Morgunblaðið - 10.04.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.04.1994, Blaðsíða 6
MORGUNBLADlf) SUNbJÍJDAGUR 10. APR{L 1994 6 B FERÐALÖG ÍTÍMA OGRÍMI eftir Sigrúnu Davíðsdóttur VIÐTAL um ferðalög aftur á bak í tímann lítur kannski út fyrir að vera við vísindaskáldsagnahöfund. En rússneski stjarneðlisfræðingurinn Igor Novikov hefur ekkert á móti því að ræða þann möguleika „og mér er full alvara", segir hann. „Ég er ekki í neinum vafa um að það verður á endan- um hægt að ferðast aftur í tímann." Og þegar þessi lág- vaxni, kviki maður segir þetta eins og ekkert sé sjálfsagð- ara, er heldur ekkert erfitt að trúa honum, líka af því að hann er ekki alveg hver sem er. Novikov er í fremstu röð vísindamanna á sínu sviði. Hann var nýlega í heimsókn á ís- landir, meðal annars til að taka upp samvinnu við íslenska starfsbræður. Novikov hefur búið í tæp tvö ár í Kaupmanna- höfn, sem hann valdi, þó honum stæði einnig til boða staða í Cambrigde og á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum. Nú er hann prófessor við sljörnurannsóknarstöðina við Kaupmanna- hafnarháskóla, yfirmaður nýstofnaðrar miðstöðvar í kenni- legri stjarneðlisfræði og prófessor^við NORDITA, sem er norræn stofnun fyrir kennilega eðlisfræði, til húsa í sama húsi og önnur þekkt eðlisfræðistofnun, nefnilega Niels Bohr- stofnunin. Tveir íslendingar stunda nám undir handleiðslu hans, þeir Örnólfur Rögnvaldsson og Kári Indriðason. Um Rússa er löngum sagt að þeir vilji hvergi vera annars staðar en heima, svo áður en No- vikov er spurður um rannsóknir sínar og hugmyndir, vaknar sú spurning hvers vegna hann hafi yfirgefið heimahagana og Lebedev-stofnunina, þar sem hann veitti forstöðu deild í kennilegri stjarneðlisfræði. „Ég flutti burt af þeirri einustu ástæðu að mér var ómögulegt að vinna heima fyrir. Á hverjum degi þurfti ég að standa nokkra klukkutíma í biðröð eftir brauði. Það er allt að hrynja til grunna í Rússlandi, hvort sem eru almenningssamgöngur eða eitthvað annað og glæpir aukast hröðum skrefum. Eins og fyrir svo marga vísindamenn, er vinnan fyrir mér það mikilvægasta og mér er víst óhætt að segja að ég sé að 25 klukkutíma á sólarhring. Það er með vísinda- menn eins og listamenn að þeir verða að gefa sig verkefnum sínum full- komlega á vald. Annaðhvort vinnur maður mikið, eða ekki neitt. Eins og aðstæður voru, var orðið ómögu- legt að einbeita sér og óstöðugleik- inn var mér óbærilegur. Atgervisflóttinn er vandamál í Rússlandi og ég geri mér grein fyrir að það kemur sér illa fyrir land mitt, þegar ég og starfsbræður mínir yfir- gefum landið, en með því að vera erlendis er ég í aðstöðu til að útvega rússneskum starfsbræðrum mínum tímarit og tölvur, sem vantar tilfinn- anlega og eins get ég komið þeim í samband við erlenda starfsbræður, útvegað þeim boð til að fara utan og fleira, sem að góðu gagni kemur. Ég átti ekki í neinum erfiðleikum með að gera upp hug minn um að koma hingað, því ég er mjög hrifinn af landi og þjóð. En aðstaðan sem mér bauðst til að koma á fót rann- sóknarmiðstöð fyrir kennilega stjarneðlisfræði skipti mig miklu, því á þann hátt verður hægt að vinna að brýnum verkefnum. Nútíma vandamál í þessum fræðum eru svo flókin að það er ómögulegt að ætla sér að leysa þau upp á eigin spýtur, heldur þarf til þess öflugar tölvur Frá Moskvu til Kaupmanna- hafnar - og aftur á bak í tímánn Rætt vió rússneska stjarneólis- fræóinginn Igor Novikov og töluverðan heilamassa. Með öðr- um orðum þá verða margir að leggja hönd á plóg við sérhvert verkefni. Náin samvinna og samræður eru nauðsynleg örvun. En mér veittist erfitt að fara frá Rússlandi, því hefð- ir okkar, saga og öll framkoma er svo sérstök og erfitt að slíta sig frá heimahögunum. Sambandinu held ég þó, því ég er enn yfirmaður á__j sömu deild Lebedev-stofnunarinnar og áður og vinn með fólki þar, en án launa.“ Stöðugleikinn það eina góða, sem var Skapar það ekki vandamál hversu margir kjósa að flytja í burtu? „Ohjákvæmilega er það til vand- ræða, en reiðileysið í þjóðfélaginu er gífurlegt. Vandamálin eru svo mörg og svo aðkallandi að það gefst enginn tími til að hugsa neitt fram í tímann, sem á endanum er vísasti vegurinn til glötunar. Það er svo auðvelt að eyðileggja og erfitt að byggja upp. Astandið er slæmt, afar slæmt, en samt er ég bjartsýnn. Ég þekki land mitt og þetta er ekki í fyrsta skipti, sem það hefur átt í alvarlegum erfiðleikum. Þó ég fari sjaldan til Moskvu, hef ég fréttir þaðan frá fyrstu hendi, því sonur minn, sem er ungur og snjall vísindamaður, býr þar enn. Ég veit að það er að brjótast í hon- um að fara, en hann situr samt enn sem fastast og þannig eru sem betur fer margir, sem kjósa að þrauka og reyna að halda áfram. Sjálfur hafði ég lengi haft boð um að flytjast í burtu, en það hvarflaði ekki að mér að fara, því ég hafði föst laun og þurfti ekki að kvíða næsta degi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.