Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						4

NETBUNAÐUR

EINARJ.SKULASON HF

**gmtÞIafrife \%

MORGVNBLADIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK

SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85

LAUGARDAGUR 30. APRIL 1994

VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.

Eldur kviknaði í verksmiðju dótturfyrirtækis SÍF í Jonzac í Frakklandi

Börðust

við eld-

inní

12tíma

ELDUR kviknaði í verksmiðju

dótturfyrirtækis Sölusambands

íslenskra fiskframleiðenda, Nord

Morue í Jonzac í Frakklandi, um

áttaleytið í fyrrakvöld að íslensk-

um tíma.

Eldsupptök eru ekki ljós en að

sögn Bjarna Sívertsen hjá SÍF er

ekki unnt að gera sér nákvæma

grein fyrir afleiðingum brunans sem

stendur. Stóð slökkvistarf yfir í um

hálfan sólarhring að hans sögn.

Eldurinn kviknaði í eldri

hluta verksmiðjunnar

Eldurinn kviknaði í eldri hluta

* erksmiðjunnar þar sem reykklefar,

umbúðalager og kæligeymslur eru

staðsettar. Tókst slökkviliði að

forða kæligeymslunum frá

skemmdum en eldurinn komst

hvorki í vinnusali né skrifstofuhús-

næði.

Hætt er við að skemmdir á birgð-

um geti verið talsverðar af völdum

reyks og segir Bjarni að nákvæmar

upplýsingar þar um liggi ekki fyrir

fyrr en eftir helgi.

Barist við eldinn

SLÖKKVILIÐSMENN í

Jonzak börðust við eldinn

í Nord Morue í meira en

hálfan sólarhring. Tókst

þeim að forða kæli-

geymslum frá skemmd-

um en eldurinn komst

hvorki í vinnslusali

skrifstofuhúsnæði.

Sud-Ouest.

Félags-

ráðgjaf-

ar semja

FÉLAGSRÁÐGJAFAR undirrit-

uðu nýjan kjarasamning við

Reykjavíkurborg og ríkið í gær-

kvöldi. Samningurinn er á þjóð-

arsáttarnótunum að sögn for-

manna beggja samningsaðila. Fé-

lagsráðgjafar höfðu boðað verk-

fall hjá þeim sem starfa hjá

Reykjavíkurborg 2. maí, en verk-

fallinu hefur nú verið aflýst.

Félagsráðgjafar og samninga-

nefndir ríkis og borgar hafa verið á

samningafundum alla þessa viku og

á áttunda tímanum í gærkvöldi var

nýr kjarasamningur undirritaður eft-

ir um 10 tíma samningafund.

Kristjana Sigurðardóttir, formað-

ur samninganefndar félagsráðgjafa,

vildi ekki segja annað um samning-

ínn en að hann byggðist á forsendum

þjóðarsáttarsamninganna.          Hún

færðist undan því að svara spurningu

um hvort hún væri ánægð með samn-

inginn, en sagðist vera ákaflega

óánægð með þá launapólitík sem

rekin sé í landinu. Hún sagði að 50

félagsráðgjafar hefðu tæplega bol-

magn til að brjótast út úr henni.

Þorsteinn Geirsson, formaður

samninganefndar ríkisins, sagðist

vera ánægður með að samningar

skuli hafa náðst og verkfalli forðað.

Hann sagði að samningurinn væri

svipaður öðrum samningum sem

gerðir hafa verið á siðustu mánuðum.

Félagsráðgjafar taka afstöðu til

samningsins eftir helgina.

Jón   Baldursson

vann í París

Eins og

að verða

meistari

aftur

JÓN Baldursson vann ein-

menningsmót í brids sem lauk

í París í gærkvöldi, en margir

þekktustu bridsspilarar heims

voru meðal þátttakenda.

„Þetta er eins og að verða

heimsmeistari aftur," sagði Jón

Baldursson við Morgunblaðið.

Mótið er haldið af Bridssambandi

Evrópu og tryggingasamsteyp-

unni Generali og er því Evrópu-

mót í einmenningi og jafnframt

óopinbert heimsmeistaramót.

Jón náði forustunni í mótinu

í annarri lotu af fjórum, en var

í 2. sæti þegar lokalotan hófst í

gær. Hann tók forustuna aftur í

annarri umferð og hélt henni til

loka þótt mjótt væri á mununum

og aðeins munaði 2,5 stigum á

honum og næsta manni.

Þakkaði öllum makkerunum

í einmenningi spilar hver þátt-

takandi við alla hina keppend-

urna. Jón sagði við Morgunblaðið

að hann hann hefði náð ágætu

sambandi við meðspilara sína í

sögnum, og sjaldan lent í slæm-

Jón Baldursson

um samningum, en erfiðara hefði

verið að forðast villurnar í vörn.

