Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRIL 1994

Utanríkisráðherra í blaðasamtali

Alþýðuflokkur endur-

skoðar afstöðu til ESB

JÓN Baldvín Hannibalsson utanríkisráðherra segir í blaðaviðtali

að Alþýðuflokkurinn muni taka afstöðu sína til Evrópusambands-

ins til gagngerrar endurskoðunar á flokksþinginu sem haldið verð-

ur í júní. Hann segist telja mögulegt að Islendingar gætu samið

um aðild að Evrópusambandinu og haidið áfram fullum yfirráðum

yfir fiskistofnum sínum.

Haft er eftir Jóni Baldvin í

News from Iceland, sem kom út

í gær, að aðildarsamningar Nor-

egs, Svíþjóðar og Finnlands við

Evrópusambandið hafi breytt

myndinni nægilega til að íslend-

ingar þurfi að endurskoða afstöðu

sína til aðildar að sambandinu.

Hann bendir á að Evrópusam-

bandið hafi, í samningnum um

Evrópska efnahagssvæðið, viður-

kennt   sérstöðu   Islendinga   sem

Spurt og svar-

að um borg-

armálefni

í TILEFNI borgarsljórnar-

kosninga, sem fram fara í

lok maímánaðar, mun Morg-

unblaðið gefa iesendum sín-

um kost á að beina fyrir-

spurnum til borgarstjórans

í Reykjavík, Árna Sigfús-

sonar, um hvaðeina í mál-

efnum borgarinnar, sem

þeir hafa áhuga á að spyrj-

ast fyrir um. Hefur borgar-

stjóri fyrir sitt leyti sam-

þykkt að svara þessum fyr-

irspurnum.

Lesendur Morgunblaðsins

geta hringt í síma 691100 á

milli'kl. 11 og 12 árdegis frá

mánudegi til föstudags og lagt

spurningar fyrir borgarstjóra,

sem blaðið kemur á framfæri

við hann og verða svörin birt

nokkrum dögum síðar. Einnig

má senda spurningar í bréfi

til Morgunblaðsins. Nauðsyn-

legt er að nafn og heimilisfang

fyrirspyrjanda komi fram.

/ dag

Ofbeldi

Unglingar hafa framið margar

alvarlegar árásir 16

Tap

Landsvirkjun tapaði 3,2 milljörð-

um á síðasta ári 17

Læknisfræði

Unnið er að mótun samnorr-

ænna vinnureglna við leit og

greining erfðagalla 22

Leiðarí

Kosningar i Suður-Afríku 24

JA.

I*"»   I   »   .

? Böðvar Guðmundsson um

ísl Ameríkubréf - Bjarki Jó-

hannesson um bætt umhverfí

í borgum - Rannsóknir: Sigurð-

ur Greipsson um melgresi -

Þórður í Skógum um safn-

varðaför norður

HH

TIR

? Uppáhaldsmyndböndin

Erlendur dómur um bók Ólafs

Jóhanns - Ung finnsk listakona

- Skúli áttræður - Tónleikar

helgarinnar

fiskveiðíþjóðar. í aðildarsamning-

um við Norðmenn hafi sambandið

breytt reglurri sínum til að tryggja

hagsmuni þeirra.

„Ráðherrann telur það mögu-

legt að ísland gæti samið um að-

ild en haldið allt að 100% yfirráð-

um yfir fiskveiðikvótum sínum,"

segir í News from Iceland.

Morgunblaðið/Árni Sæberg*

Steingrímur hættir sem formaður

„NÚ ÆTLA ég að afhenda Halldóri flokkinn," sagði Steingrímur Hermannsson að lokinni yfirlitsræðu

sinni á miðstjórnarfundi framsóknarmanna í gær. Fundarmenn stóðu á fætur og þökkuðu Steingrími

með langvinnu lófataki en Steingrímur og Halldór Ásgrimsson varaformaður flokksins tókust í hendur

______________________________     þegar Steingrímur afsalaði sér formennskunni í hendur Halldóri.

Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi

Kosningar farí fram í haust

vegna viðræðna við ESB

STEINGEÍMUR Hermannsson lét af formennsku í Framsóknarflokkn-

um á miðstjórnarfundi í gær. Halldór Ásgrímsson varaformaður tók

við formennsku fram að fiokksþingi sem haldið verður í haust. I yfir-

litsræðu sinni á fundinum í gær sagði Steingrímur að íslendingar stæðu

nú á miklum tímamótum. Varaði hann mjög við aðild að Evrópusam-

bandinu og sagði að ísland yrði þá aldrei annað en útkjálki. I ræðu

sinni sagði Halldór Ásgrímsson að meginverkefnið framundan væri

að ná samningum við Evrópusambandið og sagði eðlilegt við þessar

aðstæður að kosningar færu fram á komandi hausti.

