Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994 BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGARNAR 28. MAI Sveigjanleg- ur vinnutími eftir Þórunni Pálsdóttur Sveigjanlegur vinnutími er atriði sem breyttir þjóðfélagshættir kalla á að gefínn sé betri gaumur. Undanfarið hefur verið unnið að mótun nýrrar starfsmannastefnu borgarinnar. Mikilvægur liður í henni er að borgarfyrirtæki geri starfsmönnum sínum kleift að velja sveigjanlegan vinnutíma í auknum mæli. Sveiganlegur yinnutími byggir á því að menn ráði sínum vinnutíma sjálfír að vissu marki. Ákveðinn tími dagsins er fastur vinnutími, t.d. frá tíu til þijú, en menn geta ráðið því hvort þeir mæta t.d. klukkan sjö og séu þannig búnir með átta tíma vinnudag klukkan þijú, eða mæti ekki fyrr en klukkan tíu og vinni þá til sex. Það liggur því í hlutarins eðli að ef báðir foreldrar vinna í fullri vinnu eftir sveigjanlegum vinnutíma geta þeir komist af með fímm til sex tíma dagvistun á dag fyrir bömin. Á sama tíma njóta börnin samvista foreldra mun lengri tíma dagsins en ella. Flestir lenda stöku sinnum í því að fara heldur seinna að sofa en æskilegt væri fyrir hámarksafköst í vinnu næsta dag. Ýmislegt kemur „Sveiganlegur vinnu- tími kemur því til móts við þarfir hvers og eins og leiða má líkur að því að menn fái meiru áorkað ef þeir sveigja vinnutímann að sinni eigin líkamsklukku og fjölskylduaðstæðum.“ til, ung börn halda vöku fyrir foreldr- um sínum, skemmtilegt matarboð verður lengra en til stóð og svo mætti lengi telja. í slíkum tilfellum er gott að vinna eftir sveigjanlegum vinnutíma og eiga þess kost að sofa aðeins lengur í stað þess að vera vansvefta og illa upplagður þann daginn. Sveigjanlegur vinnutími kemur því til móts við þarfir hvers og eins og leiða má líkur að því að menn fái meiru áorkað ef þeir sveigja vin- nutímann að sinni eigin líkams- klukku og fjölskylduaðstæðum. Sjálfstæðismenn vilja að borgar- fyrirtæki sýni öðrum fyrirtækjum í borginni gott fordæmi með því að bjóða í auknum mæli upp á sveigj- anlegan vinnutíma. Þórunn Pálsdóttir Ef sveigjanlegur vinnutími næði verulegri útbreiðslu í borginni okkar færi annar kostur þessa fyrirkomu- lags einnig að koma í ljós, nefnilega jafnara umferðarálag. í stað þess að allir séu á leið til og frá vinnu á sama tíma eins og nú er myndi umferðin dreifast yfír lengra tíma- bil. Þannig myndi samgöngukerfi borgarinnar nýtast betur og umferð yrði greiðari. Það er því ljóst hvernig sem á það er litið að sveigjanlegur vinnutími er góður kostur fyrir fjölskyldur og fyrirtæki og einn lykill að betra borgarlífí. Höfundur er verkfræðingur og rekstrabagfræðingur og skipar 14. sæti framboðslista Sjáifstæðisfiokksins í borgarstjórnarkosningum í vor. Sinnuleysi R-list- ans í íþróttamálum eftir Ragnheiði Kristínu Guðmundsdóttur Það er fyrir löngu orðin ljós sú staðreynd að líkamsrækt og íþrótta- iðkun er mikilvægur þáttur í upp- vexti og þroska barna og unglinga. Það aðhald og sú ástundun sem kraf- ist er af þeim börnum skilar þessum einstaklingum heilbrigðari, hæfari og metnaðarfyllri til náms og starfa. Vitað er að athafnaleysi og skortur á viðfangsefnum er aðalástæðan fyr- ir því að böm og unglingar leiðast út á rangar brautir og þá er ég að tala um neyslu á vímuefnum sem í flestum tilfellum leiða svo til afbrota. Ummæli borgarstjóraefnis R-listans hin síðustu ár lofa ekki góðu fýrir íþróttalíf í Reykjavíkurborg. Ingi- björg Sólrún hefur margsinnis sagt að henni fínnist framlög til keppnis- íþrótta of há og sú skoðun hennar kemur skýrt fram í eftirfarandi um- mælum hennar á fundi í borgarstjóm þegar hún var borgarfulltrúi árið 1985. „Þegar kemur svo að íþrótta- málum þá verð ég eins og Cato gamli, sem sagði, að lokum legg ég til að Karþago-borg verði lögð í eyði.