Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 1
72 SIÐUR LESBOK/C 79. tbl. 82. árg. LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Afsögn Hosokawa Hata lík- legur eft- irmaður Tókýó. Reuter. LEIÐTOGAR flokkanna, sem standa saman að stjórn í Japan, fullyrtu í gær, að samstarf þeirra myndi halda áfram þrátt fyrir afsögn Morihiros Hosokawa for- sætisráðherra. Kom hún á óvart en með henni kvaðst hann vilja axla ábyrgð á því að hafa ekki getað eytt öllum efasemdum um fjármál sín og viðskipti fyrir Leiðtogar samsteypu- stjórnarinnar, sem nokkrir flokkar hægri- manna, sósíai- ista og búddista standa að, lögðu á það mikla áherslu í gær, að engin hætta væri á stjórnarslitum í kjölfar af- sagnarinnar og skutu strax á fundi til að ræða um eftirmann. Tveir menn eru sagðir líklegastir til að taka við forystunni, Tsutomu Hata utanríkisráðherra og Masay- oshi Takemura, sem fer með starfs- mannamál. Er Hata þó talinn sigur- stranglegri og sumir fréttaskýrend- ur i Japan segja, að verði hann ekki fyrir valinu, muni stuðnings- menn hans slíta stjórninni og ganga til samstarfs við Fijálslynda demó- kratafiokkinn, sem fór áður með öll völd í Japan um áratugaskeið. Sjá frétt á bls. 26. nokkrum árum. Hosokawa Reuter Hátíðarmessa í Sixtusarkapellunni JÓHANNES Páll II. páfi hélt sérstaka hátíðarmessu í gær í Sixt- usarkapellunni í Róm í tilefni þess að viðgerðum er lokið á kapell- unni. Hreinsun og viðgerð á freskum Michelangelos hefur verið afar umdeild, þar sem margir telja litina í þeim nú vera qf skæra og kenna um starfi íorvarða sem unnu að viðgerðinni. Aðstoðarutanríkisráðherra Rússa Skuldbundnir til að verja N-Kóreu Nýju Delhí. Reuter. ALEXANDER Panov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, sagði í gær að Rússar væru skuldbundnir til að standa við samn- inga við Norður-Kóreumenn um að koma þeim til hjálpar ef ráðist yrði á þá vegna deilunnar að framleiða kjarnavopn. „Við höfum tilkynnt Norður- Kóreumönnum, svo og Suður- Kóreumönnum og Bandaríkja- stjórn, að Rússland, sem lögmætur arftaki Sovétríkjanna, muni standa við samninga sem eru enn í gildi,“ sagði Panov, sem er fyrrverandi sendiherra í Suður-Kóreu. „Það er eðlilegt að ætla að mikil óvissa skapist ef við segjum á morgun að við ætlum ekki að standa við skuldbindingar okkar frá sovét- tímanum . .. Rússar kæmu Norð- ur-Kóreumönnum til hjálpar ef á þá yrði ráðist af tilefnislausu. Þetta er okkar eigin ákvörðun og hún verður tekin samkvæmt lögum okkar og stjórnarskrá." Vilja ráðstefnu Panov lagði til að efnt yrði til ráðstefnu sex ríkja og fulltrúa Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða- kjarnorkumálastofnunarinnar um hvernig leysa mætti deiluna um meintar kjarnavopnatilraunir Norður-Kóreumanna. Hann sagði að tvíhliða sáttaumleitanir Suður- Kóreumanna og kjarnorkumála- stofnunarinnar hefðu aðeins aukið á spennuna á Kóreuskaga. meintar tilraunir þeirra til Tölvuleit að sprengjum London. Reuter. VERIÐ er að setja upp sjálf- virkan sprengjuleitarbúnað á breskum millilandaflug- völlum og er búnaðurinn sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum. Sprengjutilræði gegn bandarískri breiðþotu í desember 1988 yfir Loc- kerbie í Skotlandi varð til þess að búnaðurinn var smíð- aður. Sprengjuleitarbúnaðurinn byggir á tölvustýrðum gegnumlýsingartækjum sem greina sjálf