í samtali við Halldór Ásgrímsson

í Morgunblaðinu í dag segir hann

m.a. að hann telji þá ákvörðun ranga

að afnema skattafslátt gegn því að

fólk leggi áhættufé í fyrirtæki. Ríkis-

valdið verði að vera með hvetjandi

aðgerðir til þess að koma atvinnulíf-

inu á skrið og það verði m.a. gert

með því að tryggja atvinnulífinu auk-

ið fjármagn bæði frá einstaklingum

og íífeyrissjóðum, sem að hans mati

eigi að vera skattfrjálst.

Sjá miðopnu: „Það skortir.." og

bls. 16: „Steingrímur..."

Halldór sagði eitt mikilvægasta

verkefni næstu mánaða vera að

ganga til samninga við Evrópusam-

bandið um framtíðarskipan í sam-

skiptum íslendinga við það. íslend-

ingar þyrftu að ná meira tollfrelsi á

Evrópumarkaði. „Við þurfum jafn-

framt að vinna að því að hafa áhrif

innan Evrópusambandsins. Það get-

um við gert bæði í gegnum norrænt

samstarf og með því að fara fram á

áheyrnaraðild og tillögurétt í þeim

nefndum og ráðum sem skipta okkur

mestu máli," sagði Halldór. Hann

sagði líklegt að viðræðurnar við ESB

kæmust á skrið næsta haust og vet-

ur og því væri eðlilegt að alþingis-

kosningar færu fram í haust.

Steingrímur Hermannsson sagði

að Framsóknarflokkurinn ætti stóran

hlut í framförum undanfarinna ára-

tuga. Unnið hefði verið í anda bland-

aðs hagkerfis og skapast hefði gott

jafnvægi milli einkaframtaksins,

samvinnuhreyfingar og ríkisvalds.

„Ætíð sami

framsóknarmaðurinn"

Steingrímur sagðist láta af for-

mennsku þegar allt léki í lyndi innan

Framsóknarflokksins og samstaða

mikil innan flokksins. Hann sagðist

hafa ákveðið að verða yið hvatningu

forsætisráðherra og viðskiptaráð-

herra að sækja um starf seðlabanka-

stjóra. „Ég vona svo sannarlega að

ég geti unnið þarft starf, þar sem

ég verð og það vil ég segja ykkur,

að ég verð ætíð sami framsóknar-

maðurinn," sagði Steingrímur.

Lödur í lögsögunni?

„VIÐ reynum eftir fremsta megni að fylgjast með því hvort Rúss-

arnir Iosa sig við bílhræin innan 200 mílna Iðgsögu okkar, því

þær sögur hafa heyrst að þeir hirði varahluti úr bilunum og

hendi restinni í sjóinn," sagði Helgi Hallvarðsson, skipherra hjá

Landhelgisgæslunni, í samtali við Morgunblaðið.

Eins og kunnugt er af fréttum

eru rússneskir sjómenn iðnir við

að kaupa aflóga bíla hér á landi,

oftast Lödur. Þær sögur hafa

gengið að þeir hirði varahluti úr

bílunum á heimstíminu og kasti

hræunum svo í sjóinn.

