Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						46

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994

Óvænt endalok

á í slandsmótinu

í sveitakeppni

Brids

Arnór Ragnarsson

SVEIT Landsbréfa sigraði nokk-

' uð örugglega á íslandsmótínu í

sveitakeppni í brids sem lauk sl.

laugardag. Endalok mótsins urðu

reyndar nokkuð óvænt en fyrir

síðustu umferðina áttu þrjár

sveitír möguleika á að vinna titil-

inn. Sveitír Landsbréfa og VÍB

spUuðu saman í síðustu umferð-

inni og var búist við jöfnum og

skemmtilegum leik. __ Landsbréf

liöfðu 149 stig en VÍB var með

143,5 stig. Sveit Tryggingamið-

stöðvarinnar var svo í þriðja sæti

með 141,5 stig og spilaði gegn

sveit Sparisjóðs Siglufjarðar sem

varð íslandsmeistari í fyrra en

var í neðsta sætinu fyrir síðustu

umferðina.

Leikur Landsbréfa og VÍB var

sýndur á sýningartöflunni og urðu

áhorfendur vitni að ótrúlegum fyrri

hálfleik þar sem allt gekk upp hjá

Landsbréfum en nákvæmlega ekkert

hjá VÍB. Stærsta sveiflan varð þegar

Landsbréf vann úttektarsögn á báð-

um borðum tvöfölduð og á öðru borð-

inu með yfirslag. (Á bridsmáli game

á báðum borðum dobluð.) Eftir 12

spil áttu Landsbréf 90 punkta til

góða sem er hreint ótrúleg tala í

leik efstu sveita um íslandsmeistara-

titilinn. Var nú nánast formsatriði

að ljúka mótinu.

Landsbréf jók muninn í síðari

hálfleik og lokatölur leiksins urðu

137 punktar gegn 13. Á meðan

tryggði Tryggingamiðstöðin sér

annað sæti með öruggum sigri yfir

sveit Siglfirðinga sem aldrei sá til

sólar í mótinu og hafnaði í 10. sæti.

Sveit DV náði þriðja sætinu með

25-2 sigri á sveit Magnúsar Magn-

ússonar í lokaumferðinni og sveit

VÍB hrapaði niður í fjórða sætið

eftir hremmingarnar á móti Lands-

bréfum.

Það leit ekki vel út hjá Lands-

bréfasveitinni í upphafi móts. Stiga-

hæsti spilari landsins, Jón Baldurs-

son, var á spítala og sveitin tapaði

fyrsta leiknum á mótinu 13-17 gegn

Bíóbarnum. Eftir það fóru hjólin að

snúast. Sveitin vann alla leiki sína

eftir það að undanskildum leiknum

við DV. Jón mætti til leiks beint af

spítalanum og spilaði vel í lokaum-

ferðinni. Meðspilarar Jóns í sveit

Landsbréfa voru Sævar Þorbjörns-

Notkun skerma

SKERMAR voru í fyrsta sinn notaðir í opna salnum og sýnist sitt

hverjum. Asmundur Pálsson og Karl Sigurhjartarson spila gegn

Magnúsi Magnússyni og Anton Haraldssyni.

Shjoningsmenn Reykjavíkurlistans, sem veroa að heiman

á kjördag, 28. maí:

Utankjörfundarkosning vegna borgarsrjórnarkosninganna

í vor hófst þriojudaginn 5. apríl oq fer fyrst um sinn fram

á skrifstofu sýslumannsins í Reykjavík, Skógarhlíð 6,

frá kl. 9:30 til 15:30 virka daga.

Reykvíkingar, sem veröa ekki heima á kjördag, 28. maí, geta

kosið utan kjörfundar á ofangreindum tíma með því að ríta

listabókstaf á atkvæoaseðil sinn.

Reykjavíkurlistinn hefur óskað eftir því aS bókstafurinn R

verSi einkennisstafur listans.

StuSningsmenn Reykjavíkurlistans skrifa R á kjörseSilinn!

