Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						28

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994

VIÐSHPn/JflvlNNUUF

Lífeyrismál

Aukið frjálsræði hjá

Frjálsa lífeyrissjóðnum

Ný reglugerð send fjármálaráðuneytinu til staðfestingar

FRÁLSA lífeyrissjóðnum verður skipt upp í deildir með mismun-

andi fjárfestingastefnu og eignasamsetningu fái ný reglugerð

sjóðsins, sem samþykkt var á aðalfundi í síðustu viku, staðfestingu

fjármálaráðuneytis. Brynhildur Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri

hjá Fjárfestingafélaginu Skandia, sem hefur umsjón með Frjálsa

lífeyrissjóðnum, segir að þær breytingar sem hafi verið samþykkt-

ar á reglugerð sjóðsins séu í raun framhald af þeirri þróun í átt

til aukins frjálsræðis sem sjóðurinn hafi stefnt að.

„Tilgangurinn með skiptingu

sjóðsins upp í deildir er að sjóðsfé-

lagar geti haft mikil áhrif á hvern-

ig fjármunum þeirra er varið.

Þannig ætti hver og einn að geta

sniðið lífeyrísspamað sinn að eigin

þörfum," segir Brynhildur.

Lego til

Bretlands

London. Reuter

DANSKA leikfangafyrirtæk-

ið Lego hyggst koma sér upp

fyrsta skemmtigarði sínum

utan Danmerkur í gömlum

skemmtigarði í Bretlandi,

Windsor Safari Park rétt

vestan við London.

Pyrirhugaður skemmtigarður

Dana, Lego World Park, mun

kosta 70 milljónir punda og

verður opnaður 1996. Þar verð-

ur meðal annars að fínna eftir-

líkingar af Tower-brúnni í Lond-

on og Nelsonsúlunni, sem verða

að sjálfsögðu úr Lego-kubbum.

Búizt er við 1,4 milljónum gesta

á ári.

í tillögum um reglugerðabreyt-

ingar hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum,

sem bíða staðfestingar fjármála-

ráðuneytisins segir meðal annars

að sjóðfélaga sé heimilt að ákveða

með hvaða hætti iðgjöld hans og

inneignir skiptist á milli deilda.

Upplýsingar um einstakar deildir,

fjárfestingarstefnu þeirra, eigna-

samsetningu og forstíðarávöxtun

skuli vera sjóðfélögum aðgengileg-

ar.

Þá sé sjóðfélaga heimilt að flytja

inneign á milli deilda og breyta

fyrri ákvörðun um skiptingU ið-

Fyrirtæki

Hagnaður Kaupfélags

Suðurnesja 15m.kr.

Veltuaukning á árinu um 30%

HEILDARSALA hjá Kaupfélagi Suðurnesja á síðasta ári nam alls

um 1.837 milljónum og jókst um 30% frá árinu áður. Félagið hef-

ur verið að færa út kvíarnar á síðustu misserum og keypti verslun-

ina Miðvang í Hafnarfirði á síðasta ári. I byrjun þessa árs var

síðan opnuð lágvöruverðsverslunin Kaskó. Hagnaður varð hjá fé-

laginu á síðasta ári að fjárhæð 14,8 miUjónir króna eða sem nem-

ur um 1% af veltu. Eiginfjárhlutfall félagsins var í lok sl. árs

21,5% og ávöxtun eigin fjár á árinu 11,7%. Veltufjárhlutfall var

0,92.

Á síðasta ári var haldið áfram

hagræðingu í rekstri félagsins og

fylgt eftir áætlunum frá árinu

1992 um kostnaðarlækkun. Náðist

verulegur árangur á sama tíma

og tekjur af vörusölu jukust að

því er segir í ársskýrslu. Hins veg-

ar þurfti félagið að afskrifa eign-

arhluti og stofnsjóði að fjárhæð

rúmar 7 milljónir og var sú fjár-

hæð gjaldfærð í rekstrarreikningi.

Þetta voru m.a. hlutabréf í fyrrum

sambandsfyrirtækjum eins og

Miklagarði, Jötni, Samskiptum,

íslenskum skinnaiðnaði ásamt

stofnsjóðseign í Sambandi ís-

lenskra samvinnufélaga.

