Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994 19 EVRÓPUSÖNGVAKEPPNIN / i Dublin, írlandi, 30. april 1994 ,Æ$/ Land Heiti lags &/°o/<<? wÁ é/ 74 A 4 % p/ /<d 'h/&, W4 W/ ym mé/ yS/m 0/$/$/ WWWW'/ éy/ yi\m 1. Svíþjóð Stjárnorna 2. Finnland Bye Bye Baby 3. írland Rock’n Roll Kids 4. Kýpur I am human too 5. ÍSLAND NÆTUR 6. Bretland We will be free 7. Króatía Nek’ti bude Ijubav sva 8. Portúgal Chamar a Musica 9. Sviss Sto pregando 10. Eistland Nagu Merelaine 11. Rúmenía Dincolo de nori 12. Malta More than love 13. Holtand Waar is de zon 14. Þýskaland Wir geben’ne Party 15. Slóvakía Nekonecna piesen 16. Litháen Sweetheart’s Lullaby 17. Noregur Duett 18. Bosnía-Her. Ostani kraj mene 19. Grikkland To Trehantiri 20. Austurríki Fúr den Frieden der Welt 21. Spánn Ella no es ella 22. Ungverjal. Kinek mondjam el vétkeimet 23. Rússland Eternal Wanderer 24. Pólland To nie ja! 25. Frakkland Je suis un vrai gargon TÖFLU þessa geta sjónvarpsáhorfendur notað til að skrá niður stigagjöf landanna í Söngvakeppninni. Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu verður haldin annað kvöld Islenska lagiö vekur athygli „HÉR ERU allir mjög jákvæðir gagnvart laginu okkar, enda spá enskir og írskir veðbankar okkur góðu gengi, eða 3. sæt- inu. Sú spá hefur í för með sér að fjölmiðlamenn sýna okkur mun meiri athygli en ella og undanfarna daga hef ég verið í viðtölum við írskar, breskar, hollenskar og þýskar útvarpsstöðv- ar, hollenska sjónvarpsstöð og fjölda dagblaða. Norska dagblað- ið fjallaði til dæmis um okkur á heilli síðu í gær,“ sagði Sigríð- ur Beinteinsdóttir, söngkona, þegar Morgunblaðið hafði sam- band við hana í Dyflinni á Irlandi í gær. Söngvakeppni sjónvarps- stöðva í Evrópu verður haldin í Dyflinni annað kvöld, laugardag, og hefst útsending Ríkissjón- varpsins kl. 19. íslenska lagið, Nætur eftir Friðrik Karlsson, er fimmta í röðinni, en alls taka 25 þjóðir þátt að þessu sinni. Sigríður sagði að íslenski hóp- urinn tæki spám um gott gengi með jafnaðargeði. „Ég kippi mér ekki upp við þetta, enda hafa veðbankar nú ekki alltaf verið sannspáir,11 sagði hún. „Auðvitað hef ég samt metnað til að gera vel og vona að það takist. Fyrsta æfingin gekk illa, þar sem hljóð- kerfið virkaði ekki sem skyldi, en næsta æfing, sem var á mið- vikudag, gekk mjög vel, svo ég vona að þetta smelli allt saman á laugardaginn." Handlama söngkona Friðrik Karlsson lagahöfundur bauð blaðamönnum og öðrum gestum til móttöku á skemmti- stað í Dyflinni á miðvikudags- kvöld, „Ég verð nú að viðurkenna að ég er handlama eftir þá mót- töku, því það komu hátt í 800 manns og ég heilsaði öllum með handabandi,“ sagði Sigríður og hló við. „Þetta er að ég held fjöl- mennasta móttaka keppenda hingað til og staðfestir þá at- hygli sem við höfum notið hér.“ Félag íslenskra rannsóknarlögreglumanna Kynna sér mögn- leika á svikum í kortaviðskiptum FÉLAG íslenskra rannsóknarlögreglumanna heldur árlega námstefnu sína á Hótel Örk í Hveragerði á laugardag, 30. apríl. Á námstefnunni verður fjallað um rafræn greiðsluviðskipti. Bjarnþór Aðalsteinsson, formaður félagsins, segir að rannsóknarlögreglumenn ætli að afla sér sem víðtækastrar þekkingar á því hvaða möguleikar eru til svika í viðskiptum með kreditkort og debetkort. Námstefnan byijar þó á óskyldu efni, þegar Björn Halldórsson, lög- reglufulltrúi