Morgunblaðið - 24.04.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.04.1994, Blaðsíða 1
 / 88 SIÐUR B/C Nixon for- seti látinn New York. Reuter. BILL Clinton Bandaríkja- forseti ákvað í gær að lýsa þjóðarsorg yfir í Banda- ríkjunum vegna fráfalls Richards Nix- ons fyrrum forseta sem lést í fyrrinótt af völdum heilablóðfalls á sjúkrahúsi í Richard Nixon New York. Nixon verður borinn til grafar næst- komandi miðvikudag í grafreit við bókasafn sem nefnt er eftir honum í Yorba Linda í Kaliforníu, fæðingarbæ forsetans. Þar hvílir fyrrum forset- afrú, Patricia Ryan Nixon, sem lést úr lungnakrabba í júní í fyrra. Hundr- uð manna söfnuðust saman við bóka- safnið og við sjúkrahúsið í New York til að votta forsetanum fyrrverandi virðingu sína þegar fregnin um andlát hans barst, Sjá einnig bls. 4. 91. tbl. 82. árg. SUNNUDAGUR 24. APRIL 1994 PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS HORNFIRÐINGAR Morgunblaðið/RAX Bosníu-Serbar láta ekkí segjast Rússar falla frá andstöðu við loftárásir Sar^jevo. Moskvu. Reuter. BOSNÍU-Serbar urðu ekki við úrslitakostum Atlantshafsbandalagsins (NATO) á föstudag um að stöðva árásir á Gorazde því þeir gerðu harða stórskotaliðsárás á borgina í gær. Sömuleiðis virtu þeir ekki vopnahlé sem pólitískir leiðtogar og yfirmenn herja þeirra undirrituðu í Belgrad í fyrradag ásamt Yasushi Akashi fulltrúa Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Bosníu. Á miðnætti rann út frestur sem umsát- urslið Serba fékk til að flytja stórskotavopn sín 20 kílómetra frá borginni. Rússar skiptu enn um skoðun í Bosníu- deilunni og lýstu í gær stuðningi við hótun NATO um loftárásir á sveitir Bosníu-Serba sem sitja um Gorazde í austurhluta lands: ins, að sögn /nter/ax-fréttastofunnar. I fyrradag lögðust þeir gegn aðgerðum og hótuðu að kalla friðargæslusveitir sínar heim frá Bosníu. Andrej Kozyrev utanríkis- ráðherra gagnrýndi hins vegar í gær yfir- menn hersveita Bosníu-Serba harðlega og sagði hótun NATO og hugsanlegar loftárás- ir einu leiðina til að höggva á hnúta í Bosn- íudeilunni, að sögn Interfax. Flugvélar NATO sveimuðu yfir Gorazde í gærmorgun og fylgdust með árásum stór- skotasveita Serba og fótgönguliðs sem stefndi inn til borgarinnar. Borgarstjóri Gorazde, Ismet Briga, sagði í útvarpsávarpi sem heyrðist í Bonn í Þýskalandi, að rúm- lega 300 stórskotasprengjur hefðu fallið á borgina í gærmorgun. Fulltrúar SÞ í borg- inni staðfestu að umsátursliðið hefði ekki staðið við vopnahléð sem átti að skella á klukkan 10 í gærmorgun. Talið er að um 700 manns, aðallega óbreyttir borgarar, hafi týnt lífí í árásunum undanfarnar þrjár vikur. Ræningiim löghlýðni LÖGHLÝÐNIN varð skoska banka- ræningjanum Derek McFadden að falli eftir allt. Hann framdi vopnað rán i smábanka í bænum Giffnock, sem er skammt frá Glasgow, og komst undan með 2.475 punda ránsfeng. Eins og góðum bílstjóra sæmir stansaði hann á rauðu ljósi er hann hraðaði sér burt. Lengra komst hann ekki því þar var hann handtekinn. Karl prins lýs- ir eftír hundi KARL Bretaprins auglýsti í vikunni í blaðinu Aberdeen Press and Journal og bað þegna drottningar að hjálpa sér að hafa uppi á hundi hans Pooh, sem er af völskuhundakyni. Hann hvarf er þeir voru á göngu í nágrenni Balmoral kastalans í Skotlandi um síð- ustu helgi og leit þjónustuliðs hefur engan árangur borið. Ottast er að hundurinn, sem sagður er húsbónda- hollur og hlýðinn, hafi fest sig ofan í kanínuholu. Sólgleraugxi í sortanum ÖRYGGI þykir hafa fleygt fram eftir að 24 lestarstjórar á Piccadilly-línunni í neðanjarðarlestum Lundúna hófu að nota sólgleraugu af bestu gerð fyrir mánuði. Verði öllum lestarstjórum gert að setja upp sólgleraugu þýðir það 150.000 punda, jafnvirði 16 millj- óna króna, útgjöld fyrir lestarfélagið. Algengt hefur verið að lestarstjórar hafa lesið brautarljósin rangt er þeir óku upp úr sortanum út í dagsbirtu en með sólgleraugu á nefinu sögðust allir sjá rauða ljósið miklu betur, 80% sögðu græna (jósið greinilegra og helmingurinn sagðist sjá gulu ljósin betur. Gleraugun eru þeirrar gerðar að þau skerða ekki sjónina í sortanum neðan jarðar og þurfa lestarstjórarnir því aðeins að setja þau upp í vaktar- byijun. Hættum viðað BLOMOG BANKAKORT \ 20 VIDSKIPTI/ATVINNULÍF Á SUNNUDEGI aö koma vor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.