Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						30

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994

Gjaldþrot frystihússins Kaldbaks hf. á Grenivík

60 skráðu sig at-

vimmlausa í gær

UM 60 manns, fyrrverandi starfsmenn frystihúss Kaldbaks hf. á

Grenivík, komu á skrifstofu Grýtubakkahrepps í gær til atvinnuleys-

isskráningar í kjölfar gjaldþrots fyrirtæksins fyrir páska. Fundur

er fyrirhugaður með þingmönnum kjördæmisins vegna þeirrar stöðu

sem upp er komin vegna gjaldþrotsins en Kaldbakur var stærsti

vinnuveitandinn á staðnum.

„Guð almáttugur hjálpi okkur ef

ekki verður hægt að endurreisa

fyrirtækið í einhverri mynd," sagði

Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri

Grýtubakkahrepps. Frá því Kald-

bakur var lýstur gjaldþrota á mið-

vikudag í síðustu viku hafa heima-

menn verið að skoða möguleikann

á því að endurreisa fyrirtækið en

Guðný sagði að ekkert væri enn

fast í hendi í þeim efnum. „Við

erum að skoða vissa möguleika en

enn er óljóst hvað verður. Við vitum

að það þýðir ekki að ana út í ein-

Sveinn í Kálfsskinni

ræðir um atvinnumál

MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit

verður með opið hús í Safnaðar-

heimili Akureyrarkirkju í dag,

miðvikudaginn 6. apríl frá kl.

15.-18.

Sveinn Jónsson bóndi í Kálfs-

skinní mun þar setja fram og ræða

ýmsar hugmyndir að nýjungum í

atvinnumálum og láta hugann

reika „frá fjöru og upp til fjalls-

brúna", en Sveinn er þekktur af

verkum sínum bæði  sem mikill

athafnamaður og hugmyndasmið-

ur.

Kaffi og brauð verður á borðum

að vanda þátttakendum að

kostnaðarlausu og dagblöðin

liggja frammi. Þá verða ýmsar til-

kynningar á dagskrá og síðasta

tækifærið til að skrá sig til þátt-

töku á námskeið í heimilisbók-

haldi. Einnig verður sérstök send-

ing til Miðstöðvarinnar afhent um

kl.   16.30.            (Fréttatilkynning.)

hverja vitleysu, setja eitthvað fyrir-

tæki á koppinn ef það er vonlaust

að það gangi."

Töluverðar birgðir voru til af

saltfiski þegar fyrirtækið varð

gjaldþrota og ljóst að hann þarf að

meta og pakka og verður það vænt-

anlega gert á næstu dögum.

Fundur með þingmönnum

Guðný hefur óskað eftir fundi

með þingmönnum kjördæmisins til

að ræða þá stöðu sem upp er komin

í atvinnumálum á Grenivík í kjölfar

gjaldþrots stærsta fyrirtækisins á

staðnum og þá mun sveitarstjórn,

fulltrúar Iðnþróunarfélags Eyja-

fjarðar og fleiri aðilar einnig eiga

fund síðar í vikunni þar sem farið

verður yfir stöðu mála og hvort

grundvöllur reynist fyrir endurreisn

fyrirtækisins í einhverri mynd.

Örlygur Hnefill Jónsson skipta-

stjóri þrotabús Kaldbaks sagði að

fljótlega yrði haldinn fundur með

helstu veðhöfum, en þeir eru At-

yinnutryggingasjóður, Landsbanki

íslands, Byggðastofnun, Sparisjóð-

ur Höfðhverfinga og Fiskveiðisjóð-

ur íslands. í framhaldi af þeim fundi

sagðist Örlygur Hnefill væntanlega

auglýsa eignir þrotabúsins til sölu,

en þær eru m.a. stórt frystihús með

tilheyrandi vélbúnaði, verbúð og tvö

íbúðarhús fyrir starfsmenn.

Hvert stórafmælið á

fætur öðru á Dalvík

Dalvfk.

ÁRIÐ 1994 er sannkallað af-

mælisár á DaMk því fjöldi fyrir-

tækja og félaga í bænum eiga

stórafmæli á þessu 50 ára af-

mæli íslenska Iýðveldisins og

minnst er atburða í sögu bæjar-

ins.

Sparisjóður Svarfdæla verður

110 ára 1. maí næstkomandi, en

sjóðurinn var stofnaður 1. maí 1884

af nokkrum bændum í Svarfaðar-

dal.    Ungmennafélag    Svarfdæla

verður 85 ára í lok ársins, en það

var stofnað 30. desember árið 1909

að tilstuðlan Snorra Sigfússonar og

gengu á stofnfundi í félagið 38

manns, 32 karlar og 6 konur.

