Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994

33

Hermenn sigra í

„orrustunni um

hótelherbergin"

Lundúnum, París. Reuter, The Daily Telegraph.

BRESK dagblöð fögnuðu í gær sigri fyrrverandi hermanna í „orr-

ustunni um hótelherbergin" eftir að frönsk yfirvöld lýstu því yfir stað-

ið yrði við hótelpantanir þeirra vegna hátíðahaldanna í júní í tilefni

þess að 50 ár verða liðin frá innrás bandamanna í Normandí í síðari

heimsstyrjöldinni.

200 fyrrverandi hermenn, sem

tóku þátt í innrásinni, höfðu greitt

fyrirfram fyrir gistingu á Hotel du

Golf í franska bænum Deauville.

Eigendur hótelsins skýrðu þó frá því

á sunnudag að hermennirnir gætu

ekki gist á hótelinu þar sem embætt-

ismenn í franska utanríkisráðuneyt-

inu hefðu gefið fyrirmæli um að

bandarískir sjónvarpsmenn, blaða-

menn og erlendir embættismenn

fengju herbergi þeirra. Pjölmiðla-

mennirnir höfðu átt að gista á Hotel

Royal en þeir urðu að víkja fyrir

erlendum þjóðhöfðingjum og ráð-

herrum. Ákveðið var að láta fjölm-

iðlamennina gista á Hotel du Golf

og   hermönnunum   fyrrverandi   var

Arafat til

Jeríkó eft-

ir mánuð

Jeríkó, Túnis, Amman, Jerúsalcm. Reuter.

The Daily Telegraph.

YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis-

samtaka Palestínumanna (PLO)

hyggst snúa til Jeríkó í mai, tak-

ist að ljúka samningum ísraels-

manna og PLO um sjálfstfórn

Palestínumanna á hernumdu

svæðunum á tilsettum tíma. ísra-

elsher vann á mánudag að brott-

flutningi sínum frá Jeríkó, flutti

m.a. á brott búnað hers og lög-

reglu. Kváðust Palestínumenn

eygja von í fyrsta sinn frá fjolda-

morðunum í Hebron í síðasta mán-

uði, er landnemi myrti tugi Palest-

ínumanna í mosku.

Arafat tilkynnti um ákvörðun sína

á sunnudagskvöld í hópi útlægra

Palestínumanna, sem hafa fengið

leyfi til að snúa til hernumdu svæð-

anna. Hann hyggst halda til Jeríkó

eftir fimm til sjö vikur. Rúmlega

helmingur útlaganna 46 héldu í gær

heim. Tóku hundruð manna á móti

þeim og hrópuðu vígorð í garð ísra-

elsog Bandaríkjanna.

ísraelsmenn og PLO funda nú í

Kaíró til að leggja lokahönd á samn-

ing um framkvæmd sjálfstjórnar

PLO og brottför ísraelshers fyrir 13.

apríl. Israelsmenn sögðu á mánudag

að kraftaverk þyrfti til að samningar

tækjust á þeim tíma, töldu að þeir

myndu nást um mánaðarmótin.

ætlað að gista á einkaheimilum.

Áformin ollu miklu uppnámi í

heimalöndum hermannanna, Bret-

landi og Kanada, og frönsk yfirvöld

tilkynntu daginn eftir að þeir fengju

að gista á hótelinu. Þau sögðu

ákvörðunina byggða á misskilningi.

„Hetjurnar okkar frá D-deginum

hafa unnið annan eftirminnilegan

sigur. Reynið ekki að traðka á Bret-

um," sagði í forystugrein breska

æsifréttablaðsins Sun í gær.

„Hverflyndir Frakkar. Frönsk yf-

irvöld hafa komið svívirðilega fram

við hermennina frá D-deginum,"

sagði í forystugrein The Times. „Það

er erfitt að hugsa sér bresk hótel

sniðganga skuldbindingar sínar með

hrokablandinni fyrirlitningu vegna

fyrirmæla frá embættismönnum.

Fjarlægðin milli þessara tveggja

landa er mun meiri en breidd Ermar-

sundsins segir til um."

