Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						18    FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994

MORGUNBLAÐIÐ

LISTIR

Eigandi þessarar teikningar

er beðinn um að hafa sam-

band við Norræna húsið.

Leitað að

teikningnm

og málverk-

um eftir Jón

Engilberts

Á LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík verður

haldin sýning á verkum Jóns Engil-

berts í Norræna húsinu og í FIM-

salnum í Garðastræti. Sýningin

verður opnuð 4. júní og lýkur 3.

júlí. Leitað var til eigenda listaverka

eftir Jón Engilberts og voru við-

brögð þeirra góð.

A sýningunni er fyrirhugað að

sýna teikningar sem Jón gerði við

málverkið Vorgleði, sem er í eigu

Búnaðarbankans. Ekki hefur tekist

að hafa upp á öllum þessum frum-

gerðum að málverkinu.

Þess vegna er þeirri ósk komið

hér með á framfæri að þeir sem

eiga teikningar eða frumgerðir að

Vorgleði hafi samband við Norræna

húsið. Sérstaklega er beðið um að

eigandi að teikningu þeirri sem hér

birtist hafi samband. Ennfremur er

óskað eftir málverkum sem lista-

maðurinn málaði á tímabilinu frá

1935-1960. Vinsamlegast hafið

samband við Norræna húsið, Ingi-

björgu Björnsdóttur, milli kl. 10 og

16 alla virka daga.

? ? ?

Sýning á karl-

mannanælum

í Galleríi Greip

TINNA Gunnarsdóttir opnar sýn-

ingu á karlmannanælum í Galleríi

Greip á morgun, laugardaginn 7.

maí, kl. 16. Sýningin stendur til 18.

maí og er opin frá kl. 14-18 alla

daga nema mánudaga.

Dansarar

San Fran-

cisco ball-

ettsins á

Listahátíð

TVEIR af aðaldönsurum San

Francisco ballettsins verða

gestir á sýningu íslenska dans-

flokksins á Listahátíð í Reykja-

vík í sumar. Dansararnir, Anth-

ony Randazzo og Elisabeth

Loscavio, dansa tvídans úr

Þyrnirós eftir Helga Tómasson,

en uppfærsla hans á þessum

fræga ballett hefur fengið lof-

samlega dóma, nú síðast hjá

Konunglega ballettinum í Kaup-

mannahöfn. Anthony og Elisa-

beth dönsuðu aðalhlutverkin í

Rómeó og Júlíu eftir Helga, en

ballettinn var frumsýndur í San

Francisco í mars síðastliðnum.

Á sýningu íslenska dansflokks-

ins á Listahátíð verða frumsýnd

þrjú ný íslensk verk eftir þær

ANTHONY Randazzo og Elisabeth Loscavio dansa í uppfærslu

Helga Tómassonar á Svanavatninu. í sýningu íslenska dans-

flokksins á Listahátíð nú í sumar munu þau dansa tvídans úr

Þyrnirós sem Helgi Tómasson hefur einnig samið.

Hlíf Svavarsdóttur, Nönnu

Ólafsdóttur og Maríu Gísladótt-

ur, en verkin eru öil samin sér-

staklega fyrir flokkinn. Allir

dansarar Islenska dansflokks-

ins taka þátt í sýningunni, sem

verður í Borgarleikhúsinu dag-

ana 11. og 12. júní. Miðasala er

þegar hafin hjá Listahátíð í

Reykjavík.

Konungur

á krepputímum

KVIKMYNPIR

Sagabíó

KONUNGUR HÆDARINNAR

„THE KING OF THE HILL" * * *

Leikstjóri og handritshöfundur: Ste-

ven Soderbergh. Byggð á endur-

minningum A. E. Hotchners. Aðal-

hlutverk: Jesse Bradford; Jeroen

Krabbe, Karen Allen, Spalding Gray,

Elizabeth McGovern. - 500 kr.

BANDARÍSKI leikstjórinn Ste-

ven Soderbergh var talinn til

undrabarna kvikmyndanna eftir

að hann kornungur gerði kynlíf,

lygar og myndbönd, einhverja

oflofuðustu mynd seinni ára.

Næsta mynd hans, Kafka, hefur

ekki verið sýnd hér, sjálfsagt þótt

lítil hagnaðarvon í henni, en þriðja

myndin hans, Konungur hæðar-

innar, hefur nú verið frumsýnd í

Sagabíó og með henni sýnir Soder-

bergh að hann er svosem enginn

aukvisi í bíómyndagerð.

Konungur hæðarinnar er ljúfsár

kreppusaga er segir af ungum

dreng sem verður að bjarga sér

sjálfur og hún er byggð á endur-

minningum rithöfundarins A. E.

Hotchners. Þetta er ekki átaka-

mikil mynd en segir lipulega sögu

af sjálfsbjargarviðleitni með kald-

hæðnislegum broddi og hún er

fjarska vel leikin. Einn helsti kost-

ur Soderberghs er að vinna með

leikurum og það sýnir sig vel hér

og myndin sýnir einnig að hann

kýs að takast á við mjög ólík efni

í myndum sínum.

