Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994 Óbreytt þjónusta Amtsbókasafnsins í 25 ár Morgunblaðið/Helgi Gott í grásleppunni Raufarhöfn GRÁSLEPPUVERTÍÐ hefur farið vel af stað á Raufarhöfn en 13 bátar stunda slíkar veiðar en Eiríkur var í óða önn að gera að á dögunum þegar fréttaritari brá sér niður á bryggju. Mjög góðri loðnuver- tíð lokið Raufarhöfn. LOÐNUVERTÍÐIN gekk af- burða vel á Raufarhöfn og var tæplega 83 þúsund tonnum land- að þar á allri vertíðinni. Fyrstu loðnunni á sumarvertíð var landað 2. júlí og hófst bræðsla strax daginn eftir en meðan á vinnslu stendur eru um 34 menn á launaskrá. Frá upphafi sumarvertíðar og fram til áramóta var landað 58.885 tonnum og eftir áramót fram til 14. mars var landað 23.888 tonnum eða samtals á sumar-, haust og vetrar- vertíð 82.773 tonnum. Framleidd voru 14.540 tonn af mjöli og 11.730 tonn af lýsi. Gekk vel Vinnsla gekk mjög vel og afskip- un afurða hefur sjaldan eða aldrei gengið hraðar fyrir sig en á þess- ari vertíð. Síðustu mjöltonnin fóru í skip 5. apríl en eftir er að flytja út um 1.000 tonn af lýsi. Helgi ------» ♦ ♦----- ■ 1. MAÍ, að lokinni dagskrá verkalýðsfélaganna, verður opið hús í LÁRUSARHÚSI, kosninga- skrifstofu Alþýðubandalagsins á Akureyri. Boðið verður upp á veit- ingar. Þráinn Karlsson leikari les ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk og fleiri og frambjóðendur spjalla um kosningabaráttuna. Allir eru velkomnir. ■ GOSPEL TÓNLEIKAR verða haldnir í Hvítasunnukirkjunni við Skarðshlíð á morgun, laugardag. Þeir eru til styrktar kirkjubyggingu safnaðarins og verður m.a. í boði einsöngur, tvísöngur, kvartett, hljómsveitin Narsissa og sönghópur kirkjunnar. ■ KVIKMYNDA VOR Kvik- myndaklúbbs Akureyrar heldur áfram um næstu helgi. Sunnudag- inn 1. maí verða sýndar myndirnar Arizona Dream og Germinal kl. 17.00. Mánudaginn 2. maí kl. 19.00 verða kínverska myndin Sagan af Qiuju og ítalska myndin Flótti sak- leysingjans sýndar. Sýnt er í Borg- arbíói. Morgunblaðið/Rúnar Þór Þungur róður NEMENDUR framhaldsskóianna á Akureyri, verkmenntaskólans og menntaskólans, reyndu með sér í róðrarkeppni á Pollinum í gærdag, en þetta er í annað sinn sem slík keppni er haldin. Verkmenntaskólanemar höfðu betur í baráttunni. Háskólinn á Akureyri Tímabært að lengja afgreiðslutímann ÞÖRF fyrir þjónustu Amtsbókasafnsins á Akureyri við skóla- nema hefur stóraukist en afgreiðslutími safnsins er óbreyttur frá því sem var fyrir 25 árum kynni við Brekkugötu 17. Lárus Zophoníasson amtsbóka- vörður sagði að tímabært væri orð- ið að endurskoða afgreiðslutíma safnsins sem nú er opið virka daga frá kl. 13 til 19 og á laugardögum frá 10 til 15 yfir vetrarmánuðina. í lok síðasta árs voru liðin 25 ár frá því að Amtsbókasafnið flutti að Brekkugötu 17 og benti Lárus á að á þeim tíma sem liðinn er hefði skólum í bænum fjölgað sem og íbúunum. Taldi hann að allt að fjór- falt fleiri skólanemar sæktu safnið með tilkomu Verkmenntaskólans á Akureyri og Háskólans á Akureyri en í upphafi þegar Menntaskólinn á Akureyri var eini framhaldsskóli bæjarins. Framhalds- og háskóla- nemar í bænum eru nú á þriðja þúsund. Afgreiðslutíma safnsins verður ekki breytt nema með því að taka upp vaktavinnu sem síðan kallar á aukið starfsfólk en Lárus segir óhjákvæmilegt að taka þess mál til athugunar fyrr en síðar og nefndi að tíminn bæði kvölds og morgna gæti nýst vel bæði nemendum og öðrum gestum. er það flutti í núverandi húsa- Vortónleik- ar Kórs MA KÓR Menntaskólans á Akureyri heldur vortónleika á Sal á morgun, laugardaginn 30. aprfl, kl. 17.00. Á efnisskrá eru tuttugu lög frá 15. öld og fram á okkar daga. Þar má nefna íslensk þjóðlög, ítölsk lög og norræn