“ í stefnuyfírlýsingu R-listans er lít- ið sem ekkert minnst á framkvæmd- ir á sviði íþróttamála. Það litla sem í því plaggi er að fínna varðar efl- ingu almenningsíþrótta og greiðari Ragnheiður K. Guðmundsdóttir „Sjálfstæðismenn hafa unnið ötullega að fram- kvæmdum á sviði íþróttamála“ aðgang almennings að íþróttamann- virkjum í Reykjavík. Vissulega eru slík loforð góðra gjalda verð en ekki fæ ég séð hvemig R-listinn með yfír- lýstan andstæðing keppnisíþrótta í broddi fylkingar muni leggja áherslu á íþróttamál borgarinnar og allra síst ef um er að ræða framkvæmdir og þróun í þágu keppnisíþrótta. D-LISTINN er Reykjavíkurlistinn eftir Unni Jónasdóttur Á ýmsu má marka að kosningar til sveitarstjórna nálgast. Kjördagur er 28. maí næstkomandi og sýnist að minnsta kosti hér í Reykjavík sé að byija að hitna í kolunum og dálít- ið farið að ijúka. Ekki er það nema vonlegt og eins og venja er. Stjóm- málin eru nú einu sinni alvörumál sem snúast um forgangsröð verk- efna og hvemig veija skuli skattpen- ingum landsmanna og svo eru þau tilfínningamál hjá mörgum. Eins og jafnan þegar hópar manna, kvenna og karla, taka að fylkja sér til atlögu til að reyna að hafa áhrif á skoðanir kjósenda sér í hag þá kemur margt fram í dags- ljósið sem ella bæri ekki mikið á. Sem dæmi um þetta má nefna þann dæmalausa hroka sameiginlegs framboðs minnihluta flokkanna í borgarstjóm Reykjavíkur og þeirra flokksbrota sem utan í þeim hanga að nefna þennan „bræðing" Reykja- víkur-lista. „Heilbrigð skynsemi ætti þó að segja frétta- mönnum, fréttastjór- um, blaðamönnum og ritstjórum að þetta nær ekki nokkurri átt.“ Augljóslega getur ekkert framboð kennt sig við sjálft kjördæmið eða sveitarstjóm þegar því er skipta. Um þessar mundir hefur þetta of- læti gengið svo langt að bréfhausar og önnur pappírsgögn frá framboði R-listans er merkt haus og „lógói“ sem tekur mið af því að þetta sé „Reykjavíkurlistinn". Opinberar fréttastofur og fjölmiðlar sem gefa sig út fyrir að vera fijálsir og óháð- ir eta þetta upp og láta ganga yfír landslýð eins og hvem annan stóra sannleik. Heilbrigð skynsemi ætti þó að segja fréttamönnum, frétta- stjórum, blaðamönnum og ritstjórum að þetta nær ekki nokkurri átt. Reyndar hefur spurst að margir hafi komið athugasemdum á fram- Unnur Jónasdóttir. færi við þessa aðila og ekki er frá því að heldur hafí dregið úr áleitni að þessu tagi. Enda gæti málflutn- ingur af þessum toga auðveldlega snúist upp í andstæðu sína ef of mikið er hamrað á því sem fólki þykir óviðkunnanlegt eða jafnvel ósæmilegt. Til glöggvunar mætti líka fara ofan í þessi mál og velta fyrir sér hvaða listi raunvemlega ætti heitið Reykjavíkurlisti ef grannt er skoðað. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft með höndum stjóm Reykjavíkur- borgar í áratugi ef frá er skilið kjör- tímabilið 1978-1982. Þegar vinstri flokkamir náðu meirihluta (þó naumur væri). Lítið stendur eftir það tímabil því mikill tími fór í það hjá hinum sundurleitu pólitisku borgar- fulltrúum að semja um hver ætti rétt á hveiju og hver mætti ákveða hvað. Sú borg sem við íslendingar emm stoltir af sem höfuðborg okkar er sköpunarverk sjálfstæðismanna. Þeir fara með umboð yfir 60% borg- arbúa og því má vel álykta sem svo að ef einhver listi gæti með réttu kallast Reykjavíkurlisti þá er það D-listinn. Höfundur er stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins. Miklar framkvæmdir fyrirhugaðar Sjálfstæðismenn vilja öfluga upp- byggingu íþrótta- og félagsaðstöðu og áframhaldandi rekstrarstuðning við íþróttafélög borgarinnar til þess að gera öllum bömum og unglingum kleift að stunda íþróttir. Sjálfstæðis- menn hafa í stjómartíð sinni í Reykjavík unnið ötullega að fram- kvæmdum á sviði íþrótta- og útivist- ar. Sjálfstæðismenn hafa á kjörtíma- bilinu reist fjögur ný íþróttahús, hafnar em framkvæmdir við 18 holu golfvöll við Korpúlfsstaði þar sem gert er ráð fyrir æfingastæði fyrir golfáhugamenn, auk þess sem byggður verður sérstakur golfvöllur fyrir fjölskylduna. Á döfinni er einn- ig að byggja yfir skautasvellið í Laugardal. Sjálfstæðismenn gera sér grein fyrir mikilvægi íþróttastarfs og í ljósi reynslunnar tel ég að sjálfstæð- ismenn muni halda áfram að stuðla að vexti og uppgangi íþrótta i borg- inni með það að markmiði að gera Reykvíkinga að heilbrigðari, hæfari og hamingjusamari einstaklingum. Höfundur er leiðbeinandi í þolfimi og áhugamaður um íþróttir og heilsurækt. * Verktakar - Sveitarfélög - Garðyrkjumenn föstudag og laugardag frá kl. 10-18 Sýnum beltagröfur, hjólaskóflur, beltavagna, jarðvegsþjöppur, trjákurlara, loftpressur, dælur, rafstöðvar og bátavélar. Ennfremur vökvahamra frá INDECO. John Jackson, fulltrúi þeirra, er á staðnum og veitir ráðgjöf. ATH.: HYUNDAI og AMMANN YANMAR beltagröfur og hjólaskóflur eru á frábæru verði! Kynnum einnig varahluta- og viðgerðarþjónustu okkar. OUBDECO Skútuvogi 12A, 104 Reykjavík Sími812530

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.