Sögusviðið er bær í Suðurríkjum

Bandaríkjanna og sögutíminn er

upphaf fjórða áratugarins. Aðal-

persónan er greindur strákur sem

sér á eftir fjölskyldumeðlimum sín-

um einum á fætur öðrum þar til

hann stendur einn eftir. Foreldrar

hans senda litla bróður hans til

vandamanna, móðirin fer á heilsu-

hæli og faðirinn í langa söluferð

en stráksi verður eftir í litlu íbúð-

inni í niðurnýddu hótelinu þar sem

fjölskylda hans hefur brotlent og

ýmsir furðufuglar eru gestir og

gangandi.

Konungur hæðarinnar er

þroskasaga um hvernig strákurinn

vaknar til vitundar um heiminn í

j^^^^- A A A A A '

kringum sig og hvernig hann axl-

ar ábyrgð, sem hann vart stendur

undir. Soderbergh kvikmyndar í

einhverskonar roða minninganna

og endurskapar á mjög raunsann-

an hátt krepputíma með natni við

smáatríði í bæði búningum og leik-

myndum sérstaklega og hann

leggur sömu natnina í persónu-

sköpun, sem verður að teljast að-

all myndarinnar.

Hópur góðra leikara fer með

helstu hlutverk; Jeroen Krabbe

leikur sífellt áhyggjufullan föður

stráksins, Karen Allen er um-

hyggjumsöm og skilningsrík

kennslukona, Elizabeth MacGov-

ern er bitur gleðikona og Spalding

Grey leikur heims- og mennta-

mann sem virðist á hraðleið í ræs-

ið. Allt verða þetta ljóslifandi per-

sónur í höndum góðra leikara und-

ir athugulum augum Soderberghs.

Þá er ónefndur drengjaleikarinn

Jesse Bradford sem stendur sig

með stakri prýði og lýsir vel stað-

festu og einurð piltsins í veröld

sem verður fyrir sífelldum svipt-

ingum þar til hann stendur eftir

einn og einangraður.

Þetta er mynd sem lætur ekki

mikið yfír sér, er hljóðlát bæði og

hógvær í framsetningu, og því

gætu menn misst alltof auðveld-

lega af henni. Það væri verra.

Þess má að lokum geta að þýð-

ingin er mjög vel unnin.

Arnaldur Indriðason

Um helgina

MYNDLIST

Sýning Soffíu

framlengd

SÝNING .Soffíu Sæmundsdóttur,

„Leysingar" á Skólavörðustíg 6 b,

hefur verið framlengd til laugar-

dagsins 14. maí. Þar sýnir hún

þrykk unnin 1993. Sýningin er

opin mánudaga til föstudaga frá

kl. 12-18 og laugardaga kl.

10-14.

Ketill Larsen sýnir í

Reykhólasveit

KBTILL Larsen heldur málverka-

sýningu í samkomuhúsinu á Reyk-

hólum í Reykhólasveit 7.-8. maí.

Sýninguna nefnir hann „Kliður frá

öðrum heimi" og er þetta 21.

einkasýning hans. Á sýningunni

eru um 50 olíu- og akrýlmyndir.

Ketill málar aðallega blóma- og

landslagsmyndir en einnig myndir

sem lýsa hugmyndum hans um

annan heim, t.d. fljúgandi skip,

segir í fréttatilkynningu.

Sýningin verður opin laugardag

frá kl. 14-22 og sunnudag kl.

14-19.

Myndlistarsýning

nemenda í Hafnarfirði

MYNDLISTARSKÓLINN í Hafn-

arfirði gengst fyrir myndlistasýn-

ingum á verkum nemenda sem

unnin hafa verið á vorönn á morg-

un, laugardag og sunnudag. Sýn-

ing nemenda yngri en 16 ára verð-

ur haldin í húsnæði skólans á

Strandgötu 50, 2. hæð, og sýning

nemenda í framhaldsdeild skólans

verður haldin í Listamiðstöðinni í

Straumi við Reykjanesbraut. Sýn-

ingarnar verða opnar frá kl. 14-18

báða dagana og eru allir velkomn-

Þrjár sýningar á

Listasafninu

ÞRJÁR sýningar verða opnaðar í

Listasafninu á Akureyri á morgun,

laugardaginn 7. maí, kl. 16.00 og

standa þær til 1. júní næstkom-

andi.

I austursal safnsins sýnir Klaus

Dieter Francke ljósmyndir frá ís-

landi og er þar um loftljósmyndir

að ræða. Hann hefur starfað sem

lausamaður í ljósmyndun og unnið

fyrir þekkt ferðatímarit.

I miðsal eru sýnd verk úr eigu

Akureyrarbæjar, nýlegar myndir

sem Menningarsjóður Akureyrar-

bæjar hefur fest kaup á, m.a. eftir

Eyjólf Einarsson, Birgi S. Birgis-

son, Kristínu Gunnlaugsdóttur,

-Guðmund Á. Sigurjónsson og

Tryggva Ólafsson.

I vestursal er sýningin „Hin

mannlega mósaikmynd" sem er

verkefni sem hófst í Bandaríkjun-

um og hefur þróast og breiðst út

til margra annarra landa.

Listasafnið á Akureyri er opið

frá kl. 14.00 til 18.00 alla daga

nema mánudag en þá er safnið

lokað.

^W °*W ^' "? ^W "*

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52