Morgunblaðið - 16.04.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.04.1994, Blaðsíða 1
72 SIÐUR LESBOK/C STOFNAÐ 1913 85. tbl. 82. árg. LAUGARDAGUR 16. APRIL 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Nýtt þing Ítalíu Tvísýnt þingfor- setakjör Rómaborg. Reuter. ÞING Ítalíu kom í gær saman í fyrsta sinn frá því bandalag fjöl- miðlajöfursins Silvios Berlusconis bar sigur úr býtum í þingkosning- unum í mars. Enginn frambjóð- andi náði kjöri í tvísýnum kosn- ingum til embættis forseta þing- deildanna tveggja og Berlusconi gaf til kynna að efna þyrfti til nýrra þingkosninga ef frambjóð- endum hægriflokkanna yrði hafn- að. Berlusconi er á meðal 452 þing- manna í neðri deildinni sem aldrei hafa setið á þingi áður, sem er um 70% af deildinni. Frelsisbandalag þriggja hægriflokka, flokks Berlusc- onis, Norðursambandsins og flokks nýfasista, fékk meirihluta í neðri deildinni en ekki í þeirri efri, skorti til þess þijá þingmenn. Búist er við að frambjóðandi Frelsisbandalagsins, Irene Pivetti, sem er í Norðursambandinu, verði kjörinn forseti neðri deildarinnar, þótt hún fengi ekki tilskilinn meiri- hluta í tveimur atkvæðagreiðslum í gær. Meiri óvissa er hins vegar um kjörið í efri deildinni því frambjóð- andi Frelsisbandalagsins, Carlo Scognamiglio, sem er í flokki Berl- usconis, laut tvisvar í lægra haldi fyrir Giovanni Spadolini, fyrrverandi þingforseta. Spadolini fékk 156 at- kvæði og Seognamiglio 154 en kjósa verður aftur þar sem þingforsetinn verður að hafa að minnsta kosti 164 atkvæði á bak við sig. Þriðja umferð- in fer fram í dag og talið er að ann- ar hvor þeirra nái þá kjöri. Oscar Luigi Scalfaro, forseti It- alíu, getur ekki tilnefnt forsætisráð- herra fyrr en þingforsetarnir hafa verið kjörnir þar sem hann verður að hafa samráð við þá. Almennt er talið að Berlusconi verði falið að mynda næstu ríkisstjórn, þá 53. frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Reuter 452 nýir þingmenn á Ítalíu Tútsar drepnir í kirkju Madrid. Reuter. HÚTÚAR vopnaðir sveðjum og byssum drápu meira en þúsund tútsa í kirkju í Rúanda í vik- unni, að sögn spænska dagblaðs- ins E1 País í gær. Blaðamaður E1 País er í landinu og sendi fréttina ásamt myndum af líkunum. Hann sagði að fjölda- morðið hefði verið framið í bæ í grennd við Kigali á miðvikudag. Blaðamaðurinn hafði eftir slóv- enskum presti að hútúarnir hefðu aflimað mörg fórnarlambanna. Þeir hefðu verið vopnaðir sveðjum, bar- eflum, spjótum, handsprengjum og byssum. „Öll . fórnarlömbin voru tútsar," sagði presturinn. Ennfremur var haft eftir króat- ískum presti að 1.180 tútsar hefðu verið drepnir í árásinni. Blaðamað- urinn sagði þó að mörg líkanna væru svo illa leikin að ógjörningur væri að telja þau. Sjá frétt á bls. 26. FJÖLMIÐLAJÖFURINN Silvio Berlusconi (fyrir miðju), sigurvegari þingkosninganna á Italíu í mars, ræðir við flokksbræður sína þegar nýtt þing Italíu var sett í gær. Berlusconi er á meðal 452 þingmanna í neðri deildinni sem aldrei hafa setið á þingi áður. Líklegt er að honum verði falið að mynda nýja stjórn. Hersveitir Serba hefja stórsókn gegn stjórnarher Bosníu Gorazde gæti fallið verði ekkert að gert Saraipvo. T.iinrlnnnm. Nanólí. Renfpr. Sarajevo, Lundúnum, Napólí. Reuter. HERSVEITIR Serba hófu stórsókn gegn stjórnarhernum í múslimaborginni Gorazde í austurhluta Bosníu í gær og tals- menn friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna sögðu að borgin kynni að falla innan skamms ef ekkert yrði að gert. „Serbar eru í útjaðri borgarinn- ar. Astandið er mjög alvarlegt. Hugsanlegt er að Serbar nái borg- inni innan mjög skamms tíma,“ sagði Dacre Holloway undirofursti í friðargæsluliði Sameinuðu þjóð- anna í Sarajevo. „Bosníuher er lamaður á svæðinu.