Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994

47

Þröstur naði öðrum

stórmeistaraáfanga

_______Skák_______

Margeir Pétursson

ÞRÖSTUR Þórhallsson, al-

þjóðlegur meistari, varð í

efsta sæti á alþjóðlegu móti í

Oakham í Englandi sem lauk

fyrir páska. Þröstur hlaut sjö

vinninga af níu mögulegum

og tryggði sér þar með annan

áfanga sinn að stórmeistarat-

itli. Til að hreppa titilinn þarf

hann að vinna sér inn einn

áfanga til viðbótar og ná 2.500

stigum á alþjóðlega listanum.

Hann er nú skráður með 2.470

stig. Fyrsta áfanga sínum náði

Þröstur á opnu móti í Gausdal

í Noregi sumarið 1991. Hann

hefur lagt mikla rækt við

skáklistina í vetur og teflt á

hverju mótinu á fætur öðru.

Mótið í Oakham var sett á

laggirnar sérstaklega með það

fyrir augum að gefa upprenn-

andi skákmönnum kost á að ná

áföngum að titlum. Keppendun-

um átján var skipt upp í tvo

hópa, A og B. í A-hópnum voru

þrír stórmeistarar og sex titil-

lausir skákmenn en í B níu al-

þjóðlegir meistarar, þar á meðal

Þröstur. Hver keppandi í A tefldi

síðan við alla í B og öfugt.

B-hópurinn reyndist afar sig-

ursæll. Auk Þrastar náðu Eng-

lendingarnir James Howell og

Peter Wells sjö vinningum og

stórmeistaraáfanga. Daninn

Sune Berg Hansen og Hollend-

ingurinn Johan Van Mil fengu

sex og hálfan vinning.

Hinum hópnum gekk mun

verr. Þrátt fyrir að enski stór-

meistarinn Stuart Conquest hlyti

aðeins fjóra og hálfan vinning

var hann hæstur A-keppend-

anna. Kollegar hans, Skotinn

Colin McNab og Englendingur-

inn Glenn Flear, hlutu fjóra vinn-

inga og enginn titillausu skák-

mannanna náði áfanga að alþjóð-

legum meistaratitli.

Þröstur þurfti nauðsynlega að

vinna með svörtu í síðustu um-

ferð gegn fyrstaborðsmanni Ný-

Sjálendinga. Sú viðureign var

ákaflega lífleg og æsispennandi:

Hvítt: B. Martin, Nýja-Sjálandi

Svart: Þröstur Þórhallsson

Sikileyjarvörn

1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4

- cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3

-  Rc6, 6. Bg5 - e6, 7. Dd2 -

Be7, 8. 0-0-0 - 0-0, 9. Rb3 -

Db6, 10. f3 - Hd8, 11. Kbl -

Dc7, 12. Bf4?!

Þetta er of hægfara. í æsi-

spennandi skák Benjamin-

Anand, PCA-mótinu í Groningen

í desember, lék hvítur 12. Bxf6!

-  Bxf6, 13. g4 og fékk fljótlega

hættuleg sóknarfæri. Nú verður

svartur fyrri til.

12. - a6, 13. g4 - Re5, 14.

Df2 - b5, 15. g5 - Rfd7, 16.

h4 - b4, 17. Re2 - Rc4, 18.

Bcl - a5, 19. f4 - a4, 20.

Rbd4 - Hb8, 21. Rg3!

fellur ekki í gildruna 21. f5 -

e5, 22. f6 - Bf8, 23. fxg7 -

Bxg7, 24. Rf5 - Ra3+! 25. bxa3

-  bxa3+, 26. Kal - Dxc2 og

svartur vinnur.

21. - Rdb6, 22. f5 - e5, 23. f6

-  Bf8, 24. fxg7 - Bxg7, 25.

Rb5

Hvítur sneiðir hjá 25. Rdf5? -

Ra3+!, en nú átti svartur að leika

25. - Dd7! og stendur betur.

25. - Dc6, 26. Ra7 - Dc7, 27.

Rf5?