é^

REYKJAVIKUR

LISTINN

júajmtjJu

( r

Morgunblaðið/Arnór

íslandsmeistaratitlinum hampað

ÍSLANDSMEISTARARNIR í sveitakeppni í brids 1994 hampa sigurverðlaunum sínum. Talið frá vinstri:

Þorlákur Jónsson, Guðmundur Páll Amarson, Jón Baldursson, Sverrir Armannsson og Sævar Þorbjörnsson.

son, Sverrir Ármannsson og heims-

meistaraparið Guðmundur Páll Arn-

arson og Þorlákur Jónsson.

Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar

hafði alla burði til að vinna mótið

að þessu sinni en vantaði herzlumun-

inn. Sveitin tapaði fyrir sveit Metro

í næstsíðustu umferðinni en hafði

þá urinið alla sína leiki að leiknum

við Landsbréf undanskildum sem

sveitin tapaði 12-18.

Lokastaðan í mótinu:

Landsbréf                                  174

Tryggingamiðstöðin                166,5

DV                                         149,5

VÍB                                           144

Metró                                        139

Bíóbarinn                                   133

S. Ármann Magnússon             111,5

Magnús Magnússon                   108

Hjólbarðahöllin                       107,5

Sparisjóður Siglufjarðar            99,5

Tíu svietir spiluðu að þessu sinni

um íslandsmeistaratitilinn og voru

spilaðir 24 spila leikir en það er

breyting frá fyrri árum en þá spiluðu

8 sveitir 32 spila leiki. Þessi breyting

skilaði sér ágætlega. Þá var spilað

með skermum bæði í opnum og lok-

uðum sal og sýnist sitt hverjum um

þá ákvörðun. Undirritaður hallast á

sveif með þeim hópnum sem vill

ekki hafa þá í opnu salnum og skoð-

unin byggist einfaldlega á því að

skermanotkun er mjög letjandi fyrir

áhorfendur. Þá hafði dómnefndin

nóg að gera vegna skermanna en

flestar ef ekki allar kærur sem komu

í dóm voru vegna útskýringa við þá.

Auðvitað verða íslenzkir spilarar að

læra að spila við skerma en að spila

brids við félagana og að spila bak

við skerm er ekki það sama.

Ágætt mótsblað var gefið út á

meðan mótið stóð. Guðmundur Pét-

ursson blaðamaður og Elín Bjarna-

dóttir mótsstjóri sáu um það. Krist-

ján Hauksson var keppnisstjóri og

sýningarstjóri Steingrímur Gauti

Pétursson. Áhorfendur voru ekki

margir.

I butler-útreikningi paranna urðu

efstir Guðmundur Páll Arnarson og

Þorlákur Jónsson með 17.61 stig. I

öðru sæti urðu Jón Baldursson og

Sævar Þorbjörnsson með 17.17 stig

og í þriðja sæti urðu Haukur Inga-

son og Jón Þorvarðsson með 16.95

stig.

íslandsmót í parasveitakeppni

Helgina 9.-10. apríl nk. verður

haldið íslandsmót í parasveitakeppni

í Sigtúni 9. Á síðsta ári, í fyrsta skipti

sem þetta mót var haldið, tóku þátt

21 sveit.

Það verða spilaðar sjö umferðir, 16

spila leikir eftir monrad-uppröðun,

fjórir leikir á laugardag og þrir á

sunnudag. Báða dagana hefst spila-

mennska kl. 11. Skráning er á skrif-

stofu Bridssambands íslands i síma

91-619360 og verður skráð til hádeg-

is föstudaginn 8. apríl.

Opið silfurstigamót

Annan páskadag var haldið opið

silfurstigamót í Sigtúni 9. 50% keppn-

isgjalda voru í verðlaun og skiptust

þau 60%, 30% og 10%. Spilaðar voru

tvær umferðir, alls 44 spil, og 58 pör

spiluðu. Helgi Hermannsson og Kjart-

an Jóhannsson urðu sigurvegarar en

röð efstu manna var eftirfarandi:

