ADtþitt undireinuþaki SJOVi ALMENNAR ^t0nnidfi^ib RÉTTA KORTIÐ fyrirþig! MORGVNHLAVID, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK Stm 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Verkfall meinatækna Samning- ar eru ekki í sjónmáli EKKERT þokaðist í samkomu- lagsátt í deilu meinatækna og við- semjenda þeirra í gær. Verkfall meinatækna hófst á miðnætti í fyrrakvöld. Samningafundur hef- ur verið boðaður að nýju á morg- un, fimmtudag, en formaður Meinatæknafélags Islands, Edda Sóley Óskarsdóttir, kveðst vera fremur svartsýn á að lausn finnist fljótlega. Meinatæknar héldu uppi neyðarþjónustu á sjúkrahúsum í gær, en þó dregur mjög úr starf- semi og er þeim aðgerðum t.d. frestað sem þola bið. Edda Sóley sagði að á fundinum í gær hefðu meinatæknar ekkert til- boð fengið, en hingað til hefði samn- inganefnd ríkisins aðeins boðið 1-2 launaflokka hækkun. Kröfur meina- tækna beinast m.a. að endurröðun á starfsheitum og að opnaðir verði möguleikar á flutningi milli launa- flokka. Við skorumst að sjálfsögðu ekki undan því að halda uppi lögboð- j.inni neyðarþjónustu, en í gær var starfsemi á rannsóknarstofum að- eins um 10% af því sem venjulega gerist," sagði Edda Sóley Óskars- dóttir. Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að sjúkra- húsin sinntu bráðatilvikum, en bið- listasjúklingar yrðu að bíða áfram. Það má hins vegar ekki dragast lengi að ljúka samningum," sagði hann. Kristján Knútur Jónasson Lést í snjó- flóðinu í gær MAÐURINN sem lést af áverkum þeim sem hann hlaut í snjóflóðinu á ísafirði í gærmorgun hét Krist- ján Knútur Jónasson. Hann var á 60. aldursári. Kristján fæddist 19. nóvember 1934 og starfaði sem framkvæmda- stjóri Djúpbátsins hf. sem rekur ferj- una Fagranes. Kristján átti lengi sæti í bæjarstjórn ísafjarðarkaup- staðar og var forseti hennar frá 1982-1990. Hann lék knattspyrnu á yngri árum, tók ríkan þátt í félags- málum knattspyrnumanna á ísafirði og hefur undanfarna tæpa tvo ára- tugi átt sæti í stjórn Knattspyrnu- sambands íslands. Eftiriifandi eigin- kona Kristjáns, Hansína Einarsdótt- 'ir, er úr lífshættu og líður eftir atvik- um vel. Uppkomin börn þeirra eru fimm talsins. Brak á árbakkanum Morgunblaðið/RAX SNJÓFLÓÐIÐ hreif með sér sumarbústaði og flest lauslegt í Tungu- dal og flutti allt niður að Tunguá og yfir á hinn bakka hennar. Rúst- ir einar mættu vegfarendum sem skoðuðu verksummerki hamfaranna í gær. Veðurútlit á hættusvæðum á Vestfjörðum skárra en á horfðist í fyrstu Snjóflóðahætta minni ALMANNAVARNANEFNDIR á Vestfjörðum lýstu yfir hættuástandi í gær og í nótt vegna mikils fannfergis og óhagstæðs veðurútlits, en spáð var þungri og blautri ofankomu ásamt afar hvassri norðanátt sem yki margfalt hættu á frekari snjóflóðum á þessum slóðum. Seint í gærkvöldi voru þó veðurspár hagstæðari en áður fyrir Vestfirði og svæðið allt að Eyjafirði, sem dró úr líkum á frekari snjóflóðum. Spá sem Morgunblaðið fékk frá Veðurstofu íslands seint í gærkvöldi gerði ráð fyrir norðan- og norðvest- anátt með allhvössum vindi, eða 7-8 vindstigum, snjókomu og allt að þriggja gráðu frosti í nótt. Um há- degi í dag er reiknað með að vindur stillist veruiega og snúist til norð- austanáttar, og él leysi snjókomu af hólmi. Fólk rýmir hús sín Auk snjóskriðunnar á ísafirði féllu ýmsar smáskriður á Vestfjörðum í gær, meðal annars á leiðinni til Flat- eyrar og ofan við snjóflóðavarnir bæjarins, án þess að tjón hlytist af. Engin umferð var um veginn til Flat- eyrar í gær. Um 200 íbúar á hættu- svæðum í Bolungarvík, á