fíkniefnalögreglunnar, flytur erindi um óhefðbundnar rann- sóknir í fíkniefnamálum. Að erindi hans loknu munu rannsóknarlög- reglumennb einbeita sér að rafræn- um greiðslumátum. Fulltrúar frá Landsbankanum og Visa ísland halda erindi um kredit- og debetkort hér á landi og yfirmaður öiyggis- mála Master Card í Evrópu, Hans Peter Wolfram, ræðir um stöðu þess- ara mála erlendis, sem og aðstoðar- yfirmaður öryggismála hjá Visa Int- ernational, Steve Vahnisberg. Möguleikar á svikum „Rafræn greiðsluviðskipti eru að taka yfír hið hefðbundna greiðslu- form, peninga og ávísanir,“ sagði Bjarnþór Aðalsteinsson í samtali við Morgunblaðið. „Þetta fækkar örugg- lega handtökum hjá okkur vegna ávísanamisferlis, en við viljum kynna okkur hvaða möguleika þetta nýja greiðsluform opnar til svika. Við ætlum að reyna að vera skrefí á undan og vera við öllu búnir ef slík mál koma upp hér og vega og meta hvort þessi greiðslumáti er jafn ör- uggur og nú lítur út fyrir." Bjamþór sagði að hér á landi væri misferli með greiðslukort bundið við þjónfað og misnotkun á koitunum. „Erlendis eru dæmi um mun umfangs- meiri svik, til dæmis þar sem rafrönd á korti er stolið með sérstökum búnaði og búið til nýtt kort. Þessa möguleika alla ætlum við að kynna okkur, svo þeir komi okkur ekki á óvart síðar.“ í Félagi íslenskra rannsóknarlög- reglumanna eru rannsóknarlögreglu- menn af öllu landinu, en þeirra fjöl- mennastir eru starfsmenn Rann- sóknarlögreglu ríkisins. Idr. affoan sting roxettel primal scream | u2 tori amos !2; 1«! ALLIR GCISLflDISKflR Á 1499 I TIU DAGD 28.4. TIL 7.5.1994 in tfie name of the fatfter Breiðdalsvík Framkvæmd- ir við stækk- un liafnarinn- ar að hefjast Breiðdalsvík. FRAMKVÆMDIR við stækkun hafnarinnar á Breiðdalsvík hefj- ast á næstunni. Hreppsnefnd Breiðdalshrepps hefur ákveðið að taka tilboði við að selja niður 50 metra stálþil og kant. Smábátar eru oft í hættu í Breið- dalsvíkurhöfn vegna veðurs og á lenging hafnargarðsins meðal annars að bæta úr því. Kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdirnar í sumar hljóð- aði upp á 35,7 milljónir kr. Alls bár- ust tíu tilboð í verkið og var það lægsta 45,8% af kostnaðaráætlun og það hæsta tæp 3% yfir kostnaðar- áætlun. Hafnamálastofnun lagði til að gengið yrði til samninga við Tré- vang hf. á Reyðarfirði en það fyrir- tæki var með 4. iægsta tilboðið og var það ákveðið. Nam tilboð fyrir- tækisins 22,2 milljónum eða liðlega 62% af kostnaðaráætlun Hafnamála- stofnunar. SH Nýr vörubíll endastakkst MAÐUR slapp ótrúlega lítið meiddur þegar vörubíll sem hann ók endastakkst á Borgarfjarðar- vegi eystri á þriðjudag. Billinn var að koma frá því að ryðja siyó af veginum þegar snjótönnin skall skyndilega niður á veginn. Við það missti ökumaðurinn vald á bílnum, hann rann út í vegkannt, rakst í snjóruðning, fór yfir snjótönnina og hentist um 80 metra. Ökumaðurinn slapp furðu lítið meiddur úr slysinu. Hann var spennt- ur í bílbelti og er talið að því sé að þakka að ekki fór verr. Bílinn, sem er aðeins þriggja mánaða gamall, er hins vegar gjörónýtur. A 50 ára Lýðvekfis- afmæli ; íslands 1 floggum víðútaUt Við minnum fyrirtæki og stofnanir á að panta fánanatímanlega. Þú færð allar upplýsingar um verð stærðir offl. hjá Merkjalandi. S. 68 80 66 & 7 85 85 Fax 68 75 57

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.