Helgi Hermannsson - Kjartan Jóhannsson 539

Halldór M. Sverrisson - Brynjar Valdimarsson 531

Hjördís Sigurjónsdóttir - Sævin Bjarnason 530

Björn Eysteinsson - Aðalsteinn Jörgensen 530

Guðlaugur Sveinsson - Erlendur Jónsson 511

Páll Þór Bergsson - Sveinn E. Þorvaldsson      510

Yfirburðir frá fyrsta spili

Brids

Guðmundur Sv. Hermannsson

ÞEIR sem komu sér fyrir í sýningar-

salnum á Hótel Loftlejðum í upp-

hafi siðustu umferðar íslandsmóts-

ins í sveitakeppni og bjuggust við

jöfnum og spennandi úrslitaleik

milli sveita Landsbréfa og Verð-

bréfamarkaðar íslandsbanka urðu

fyrir vonbrigðum. Yfirburðir Lands-

bréfasveitarinnar í leiknum voru of

miklir. Strax í fyrsta spili leiksins

varð ljóst hvert stefndi því spila-

mennska Landsbréfamanna var

greinilega mun beittari.

N/Enginn

Norður

? Á109875

¥42

? D82

*G2

Vestur                     Austur

? DG4                     ? 6

V ÁK75                   V D9863

? K97                      ? 103

+ KD3                     4109876

Suður

? K32

VG10

? ÁG654

+ Á54

Vestur    Norður   Austur    Suður

GPA        ÁP           ÞJ            KS

2 tíglar    pass         2 hjörtu

dobl         2 spaðar  pass         3 spaðar

pass        pass         4 hj.        dobl//

590

ÖA          SÞ           GRJ         JB

2 tiglar    pass         3 hjðrtu

3 grönd//

+ 100

Við bæði borð opnaði norður á

multi 2 tíglum og gat þá átt veik

spil og langlit í öðrum hvorum há-

litnum.

í opna salnum fór Karl Sigur-

Úrslitaleikurinn

FYRSTA spilið í úrslitaleik Landsbréfa og VÍB gaf tóninn í leiknum.

Hér hefur Sævar Þorbjörnsson opnað á 2 tiglum og Guðlaugur R.

Jóhannsson býr sig undir að segja. Hinu megin við skerminn bíða

Jón Baldursson, Örn Arnþórsson og Valgerður Kristjónsdóttir sem

var skrifari í leiknum.

hjartarson troðnar slóðir í suður.

Frá hans bæjardyrum séð var lík-

legra að Ásmundur Pálsson í norður

ætti hjartalit og jafnframt var ólík-

legt að geim stæði í spilinu þar sem

NS áttu væntanlega um helming

háspilanna í stokknum. Karl reyndi

því að kaupa samninginn í 2 hjörtum

en þegar norður sagði frá spaðalit

með 2 spöðum, eftir að Guðmundur

Páll Arnarson sýndi sterk spil með

dobli, hækkaði Karl í 3 spaða til

hindrunar. Það hefði orðið loka-

samningurinn á móti flestum pörum,

en Þorlákur Jónsson í austur ákvað

að treysta á góða samlegu í AV og

barðist í 4 hjörtu. Dobl Karls hlýtur

að teijast nokkuð vafasamt enda

vann Þorlákur spilið auðveldlega í

þessari góðu iegu. 4 spaðar hefðu

farið tvo niður eða 300.

Við hitt borðið var Jón Baldursson

tilbúinn að berjast í a.m.k. 3 hjörtu,

ef litur Sævars Þorbjörnssonar væri

hjarta. Hann sagði því 3 hjörtu

strax til að stela sagnrýminu af

AV; Sævar hefði breytt í 3 spaða

ef hann hefði fengið tækifæri til.

Sjálfsagt hefði fáum öðrum dottið

þessi sögn í hug, þar sem spil suð-

urs eru ekki hindrunarieg. En nú

var Örn Arnþórsson í vestur settur

upp að vegg. Hann gat varla doblað

til úttektar, og sagði því 3 grönd,

enda virtust sagnir benda til þess

að Guðlaugur R. Jóhannsson í aust-

ur ætti eitthvað af punktun. Örn

fékk svo að spila 3 grönd en fór

tvo niður og sveit Landsbréfa

græddi 12 stig á spiiinu.

4

1

<

4

\

4

4

4

4

4

4

4

4

4

4

4

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68