Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						32

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994

Morð í Árósa-

háskólanum

DANSKUR námsmaður gekk ber-

serksgang í matsal í háskólanum í

Arósum í gær, hóf skothríð með

riffli og varð tveimur konum að

bana. Sjö íslenskir námsmenn eru

við skólann og að sögn eins þeirra,

Björns Hermannssonar, nemanda í

upplýsingafræðum, var hann á leið

í matsalinn þegar manndrápin áttu

sér stað.

Auk kvennanna, semm létust,

særðust tvær og var önnur talin í

lífshættu. Maðurinn fór síðan á

salerni í kjallara byggingarinnar og

svipti sig lífi.

Björn Hermannsson sagði í við-

tali við Morgunblaðið, að enginn

íslendinganna hefði verið í matsaln-

um þegar skothríðin hófst en sjálfur

var hann nýfarinn þaðan og var á

leið þangað aftur með nestispakk-

ann. „Þá kom fólk hlaupandi á

móti mér í miklu uppnámi og sagði

mér hvað væri að gerast. Lögreglan

kom svo skömmu síðar og rak alla

inn í kennslustofurnar," sagði Björn

en hans sögn er yfirleitt fátt fólk

í matsalnum á þessum tíma eða á

tólfta tímanum fyrir hádegi.

Ekki er vitað hvers vegna maður-

inn hóf skothríðina. Hann var 35

ára gamall og að sögn lögreglu

átti hann við geðræn vandamál að

stríða. í vasa hans fannst miði þar

sem á stóð: „Ég ræð ekki við þetta

lengur."

%       Reuter

Einræðisherra í eigin flokki

ZHÍRÍNOVSKÍJ veifaði til viðstaddra við komuna til Helsinki en þar

sat hann ráðstefnu finnska þingsins um hugsanlega aðild Rússa að

Evrópuráðinu. Zhírínovskíj er andvígur henni og segir enga nauðsyn

bera til fyrir Rússa að vera í Sameinuðu þjóðunum.

Zhírínovskíj og Rútskoj

í framboð gegn Jeltsín

Zhírínovskíj með alræðisvald í flokki sínum og hefur afnumið stofnanir hans

Moskvu. Reuter.

FLOKKUR Vladímírs Zhírinovskíjs, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn,

hefur útnefnt hann frambjóðanda í næstu forsetakosningum og búist

er við, að Alexander Rútskoj, fyrrverandi varaforseti og einn af foringj-

um uppreisnarinnar gegn Borís Jeltsín forseta í október sl., muni tljótr

lega taka ákvörðun um forsetaframboð. I gær hóf hann baráttu fyrir

því að koma Jeltsín og ríkisstjórn hans frá. Zhírínovskíj, sem fengið

hefur eins konar alræðisvald í flokki sínum, var í Finnlandi á mánu-

dag og sagði þá, að gengju Finnar í Atlantshafsbandalagið, NATO,

væri það að sumu leyti stríðsyfirlýsing gegn Rússlandi.

Rútskoj segir í viðtaii, sem birtíst

í gær í Prövdu, að hann muni ekki

unna sér hvíldar fyrr en Jeltsín og

stjórn hans séu farin frá og hann

vísar á bug yfirlýsingum Jeltsíns um

vopnahlé í stjórnmálaátökunum. Þá

sagði hann, að Jeltsín hefði borið

alla ábyrgð á blóðbaðinu í október,

hann og hans menn ættu sér „enga

framtíð", fyrir þá væru endalokin

nærri. Talið er fullvíst, að Rútskoj

muni bjóða sig fram í næstu forseta-

kosningum og er litið á viðtalið sem

upphaf þeirrar baráttu.

Finnum hótað

Zhírínovskíj sagði við komuna tii

Helsinki á mánudag, að Finnar

skyldu halda sig fyrir utan NATO,

að öðrum kosti gætu þeir átt á hættu

að þurfa að kljást við Rússa á vígvell-

inum. Hann lagði hins vegar áherslu

á, að hann væri vinveittur Finnum

og og ranglega hefði verið haft eftir

honum, að hann vildi innlima Finn-

land í Rússland á ný. Hann bað

menn hins vegar að gleyma Eystra-

saltsríkjunum, þau væru rússneskt

innanríkísmál, rússneskt land. Zhír-

movskíj sagði einnig, að það væru

mikil mistök hjá Pavel Gratsjev,

varnarmálaráðherra Rússlands, og

Jeltsín að ætla að taka þátt í friðar-

samstarfi NATO-ríkjanna. Tilgang-

urinn væri sá að innlima Rússland í

NATO en Rússar væru á móti banda-

laginu.