Flateyri og í Hnífsdal voru beðnir að rýma húsnæði sitt í gær vegna hugsan- legra snjóflóða. Þrjár götur í Hnífs- dal, 40 hús í Bolungarvík og 10 á Flateyri voru tæmd. Björgunarsveit- ir fylgdust með ástandinu í Bolung- arvík í nótt og var mál manna að snjómagn í fjallinu Traðarhyrnu við bæinn hefði. sjaldan eða aldrei verið meira. Almannavarnanefnd Siglufjarðar hefur verið í viðbragðsstöðu seinustu tvo sólarhringa vegna snjóflóða- hættu, en smáar skriður féllu í fyrra- dag á veginn á ströndinni, Siglu- fjarðarmegin við Strákagöng. Laust eftir miðnætti var tekið að hvessa og snjóa á Siglufirði. Snjóflóð féll einnig rétt fyrir innan Héraðsskól- ann á Núpi í Dýrafirði á mánudag og fór afar nærri innstu húsum á Núpi. Almannavarnir ríkisins stóðu vakt í alla nótt vegna hugsanlegra náttúruhamfara. Sjá fréttir bls. 24. Björgnnarmenn um páskahretið sem hrelldi útivistarmenn víðs vegar um land Mesta mildi að ekki skyldu fleiri komast í sjálfheldu LÆGÐ sem fór með suðurströnd landsins á páskadag skaut mörgum útivistarmanninum skelk í bringu og segir Björgvin Richardsson, skóla- stjóri Björgunarskóla Landsbjargar, að sé tekið tillit til þess hversu slæmt veðrið var og hversu víða og oft það skall á megi segja að ferðalangar hafí sloppið ótrúlega vel. Hálfdán Henrysson deildar- stjóri hjá Slysavarnafélagi íslands segir mikið lán að ekki skyldi hyót- ast verra af. Segir hann það einnig valda áhyggjum hversu mikið fólki á vélsleðum hafi fjölgað utan alfaraleiða að undanförnu, fólk sé að ferðast við skilyrði sem ekki séu æskileg. Björgvin segir að sér sé kunnugt um menn sem lentu í vandræðum í Tindfjöllum, þar hafi stúlku meðal annars kalið á fótum. Einnig hafi Ferðafélagið og hópur úr ýmsum björgunarsveitum lent í vandræðum við að komast til byggða úr Þórs- mörk. Ég er hissa á að ekki skyldu verða fleiri útköll því samkvæmt mínum upplýsingum voru það ekki illa búnir útlendingar heldur björg- unarsveitamenn og vel búnir ferða- langar sem lentu í hrakningum vegna veðurs," segir Björgvin. Auk þessa urðu hjón með barn viðskila við vélsleðahóp við Síðujökul á páskadag, þrjár útlendar stúlkur gengu í hringi skammt frá Eldborg, þýsk stúlka villtist í Eldhrauni og fjórir menn þurftu aðstoð við að komast af Fimmvörðuhálsi, en snjór- inn við skálann náði sums staðar upp undir hendur, að sögn Baldurs Ólafssonar formanns Dagrenningar, sem kom þeim til bjargar. Björgvin Richardsson segir að fjöldi reyndra fjallgöngumanna aust- ur í Skaftafelli hafi orðið að hörfa undan veðri á laugardeginum, jafn- yel þurft að skilja eftir búnað. Þetta sýnir best hversu válynd veður eru hér og hversu mikil hætta er í raun á ferðum," segir Björgvin. Pálmi Harðarson varaformaður Kyndils á Kirkjubæjarklaustri, sem kom þýsku stúlkunni í Eldhrauni til bjargar, segir að veðrið á laugardag hafi komið reyndustu útivistarmönn- um í opna skjöldu. Skömmu síðar var hann kallaður til aðstoðar vél- sleðafólkinu við Síðujökul og segir hann að mörgum hafi verið orðið kalt. Það er kraftaverki líkast að fólkið sem varð viðskila við Síðujök- ul skyldi ná saman í þessu veðri," segir hann. Baldur Ólafsson formaður Dag- renningar segir ennfremur: Við slíkar aðstæður sýnist allt vera slétt og fólk gerir sér enga grein fyrir hvar það er, getur þess vegna verið á leið fram af snjóhengju. Aðstæður eru heldur aldrei eins. Þeir sem mest eru á ferðinni hér um slóðir segja að snjóalög séu allt öðruvísi í ár en verið hefur. Reyndustu menn eiga jafnvel í erfiðleikum," segir Baldur. Sjá fréttir bls. 66 og 67.