14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRIL 1.994 Landsliðið í hárskurði ÞETTA er landsliðið í karlaflokki ásamt módelum sínuin. F.v. Björgvin Emilsson, Sigurkarl Aðalsteinsson og Ómar Diðriksson. Heimsmeistaramótið í hárgreiðslu og hárskurði íslendingur sigraði í litun VFKTORÍ A Guðnadóttír, hárskerasveinn, sigraði í litun í einstak- lingskeppni sem fram fór samhliða heimsmeistaramótinu í hár- greiðslu qg hárskurði, en mótið fór fram í London fyrir skömmu. Landslið Islands lenti í 18.-19. sæti, en alls sendu 34 þjóðir kepp- endur á mótið. Landsliðið í hárgreiðslu HÉR er landsliðið í hárgreiðslu ásamt módelum. F.v. Eyvindur Þorgilsson, Þórdís Helgadóttir og Björg Óskarsdóttir. Árangur Viktoríu er mjög glæsilegur, en um 100 keppendur kepptu um titilinn. Lovísa Jóns- dóttir, formaður Sambands hár- greiðslu- og hárskerameistara, sagði að mikil vinna lægi að baki þátttöku í móti eins og heims- meistaramótinu. Hún sagði að ís- lensku keppendurnir hefðu verið yið æfingar allt frá því í haust. ísland hefur sent lið á heimsmeist- aramótið í nokkur ár og alltaf náð góðum árangri. Keppnin fer þannig fram að keppt er í hárgreiðslu og hár- skurði í herra- og dömuflokki. Þrír keppendur eru í hvoru liði. Auk þess er keppt í einstaklings- flokki í klippingu og litun. ísland átti þátttakendur í öllum flokkum. Auk Viktoríu keppti Þuríður Hall- dórsdóttir í hárgreiðslu og litun. Landslið Japans sigraði í hár- greiðslu og lið Bretlands sigraði í hárskurði á mótinu. Sigurvegari VIKTORÍA Guðnadóttir sigraði í litun. Hún er hér með módeli sínu, Snæbirni Steingrímssyni. Reykjavíkurborg Atvinnu- miðlun iðnnema styrkt BORGARRÁÐ hefur samþykkt 150 þúsund króna styrk til rekst- urs Atvinnumiðlunar iðnnema. Stjórn Iðnnemasambands Islands fór fram á 1,2 millj. króna styrk til þess að unnt yrði að halda starfseminni gangandi í allt sum- ar._ í greinargerð með beiðni Iðn- nemasambandsins segir að á und- anförnum þremur árum hafi At- vinnumiðlun iðnnema eða AMIN verið rekin. Á síðasta ári hafi rúm- lega 400 iðnnemar sótt um starf og tókst að útvega 116 nemum sumarstarf og starfsþjálfun. Bent er á að, þar sem ekki hafí tekist að halda úti starfsmanni allt sumar- ið hafi ekki reynst unnt að útvega öllum umsækjendum starf. Að auki hafi ekki verið fjármagn til að aug- lýsa eftir störfum eða skrifa bréf og hringja til atvinnurekenda. Fjölga atvinnutækifærum Með rekstri Atvinnumiðlunar iðn- nema vilji Iðnnemasambandið fjölga atvinnutækifærum iðnnema og stuðla að því að fleiri eigi kost á sumarvinnu við þá iðngrein sem þeir stund nám í. Þá sé brýnt að fleiri iðnnemar eigi kost á starfs- þjálfun. Minnt er á könnun, sem starfshópur á vegum menntamála- ráðuneytisins vann, en þar kom fram að um 30% þeirra sem ljúka námi í iðnmenntaskólum skili sér ekki til sveinsprófs. RÚV og orkuveitur í samvinnu við Lands- og Búnaðarbanka Nýtt fyrirkomulag á greiðslu afnotagjalda HITAVEITA Reykjavíkur, Rafmagnsveita Reykjavíkur og Rafmagn- sveitur ríkisins hafa ásamt Ríkisútvarpinu samið við Landsbanka íslands og Búnaðarbanka íslands um svonefndar beingreiðslur. Um er að ræða nýtt fyrirkomulag á greiðslu afnotagjalda útvarps og sjónvarps og greiðslu rafmagns- og hitareikninga. Beingreiðslukerfið var kynnt fréttamönnum á fundi með forystu- og talsmönnum veitustofnananna, RÚV og bankanna í gær. Þjón- ustunýjungin felst í þW að viðskipta- vinir þessara fyrirtækja, sem eiga reikninga í Búnaðarbanka eða Landsbanka, geta látið skuldfæra beint af reikningi sínum í byrjun hvers mánaðar. Þannig sparast við- skiptavinum og fyrirtækjunum bæði fé og fyrirhöfn. í stað 6-12 gíró- seðla munu fyrirtækin að jafnaði sénda viðskiptavinum sínum eitt yfir- lit á ári, þar sem þeim er gerð grein fyrir viðskiptum sl. 12 mánuði. Þá Fuglaskoðun í Firðinum FUGLAFRÆÐINGAR verða i dag, laugardaginn 30. april, með sjónauka og fjarsjár við Hvaleyrarlón, Hafnarfirði. Þeir verða við Dráttarbraut- ina frá kl. 16 til kl. 18. í fréttatilkynningu segir m.a.: Hvaleyrarlón er ákaflega áhugaverður staður til fugla- skoðunar og ekki minnst vegna þess að hann er inni í hjarta eins stærsta bæjarfélags lands- verða þeir reikningar, sem greiddir eru annan hvern mánuð, skuldfærðir í hverjum mánuði, helmingi lægri upphæð í hvert skipti. 