Sundskáli Svarfdæla verður 65

ára, en hann var vígður á sumar-

daginn fyrsta árið 1929 og þá opn-

aður almenningi.

Dalvíkurskjálftarnir

2. júní 1934 urðu miklir jarð-

skjálftar við Eyjafjörð en þeirra

gætti mest á Dalvík og því jafnan

nefndir Dalvíkurskjálftarnir. Miklar

skemmdir urðu á_ mannvirkjum af

þeirra völdum. í sumar verður

skjálftanna minnst í máli og mynd-

um á Dalvík.

Slysavarnasveit kvenna var

stofnuð á Dalvík 21. maí árið 1934

og verður sveitin því 60 ára nú á

næstunni. Kvennadeild slysavarna-

félagsins var stofnuð að tilstuðlan

Egils Júlíussonar.

Fyrr á árinu átti Leikfélag Dal-

víkur 50 ára afmæli en það var

stofnað 19. janúar árið 1944. Það

minnist tímamótanna með tveimur

frumsýningum þetta leikár. Hafið

eftir Ólaf Hauk Símonarson var

frumsýnt í febrúar síðastliðnum og

í haust verður Land míns föður eft-

ir Kjartan Ragnarsson frumsýnt.

Söltunarfélag Dalvíkur var stofn-

að verður 50 ára síðar á þessu ári

en 17. desember 1944 stofnuðu

útgerðarmenn með sér söltunarfé-

iag til að síldarsöltun mætti verða

markvissari og hagkvæmari. Nú

snýst rekstur félagsins einkum um

rækjuvinnslu.

Árið 1954 var fyrirtækið Óskar

Jónsson og Co stofnað á Dalvík en

það er fyrirtækið sem annast vöru-

flutninga.

Útgerðarfélag Dalvíkur var

stofnað í júlí 1959 um kaup á togar-

anum Björgvin EA-311 og fagnar

félagið því 35 ára afmæli á árinu.

Netagerð Dalvíkur tók til starfa í

júní árið 1964 og verður því 30 ára

í sumar en fyrr á árinu hafði fyrir-

tækið Netjamenn hf. hætt rekstri.

Tónlistarskóli Dalvíkur hóf starf-

semi haustið 1964 og lýkur því 30.

starfsári skólans í haust.

Hitaveita var formlega tekin í

notkun á Dalvík fyrir 25 árum, en

sá atburður varð 29. október árið

1969.

Bærinn tvítugur

Þann 5. apríl árið 1974 afgreiddi

Alþingi lög um kaupstaðarréttindi

handa Dalvíkurbæ og 10. apríl voru

þau staðfest af forseta íslands.

Afmælisins verður minnst með há-

tíðardagskrá um næstu helgi, 9. og

10. apríl.

Þá má geta þess að Sæplast hf.

átti nýlega 10 ára afmæli en það

var árið 1984 sem fyrir tilstuðlan

Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar og

nokkurra framtakssamra einstakl-

inga á Dalvík að fest voru kaup á

plastverksmiðju í Garðabæ og hún

flutt til Dalvíkur. Loks má geta

þess að fiskverkunar- og útgerðar-

félagið Otur hf. verður 20 ára á

árinu en það eins og Verslunin

Sogn sem er bóka- og gjafavöru-

verslun var stofnað árið 1974.

HG     ¦>

Þríeykið

Morgunblaðið/Rúnar Þór

TVEIR ritsljórar hafa verið ráðnir að Degi, bræðurnir Óskar

Þór og Jóhann Ólafur Halldórssynir, og munu þeir ásamt

Kristjáni Kristjánssyni fréttas^jóra, sem er á milli þeirra á

myndinni, bera ábyrgð á þvi að koma blaðinu út i framtiðinni.

Jarðbrúarbræð-

ur ritstýra Degi

BRÆÐURNIR Óskar Þór og Jóhann Ólafur Halldórssynir

hafa tekið að sér ritstjórn dagblaðsins Dags en þeir munu

jafnframt áfram sinna störfum sínum sem blaðamenn.

Kristján Kristjánsson verður áfram fréttastjóri blaðsins.