Kaupfélag Suðurnesja stofnaði

ásamt öðrum kaupfélögum á síð-

asta ári hlutafélagið Kaupás hf.

sem á og rekur 11/11 verslanirn-

ar. Þá var kaupfélagið stofnaðili

að Innkaupasambandi kaupféiaga

hf. sem annast sameiginleg inn-

kaup fyrir aðildarfélögin. Verslun

í Vogum var seld á árinu og starf-

semi þar hætt í aprílmánuði.

Heildareignir félagsins í árslok

voru alls 675,7 milljónir. Sjóðir og

eigið fé voru samtals um 145,5

milljónir og heildarskuldir 530,2

milljónir.

A aðalfundi kaupfélagsins sem

haldinn var 19. mars sl. voru þeir

Birgir Guðnason og Pétur Þórar-

insson endurkjörnir í stjórn.

Kaupfélagsstjóri er Guðjón Stef-

ánsson.

gjalda á milli deilda.

Eignir sjóðsins ávaxtast í 5

deildum, Islandsdeild, Alþjóða-

deild, Ameríkudeild, Evrópudeild

og Asíudeild og hefur hver deild

sjálfstæða fjárfestingarstefnu.

Nettotekjur einstakra deilda skipt-

ast á milli sjóðsfélaga í hlutfalli

við eign hvers um sig og sam-

kvæmt skiptingu eigna þeirra á

milli deilda. Tekjurnar færast á

sérreikning sjóðfélaga.

Á aðalfundi Frjálsa lífeyris-

sjóðsins kom fram að stærð sjóðs-

ins um síðustu áramót var 1.935

milljonir króna og sjóðsfélagar

voru 2.662. Raunávöxtun var 12%

en að sögn Brynhildar felst skýr-

ingin á svo hárri raunávöxtun

meðal annars í vaxtalækkun spari-

skirteina sem var að hluta til tek-

in inn í ávöxtunina.

VÖRUSKIPTIN		\   -7.             ¦   :   '	

VIÐ UTLÖND S		s	

Verðmæti vöruút- og innflutning			**% /

í jan. - feb. 1993 og 1994  1993 (fob virði í milljónum króna)                    jan.-feb.		1994 jan.-feb.	% breyting á föstu gengi*

Útflutningur alls (fob)	11.912,2	14.814,2 11.247,5	13,7 10,1

Sjávarafurðir	9.337,1		

Ál	1.165,2	1.668,7	30,9

Kísiljárn	379,1	467,6 389,3	12,7

Skip og flugvélar	2,9		

Annað	1.027,9	1.041,1	-7,4

Innflutningur alis (fob)	10.571,4	11.504,8	-0,5

Sérstakar fjárfestingarvörur	15,8	7,5	-56,6

Skip	-	-	

Flugvélar	-	0,5	

Landsvirkjun	15,8	7,0	-59,5

77/ stóriðju	455,8	1.024,8	

íslenska álfélagið	372,8	914,2	

íslenska járnblendifélagið	83,0	110,6	21,8

Almennur innflutningur	10.099,8	10.472,5	-5,2

Olía	1.214,1	1.162,9	-12,4

Matvörur og drykkjarvörur Fólksbílar	1.149,9	1.218,0	-3,2 -9,8

	465,2	459,3	

Aðrar neysluvörur	2.295,0	2.356,5	-6,1

Annað	4.975,6	5.275,8	-3,1

Vöruskiptajöfnuður	1.340,8	3.309,4 2.554,9	

Án viðskipta íslenska álfélagsins	548,4		

Án viðskipta íslenska álfélagsins,			

íslenska járnblendifélagsins og sérstakrar fjárfestingarvöru ' Miðað er við meðalgengi á viðskiptavog; á þann mæli i janúar-febrúar 1994 en á sama tíma árið áður.			

