Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994 Rússar bera til baka fregnir um sölu á þorskkvóta SAMKVÆMT fréttum í norskum fjölmiðlum eru Rússar nú að íhuga sölu á allt að 25.000 tonna þorskkvóta í Barentshafi. Þessar fréttir hafa ekki fengizt staðfestar, en skýringin á þeim er sú, að Rússa skorti gjaldeyri og því komi til greina að fara þessa leið. Jafnframt segja óstaðfestar fréttir að komi til sölu kvóta úr Barentshafi, verði hann ekki seldur íslendingum vegna veiða þeirra í Smugunni. Gunnar Gunnarsson, sendiherra hinna síðamefndu. í Okhotskhafi íslands í Moskvu, segir í samtali við Morgunblaðið að hann hafi á fundi með Korijelsky, formanni sjávarút- vegsráðs Rússlands, fengið þau svör, að ekki stæði til að selja þorskkvóta í Barentshafi. Aðrar staðfestar upp- lýsingar um þetta mál hafi hann ekki. Nýlega sömdu Rússar við Suður- Kóreu um sölu á ufsakvóta, 32.000 til 55.000 tonnurr\, í Okhotskhafi til er smuga, sem kölluð hefur verið Hnetuholan og þar hafa Suður- Kóreumenn verið að taka allt að 150.000 tonnum af ufsa árlega í trássi við Rússa. Rússum hefur nú tekizt að mestu leyti að koma í veg fyrir óheftar veiðar á þessu svæði svo og í annarri „smugu“ í Berings- hafi, en þar eiga þeir hlut að máli ásamt Bandaríkjamönnum. íslenskir tómatar og paprikur á markað VEL lítur út með tómatuppskeru í ár. Fyrstu tómatarnir koma í versl- anir í dag og búist er við að fljótlega komi umtalsvert magn á markað- inn. Fyrsta uppskera ársins af íslenskum paprikum kemur einnig i verslanir i dag. Kolbeinn Ágústsson, sölustjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna, segir að bjart hefði verið að undanfömu svo útlit væri fyrir góða tómatuppskeru á næstunni og því væri von til þess að fljótlega kæmu nægir tómatar. Fyrstu tómatamir eru frá Guðjóni Birgissyni á Melum á Flúðum og koma þeir í verslanir í dag. Fyrstu tómatamir vom á svipuðum tíma síð- asta vor. Kílóið af tómötum verður selt á 735 krónur í Hagkaupum og grænar og rauðar paprikur á 699 krónur kílóið. Mjólk barst til Egilsstaða frá Húsavík í gærdag Morgunblaðið/Benedikt Sigurðsson Þórhallur Jóhannsson hafði ekki áhyggjur af deilunni í gær, enda fékkst þá mjólk í kaupfélaginu. Deilt er um orðalae- Eerilsstaðir. ^ ■■ J Egilsstaðir. SAMNINGAVIÐRÆÐUM mjólkurfræðinga og viðsemjenda þeirra var frestað á Egilsstöðum í gærkvöldi. Lítið vantar upp á að sögn samningsaðila og stendur deilan um orðalag en ekki endanlega niðurstöðu. Mjólk barst til Egilsstaða frá Húsavík eftir hádegi í gær. Ekki var reynt að hindra afhendingu inn í búðina. Að sögn talsmanns mjólkurfræðinga stóð ekki til af þeirra hálfu að standa í stimping- um vegna afgreiðslu mjólkurinnar, en það mætti öllum vera það ljóst að þetta tiltæki væri til þess eins fallið að hleypa illu blóði í deiluna. Hér væri þó um einstakan atburð að ræða, sem ekki verður framhald á. Að sögn talsmanns Kaupfélags- ins á Egilsstöðum verður ekki meiri mjólk að fá frá Húsavík, en leitað yrði eftir mjólk frá öðrum stöðum og til stendur að flytja meiri mjólk til Egilsstaða á næstu dögum, ef