Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRIL 1994

Formaður Sambands íslenskra sparísjóða

Engin breyting

verður á vöxtum

um mánaðamótin

BALDVIN Tryggvason formaður Sambands íslenskra sparisjóða segir

að engin vaxtabreyting verði nú um mánaðamótin hjá sparisjóðunum,

en hins vegar séu þau mál í athugun. I Morgunblaðinu í gær var

haft eftir Sighvati Björgvinssyni viðskiptaráðherra að sparisjóðirnir

eigi í ljósi góðrar afkomu sinnar að ganga á undan í vaxtalækkun, og

að hans mati geti vaxtamunur þeirra innlánsstofnana sem ekki eigi

við útlánatöp að stríða verið tveimur prósentustigum lægri en ann-

arra. Sagðist Baldvin ekki vilja kljást við bankamálaráðherra um

þetta mál.

„Ég vil ekki standa í neinu orða-

skaki við ráðherrann, en þetta er

hans skoðun og hann má hafa hana

fyrir mér," sagði Baldvin og bætti

við að engin ákvörðun hefði verið

tekin hjá sparisjóðunum um að,_

lækka vextina.

„Þótt við högnumst er ekki þar

með sagt að við förum að lækka

vextina út af því. Það er alltaf ágætt

að fyrirtæki geti staðið sig vel, því

fólkið sem lætur okkur hafa pening-

ana sína trúir okkur fyrir þeim. Það

verður að geta treyst á að þessar

innlánsstofnanir sem eru sparisjóð-

irnir séu traustar og góðar stofnan-

Sjúku hestarnir

á Fákssvæðinu

Fóðurof-

næmiekki

útilokað

„VIÐ höfum ekki með ör-

uggri vissu fundið ný til-

felli. Meðan við bíðum eftir

niðurstöðum frá Danmðrku

er staðan því óbreytt og

sömu reglur um umgengni

í gildi fram yfir helgi," sagði

Steinn Steinsson héraðs-

dýralæknir um ástandið á

Fákssvæðinu í Víðidal.

Hann útilokar ekki að

tengja megi sjúkdóm í 15

hestum við fóðurgjöf. Hugs-

anlega sé um áður óþekkt

ofnæmi að ræða.

Steinn fylgdist með því þeg-

ar hestarnir voru fluttir í

sóttkví í Mosfellsdal í gær.

Hann sagði að biðstaða væri

í málinu. Beðið væri eftir nið-

urstöðum úr sýnatöku frá

Danmörku og tíminn leiddi í

ljós hvort um smitun væri að

ræða i önnur hús. Ef ekki

hefðu greinst fleiri tilfelli á

mánudag eða þriðjudag væru

miklar líkur á að sjúkdómur-

inn væri einangraður.

Sú kenning hefur komið

fram að rekja megi sjúkdóm-

inn til fóðurs. Steinn sagði að

ekki væri hægt að útiloka

hana. „Til dæmis gæti hugsast

að um heiftarlegt ofnæmi sem

við höfum ekki kynnst áður

væri að ræða," sagði Steinn.

Líðan hestanna

Erling Sigurðsson, tamn-

ingamaður og gæslumaður

hestanna, sagði að líðan þeirra

hefði lítið breyst. „Að því frá-

töldu," sagði hann, „að minna

slím kemur upp úr þeim og

hóstinn er heldur þurrari. Þeir

hestar, sem við héldum að

væru komnir yfir það versta,

virðast vera farnir að hósta

meira," sagði Erling. Hann

sagði að hestarnir yrðu í

sóttkví í Selholti í Mosfellsdal

þangað til staðan skýrðist.

Hann yrði yfir hestunum en

óviðkomandi væri bannaður

aðgangur að húsinu.

-------------------------------------&i,----------------------

ir. Það er ekkert samhengi milli

þess að við höfum í þessu tilviki

hagnast og að vextirnir hafi verið

of háir. Við vorum með að meðal-

tali lægstu útlánsvextina á síðast-

liðnu ári og við vorum einnig með

hæstu innlánsvextina á síðastliðnu

ári. Þetta er því ekkert spurningin

um það hvað vextirnir eru, en okkur

ber lagaleg skylda til þess að hafa

eigið fé okkar vel yfir þeim mörkum

sem sett eru og við erum að reyna

að passa okkur á því og þurfa ekki

að vera að taka víkjandi lán eins og

aðrir hafa þurft að gera sumir hverj-

ir," sagði Baldvin.

Reuter

Norræn fegurð á Filippseyjum

FJÖLDI fegurðardísa er kominn til Maníla á Filippseyjum til að

keppa um tignina ungfrú alheimur 1994 en úrslit fara fram 21. maí.

Á myndinni sjást fulltrúar Norðurlandanna, f.v. Caroline Sætre frá

Noregi, Svala Björk Árnadóttir ungfrú ísland, Gitte Andersen Dan-

mörku, Domenique Forsberg Svíþjóð og Henna Merilainen Finnlandi.

Yfirflugfreyja um reyk-

ingar í millilandaflugi

Kemur allt

of oft fyrir

ÁSLAUG Pálsdóttir yfírflug-

freyja hjá Flugleiðum segir það

allt of algengt að farþegar séu

staðnir að reykingum á salerninu

í millilandaflugi.

Áslaug segir að þótt farþegar

reyki ekki á salerninu í hverri ferð

gerist það stundum oftar en einu

sinni í sömu ferðinni. „Það er greini-

legt að fólk setur þetta ekki í sam-

hengi við flugöryggi sitt," segir Ás-

laug. Hún segir einnig að þeir sem

brjóti reykingabannið geri það frek-

ar af nikótínþörf en til þess að ganga

í berhögg við reglur félagsins. As-

laug segir að ekki sé um tilteknar

flugleiðir innan Evrópu að ræða,

engin þeirra sé undanskilin. „Við

gerum alltaf athugasemdir, einnigv

bjópum við fólki níkótíntyggjó," seg-

ir Áslaugar og bætir við að fólk taki

banninu mjög misjafnlega. Sumir

þræti fyrir brot sitt þótt reykinn

leggi fram á gang, einhverjir biðjist

afsökunar eða skammist sín en

margir segist hreinlega ekki þola

við. „En ég held að um leið og um-

ræðan kemst af stað þá átti fólk sig

á því að þetta varðar öryggi allra í

vélinni," segir Áslaug að lokum.

Pottaplöntuhelgi

Landsbyggðarþjónusta

Póstsendum um land allt

a þruman

Úrvals blómaáburður

alltaf þegar þú vökvar

boð 1 lítri kr. 359.-

,S ,\ M £ iífi pc I ZM a ™tf«>?

---------------------------------------------------M pa 5t   <M   <M   ttl.gl ,i)? .V

it'9iikví oo.ír

-—-¦-•

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
24-25
24-25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48