“ „Serbarnir nálgast nú borgina. Þeir hafa sótt fram um nokkra kílómetra úr austri og stjórnarher- inn er' á undanhaldi,“ sagði Rob Annink, aðaltalsmaður friðar- gæsluliðsins. Varnarmálaráðuneytið í Lundúnum skýrði frá því að tveir breskir eftirlitsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna hefðu særst lífshættulega í árás Serba í grennd við Gorazde. Ráðherrar 125 ríkja undirrita GATT-samning í Marrakesh í Marokkó Nýr tími alþjóðlegrar samvinnu Marrakesh. Reuter. GATT-samningurinn um aukið frelsi í heimsviðskiptum var undirritaður af ráðherrum 125 ríkja í Marrakesh í Marokkó í gær. I sameiginlegri yfir- lýsingu heita þeir að berjast gegn verndarstefnu í hvaða mynd sem er og vinna í anda samningsins að „nýjum tíma alþjóðlegrar samvinnu í efna- hagsmálum“. Með samningnum hverfur GATT af vett- vangi og við tekur ný stofnun, Alþjóðavið- skiptastofnunin, WTO (World Trade Órganis- ation). Er stefnt að því, að þjóðþingin af- greiði samninginn á árinu og hann gangi í Reuter PETER Sutherland (t.h.) og Mickey Kant- or, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, fagna undirritun GATT-samningsins í Marokkó í gær. gildi um næstu áramót en í yfirlýsingu Marrakesh-fundarins segir meðal annars: • Farsælar lyktir Úrúgvæ-lotunnar munu styrkja efnahagslífið og leiða til aukinna við- skipta, fjárfestinga, atvinnu og tekna um allan heim. • Ráðherrarnir heita að vinna að aukinni samræmingu hvað varðar stefnuna í viðskipt- um, peninga- og fjármálum og nánu sam- starfi WTO, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans. • Ráðherrarnir fagna framlagi þróunarríkj- anna til samningsins og heita þeim auknum viðskiptum og fjárfestingum. Hagfræðingar telja að GATT-samningur- inn verði til þess að heimsviðskiptin aukist um 200 milljarða dala á ári innan tíu ára. Embættismaður í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins (NATO) á Suður-Ítalíu sagði að frönsk könnunarflugvél hefði orðið fyrir skotum í grennd við Gorazde en flugmönnunum hefði tekist að lenda henni á flugvélamóðurskipi í Adríahafi. Annink sagði að allt yrði gert til að vernda friðargæsluliðana í Gorazde, meðal annars kæmi til greina að fara þess á leit við NATO að hefja loftárásir að nýju á serbneska umsátursliðið. Heim- ildarmaður í höfuðstöðvum friðar- gæsluliðsins í Sarajevo sagði þó að ekki væri ráðgert að fara fram á loftárásir að svo stöddu. Mikill fjöldi Bosníumanna flúði undan serbnesku hersveitunum til Gorazde í gær og margir þeirra voru með eigur sínar í hjólbörum og kerrum. Aætlað hefur verið að um 65.000 manns séu í Gorazde, aðal- lega múslimar. Borgin er mikilvæg fyrir Serba þar sem hún tengir yfirráðasvæði þeirra í austufhluta Bosníu við svæði þeirra í suður- hlutanum. Sókn Serba er mikið áfall fyrir samningamenn Sameinuðu þjóð- anna, Evrópusambandsins, Rúss- lands og Bandaríkjanna sem hafa reynt að koma á friði í Bosníu í tvö ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.