Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994 33 Beðið um frið eftir Ásgerði Jónsdóttur í fimmtudagsumræðu Ríkisút- varpsins 3. mars síðastliðinn var umræðuefnið Ríkisútvarpið sjálft, hagur þess og ekki síst drög að nýjum útvarpslögum. Tómas Ingi Olrich þingmaður er formaður út- varpslaganefndarinnar, sem er ein- vörðungu skipuð liðsmönnum ríkis- stjórnarinnar. Það er auðvitað sér- lega ólýðræðisleg tilskipan, þar sem um er að ræða sameign allrar þjóðarinnar. Hún er dæmigerð fyr- ir ríkisstjórnina, enda til hennar stofnað í pólitískum tilgangi og bregður engum við það. Aftur á móti vakti það eftirtekt mína og undrun hve þingmaðurinn er átak- anlega vitundarlaus um þær skoð- anir ýmissa samflokksmanna hans á framtíð Ríkisútvarpsins, að best sé að leggja það í faðm einkavæð- ingar. Þær hafa þó, í allmörg ár, prýtt síður Morgunblaðsins og þeirra verið getið í fleiri fjölmiðlum svo að allir með nokkurn veginn heil augu og eyru hafa átt þess kost að kynnast þeim. Hvernig „Það er óhjákvæmilegt að rifja það upp með hinum minnistrega for- manni útvarpslaga- nefndar og reynar út- varpslaganefndinni allri, að rás 2 var bein- línis á stofn sett til þess að breikka dagskrá Ríkisútvarpsins.“ getur svona mikið og áhugavert efni farið fram hjá þingmanninum? Eða er hann e.t.v. snortinn nýjustu tískuveiru — minnisleysi — ? Hann talaði mikið í umræðuþættinum og lýsti þeirri heiðríku velferðarhyggju fyrir Ríkisútvarpinu er felist í hin- um nýju tillögum útvarpslaga- nefndar. T.d. að skáka því í sam- keppnisstöðu og þá ekki sist með þeirri tillögu að leysa Ríkisútvarpið frá þeirri skyldu að reka rás 2. Hann talaði fjálglega um það sem góðan kost — og betri en nú er — að hafa eina rás með „breiða" fjöl- Ásgerður Jónsdóttir breytta dagskrá. Það getur ekki verið, að Tómas Ingi Olrich hlusti mikið á útvarp úr því að hann ger- ir sér ekki grein fyrir því hve dag- skrá Ríkisútvarpsins er geysilega fjölbreytt. Það mun vera leitun á jafn góðri útvarpsdagskrá segja ýmsir er til þekkja bæði innan lands og utan. Veit útvarpslaganefnd e.t.v. ekkert um kosti þeirrar stofn- unar, hverrar hag hún er að raska og rýra? Það er óhjákvæmilegt að riija það upp með hinum minnis- trega formanni útvarpslaganefndar og reynar útvarpslaganefndinni állri, að rás 2 var beinlínis á stofn sett til þess að breikka dagskrá Ríkisútvarpsins, þjóna stærri og fjölbreyttari hlustendahópi og gera sem flestum til hæfís. Þetta veit ég frá mönnum sem unnu við út- varpið um þær mundir og áttu hlut að máli þessa nýja starfsþáttar, sem hefur tekist einstaklega vel og notið mikilla vinsælda. Þess vegna er rás 2 eftirsóknarvert hnoss handa einkavæðingunni og það hefur oft verið að því vikið, bæði leynt og ljóst, að Ríkisútvarp- ið ætti að leggja rásina í þær hend- ur. Þess vegna leggur útvarpslaga- nefndin áherslu á að losa Ríkisút- varpið við rekstrarskyldu rásar 2 eins og það heitir á hennar máli. Þegar Kristín Ástgeirsdóttir þingmaður benti á, í fyrrnefndum umræðuþætti, að tillaga nefndar- innar væri bein leið til að auðvelda einkavæðingu rásar 2, þá barði þingmaðurinn Tómas Ingi Olrich sér á bijóst og lýsti yfir, af ískyggi- legri hógværð, að hér væri enginn pólitískur hundur grafinn, rás 2 muni bara hvíla í friði einhvers staðar hjá Ríkisútvarpinu. Ég veit ekki hvort formaður útvarpslaga- nefndar trúir á eigin orð en vissu- lega munu fáir aðrir viti bornir menn gera það. Þeir skynja og skilja, að stefnt er að því að hafa rás 2 á lausum kili, svo að til henn- ar megi grípa til einkavæðingar, þegar mikið liggur við, t.d, handa Hrafni Gunnlaugssyni, þegar hann gengur út úr framkvæmdastjóra- hlutverkinu. Friður um ríkisfjölmiðla Við íslendingar höfum verið svp lánsamir að eiga saman afbragðs gott Ríkisútvarp allt frá stofnun þess til nútíðar. Mér er kunnugt um að margir þeir, sem bundnir eru við heimili, stofu eða stól vegna elli eða heilsubrests — og eflaust margfalt fleiri — telja Ríkisútvarp- ið einn sinn besta vin og hlusta á það frá morgni til kvölds. Það mundu þeir ekki gera ef „breiða“ dagskráin útvarpslaganefndarinn- ar tæki gildi. Þess vegna heiti ég á þingmenn og alla aðra, sem hafa ráð okkar góða Ríkisútvarps í hendi sér, að láta það í friði eins og það er með tvær aðskildar