Eftirlitsflug

„Við höfum beðið hafnarverði

að láta okkur vita þegar rússnesk-

ir togarar með svona bílafarma

leggja úr höfn," sagði Helgi. „Við

fljúgum svo yfir skipin og fylgj-

umst með hvort hræin hverfa af

dekkinu. Við höfum enn engar

sannanir fyrir að bílum sé hent í

sjóinn, en ætlum okkur að fylgj-

ast með málinu áfram, því við

kærum okkur lítið um slíkan

ófögnuð   innan   efnahagslögsög-

Friðrík Sophusson gagnrýnir skýrslu Ríkisendurskoðunar um SR-mjöl

Alvarlegar áhyggjur af trú-

verðugleika stofnunarinnar

FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra sagði á Alþingi í gær, að hann

hefði alvarlegar áhyggjur af því að skýrsla Ríkisendurskoðunar um

sölu á hlutabréfum rikisins í SR-mjöli væri svo illa unnin að hún gæti

skaðað stofnunina stórlega. Það væri afar slæmt fyrir Alþingi sem

þyrfti á því að halda að Ríkisendurskoðun starfi þannig að um trúverð-

ugleika sé að ræða hjá stofnuninni.___________________

Óskað eftir endur-

upptöku SR-málsins

RÍKISLÖGMAÐUR Gunnlaugur Claessen, hefur óskað eftir því við

Héraðsdóm að mál Haralds Haraldssonar í Andra gegn sjávarútvegsráð-

herra og fleirum verði endurupptekið. Vill lögmaðurinn eiga kost á

að leggja fram skýrslu Ríkisendurskoðunar um söluna á hlutabréfum

SR-mjöIs í málflutningi sínum fyrir dóminum.

Gunnlaugur Claessen hrl. vill að    grundvelli sömu sönnunargagna á

málíð verði tekið tíl munnlegs flutn-

ings að nýju og þá aðeins um þennan

afmarkaða þátt. Telur ríkislögmaður

ekki fullnægjandi að leggja skýrslu

Ríkisendurskoðunar eingöngu fyrir

Hæstarétt og vill að dæmt verði á

báðum dómstigum eftir því sem kost-

ur sé. Þórunn Guðmundsdóttir hrl.

og Aðalsteinn E. Jónasson hdl. hafa

tekið undir ósk ríkislögmanns fyrir

hönd sinna umbjóðenda.

Friðrik sagði áhyggjur sínar stafa

af því að hann hefði séð gögn sem

lögð hefðu verið fram frá aðilum

málsins. En á ríkisstjórnarfundi í gær

voru lagðar fram greinargerðir frá

Verðbréfamarkaði Islandsbanka hf.,

sem sá um söluna og frá söluhópi

sjávarútvegsráðuneytisins. Friðrik

sagðist ekki vilja fella dóm um það

hvort skýrsla Ríkisendurskoðunar

væri afleit eða ekki en mjög nauðsyn-

legt væri að Alþingi fjallaði um þetta

mál fyrir frestun, þar sem allur sann-

leikurinn í málinu þyrfti að koma

fram.

Stuðningur dreginn til baka

Ummæli Friðriks féllu í umræðu

um frumvarp um að breyta Lyfja-

verslun ríkisins í hlutafélag. Efna-

hags- og viðskiptanefnd Alþingis hef-

ur fjallað um frumvarpið og skilaði

nefndin sameiginlegu áliti þar sem

fallist var á frumvarpið. í gær kom

hins vegar fram nýtt nefndarálit frá

Kristínu Ástgeirsdóttur þingmanni

Kvennalista og Steingrími J. Sigfús-

syni þingmanni Alþýðubandalags, þar

sem þau lýsa því yfir að þau dragi

stuðning sinn við málið til baka. Vísa

þau meðal annars til þess að reynslan

af einkavæðingáráformum ríkis-

stjórnarinnar sé með þeim hætti að

Alþingi hljóti að segja hingað og ekki

lengra, og ríkisstjórninni beri að

hætta við fyrirhuguð áform um frek-

ari einkavæðingu. í því sambandi

vitna þau til skýrslu Ríkisendurskoð-

unar um söluna á SR-mjöli hf. en þar

komi fram hörð gagnrýni á hvernig

staðið hafi verið að þeim málum, auk

þess sem þau mál séu nú fyrir dóm-

stólum.

Svavar Gestsson þingmaður AI-

þýðubandalags mótmælti yfirlýsingu

fjármálaráðherra og sagðist ekki telja

hana smekklega nema fjármálaráð-

herra hefði látið forseta Alþingis vita

áður um þá skoðun sína að ríkisendur-

skoðandi væri tæplega starfi sínu

vaxinn. Ríkisendurskoðun heyrir

beint undir Alþingi.

Sjá bls. 26: „Ríkisendurskoðun

dregur.í^-------—------------

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
24-25
24-25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48