Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994

51

vel með fólki og framkyæmdum,

þar sem hann þekkti til. Ögmundur

kvæntist 17. júní árið 1951 Sigur-

fljóð Jónsdóttur frá Litla Langadal

á Skógarströnd. Þau eignuðust tvö

börn; Sigrúnu sjúkraliða, gifta Þór-

arni Böðvarssyni prentara og eiga

þau fjögur börn, og Ragnar sem

lést ungur. Auk þess gekk hann í

föðurstað Halldóru Guðmundsdótt-

ir, dóttur Sigurfljóðar. Hún giftist

Konráði R. Bjarnasyni fram-

kvæmdastjóra og eiga þau þrjú

börn og tvö barnabörn.

Ögmundur var mjög vel laghent-

ur maður og gerði mörgum greiða

á þeim vettvangi, enda má segja

að mestan hluta ævinnar félli hon-

um aldrei verk úr hendi. Marga

fyrirgreiðslu höfum við hjónin notið

á heimili þeirra hjóna, Ögmundar

og Sigurfljóðar, um áratuga skeið.

Dætur okkar nutu dvalar, gestrisni

og elskusemi á heimili þeirra á

námsárum sínum í Reykjavík og

raunar alla tíð síðan. Heimili þeirra

hjóna var sem þeirra annað heimili

og er raunar enn. Fyrir það skal

nú þakkað, þó það verði aldrei þakk-

að svo sem vert væri.

Við Margrét vottum Sigurfljóð,

börnum þeirra, barnabörnum og

systkinum hans samúð okkar.

Blessuð sé minning Ögmundar

Sigurðssonar.

Siggeir Björnsson.

Að snöggum og óvæntum leiðar-

lokum finn ég mig knúna til að

minnast góðvinar míns í gegnum

tíðina, Ögmundar Sigurðssonar.

Ég verð að viðurkenna að lítið

veit ég um ættir hans, en fæddur

er hann á Hálsi á Skógarströnd,

Snæfellsnesi, þann 16. nóvember

1913 einn sex systkina. Aðrir sem

betur til þekkja munu ef til vill

bæta úr því.

Það sem mig langar til að gera

er að skýra frá hvern mann Ög-

mundur hafði að geyma og því við-

móti, sem ég fullyrði að hann sýndi

öllum sem hann umgekkst, jafnt

háum sem lágum. Það viðmót ein-

kenndist af hjartahlýju, hógværð

og lítillæti. Þó gat hann verið glett-

inn á góðri stund, kunni vel að

meta góð vín og þótti gott að taka

í nefið.   *¦

Ögmundur var ævinlega boðinn

og búinn til að hjálpa þeim sem til

hans leituðu og sparaði sig hvergi.

Hann hjálpaði okkur Sólmundi

heitnum, eiginmanni mínum, við

innréttingu okkar húss að miklu

leyti, því hann var hagur í höndum,

en taldi hvorki tímann sem í það

fór né ætlaðist til launa fyrir. Þetta

var okkur ómetanlegt þyí vð réð-

umst í þessa húsbygginu nánast

með tvær hendur tómar.

Elsta son okkar tók hann til sín

í suamrvinnu, þá nýfermdan, og

varð sá tími m.a. til þess að með

þeim tókst náið samband og vænt-

umþykja sem entist ævilangt. Þ6

gerði hann ekki upp á milli sona

okkar þriggja og fylgdist ævinlega

vel með þeim.

Ögmundur var mikill fjölskyldu-

maður enda sá gæfumaður að eign-

ast góða konu, Sigurfljóð Jónsdótt-

ur, sem hann elsakaði og dáði.

Fljóða og Sólmundur voru systk-

inabörn en voru þó meira eins og

systkini eftir að Fljóða kom ung-

lingur á heimili fyrrverandi tengda-

móður minnar, Kristínar Jónsdótt-

ur, Njálsgötu 58, og átti þar heim-

ili um árabil.

Mér fannst alltaf svolítið gaman

að heyra hvernig Ögmundur talaði

um konu sína við aðra, því hann

nefndi hana ekki nafni, heldur

sagði: „Mín kona." Hann lifði fyrir

hana og börn þeirra, Sigrúnu,

Ragnar heitinn og Halldóru Guð-

mundsdóttur sem hann tók að sér

sem hans barn væri. Það var gam-

an að heimsækja þau hjón, eðlislæg

gestrisni sat þar í fyrirrúmi.

Elsku Fljóða mín. Á öllum

stærstu stundum lífsins verður

manni orða vant, en ég og fjöl-

skylda mín biðjum Guð að blessa

þig og alla þína ástvini.