deilan leysist ekki. Samningar í sjónmáli í gærkvöldi lá fyrir að samning- ar munu væntanlega takast í dag. Eingöngu var deilt um orðalag, en ekki efni. Mjólkurfræðingurinn sem deilan spratt af verður endur- ráðinn fram á haustið og verður ráðning hans þá að öllum líkindum framlengd, þar sem til stendur að fara út í framleiðslunýjungar. Að sögn talsmanns Kaupfélags Hér- aðsbúa eru mál starfsmannsins þar með leyst. Uppsögnin er þó ekki dregin til baka á þeim forsendum sem Félag mjólkurfræðinga krafð- ist, heldur er um tilfærslu að ræða. Að sögn talsmanns mjólkurfræð- inga er það ekki sjálfgefið að deil- an leysist á morgun, en það er þó allt eins líklegt. Að hans sögn verð- ur varla sæst á neitt annað en að uppsögnin verði dregin til baka, þrátt fyrir að fyrir liggi samkomu- lag um endurráðningu mjólkur- fræðingsins. - Ben.S Klukkurn- ar hættar ^ að hringja Avöxtun 6 og 12 manaða KIRKJUKLUKKUR Kristskirkju hættu að hringja í gær eftir að sljórnbúnaður þeirra hafði verið tekinn úr sambandi og gangsettur að nýju. Engar skýringar hafa komið fram um hvers vegna hringingar hófust daginn sem AI- freð Jolson, biskup kaþólsku kirkj- unnar hérlendis, var jarðsettur. „Við höldum helst að um bilun hafí verið að ræða sem lagfærðist þegar búnaðinum var kippt úr sam- bandi," sagði Jakob Roland, prestur í Landakoti. i*íkisvíxla lækkar um 0,4% ÁVÖXTUN ríkisvíxla lækkaði enn frekar í útboði Lánasýslu ríkisins í gær, eða um allt að 0,42%. AIls bárust 35 gild tilboð að fjárhæð 3.440 miHjónir króna og var samþykkt að taka tilboðum frá 23 aðil- um að fjárhæð 1.998 mil(jónir. Seðlabankinn tók ekki þátt í útboðinu að þessu sinni og er þetta í fyrsta sinn sem bankinn sendir ekki inn tilboð frá því útboð ríkisvíxla hófust. í dag Breytingar vegna EES Einkaréttur á brunatryggingum afnuminn 22 Bjartsýni á Siglufiröi Siglfirðingum fjölgar, meðal- tekjur hækka og atvinnuleysi minnkar 36 Andófsleiðtogi handtekinn Einn þekktasti andófsmaður í Kfna handtekinn að nýju 30 Leiðari Hagstæður vöruskiptajöfnuður 32 JHoripraHafcib viÐsram JflVINNUIÍF ► Samdráttur í íslandslánum NIB - Tap þjá ístex - Gæða- átak hugbúnaðarhúsa - Út- þensla KS - Hlutabréfamark- aður í mótun jEfibröan&IaþiÖ ► Audrey Hepburn - Harri- son Ford - Eftirsótt frétta- kona - Leikstjóri kvikmyndar- innar Píanó - Kynlíf og of- beldi helsta fréttaefnið í Miami Pétur Kristinsson hjá Lánasýslu ríkisins sagði í samtali við Morgun- blaðið að þátttakan í útboðinu hefði verið mjög góð en ríkissjóður hefði hins vegar ekki þurft á að halda nema rúmlega 1.800 milljónum. „Þetta eru allt samkeppnistilboð og endurspegla mjög góða lausafjár- stöðu á markaðnum. Jafnframt þessu var sú vaxtalækkun sem átti sér stað með útboðinu 16. mars á 3ja mánaða víxlum staðfest enn- frekar auk þess sem lækkun á vöxt- um 6 og 12 mánaða víxla hefur einnig náð fram að ganga," sagði Pétur. Meðalávöxtun samþykktra til- boða í ríkisvíxla til 3ja mánaða var 4,41%, til 6 mánaða 4,81% og til 12 mánaða 5,25%. Nemur iækkunin frá síðasta útboði 0,42% á 6 mán- aða víxlum, 0,4% á 12 mánaða víxl- um