Franska dagblaðið Le Monde sagði

að deilan endurspeglaði það sjónar-

mið Frakka að þeir hefðu unnið stríð-

ið „af eigin rammleik og án hjálpar

bandamanna".

.Reuter

Annar sigur í höfn

FRA innrás bandamanna i Normandí 6. júní 1944, á D-deginum ^vo-

kallaða. Fyrrverandi hermenn, sem tóku þátt í innrásinni, hafa unn-

ið annan sigur, nú gegn frönskum yfirvöldum sem ætluðu að meina

þeim um gistingu á hóteli í júní þegar þess verður minnst að 50 ár

emi liðin frá innrásinni.

Major leit-

ar ráða hjá

Ingham

London. Daily Telegraph.

JOHN Major, forsætisráðherra

Bretlands hefur falið Sir Bernard

Ingham, fyrrverandi blaðafulltrúa

Margaret Thatcher, að leggja á

ráðin um hvernig bæta megi

ímynd ráðherrans og endurheimta

stuðning kjósenda við Ihaldsflokk-

inn.

Sir Bernard er kunnur fyrir óhefl-

aða framkomu og klókindi í sam-

skiptum við fiölmiðla í þau 11 ár sem

hann starfaði fyrir Thatcher. Hefur

hann átt nokkra fundi með Major

að undanförnu. „En ég legg til að

ég.segi ykkur ekki hvað ég hef að

segja honum," sagði Sir Bernard um

fundi þeirra Majors.

Talið er að samband sé á milli

heimsókna Sir Bernards í Downing-

stræti 10, embættisbústað forsætis-

ráðherrans, og ráðningar vinar hans

og fyrrum samstarfsmanns, Chri-

stophers Meyers, í starf blaðafulltrúa

Majors.

Hlutverk Meyers er að matreiða

stefnu stjórnar Majors fyrir fjölmiðla

og þykir hafa staðið sig vel. Hann

hefur og fengið Major til að hætta

við óformlega fundi með fréttamönn-

um en þær fréttir sem skaðað hafa

ráðherrann hvað mest hafa orðið til

í framhaldi af slíkum fundum.

Sir Bernard átti stóran þátt í að

móta ímynd Thatcher og stjórnarstíl

sem aflaði henni viðurnefnisins

„Járnfrúin."

Erfið stjórnarmyndun auðjöfursins Berlusconis á Italíu

Leiðtogar hægriafla

skiptast á skömmum

Mílanó, London. Reuter, The Daily Telegraph.

TVEIR 4f leiðtognm Frelsisbandalagsins á ítalíu, Silvio Berlusconi

og Umberto Bossi, skiptust á hvössum skeytum í gær og virðast líkur

á stjórnarmyndun hins fyrrnefnda fara minnkandi. Flokkarnir þrír í

bandalaginu, Forza Italia undir stjórn Berlúsconis, Norðursamband

Bossis og nýfasistar undir forystu Gianfrancos Finis, hlutu samanlagt

meirihluta í neðri deild þingsins er nýtt þing var kjörið fyrir skömmu.

Berlusconi ákvað í gær að fresta stjórnarmyndunartilraunum til 15.

apríl þegar nýtt þing kemur saman.

Frelsisbandalagið skorti aðeins

þrjú sæti til að ná einnig meirihluta

í öldungadeildinni og er talið að því

myndi reynast' auðvelt að tryggja

sér stuðning nokkurra óháðra þing-

manna þar. Þingið kemur saman 15.

apríl og reyna flokkarnir í bandalag-

inu nú að koma sér saman um ríkis-

stjórn fyrir þann tíma.

Berlusconi minnti Bossi á að

Norðursambandið, sem fékk minnst

fylgi flokkanna þriggja, hefði ekki

unnið kosningarnar hjálparlaust.

Hinn síðarnefndi svaraði því til að

sigur Forza Italia, sem Berlusconi

stofnaði fyrir fáeinum mánuðum,

hefði valdið því að sjálft lýðræðið í

landinu væri í hættu. „Við erum í

þeirri stöðu að flokkur sem ekki er

til hefur unnið kosningarnar. Sigur-

vegarinn var maður, ekki flokkur",

sagði Bossi og taldi að einvörðungu

Norðursamband hans gæti treyst

lýðræðið í sessi.

