Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 1
88 SIÐURB/C 95. tbl. 82. árg. Rússland Efasemdir um þjóðar- sátt Borís- ar Jeltsíns Moskvu. Reuter. FLESTIR helstu leiðtoga rúss- neskra síjórnmálaflokka, trú- deilda og héraða undirrituðu í gær þjóðarsátt, að frumkvæði Borísar Jeltsíns, Rússlandsfor- seta, í Kreml. Þjóðarsáttin, sem er ekki bindandi, felur í sér að þeir sem hana undirrita, heita því að beita ekki valdi til að ná póli- tísku takmarki sínu. Efast hefur verið um gildi hennar og neituðu kommúnistar, Bændaflokkurinn og umbótasinnarnir í Jabloko að undirrita þjóðarsáttina. Meðal þeirra sem undirrituðu var þjóðernissinninn Vladimír Zhír- ínovskíj. Talsmaður Jeltsíns sagði undirrit- unina einn merkasta atburð í sögu Rússlands, en margir efast um að þjóðarsáttin hafi nokkur áhrif. Framkoma Zhírínovskíjs bætti ekki úr skák en á leið til Kremlar sagði hann fréttamönnum að hann myndi undirrita þjóðarsáttina ef Jeltsín myndi brosa til hans, að öðrum kosti ekki. Þá þótti einkennilegt samsafn fulltrúa félaga við undirritunina draga úr gildi athafnarinnar en meðal þeirrra var t.d. Félag kvenna í rússneska sjóhernum. Gennadíj Zjúgjanov, leiðtogi kommúnista, var viðstaddur athöfnina en undirritaði þjóðarsáttina ekki. Neitar að víkja innanríkisráðherra frá Jeltsín sagði við undirritunina að hún staðfesti að einungis friðsamleg- ar aðferðir yrðu leyfðar í rússnesk- um stjórnmálum. Sagði hann að þessu takmarki yrði þó án efa erfitt að ná. í upphafi undirritunarinnar var þingmannsins Andrejs Ayzderdzis minnst en hann var skotinn fyrir utan heimili sitt fyrr í vikunni. Hef- ur rússneska þingið krafist þess að forsetinn víki innanríkisráðherr- anum frá vegna málsins en hann þvertekur fyrir það. Berlusconi tilnefndur FJÖLMIÐLAJÖFURINN Siívio Berlusconi, leiðtogi „Afram Ítalía“, var í gær tilnefndur forsætisráðherra Ítalíu og hon- um veitt umboð til myndunar ríkisstjórnar, mánuði eftir þing- kosningar í landinu. Berlusconi mun leita til Norðursambands- ins og nýnasista, sem stóðu að Frelsisbandalagi hægrimanna í kosningunum ásamt flokki Ber- lusconis. Miðjuflokkur Marios Segnis, Sáttmáli Ítalíu, klofnaði í gær er fjórir af þrettán þing- mönnum hans sögðu sig úr honum og stofnuðu nýjan flokk. Voru fjórmenningarnir ósáttir við Segni, þar sem hann þvert- ók fyrir stjórnarsamvinnu við Berlusconi. STOFNAÐ 1913 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Reuter Dagsetning ákveðin YASSER Arafat, leiðtogi PLO, Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, Warren Christopher, utanríkisráð- herra Bandarikjanna, og Shimon Peres, utanríkisráðherra Israela, á blaðamannafundi í Kairó er til- kynnt var að Israelar og PLO hygðust undirrita friðarsamning 4. maí nk. A Olympíu- leikarnir ýttu undir þjóðrembu Ósló. Reuter. FJÖLMARGIR Norðmenn eru sannfærðir um að þjóðfélag þeirra nálgist fullkomnun í kjölfar Ólympíuleikanna í Lillehammer í febrúar. Þetta kemur fram í skoðanakönnun háskólans í Þrándheimi. Könnunin var gerð meðal íbúa í Lillehammer. Af þeim sem spurðir voru, töldu 41% að norskt þjóðfélag gæti ekki orðið betra. Fyrir leikana voru 32% þessarar skoðunar. Aðeins 27% töldu það jákvætt að fólk af ólíku þjóðerni giftist og