og 0,03% á 3ja mánaða víxlum. Húsnæðisbréf fyrir 13 milljónir Fyrsta útboð á bréfum úr 1. flokki húsnæðisbréfa 1994 fór fram sl. þriðjudag og var það með breyttu fyrirkomulagi að því leyti að aðeins aðilum frá Verðbréfaþingi íslands var heimilt að gera tilboð. Þannig þurftu lífeyrissjóðir og aðrir fjár- festar að leggja fram tilboð fyrir tilstuðlan verðbréfafyrirtækja og annarra aðila að þinginu. Alls bárust 17 tilboð frá 5 aðilum í bréf að nafnvirði 240 milljónir króna. Hæsta ávöxtunarkrafa var 6,10% en sú lægsta 5,00% en meðal- ávöxtun reyndist vera 5,34%. Sam- þykkt var að taka tilboðum með lokaávöxtun 5,00% og var aðeins tekið tveimur tilboðum í bréf að nafnvirði 13 milljónir króna (u.þ.b. 12,5 milljónir króna að söluverði). Næsta útboð hefur verið ákveðið 19. apríl nk. Ljósmynd/Einar H. Valsson Ægir streitist með stórskipið VARÐSKIPIÐ Ægir er nú á leið til Reykjavíkur með leiguskip Eimskips, Europe Feeder, í togi. Vél skipsins bilaði um 700 sjómflur suðvestur af landinu og tók Ægir það í tog á miðvikudag í síðustu viku. Ferðin til Reykjavíkur sækist heldur seint, enda hefur slæmt veður sett strik í reikn- inginn. í gæsluflugi TF-SÝNAR í gær var þessi mynd tekin af skipunum, en þau voru þá stödd um 180 sjómflur suðvestur af Reykjanesi. Búist er við að þau nái höfn á föstudag. Hámarkslengd á aðsendum greimim Morgunblaðið hefur á undan- förnum misserum ítrekað óskað eftir því við greinahöfunda að þeir stytti mál sitt og haldi lengd greina sem þeir óska eftir birtingu á í blaðinu innan hæfílegra marka. Jafnframt hefur blaðið boðizt til þess að sjá um styttingu greina. Þessi tilmæli hafa fengið misjafn- ar undirtektir og hefur reynzt afar erfítt að halda lengd greina innan skynsamlegra marka. Þó er augljóst að liklegra er að ná til stærri hóps lesenda með stutt- um greinum en löng^um. Afleiðingin er sú að aðsendar greinar bíða alltof lengi birtingar hér í blaðinu og getur biðtími jafn- vel verið 4-6 vikur. Þetta er auð- vitað óviðunandi þjónusta við greinahöfunda og raunar lesendur einnig. Þar sem ítrekuð og vinsamleg tilmæli hafa ekki borið viðunandi árangur eiga ritstjórar Morgun- blaðsins ekki annan kost en að ákveða hámarkslengd greina. Frá og með nk. mánudegi, 11. apríl, mun Morgunblaðið ekki taka til birtingar í þeim dálkum aðalblaðs, sem ætlaðir eru undir aðsendar greinar lengri greinar en nemur 8.000 slögum á tölvu eða um hálfri síðu. Hámarkslengd á bréf- um til blaðsins er 2.500-3.000 slög. Æskilegt er að aðsendar greinar séu styttri og að þeim sé skilað á disklingi. í ákveðnum tilvikum geta verið rök fyrir því að birta lengri grein- ar. Þær Verða þá birtar á öðrum vettvangi. Miklar kröfur verða gerðar um efni og gæði slíkra greina. Biðtími vegna birtingar verður óhjákvæmilega lengri. Næstu tvær til þrjár vikur má búast við birtingu lengri greina vegna þess fjölda óbirtra greina sem bíður á ritstjóm blaðsins. Morgunblaðið væntir þess að viðskiptavinir ritstjórnar sýni þessum ákvörðunum um lengdar- mörk skilning. Ritstj.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.