Gefur svarti ekki kost á að

leiðrétta ónákvæmnina í 25. leik

eftir 27. Rb5 - Dd7!, en betra

var 27. Rxc8

27. - Bxf5 28. exf5

28. - Ra3+! 29. bxa3 - Dxa7??

Rétt var 29. - bxa3! og svart-

ur vinnur manninn til báka með

sterkri stöðu eftir 30. Rb5 - Rc4

31. Hd5 - Dc6. Eftir þessi mis-

tök verður hvítur peði yfir og

stendur vel en keppendur voru

komnir í mikið tímahrak og

Þresti tekst að notfæra sér það.

30. axb4 - Db7, 31. Hh3 -

Rd5, 32. b5 - Hdc8, 33. c4?

33. Bb2 virðist mun öruggara,

auk  þess  hefði  hvítur átt  að

skjóta inn f5-f6

33. - Rb6, 34. Dc2 - d5, 35.

c5 - Rc4!, 36. Bxc4 - Hxc5,

37. Hc3?! - dxc4, 38. Kal -

Hxb5, 39. Ba3 - f6!? 40. Hxc4

- e4! 41. g6 - hxg6, 42. Hc7

Ný-Sjálendingurinn notaði 40

mínútur á þennan leik án þess

að finna viðunandi framhald.

42. - Db6, 43. h5 - gxf5, 44.

Hhl?

Afleikur í erfiðri stöðu. Síð-

asti möguleikinn var 44. Bd6!

og hvítur ætti að hanga á jafn-

tefli. Svartur lýkur nú skákinni

með drottningarfórn:

44. - Dd4+, 45. Hc3 - e3, 46.

Hdl - Dxdl+! 47. Dxdl - e2,

48. Hc8+ - Kh7

og hvítur gafst upp.

Aukakeppni um landsliðssæti

Þrír ungir skákmenn urðu

jafnir og efstir í áskorendaflokki

á Skákþingi íslands um páskana.

Þeir Magnús Örn Úlfarsson, Páll

Agnar Þórarinsson og Sigur-

björn Björnsson verða að heyja

aukakeppni um tvö sæti í lands-

liðsflokki. Enginn þeirra hefur

áður teflt á þeim vettvangi.

James Burden, varnarliðsmað-

ur á Keflavíkurflugvelli, tók

snemma forystuna og hafði hlot-

ið sex og hálfan vinning úr sjö

skákum. En í síðustu umferðun-

um tapaði hann fyrir Sigurbirni

og Magnúsi Erni í æsispennandi

skákum.

Austfirðingurinn Guðmundur

Ingvi Jóhannsson sigraði nokkuð

óvænt í opna flokknum og á frá-

tekið sæti í áskorendaflokki að

ári.

Áskorendaflokkur, úrslit:

1.-3.  Páll Agnar Þórarinsson,

Magnús Örn Ulfarsson og Sigur-

björn Björnsson 7 v. af 9 mögu-

legum

4. James Burden 6 lh v.

5.-7. Bergsteinn Einarsson, Ein-

ar K. Einarsson og Heimir Ás-

geirsson 5'/2 v.

8.-9.   Torfi  Leósson  og  Guð-

mundur Daðason 5 v.

10.-15. Arnar E. Gunnarsson,

Ólafur B. Þórsson, Stefán Andr-

ésson, Jón Árni Jónsson, Bragi

Þorfinnsson og Björn Þorfinns-

son 4V2 v. o.s.frv.

Opinn flokkur, úrslit:

1. Guðmundur Yngvi Jóhannsson

6'/2 v.

2.-7. Kjartan Guðmundsson,

Patrick Svansson, Bjarni Sæ-

mundsson, Sverrir Sigurðsson,

Davíð Kjartansson og Óskar

Maggason 6 v. o.s.frv.

mýkt

í matargerðina

AKRA

FLJÓTANDI

S M   |  C)  R L   I  K  I

Nýr og spennandi

möguleiki talla matargerb

•

Inniheldur

hollustuoltuna, rabsolíu

•

Þægilegt beint úr

kœliskápnum

KEÍA

SMJÖRLÍKISGERÐ

AKUREYRI

F y r i r   l i s t i n a   a ð   m a t b ú a

210 milljónir

.1 m_"?

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68