	265,2 <varða var meðalverc	1.816,1	

		erlends gjaldeyris 9,4% hærra	

Utanríkisviðskipti

Almennur innflutningur

dregst saman um 4 %

FYRSTU tvo mánuði ársins

voru fluttar út vörur fyrír

14,8 milljarða króna en inn

fyrir 11,5 milljarða fob. Af-

gangur var því á vöruskiptum

við útlönd sem nam 3,3 millj-

örðum króna en á sama tíma

i fyrra voru þau hagstæð um

1,5 milljarða króna á föstu

gengi. Dróst almennur inn-

flutningur saman um 4% á

tímabilinu.

í febrúarmánuði sl. voru fluttar

út vörur fyrir 7,6 milljarða kr. og

inn fyrir 6,4 milljarða kr. fob.

Vöruskiptin í febrúar voru því

hagstæð um 1,2 milljarða kr. en

í febrúar 1993 voru þau nær í

járnum. Fyrstu tvo mánuði

þessa árs var verðmæti vöruút-

flutningsins 14% meira á föstu

gengi en á sama tíma árið áður.

Sjávarafurðir voru 76% alls út-

flutningsins og var verðmæti

þeirra 10% meira en á sama tíma

í fyrra.

Verðmæti vöruinnflutningsins

fyrstu tvo mánuði þessa árs var

nær hið sama á föstu gengi og á

sama tíma árið áður. Innflutning-

ur sérstakrar fjárfestingarvöru

(skip, flugvélar, Landsvirkjun),

innflutningur til stóriðju og olíu-

innflutningur er jafnan mjög

breytilegur frá einu tímabili til

annars. Að þessum liðum frátöld-

um reyndist annar innflutningur

hafa orðið 4% minni á föstu gengi

en á sama tíma árið áður. Þar af

dróst innflutningur á matvöru og

drykkjarvöru saman um 3%, inn-

flutningur á bílum dróst saman

um 10% og innflutningur annarrar

neysluvöru var 6%  minni en á

sama tíma í fyrra.

I þessum samanburði frá Hag-

stofu íslands er miðað við meðal-

gengi á viðskiptavog; á þann

mælikvarða var meðalverð erlends

gjaldeyris í janúar-febrúar 1994

9,4% hærra en árið áður.

Rússland

„Gulltryggja" ís-

lenskar fjárfestíngar

SENDIRÁÐ íslands í Moskvu átti nýlega viðræður við rússneskt

fyrirtæki sem býðst til að hafa milligöngu um fjárfestingar íslend-

inga í Rússlandi. í bréfi þessa fyrirtækis, sem ber heitið „Viktor

K.", er því lýst yfir að allar fjárfestingar íslendinga í Rússlandi

verði hægt að tryggja með gulli eða öðrum eðalmálmum sem unnt

væri að varðveita í Seðlabanka íslands.

Með bréfinu fylgir langur listi

yfir ýmiskonar möguleika á fram-

leiðslu ásamt fjárhæð fjárfestingar.

Jafnframt er tekið fram hversu

lengi fjárfestingin sé að borga sig

upp og er þar yfirleitt um að ræða

eitt og hálft til tvö ár. Þar er um

að ræða ýmiskonar iðnaðarfram-

leiðslu og má nefna sem dæmi

framleiðslu á 50 þúsund peysum

árlega. Gert er ráð fyrir að fjárfest-

ingin nemi 80 þúsund bandaríkja-

dölum sem endurgreiðist á 18 mán-

uðum.

Þessum lista hefur verið komið

á framfæri við Verslunarráð íslands

gegnum sendiráðið. Herbert Guð-

mundsson, félagsmálastjóri Versl-

unarráðs, segir, að ráðið hafi mik-

inn áhuga á því að þeir sem séu í

viðskiptum á erlendum vettvangi

skoði þessi verkefni. „Hérna liggja

fyrir ýmis gögn sem menn geta

fengið aðgang að varðandi viðskipti

í Rússlandi. Það eru gríðarieg tæki-

færi þarna sem önnur Norðurlönd

hafa notfært sér og fjárfestingin

hefur oft borgað sig upp mjög

hratt."

hagstceð kjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margirgjaldmiðlar    hú   IÐNÞROUNARSJOÐUR

™"    Kalkofnsvegi 1  150Reykjavík sími:(91)699990 fax:629992

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68