ÖIlu starfsfólki Dagsprents, sem gefur blaðið út, var sagt

upp störfum fyrir páska og lýsti Bragi V. Bergmann fráfar-

andi ritstjóri þá yfir að hann myndi ekki Iáta á það reyna

hvort hann yrði endurráðinn að blaðinu en hann er afar

ósáttur við stefnu stjórnar og framkvæmdastóra blaðsins

í málefnum Dags.

„Það var leitað eftir því að

við tækjum að qkkur ritstjórn

blaðsins," sagði Óskar Þór „og

við munum bæta því við þau

störf sem við höfum fram til

þessa sinnt, við verðum sem sagt

áfram á fullu í fréttamennsk-

unni."

Útgáfa Dags verður þunga-

miðjan í rekstri Dagsprents í

kjölfar endurskipulagningar á

rekstri sem nú er verið að ráð-

ast í. Að sögn Harðar Blöndal

framkvæmdastjóra verður rekst-

ur prentsmiðjunnar lagaður að

þörfum blaðsins og í farvatninu

er breytt vinnslufyrirkomulag

vegna útgáfunnar. Á næstu

tveimur vikum verður gengið frá

endurráðningu þess starfsfólks

sem nauðsynlegt er til útgáfunn-

ar. Þegar er Ijóst að fækkað

verður um einn mann á ristjórn

blaðsins, þannig að eftir 1. júlí

næstkomandi verða 8 starfs-

menn á ritstjórn blaðsins. Á síð-

asta ári var tveimur blaðamönn-

um sagt upp störfum hjá blað-

inu.

Líflegra

„Markmið okkar er að efla

blaðið sem vettvang skoðana-

skipta á Norðurlandi því það er

trú okkar að það komi enginn

miðill í stað Dags hvað það varð-

ar. Dagur er málsvari lands-

byggðar og nýtur sérstöðu sem

slíkur," sagði Óskar Þór. „Nýj-

um ritstjórum fylgja ávallt ein-

hverjar breytingar og þær munu

birtast á síðum blaðsins á næstu

misserum. Við ætlum okkur að

breyta blaðinu til batnaðar, gera

það líflegra."

Óskar Þór sagði að vissulega

yrði starfið krefjandi „við erum

að bæta þessu á okkur í viðbót

við fréttamennskuna því höldum

báðir ótrauðir áfram í henni og

því fylgir auðvitað mikið vinnu-

álag. En við vitum að hér innan-

dyra er samhentur hópur sem

er staðráðinn í því að vinna sig

út úr þeim erfiðleikum sem blað-

ið hefur lengi verið í og við erum

sannfærðir um að það verði ekki

gert nema með góðri samvinnu

og við trúum því að það takist,"

sagði Óskar Þór og bætti því við

að samkomulag bræðranna hefði

ávallt verið með ágætum þannig

að hann óttaðist ekki að upp

kæmi alvarlegur ágreiningur

milli ritstjóranna tveggja. Bræð-

urnir eru frá Jarðbrú I Svarfað-

ardal og hefur Jóhann Ólafur

starfað á Degi frá því í maí árið

1987 og Óskar Þór hóf þar störf

haustið 1988.

¦ / ARSBYRJUN auglýsti land-

búnaðarráðuneytið stöðu héraðs-

dýralæknis til umsóknar í Austur-

Eyjafjarðardæmi. Umsóknar-

frestur var til 1. febrúar 1994. Um

stöðuna sóttu tíu dýralæknar. Ein

umsókn var dregin til baka. Um-

sækjendur voru: Alfreð Schiöth,

Ármann Gunnarsson, Elfa Ág-

ústsdóttir, Gísli Sverrir Halldórs-

son, Gunnar Gauti Gunnarsson,

Gunnar Þorkélsson og Vignir

Sigurólason. Tveir umsækjendur

óskuðu nafnleyndar.

Að tillögu landbúnaðarráðherra

hefur  forseti  íslands  skipað  Ár-

mann Gunnarsson í embætti hér-

aðsdýralæknis í Austur-Eyjafjarða-

rumdæmi.

¦ BROTIST var inn í þrjú fyrir-

tæki á Akureyri um páskahelgina,

myndbandaleigu og bifreiðaverskt-

æði aðfaranótt skírdags og í sölut-

urn aðfaranótt laugardagsins.

Úr söluturninum og myndbanda-

leigunni var stolið einhverju af pen-

ingum, sælgæti og- tóbaki. Engu

var stolið úr bifreiðaverkstæðinu,

samkvæmt upplýsingum frá Vóg-

reglunni á Akureyri. Ekki hefur

enn tekist að hafa hendur í hán

I þjófanna.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68