rásir til þess að þjóna raunverulega breiðri dag- skrá og sem allra stærstum og fjöl- breyttum hlustendahópi — svo og að veita ríkisfjölmiðlum frið fyrir einkavæðingar áráttu. Að lokum bæn til sömu aðila, sem flestir landsmenn munu væntanlega sam- einast um: Frelsa oss og ríkisfjöl- miðlana frá Hrafni Gunnlaugssyni og liðsmönnum hans. Höfundur er kennari Fermingar á landsbyggð- inni sunnudaginn 1. maí Svo létt... Ferming í Árbæjarkirkju í Holta- hreppi, Rangárvallasýslu kl. 14. Prestur sr. Auður Eir Vilhjálmsdótt- ir. Fermd verða: Heiðbjört Karlsdóttir, Lyngási. Hrefna Hafsteinsdóttir, Efri-Rauðalæk. Hrefna Helgadóttir, Heiðvangi 18, Hellu. Guðni Sighvatsson, Lyngási. Guðríður Gísladóttir, Meiri-Tungu. Þórarinn Vilhjálmsson, Litlu-Tungu. Ferming í Blönduóskirkju kl. 11. Prestur sr. Ámi Sigurðsson. Fermd verða: Barði Sigurjón Jónasson, Brekkubyggð 25. Guðjón Heiðar Sveinsson, Húnabraut 12. Guðmundur Freyr Matthíasson, Húnabraut 1. Guðni Örn Sturluson, Skúlabraut 25. Hulda Hákonardóttir, Hlíðarbraut 1. Ingibjörg Sigurrós Gunnarsdóttir, Mýrarbraut 21. Ingólfur Bjami Sveinsson, Heiðarbraut 8. Jón Bjamason, Urðarbraut 24. Jón Hnefill Jakobsson, Skúlabraut 41. Katrin Ólöf Böðvarsdóttir, Flúðabakka 6. Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, Melabraut 21. Kristján Óli Sigurðsson, Hlíðarbraut 7. Óli Valur Guðmundsson, Húnabraut 40. Péturína Laufey Jakobsdóttir, Hlíðarbraut 17. Ragnheiður Kristjánsdóttir, Heiðarbraut 10. Sara Óskarsdóttir, Húnabraut 2. Stefanía Elly Baldursdóttir, Heiðarbraut 4. Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Mýrarbraut 25. Þorbjöm Kristján Ámundason, Húnabraut 25. Þórdís Erla Björnsdóttir, Urðarbraut 13. Þórey Kristín Sveinsdóttir, Húnabraut 3. Síðasta sýning Hreyfímynda- félagsins á vormisseri HREYFIMYNDAFÉLAGIÐ er nú að Ijúka fjórða misseri sínu. Síð- asta sýning félagsins á vormisseri verður í kvöld, föstudagskvöld, kl. 21, en þá verður sýnd kvikmyndin „Don’t look back“ eftir D.A. Pennebaker. Dagskrá vorsins riðlaðist aðeins Kvikmyndin „Don’t look back“ undir lokin og því er þessi aukasýn- fjallar um Bob Dylan á tónleika- ing haldin. Kvikmyndirnar „Tetuso ferðalagi um Bretland árið 1965 II: Bodyhammer" og „The Terroris- þegar hann var um það bil að breyt- er“, sem fyrirhugað var að sýna ast í alheimsstjörnu og úr þjóðlaga- um miðjan apríl, verða sýndar síðla söngvara í rokkara. sumars. Ferming Laufásprestakalls í Greni- víkurkirkju kl. 11. Fermd verða: Heiða Dögg Jónasdóttir, Grýtubakka III, Höfðahverfi. Ingi Hrannar Heimisson, Túngötu 10, Grenivík. Ingólfur Jóhannsson, Stórasvæði 8, Grenivík. Ferming í Melstaðarkirkju, Miðfirði, kl. 11. Prestur sr. Kristján Björns- son. Fermd verða: Björn Sindri Arin- bjamarson Hanneck, Brekkulæk: Brynja Ósk Víðisdóttir, Árbakka 4, Laugarbakka. Guðlaug Ósk Sigurðardóttir, Svalbarði. Hrefna Reynisdóttir, Smáragrund 7, Laugarbakka. Jón Loftur Ingólfsson, Syðri-Kárastöðum. Ferming Saurbæjarprestakalls í Innri-Hólmskirkju kl. 11. Prestur sr. Jón Einarsson. Fermd verða: Hanna María Jónsdóttir, Hnjúki. Unnur Sigurjónsdóttir, Kirkjubóli. Helgi Pétur Ottesen, Ytra-Hólmi. Þröstur Már Sveinsson, Hríshóli. Ferming í Strandarkirkju kl. 14. Fermdur verður: Kristbjöm Hrólfur Gunnarsson, Reykjabraut 14, Þorlákshöfn. Ferming í Stykkishólmskirkju kl. 11. Prestur sr. Gunnar Eiríkur Hauks- son. Fermdar verða: Benný Eva Benediktsdóttir, Saurum, Helgafellssveit. Jóhanna Rúnarsdóttir, Áskinn 5, Stykkishólmi. C3C. | Hátíðisdagur útskrifaðra V erslunarskólanema ÁRLEGUR hátíðisdagur útskrifaðra Verslunarskólanema hefur um árabil verið haldinn 30. apríl. í ár hefur hins vegar orðið að ráði að Nemendasamband Verslunarskóla íslands og Stúdentasamband Verslunarskóla íslands gangist fyrir sameiginlegu hófi í Súlnasal Hótel Sögu þann 30. maí nk. fyrir afmælisárgang útskrifaðra með verslunarpróf eða stúdentspróf frá skólanum. Undirbúningur afmælisárganga hafa samband við Rósu Matthías- vegna hátíðarhalda í tilefni af þess- dóttur, formann Nemendasam- um tímamótum er nú að hefjast og bandsisn, Valdimar Hergeirsson, er væntanlegum þátttakendum eða formann Stúdentasambandsins, eða forsvarsmönnum þeirra bent'á að Kjartan Reyni Olafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.