Við verðlaunaafhendinguna í

gærkvöldi flutti Jón ávarp og

þakkaði sérstaklega öllum makk-

erum sínum fyrir stórkostlega

frammistöðu.

Þátttakendur í mótinu voru

alls 52 og var aðeins boðið þang-

að spilurum sem hafa unnið

heims-, Evrópu-, Ameríku- eða

Asíumeistaratitil. Evrópubúar

skipuðu efstu sætin. í öðru sæti

varð Frakkinn Christian Mari og

þriðji varð Jaan Westerhof, einn

nýbakaðra heimsmeistara Hol-

lendinga í sveitakeppni. Fjórði

varð Roudinesco frá Frakklandi

og í fimmta sæti varð Alfredo

Versace frá ítalíu og Brasilíu-

maðurinn Gabriel Chagas varð í

6. sæti. Sigurvegari í kvenna-

flokki varð Nicola Smith frá

Bretlandi og Pitsi Flodqvist frá

Svíþjóð varð í 2. sæti.

Enn einn árangurslaus fundur meinatækna og viðsemjenda

Hlutur meínatækna

úti á landi deiluefní

ÞRIGGJA stunda samningafundi meinatækna og viðsemjenda þeirra

lauk kl. 18 í gær. Edda Sóley Óskarsdóttir, formaður Meinatæknafé-

lags íslands, sagði að meinatæknar í Reykjavík hefðu boðið hálftíma

lengingu vinnudags í skiptum fyrir kjarabót í Reykjavík og á lands-

kygg°mni- Þorsteinn Geirsson, formaður samninganefndar ríkisins,

sagði að meinatæknum í Reykjavík hefði verið boðin launahækkun

á þeirri forsendu að þeir hefðu dregist aftur úr sambærilegum stétt-

um í launum. Engar forsendur væru hins vegar fyrir launahækkun

meinatækna á landsbyggðinni, enda hefðu þeir ekki dregist aftur úr

í launum. Annar fundur hefur ekki verið boðaður í deilunni.

Ovenjumikil sala var

í verslunum ÁTVR

ÓVENJUMIKIL sala var á áfengi í vínbúðum ÁTVR í gær. Þegar

leið á daginn var víða troðið út úr dyrum. Nokkrir þættir eru tald-

ir valda þessari miklu sölu. I kvöld fer söngvakeppni evrópskra sjón-

varpsstöðva fram, á morgun er 1. maí, í gær voru greiddar út barna-

bætur og margir fengu greidd laun í gær.

„Það er langt síðan salan hefur

verið svona mikil hjá okkur. Það

var algerlega fullt út úr dyrum eft-

ir klukkan 4," sagði Birgir Axels-

son, útsölustjóri í vínbúðinni Heið-

rúnu á Stuðlahálsi, stærstu búð

ÁTVR. Hann sagði að sala væri að

jafnaði mjög góð á föstudögum, en

sala í gær hefði hins vegar verið

mun meiri en á venjulegum föstu-

degi. Hann var ekki kominn með

sölutölur yfir daginn þegar Morgun-

blaðið talaði við hann í gær.

Mikilsalaábjór

Sala í öðrum vínbúðum sem

Morgunblaðið hafði samband við

var alls staðar mikil, en sums stað-

ar sögðu útsölustjórar að salan

hefði ekki verið meiri en á venjuleg-

um föstudegi. Sala á bjór virðist

þó hafa verið áberandi mikil.

Edda Sóley sagði að í upphafi

viðræðnanna hefðu viðsemjendur

lagt áherslu á að meinatæknar í

Reykjavík bættu við sig hálftíma

vinnu á dag, þ.e. 37,5 stunda

vinnuvika yrði gerð að 40 stunda

vinnuviku. Meinatæknar hefðu

ekki fallist á þessa kröfu fyrr en

ákveðið hefði verið að f ara að henni

til að greiða fyrir samningum í

gær. Viðsemjendur hefðu hins veg-

ar snúið við blaðinu og slegið á

sáttahönd. Vinnuvika meinatækna

á landsbyggðinni er 40 stundir.

Hafa þungar áhyggjur

Hvað afleiðingar verkfalls-

aðgerðanna varðaði sagði Edda

Sóley að meinatæknar gerðu sér

fulla grein fyrir ástandinu á sjúkra-

húsunum og hefðu þungar ányggj-

ur af því. Hún neitað því að starf-

andi meinatæknar færu sér hægt

í verkfallinu. „Við höfum unnið að

allri nauðsynlegri bráðaþjónustu

eins og okkur ber skylda til að

gera. Það eru ekki nema fjórar

manneskjur á vaktinni að degi til

og ein á nóttu og kvöldin. Auðvitað

er takmarkað hvað hver og einn

kemst yfir að gera," sagði hún.

Aðalfundur . Meinatæknafélags

íslands verður haldinn í dag kl. 15

í sal múrara við Síðumúla.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
24-25
24-25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48