auk negrasálma og stúd- entasöngva. Að auki leika kórfélag- ar á hljóðfæri og syngja einsöng. Stjórnandi er Ragnheiður Ólafs- dóttir og undirleikari Guðný Erla Guðmundsdóttir. Aðgangseyrir er 300 krónur. (Fréttatilkynning.) Fyrirlestur Helgn Kress HELGA Kress prófessor flytur fyrirlestur við Háskólann á Ak- ureyri á morgun, laugardaginn 30. apríl, kl. 14.00 í stofu 24 í byggingu skólans við Þingvalla- stræti 23. Fyrirlesturinn nefndi hún „Oft stendur illt af tali kvenna" - um tungumál, kynferði og vald i fomís- lenskum bókmenntum. Helga hefur skrifað fjölmargt um íslenskar bókmenntir og þá ekki síst um konur í bókmenntum. Síð- astliðið ár gaf hún út bókina Mátt- ugar meyjar - íslensk fornbók- menntasaga. Helga er prófessor við Háskóla Islands en hefur auk þess kennt við erlenda háskóla um lengri eða skemmri tíma. (Fréttatilkynning.) ----------------- ■ LEIKHÚSIÐ Frú Emilía sýn- ir barnaleikritið Ævintýri Trítils í Samkomuhúsinu á Ákureyri á morgun, laugardag kl. 11.00. Frú Emilía er að hefja leikför um land- ið með þetta verk. Næstu sýningar verða á Húsavík kl. 14.00 en sýnt er í leikskólanum og síðan á Kópa- skeri kl. 16.30. Sunnudaginn 1. maí verður sýnt á Raufarhöfn kl. 10.00, á Þórshöfn kl. 13.30 og á Vopnafirði kl. 17.00. Þijár sýning- ar verða mánudaginn 2. maí, sú fyrsta í Valaskjálf á Egilsstöðum kl. 11.00, á Seyðisfirði kl. 13.00 og á Eskifirði kl. 16.00. Leiksýn- ingin er byggð á sögum hollenska barnabókahöfundarins Dick Laan í leikgerð Ásu Hlínar Svavarsdótt- ur. Leikmynd og búninga gerðu Guðrún S. Haraldsdóttir og Guðrún Auðunsdóttir. Grímur eru eftir Ólaf J. Engilbertsson en leikarar eru Kjartan Bjargmundsson, Helga Braga Jónsdóttir og Jóna Guðrún Jónsdóttir. í leiksýning- unni eru bömin leidd inn í töfra leikhússins, þau kynnast vinnu leik- arans og fylgja honum inn í ævin- týrið og þegar þangað er komið eru þau þátttakendur í sýningunni. (Úr fréttatilkynningu.) Systkin í sokka- framleiðslu SYSTKININ Margrét og Eðvarð, sem á sextugsafmæli í dag, föstu- dag eiga og reka Glófa. Á mynd- inni eru þau ásamt börnum Eð- varðs, Margréti og Viðari. Að baki þeim er sokkavélin sem keypt var til framleiðslu á nýrri sokkalínu, en sokkarnir eru fyrir skömmu komnir á markað. GLÓFI hf. tekur í næsta mánuði þátt i stórri vörusýningu í New York en fyrirtækið var valið úr hópi fjölmargra eftir að hafa stað- ist gæðakröfur sem gerðar eru til sýnenda. Sýningin, Fashion Assess- ories expo, hefst 9. maí og stendur í þijá daga. Þetta er í annað sinn sem fyrirtækið tekur þátt í sýningu erlendis. Það eru systkinin Eðvarð Jónsson og Margrét Jón sdóttir sem stofn- uðu Glófa og störfuðu í upphafi tvö við framleiðsluna en rekstur fyrir- tækisins hófst í maí árið 1983. Til að byija með voru eingöngu fram- leiddir fingravettlingar en smám saman hefur framleiðslan orðið ijöl- breyttari m.a. treflar, sokkar, sjöl og margs konar smávara önnur og starfsmenn eru nú sjö talsins. Fjórðungur fluttur út Um 25% framleiðslunnar er selt á markaði erlendis, sumt er flutt út beint en annað í gegnum Foldu og Icewere. Stefnt er að því að auka útflutning og því sagði Eðvarð það kærkomið tækifæri að fyrir- tækið hafi komist inn á áðurnefnda sýningu í New York en í kjölfar hennar er þess vænst að viðskipta- sambönd náist við stóra viðskipta- vini. Fyrirtækið hefur fest kaup á nýrri vél til framleiðslu á sokkum og eftir vöruþróun verður lögð áhersla á markaðssókn en m.a. hyggjast forsvarsmenn Glófa reyna meira fyrir sér á markaði syðra og telja að það gefi fyrirtækinu byr í þeirri sókn að um íslenska fram- leiðslu sé að ræða. Glófi hf. tekur þátt í sýningu í New York

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.