Deyr fé, deyja frændur,

dey'r sjálfr hið sama,

en orðstír deyr aldregi

hveim er sér góðan getur.

Sigríður G. Elíasdóttir.

Minning

Egill Karlsson

Fæddur 22. júní 1920

Dáinn 25. mars 1994

Þann 25. mars sl. lést á Eskifirði

Egill Karlsson, mágur okkar og vin-

ur.

Hann fæddist 22. júní árið 1920

að Jaðri, á heimili foreldra sinna

Augustu og Karls Jónassonar frá

Svínaskála. Augusta var norsk, hún

fluttist hingað til lands ung að

árum. Heimilið bar alla tíð sterkan

svip af uppruna hennar í gamalgró-

inni menningu heimalandsins.

Systkini Egils voru fjögur, Aðal-

björg, Jensína, Lauritz og Guðbjörg,

sem lést á barnsaldri, en hin þrjú

lifa bróður sinn.

Árið 1957 kvæntist Egill Arn-

heiði Halldórsdóttur Árnasonar frá

Hlíðarenda og Sólveigar Þorleifs-

dóttur frá Svínahólum í Lóni. Þau

stofnuðu sitt heimili að Jaðri, en

Karl faðir Egils var þá látinn. Aug-

usta bjó hjá þeim til dauðadags

árið 1966.

Börn Egils og Arnheiðar eru:

Guðbjörg, gift Kristjáni Kristins-

syni; Karl Ingvar, kvæntur Kristínu

Kristjánsdóttur; Kolbrún Brynja,

gift Bernharði Bogasyni; Atli Börk-

ur, kvæntur Beu Meijer og Aug-

usta, gift Hauki Björnssyni. Sólveig

dóttir Arnheiðar var Agli sem dótt-

ir, hennar maður er Árni Helgason.

Barnabörnin eru orðin 13.

Karl Jónasson var útgerðarmað-

ur og á yngri árum starfaði Egill

með honum bæði heima á Eskifirði

og á Höfn í Hornafirði á vetrarver-

tíðum. Síðar setti hann upp harð-

fiskverkun í félagi við mág sinn,

Lúðvík Ingvarsson sýslumann.

Verkuðu þeir fiskinn á mjög nýstár-

legan hátt, í bitafisk, sem lands-

frægur er orðinn að gæðum.

Fljótlega tók Egill einn við rekstri

fyrirtækisins, sem fékk nafnið

Sporður hf., og vann við það til

dauðadags. Er það mál manna að

annan eins sælgætis-harðfisk og

hann framleiddi sé hvergi að fá,

þó margir hafi reynt að líkja eftir

honum. Þennan árangur má þakka

einstakri nákvæmni og snyrti-

mennsku Egils, sem kom fram í

öllum hans verkum. Til dæmis hafði

hann einstaklega fallega rithönd.

t

Egill var vinsæll og vel látinn af

sínum samferðamönnum, enda

greindur vel og gæddur góðri

kímnigáfu. Mun margur Eskfirð-

ingur sakna þess að eiga við hann

orðastað þegar gengið er framhjá

Jaðri, en þar var hann iðulega á

ferli milli vinnustðar og heimilis.

Hann fylgdist grannt með málefn-

um líðandi stundar, var íhugull og

áhugasamur um menn og málefni,

lagði fólki gott til og tók nærri sér

vitneskju um erfiðleika náungans.

Egill unni náttúru landsins og

hafði ákaflega gaman af að ferðast

og sjá sig um. Fallegar náttúru-

myndir, sem hann tók mikið af,

bera áhuga hans á því sviði glöggt

vitni, Einnig hinn fallegi og sérs-

taki garður við heimili þeirra hjóna.

Þar lagði hann konu sinni gott lið,

þó að hún væri aðal hönnuðurinn.

I hlíðinni fyrir ofan gróðursetti

Egill mikinn fjölda trjáplantna sem

vonandi eiga eftir að dafna og verða

hvort tveggja, yndisauki nýrra kyn-

slóða og minnisvarði um þann sem

þeim sáði.

Með kæru þakklæti fyrir sam-

fylgdina kveðjum við Egil Karlsson.

Guð Uessi minningu hans.

Arni Halldórsson,

Ragnhildur Kristjánsdóttir.

Minning

Ragna Pétwsdóttir

Mig langar að kveðja hana

Rögnu mína hinstu kveðju, en hún

verður til grafar borin í dag. Mest-

an hluta ævi minnar hef ég þekkt

hana og notið samfylgdar hennar í

tæp 40 ár. Aldrei hef ég fundið

annað en velvild og góðar óskir frá

henni, sem mig langar að þakka.

