum hefur umræðan um lífeyrissjóði lands- manna orðið æ háværari. Umræðan hefur verið allt frá því að vera til- kynningar um algjört gjaldþrot líf- eyrissjóðakerfisins upp í hástemmdar yfirlýsingar um að lífeyrissjóðirnir séu í raun undirstaða íslensks hag- kerfis. Eitt er víst, um málið eru enn deilur og því teljum við nausynlegt að leggja okkar lóð á vogarskálina með því að skapa vettvang fyrir fræðslu og skoðanaskipti um þetta mikilvæga mál." Framsöguerindi á fundinum flytja Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður, Sigurjón Björnsson, framkv.stj. Eft- irlaunasjóðs Hafnarfjarðar, og Bene- dikt Davíðssonj forseti Alþýðusam- bands íslands. Á eftir framsöguerind- unum verða pallborðsumræður en auk framsögumanna taka þátt þeir Bene- dikt Jóhannsson, stærðfræðingur, og Árni M. Mathiesen, alþingismaður.