Zhírínovskíj    kom    til    Helsinki

ásamt fleiri rússneskum þingmönn-

um á ráðstefnu, sem finnska þingið

boðaði til um hugsanlega aðild Rússa

að Evrópuráðinu, en hann kvaðst því

andvígur, að Rússar gerðust aðilar.

Kvaðst hann sjálfur vera með á

prjónunum annað ráð fyrir Austur-

Evrópuríkin og væri það betra fyrir

Finna að fylgja því. Þá kvað hann

enga nauðsyn bera til, að Rússar

væru aðilar að Sameinuðu þjóðunum.

Um helgina var Zhírínovskíj ekki

aðeins valinn forsetaframbjóðandi

flokks síns, heldur afhenti flokks-

þingið honum alræðisvald í málefn-

um flokksins fram til 2004.

Fékk óskorað vald

Á þinginu sagði Zhírínovskíj, að

flokkurinn gæti ekki haldið flokks-

þing á hverju ári, sérstaklega með

tilliti til þess, að erlendar leyniþjón-

ustur færu með milljarða dollara til

þess eins að grafa undan honum.

Krafðist hann óskoraðs valds fram

til 2004 til að ráða og reka starfs-

menn flokksins, sérstaklega þá, sem

sýndu honum mótþróa.

„Á leið til valda"

„Við munum endurreisa lýðræðis-

legar stofnanir flokksins í framtíð-

inni en við höfum ekki ráð á þeim

núna," sagði Zhírínovskíj en ástæðan

fyrir algerri valdatöku hans í flokkn-

um er sögð sú, að sumum samstarfs-

mönnum hans líkar ekki við yfir-

gengilegar yfirlýsingar hans. Var

einum þingmanni flokksins, Vyatsj-

eslav Marytsjev, vísað frá þinginu

og sagt að stunda sitt „skítkast"

annars staðar.

Síðasta flokksþing Frjálslynda lýð-

ræðisflokksins var haldið á-bænda-

býli fyrir utan Moskvu en nú var það

haldið í stóru leikhúsi undir einkunn-

arorðunum „Á leið til valda" og kom-

ust færri að en vildu. Erlendir gestir

voru fjoimargir, nýnasistar, öfga-

sinnaðir þjóðernissinnar og „undar-

legt" fólk af ýmsu tagi en mest var

látið með Gerhard Frei, öfgafullan,

þýskan hægrimann. Þar voru einnig

fulltrúar frá Þjóðarfylkingu Le Pens

í Frakklandi, stjórnarflokknum í Irak

og nokkrir Serbar, þar á meðal ein

nunna.

SAAB-skrúfuþota ferst við Schiphol-flugvöll við Amsterdam

Hreyfílbilun ekki

nægileg skýring

Heemstede. Frá Kristínu Waage og Reyni Þór Finnbogasyni. Reutcr. Daily Telegraph.

HOLLENSKIR sérfræðingar sem vinna að rannsókn þess að SAAB

340B skrúfuþota flugfélagsins NLM, sem er dótturfyrirtæki KLM, fórst

við Schiphol flugvöllinn á mánudag sögðu í gær að líklega væri hreyf-

ilbilun ekki eina skýringin.

Flugstjóri flugvélarinnar og tveir

farþegar biðu bana er flugvélin

steyptist tií jarðar við flugbrautar-

endann. Þrettán slösuðust lífshættu-

lega en um borð voru 24 manns, þar

af þriggja manna áhöfn. Flugvélin

var á leið frá Amsterdam til Cardiff

í Wales en 18 mínútum eftir flugtak

tilkynntu flugmennirnir um bilun í

hægri hreyfli, slökktu á honum og

sneru við til Schiphol-flugvallar. Er

aðflugi var um það bil að ljúka reis

flugvélin upp á rönd, sveigði til hægri

og steyptist til jarðar.

Flugvélin skall til jarðar steinsnar

frá svæði þar sem áhugamenn um

flugvélar standa gjarnan og voru

þeir því fyrstir á vettvang og gátu

hjálpað farþegum úr flugvélarbrak-

Sérfræðingar í flugmálum sögðu

í gær að flugvélin hefði átt að geta

lokið flugi og lent auðveldlega á öðr-

um hreyfli. Talsmaður hollensku

flugmannasamtakanna sagði að gera

yrði ráð fyrir að fleiri ástæður lægju

að baki slysinu. Fulltrúi samgöngu-

ráðuneytisins sagði að rannsókn

væri hafín á flug- og hljóðrita flug-

vélarinnar en þeir geynia upplýsingar

sem leitt gætu í ljós hvað fór úrskeið-

is.