Fyrir helgina kom til harðra orða-

skipta milli Finis og Bossis sem

hundsar nýasistana og hefur gengið

svo langt að neita að eiga við þá

stjórnarsamstarf. Norðursamband

Bossis hefur barist fyrir því að dreg-

ið verði úr opinberum styrkjum við

suðurhéruð ítalíu, sem eru langtum

fátækari en norðursvæðin. Bossi vill

að landið verði sambandsríki og

krefst þess að liðsmaður Norðursam-

bandsins verði forsætisráðherra nýju

stjórnarinnar. Nýfasistar sækja fylgi

sitt aðallega suður á bóginn.

Forza Italia er nú stærsti flokkur

á ítalíu og vill hrinda í framkvæmd

róttækum efnahagsaðgerðum í anda

markaðshyggju og einkavæðingar.

Berlusconi sakaði í gær Bossi um

að haga sér eins og hann væri enn

í kosningabaráttu.

Heill eftir

fall úr þotu

Colchester. The Daily Telegraph.

„ÞETTA var dálítið áfall,"

var það sem Des Moloney

hafði að segja við blaðamenn

um þá eldraun að þeytast út

úr stjórnklefa herþotu í 3.000

feta hæð, með fallhlíf sem

opnaðist ekki til fullnustu.

Atvikið átti sér stað að kvöldi

páskadags og Moloney, sem

er 28 ára gamall, lenti heilu

og höldnu á akri.

Moloney og bróðir hans flugu

25 ára gamalli tveggja sæta

þotu af Provost-gerð er skot-

búnaður undir farþegasætinu

brást og skaut sætinu, sem Des

sat í, upp úr stjórnklefanum.

Des kippti fljótlega i spott-

ann á fallhlífinni en hún opnað-

ist ekki að fullu. Hann lenti

engu að síður heilu og höldnu

á akri þrátt fyrir erfiðleika á

síðustu sekúndúnum. „Ég gat

ekki dregið andann síðustu 20

sekúndurnar en hélt meðvitund

í lendingunni. Ég hef aldrei

stokkið 5 fallhlíf en hef séð

hvernig fólk ber sig að."

NÝUA BÍLAHÖLLlN   FUNAHOFÐA

Nissan Primera 2,0 SLX árg. '92, ek. 12

þ. km„ d-grár, 5 g. Verð kr. 1.170.000

stgr., skipti - engin útborgun.

Nissan Sunny SLX 4WD árg. '91, ek. 27

þ. km., i-grár, 5 g. Verð kr. 1.090.000 stgr.,

skipti.

MMC Lancer GLXi érg. '91, ek. 40 þ. km.,

d-blár, sjálfsk. Verð kr. 990.000 stgr., skipti.

Toyota Touring GLi árg. '92, ek. 53 þ.

km., v-rauður, 5 g., álfelgur. Verð kr.

1.390.000 stgr., skipti.

Ford Econollne Club Wagon XLT 7,3 dies-

el, 11 manna árg. '91, ek. 46 þ. km., grár,

sjálfsk. Verð kr. 2.080.000 stgr., engín út-

borgun.

BÍLATOFtG   FUNAHOFÐA  1    S:683444

VW Jetta CL árg. '91, svartur, sjélfsk.,

vökvastýri, ek. 37 þ. km. Verð kr. 990.000,

skipti-skuldabréf.

Suzukl Vitara JLXi árg. '92, hvítur, sjálf-

skiptur, álfelgur, upphækkaður, 30" dekk,

ek. 55 þ. km. Verð kr. 1.790.000.

Chrysler Saratoga SE árg. '92, vinrauður,

einn m/öllu, ek. aðeins 10 þ. km. Verð kr.

1.790.000.

Mercedes Benz 613D árg. '83, grár húsbíll

m/öllum hugsanlegum búnaði. Verð kr.

2.450.000, skipti-skuldabréf.

Toyota Corolla 1300 XL árg. '90, rauður,

sjálfsk., vökvastýri, ek. 25 þ. km. Verö kr. s

750.000.

Auglýsingin okkar -erárangurykkar

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68