eignaðist börn en 31% vkr þeirrar skoðunar fyrir leikana. „Niðurstöðumar benda til þess að að Norðmenn séu að verða þjóðrembur og að þeir sýni út- lendingum meiri fjandskap en áður,“ sagði Torbjöm Rundmo, við sálfræðideild háskólans. ísrael og PLO stefna að undirrítim samnings 4. maí Kaíró. Reuter. ÍSRAELAR og Frelsishreyfing Palestínumanna (PLO) stefna að undirritun samnings um sjálfstjórn Palestínumanna á hernumdu svæðunum 4. maí næstkomandi. Að sögn Hosni Mubaraks, forseta Egyptalands, munu Yasser Arafat, leiðtogi PLO, og Yitzhak Rab- in, forsætisráðherra ísraels, hittast í Kaíró 3. maí til að ganga frá lausum endum samningsins og verður hann undirritaður á miðviku- dag. Warren Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem staddur er í Kaíró, staðfesti dagsetninguna og kvaðst hafa fallist á að dvelja í borginni fram yfir undirritunina til að aðstoða við samningsgerðina. Þá mæltist Christopher til þess við Andrej Koz- yrev, utanríkisráðherra Rússlands, að hann yrði einnig viðstaddur. Ákörðun um dagsetninguna var tekin á fundi Arafats og Shimonar Peresar, utanríkisráðherra ísraels, í forsetahöllinni í Kaíró, að tillögu Mubaraks. Á blaðamannafundi, að fundi Arafats og Peresar loknum, sagði -Uhristopher að nokkur árangur hefði náðst varðandi þau atriði sem ósamið er um. „Það sem mér þótti ánægjulegast var hversu báð- ir aðilar voru áfram um að kom- ast að niðurstöðu," sagði Christop- her. „Hvað okkur varðar, þá tel ég þetta vera lokaáfangann á langri leið og upphaf nýs kafla í sam- skiptum Palestínumanna og okkar ... enn eitt skrefið í átt að friði í Mið-Austurlöndum,“ sagði Peres. Hann sagði að meginefni fundar Arafats og Rabins yrði að ákvarða stærð Jeríkó-svæðisins og ákveða hvort Palestínumenn fengju rétt á að koma vörðum fyrir við brúna milli Jórdaníu og Vesturbakkans. Þá munu samningamenn ísraela og PLO reyna að komast að sam- komulagi um önnur deiluatriði, svo sem um vegabréf Palestlnumanna. Að sögn ísraela hefur náðst samkomulag um ýmis táknræn atriði sem tengjast sjálfstæði ríkis, s.s. útgáfu frímerkja og eigin landsnúmer þegar hringt er. Reuter Fyrrverandi heimalönd svertingja í S-Afríku Kosningamar fram- lengdar um einn dag Pretoríu. Reut- P<W. DE Klerk, forseti Suður-Afríku, samþykkti í gær að fram- lengja kosningar í nokkrum fyrrverandi heimalöndum svertingja um einn dag en þeim átti að ljúka í gær. Fór forsetinn að tilmælum óháðu kjörstjórnarinnar, sem sagði að á nokkrum svæðum hefði fólk ekki getað kosið, og verður fjórði og síðasti kjördagurinn því i dag. Verst gekk kosningin í KwaZulu- héraði, helsta vígi Zúlú-manna, Transkei, Ciskei, Venda, Lebowa og GaZankulu. Helsta aðfinnsluefn- ið var að víða vantaði kjörgögn. Höfðu Mangosuthu Buthelezi, leið- togi Inkatha-hreyfingar Zúlú- manna, og Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, krafist þess að kosningarnar yrðu framlengdar og hafði framkvæmdaráðið (TEC), sem hefur yfirumsjón með breyting- um á stjórnkerfinu, samþykkt fram- lenginguna. Hún hefur í för með sér að taln- ing atkvæða hefst ekki fyrr en á iaugardagsmorgun, sólarhring síð- ar en áætlað var. Sjá: „Kjördögum fjölgað ...“ á bls. 25.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.