Holienskir fjöJmiðlar höfðu í gær

eftir ónafngreindum flugumferðar-

stjóra að flugvélin hefði farist er

flugmennirnir hefðu hætt við lend-

ingu og ákveðið að hefja fráhvarfsk-

lifur. Eldsprenging varð er flugvélin

kom niður en bálið slökknaði jafn

harðan m. talið er -víst að fieiri hefJu

Reuter

Á slysstað

SÆNSKUR flugslysafræðingur að störfum í flaki SAAB 340B flugvél-

ar hollenska flugfélagsins KLM sem fórst við Schiphol-flugvöllinn í

Amsterdam í fyrradag.

beðið bana ef eldur hefði komist í

brakið.

KLM á 12 flugvélar af gerðinni

SAAB 340B og eru þær notaðar á

stystu   flugleiðum  félagsins.  Tais-

maður SAAB-verksmiðjanna sagði

að þetta væri í fyrsta sinn sem flug-

vél þessarar gerðar yrði fyrir óhappi

sem kostaði mannsiíf.

Rússar til

Friðar-

samstarfs

VÍTALÍJ Tsjúrkin, aðstoðarut-

anríkisráðherra Rússlands

sagðist í gær búast við því að

Rússar myndu undirrita Frið-

arsamstarf við Atlantshafs-

bandalagið 21. apríl í Brussel.

Náinn aðstoðarmaður Borísar

Jeltsín,          Rússlandsforseta,

sagði í lok mars að Russar

kynnu að bíða með undirritun

í hálft ár.

Börn við

stjórnvöl fyrir

brotlendingu

NEFND sem hefur rannsakað

flugslysið í Síberíu þann 23.

mars sl., er 75 manns fórust,

upplýsti í gær að einn úr áhöfn

vélarinnar hefði verið að kenna

börnum sínum hvernig stýra

ætti vélinni fáeinum mínútum

áður en hún fórst. Nefndar-

menn fullyrtu þó ekki að það

hefði verið ástæða slyssins.

18%kosn-

ingaþátttaka

KJÓSENDUR í Pétursborg

hunsuðu aðra umferð borgar-

stjómarkosninga um helgina

en kjörsókn var aðeins um

18%. Frjálslyndir umbótasinn-

ar hlutu tæplega helming at-

kvæða um helgina en aftur-

haldsöfl og miðjuflokkar skiptu

með sér hinum helmingi at-

kvæða. Þriðja umferð kosning-

anna verður síðar á árinu.

Kommúnistar

sigra í Ukraínu

KOMMÚNISTAR og banda-

menn þeirra unnu þriðjung

þeirra sæta sem kosið var um

til úkraínska þingsins um helg-

ina samkvæmt bráðabirgða-

tölum. 450 sæti eru á þinginu

og var kosið um 33 sæti í ann-

arri umferðinni. Þriðja umferð-

in verður 10. apríl. Búist er við

að kommúnistar muni verða

stærsti flokkur á úkraínska

þinginu að loknum kosningum.

Var Brian

Jones myrtur?

BRESK   æsi-

fréttablöð

fullyrtu        á

sunnudag   að

Brian   Jones,

gítarleikari

hljómsveitar-

innar Rolling

Stones',    sem

fannst   látinn ¥

,             ,,       Jones

í       sundlaug

sinni  árið  1969,  hefði verið

myrtur.   Talið   var   að   Jones

hefði drukknað fyrir slysni en

News of the  World og  The

People fullyrða að ^veir menn

hafi drekkt honum. Vísa blöðin

til játninga mannanna á dánar-

beði þessa efnis,

Seinkun á

opnun Ermar-

sundsganga

PRÓFUNUM á ýmsum þáttum

í starfsemi Ermarsundsgang-

anna hefur seinkað að undan-

förnu og verður það til þess

að göngin verða ekki opnuð

fyrir almenna umferð fyrr en

í fyrsta lagi í september. Allt

kapp verður þó lagt á að vöru-

flutningar geti hafist um göng-

in í vor en þrátt fyrir tafir verða

þau formlega vígð 6. maí nk.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68