innihald farangurs. Þyki tölvunum eitthvað grun- samlegt á seiði senda þær tösk- urnar til annarra stöðva í far- angursdeildinni þar sem við taka tæki sem skynja gufur frá sprengiefni. Nýja sprengjuleit- artækið getur skoðað 20 tösk- ur á mínútu og á ekki að tefja innritun farþega, að sögn breskra flugvallaiyfiivalda. Reuter Harðar árásir Serba íBosníu YFIRMAÐUR friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Bosníu, Bretinn Michael Rose hershöfðingi, heldur í húfuna á flugvellinum í Sarajevo í gær. Rose sagði fréttamönnum að samkvæmt frásögnum sendimanna sinna í borginni Gorazde hefði umsátursliði Bosníu-Serba ekki tekist að leggja undir sig verulegan hluta borgarinnar, eins og áður var talið, en Serbar hafa haldið uppi hörðum stórskotaliðsárásum á hana undan- farna daga. Sólarhringslangt vopnahlé Serba og múslima í Bosníu, sem gert var á fimmtudag, kom aldrei til framkvæmda, að sögn talsmanna SÞ. Skálmöld vegna ættbálkaátaka í höfuðborg Rúanda Nunmir og prestar meðal fórnarlamba Belgar og Frakkar íhuga brottflutning útlendinga Róm, Kigali, Brussel. Reuter. 19 NUNNUR og prestar kaþólsku kirkjunnar, öll Tútsar, hafa ver- ið myrt í Kigali, höfuðborg Rúanda, og blóðug átök milli stríðandi ættbálka héldu þar áfram í gær í kjölfar þess að forseti landsins og forsætisráðherra voru drepnir. Tíu belgískir friðargæsluliðar biðu einnig bana þegar þeir reyndu að veija forsætisráðherrann. Belgísk og frönsk stjórnvöld bjuggu sig undir að senda hermenn til landsins til að flytja útlendinga þaðan. 11 nunnur, fimm prestar og þrír munkar voru myrt í Kigali en tilræðismennirnir þyrmdu lífi þriggja belgískra munka af jesúíta- reglunni, sem urðu vitni að fjölda- morðinu. Talið er að tilræðismenn- irnir hafi myrt Tútsana til að hefna drápsins á Juvenal Habyarimana forseta á miðvikudag. Habyarim- ana var af ættbálki Hútúa, sem er sá langfjölmennasti í landinu þótt hann hafi verið undirokaður af Tútsum öldum saman. Franska stjórnin íhugar nú að senda hermenn frá herstöðvum í Mið-Afríkulýðveldinu til að flytja 600 Frakka á brott frá Rúanda. Stjórn Belgíu efndi einnig til neyð- arfundar til að ræða hvort senda ætti hermenn til að flytja þaðan 1.500 Belga og ef til vill fleiri út- lendinga. Bandaríkjastjórn hyggst senda flugvélar eftir rúmlega 250 bandrískum borgurum í Rúanda. Dráp og gripdeildir „Það eru stöðugir bardagar þarna, dráp og gripdeildir,“ sagði belgíski útvarpsmaðurinn Katrien Van der Schoot, sem talaði frá Kigali. „Algjör skálmöld ríkir í borginni", sagði hann. „Skipulögð fjöldamorð og þjóð- ernislegar hreinsanir eiga sér nú stað í Kigali,“ sagði fulltrúi Flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna í borginni. Embættismaður Rauða krossins kvaðst óttast að þúsundir manna hefðu fallið í Kig- ali síðustu tvo daga. Talið er að um 600 uppreisnar- menn beijist gegn stjórnarhernum í Kigali. Starfsmaður Sameinuðu þjóðanna í höfuðborginni sagði að 3.000 uppreisnarmenn til viðbótar væru á leiðinni þangað og leiðtogi uppreisnarmannanna sagði að þeir yrðu að ráðast inn í borgina til að koma þar á lögum og reglu. Uppreisnarmennirnir voru í grennd við þinghúsið í Kigali og börðust þar við lífvarðasveit forset- ans. Eldar geisuðu í byggingum í grenndinni. Sjá „Blóðugar ætthálkaerj- ur ...“ á bls. 27.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.