1.400.000 gíróseðlar gætu sparast Að sögn Þórsteins Ragnarssonar í kynningarnefnd um beíngreiðslur yrði sparnaður af því að fækka gíró- seðlum, sem veitustofnanir og RÚV senda út árlega, um 30% eða um 420.000 gíróseðla, um 21 milljón króna. Ef allir gíróseðlarnir, sem sendir eru út árlega og eru um 1.400.000 talsins, hyrfu úr umferð og allir viðskiptavinir nýttu sér bein- greiðslukerfíð segir Þórsteinn að áætla mætti að sparnaður næmi um 70 milljónum króna árlega. Aðal- steinn Guðjohnsen rafmagnsstjóri segir forsvarsmenn veitustofnana og RUV hafa hug á að ívilna þeim við- skiptavinum sínum sem notfæri sér beingreiðslufyrirkomulagið með því að láta þá greiða lægra gjald en aðra. Til að byrja með verði þó að fá reynslu á kerfið. Hann sagðist jafnframt vona að önnur fyrirtæki og orkuveitur fylgdu í kjölfar þeirra sem nú taka fyrstu skrefin í átt til pappírslausra viðskipta. Hörður Vilhjálmsson, fjármála- stjóri Ríkisútvarpsins, sagði að við undirbúníng beingreiðslna hefði veríð rætt við forsvarsmenn Islandsbanka og Samband sparisjóða. Sagðist hann vonast til að þessar bankastofnanir myndu ganga inn í beingreiðslukerf- ið áður en langt um liði. Ódýrasti kosturinn Ekkert færslugjald verður tekið af viðskiptavinum veitustofnana og RÚV til að byrja með. Að sögn tals- manna bankanna tveggja, Lands- banka og Búnaðarbanka, er nú verið að taka upp gjöld fyrir ýmsa banka- þjónustu og því kæmi til greina að taka gjald af beingreiðslufærslum einnig. Talsmennirnir voru þó sam- mála um að beingreiðslur yrðu ódýr- asti valkosturinn fyrir viðskiptavini til að greiða áðurnefnda reikninga. Eyðublað inn á iiil heimili Ríkisútvarpið sendir á næstu dög- um út 55.000 A-giróseðla til útvarp- snotenda. Með giróseðlunum verða send eyðublöð sem viðskiptavinir Landsbanka og Búnaðarbanka geta fyllt út og beðið um að afnotagjöldin og rafmagns- og hitareikningar verði gjaldfærð út af reikningum þeirra. í júlí verða eyðublöðin send út með gíróseðlum Hitaveitu Reykjavíkur og Rafmagnsveitu Reykjavíkur og síðla sumars með gíróseðlum Rafmagn- sveitna ríkisins. Þannig er fyrirhugað að eyðublöðin fari þrisvar inn á hvert heimili í landinu. Auk þess er fyrir- hugað að auglýsa beingreiðslurnar í dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi. Talsmenn bankanna, fyrírtækj- anna og RÚV voru sammála um að þeir myndu hvetja viðskiptavini sína til að íhuga vel að notfæra sér bein- greiðslurnar, enda væru þær til mik- ils hagræðis og sparnaðar fyrir alla aðila. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Bergsteinn Gunnarsson, bóndi í Kasthvammi, hefur unnið mikið við hleðslu í S-Þing. á undanförnum áruni, meðal annars á gamla bænum á Þverá. Búnaðarsamband S-Þingeyjarsýslu Búkollusjóður styrk- ir endurby^ffingu á gömlum fjarhúsum Laxamýri, S-Þing. SAMÞYKKT var á aðalfundi Búnaðarsambands S-Þing., sem nýlega var haldinn að Breiðumýri, að veita fjárstyrk úr svokölluðum BúkoFlu- sjóði sem er atvinnu- og þróunarsjóður til endurbyggingar gamalla fjárhúsa á Þverá í Laxárdal, allt að 700.000 kr. Forsaga málsins er sú að áhuga- mannahópur í héraðinu hefur lýst áhuga sínum á endurgerð gamalla peningshúsa enda fer þeim ört fækk- andi sem heilleg eru. Búskaparminjar glatist ekki Tilgangurinn er einkum sá að byggingaraðferðir og búskaparminj- ar glatist ekki og það menningar- landslag sem einn er til á nokkrurn sveitar>æjum fái að halda sér. Með þetta í huga einkum verið litið til jarðanna Halldórsstaða og Þverár í Laxárdal, en þar er mikið af gömlum húsum og er endurbygging margra þeirra þegar hafin. Gamli bærinn Þverá hefur þegar verið byggður upp að hluta og í sum- ar verður ráðist í endurgerð fjóssins og brunnhússins sem standa áföst við bæinn. Þá er vonast til að byrjað verði á fjárhúsunum sem eru frá því um 1850. Á Halldórsstöðum er verið að gera upp gömlu íbúðarhúsin og unnið er að því að fá Náttúruverndarráð, sem er eigandi gamallar skemmu og stórra fjárhúsa, til að endurreisa þær byggingar. Vonast er til að jarðir þessar, sem eru samliggjandi, geti verið tengdar minjasafninu á Grenjaðarstað og Safnhúsi Þingeyinga, með það að markmiði að lífga upp á gamla tíma þannig að bæði ferðamenn og hér- aðsbúar hafi ánægju af. - Atli. V.