MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRIL 1994 13 Lögreglu- messa í Bústaða- kirkju SÉRSTÖK lögreglumessa verð- ur haidin Bústaðakirkju sunnu- daginn 1. maí klukkan 13.30. Að siign Jónasar Magnússonar, for- manns Landssambands lögreglu- manna, er tilgangurinn með messuhaldinu sá að reyna að hlúa að starfsemi sérstakra lög- reglupresta, en vísir að því hefur verið til staðar undanfarið þar sem séra Kjartan Örn Sigur- björnsson, sjúkrahúsprestur á Landakoti, hefur jafnframt ver- ið lögregluprestur í Reykjavík og Hafnarfirði. Að sögn Jónasar er hlutverk lög- reglupresta annars vegar sálgæsla fyrir lögreglumenn og hins vegar að sjá til þess að prestar séu tiltæk- ir til aðstoðar þegar tilkynna þarf dauðsföll og slysfarir. I lögreglumessunni á sunnudag taka þátt séra Pálmi Matthíasson og séra Sigurður Kr. Sigurðsson, auk Kjartans Arnar I Sigurbjörns- sonar. Predikun flytur Hans M. Hafsteinsson, lögreglumaður og guðfræðinemi. Lögreglukórinn syngur við guðs- þjónustuna undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar en organleikari verð- ur Guðni Þ. Guðmundsson. Að sögn Jónasar Magnússonar er búist við að þorri lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu verði við- staddur messuna í einkennisbún- ingi en aðgangur er öllum heimill. Ljósmynd- ir barna í Gerðubergi LJÓSMYNDASÝNING með myndum 9-12 ára barna verður opnuð í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í dag, laugardag, kl. 14. Börnin tóku myndirnar á ljósmyndanámskeiði sem Gerðu- berg stóð að í samvinnu við Hans Petersen hf. Námskeið þetta er hluti af vetrarstarfi Gerðubergs fyrir börn, sem gengur undir heitinu Lærum og leikum. í fréttatilkynningu frá Gerðubergi kemur fram að börn geti sótt þangað stutt og fjölbreytt námskeið undir stjórn valinkunnra leiðbeinenda. Þetta ljósmynda- námskeið var hið fyrsta sinnar teg- undar og er óhætt að segja að þar hafi vel tekist til. Leiðbeinendur voru Guðmundur Karl myndlistar- maður og Inga Sólveig Friðjóns- dóttir ljósmyndari. Þau önnuðust jafnframt uppsetningu sýningar- innar," segir í fréttatilkynningu frá Gerðubergi. Sýningin verður opin í dag, laug- ardag og á morgun, sunnudag frá kl. 13 til 16. ¦ ALÞÝÐUFLOKKURINN og Alþýðubandalagið í Stykkis- hólmi hafa komist að samkomu- lagi um sameiginlegt framboð við bæjarstjórnarkosningar 28. maí nk. Er listi þeirra þegar fullgerður og er boðinn fram á vegum Vett- vangs og verður H-listi. Listann skipa eftirfarandi: Davíð Sveins- son, Kristín Benediktsdóttir, Atli Edgarsson, Hörður Gunnarsson, Bylgja Baldursdóttir, Þröstur Ingi Auðunsson, Guðmundur Bragi Kristjánsson, Birna Pétursdóttir, Bryndís Guðbjartsdóttir, Guðrún Erna Magnúsdóttir, Eiríkur Helga- son, Páli Helgason, Guðmundur Lárusson og Einar Karlsson. ...IU+..ÁOTJ. ZAZZZZZZZ33[ZCgZAAZZA3Q3 Hjá D-listanum er enginn ágreiningur Bnnni ¦¦iimwi..........wamawm wmmmmmmmmmmmmmmmsammsmaamm ^ um hver sinnir hvaða málum Við lausn flókinna viðfangsefna eins og stjórn Reykjavíkurborgar er verkaskipting og sérhæfing nauðsynleg. Hjá D-lista sjálfstæðismanna eru hreinar línur um hver gerir hvað. Málefnin eru skýr og þú þekkir þá einstaklinga sem eru í forsvari fyrir þeim.