Ragna var ákaflega dagfarsprúð

kona, ég man ekki eftir að hafa séð

hana skipta skapi. Hún stundaði til

margra ára prjónaskap með sínum

heimilisstörfum. Hún átti þessa fínu

prjónavél og aðrar vélar sem tengd-

ust prjónaskapnum, m.a. overlock-

vél, sem er sú fyrsta sem ég heyrði

um og hafa án efa verið sjaldgæfar

í þá daga.

í hverfinu okkar gekk hún undir

nafninu Ragna ptjónakona og

finnst mér að flesta daga hafi

heyrst í prjónavélinni hennar, sem

í minningunni hljómar sem þægileg-

ur niður. Nokkrar flíkur man ég

eftir að hafa fengið, sem hún prjón-

aði og þótti okkur krökkunum og

unglingunum mikið til þeirra koma.

Ég man vel eftir rauðu dressi sem

hún prjónaði á mig eftir máli, útvíð-

ar buxur og sítt vesti, ekki ósvipað

og unglingar ganga í í dag. Hún

Ragna vann verk sín hljóðlega og

held ég að fáir hafi staðið framar

henni í prjonaskap á þeim tíma,

enda hafði hún nóg að gera og átti

ánægða viðskiptavini. Hún vildi öll-

um gera til hæfis og átti auðvelt

með það. Við hittumst síðast þegar

yngsti dóttursonur hennar var að

láta skíra sitt fyrsta barn.

Ekki grunaði mig þá að ég myndi

ekki sjá hana aftur á lífi. Þó að

vissulega hafi hún verið heilsulítil

lengi, þá bar hún það ekki utan á

sér að svo væri, hún var glöð og

hress í tali og gladdist með unga

fólkinu og öðrum nærstöddum. Eg

sendi börnum hennar, barnabörn-

um, barnabarnabörnum og öðrum

aðstandendum innilegar samúðar-

kveðjur. Ljúf minning um góða

konu lifir um ókomin ár.

Móðir okkar,

MAGNFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,

Árbakka,

lést á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, þriðjudaginn 5. apríl.

Börnin.

t

Eiginmaður minn,

JÓHANNJÓNSSON,

SunnUbraúfS,

Garði,

lést á heimili sínu 1. apríl.

Anna Birna Björnsdóttir.

t

Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,

GUÐRÚN DAÐADÓTTIR,

andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 1. apríl 1994.

Jónína Pétursdóttir,

Björn Pétursson,        Elísabet Sigurðardóttir,

Valdimar Pétursson, Ásdís Kristjánsdóttir.

t

Eiginkona mfn og móðir okkar,

ÁSTRÚN JÓNSDÓTTIR

(RÚNA),

lést að kvöldi föstudagsins langa í sjúkrahúsi í Danmörku.

Útförin mun fara fram á íslandi og verður auglýst sfðar.

Haukur Dór Sturluson,

Tinna Hauksdóttir, Tanja Hauksdóttir.

t

Ástkær eiginmaður minn,

GUÐMANN HÖGNASON,

Skerseyrarvegi 7,

Hafnarfiröi,

lést á Sólvangi 30. mars. Jarðarförin auglýst síðar.

Fyrir hönd aðstandenda,

Jenný Sigmundsdóttir.

t

Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,

UNNUR BJÖRNSDÓTTIR,

andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, þann 30. mars síðastliðinn.

Jarðarförin auglýst síðar.

Jón Leósson,           lðunn Elíasdóttir,

Leó Jónsson,           Ragna Haraldsdóttir,

Hrönn Jónsdóttir,  GuSjón Þórðarson,

Viktor Jónsson,       Ingibjörg Grétarsdóttir

og barnabarnabörn.

t     I Elskuleg móðir mín,		

PETRÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR	w ¦* &*w	

frá Boiungavík,		

andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, þann	¦   iiTIi'  -        í:	

5. apríl.	Hls.     """ ¦ÆBKk	

	é3k:*1  *	

	H   PÍVv^i	

Kristinn G. Árnason.		

1

Stella.

t

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,

ÞORLEIFUR JÓNASSON

skipstjóri

frá Dagsbrún, Neskaupstað,

Naustahlein 19,

Garðabœ,

lést 1. apríl.

Sigurfinna Eirfksdóttir,

Guðmundur Þorleifsson,   Berta Kjartansdóttir,

Sigurbjörg Þorleifsdóttir, Ólafur Gíslason,

Eirikur Þorleifsson,             Þóra Erlendsdóttir,

Jónas Þorleif sson,               Gina Cuizon,

Herbert Þorleifsson,

barnabörn og barnabarnabörn.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68