Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ

FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994    39

FRETTIR

Ratleikur

á vímu-

varnar-

daginn

LIONSHREYFINGIN á íslandi

hefur ákveðið að fyrsti laugar-

dagurinn í maímánuði ár hvert

skuli tileinkaður vímuvörnum.

í tilefni af vímuvarnardeginum, **

7. maí nk., gengst Lionessu-

klúbbur Njarðvíkur fyrir rat-

leik.

Strætó fer frá Grunnskóla

Njarðvíkur kl. 10.45 en leikur-

inn hefst við Safnaðarheimilið

í Innri-Njarðvík kl. 11. Strætó

mun svo fara frá Innri-Njarðvík

að Grunnskólanum að leik lokn-

um kl. 12.

Lionessur vonast til að

Njarðvíkingar fjölmenni og taki

þátt í skemmtilegum leik í fal-

legu umhverfi. Þess má geta

að ratleikurinn er framlag Lio-

nessuklúbbsins til dagskrár, á

ári fjölskyldunnar í Njarðvík.

Einnig munu félagar úr

Skátafélaginu Víkverja selja

túlipana í tilefni af vímuvarnar-

deginum.

Nýr formað-

ur Pjölnis

AÐALFUNDUR Fjölnis FUS

Rangárvallasýslu var haldinn í

félagsmiðstöðinni á Hellu 13.

apríl sl.

Sveinn Óskar Sigurðsson

baðst lausnar sem formaður og

bar upp tillögu þess efnis að

Davíð Guðjónsson frá Heliu

yrði næsti formaður og var

hann kjörinn.

Meðstjórnendur voru kjörnir

Magnús Örn Gylfason, Olafur

Freyr Sigurðsson, Einar Ingi

Magnússon, Hulda Karlsdóttir,

Daníel Reynisson og Sverrir

Guðfinnsson.

Landsþing

ITC hefst í

dag

SUZANNE Shiflet, alþjóðafor-

seti ITC, og Ingibjörg Sólrún

Gísladóttir, alþingismaður,

verða heiðursgestir á níunda

landsþingi Landssamtaka ITC

á íslandi, en þingið hefst í dag

og því lýkur á sunnudaginn.

Stef landsþingsins er „Enginn

keðja er sterkari en veikasti

hlekkur hennar."

Á lands-

þinginu verð-

ur fjallað um

ýmis mál.

Haldin verður

sérstök ræðu-

keppni, flutt

erindi um

samskipti og

samspil         í

starfsum-

hverfi, félag-

vitund og

ábyrga forystu, myndvarpa og

fleiri hjálpargögn og um radd-

beitingu. Þá mun Suzanne

Shiflet flytja erindi um forystu.

Landsþingið er öllum opið,

en það fer fram á Hótel Sögu

í Reykjavík.

ITC eru frjáls og óháð fé-

lagasamtök. í því eru aðilar

sem öðlast þekkingu til að fást

við ýmiss konar viðfangsefni

sem þeir voru kannski ekki í

stakk búnir áður en þeir gengu

í ITC. Félagsskapurinn er op-

inn konum og körlum á öllum

aldri.

Suzanne Shiflet

alþjóðaforseti ITC

Á myndinni eru f.v. í efri röð: Gústav Sigurðsson, Ágúst Sverrir

Egilsson, Þorsteinn Gunnarsson og Jón Hallsson, sem tók við

styrknum fyrir hönd ímu Þallar Jónsdóttur. f neðri röð f.v. Ingi-

björg Rósa Björnsdóttir, Vala Ágústsdóttir, sem tók við styrknum

fyrir hönd Þorleifs Ágústssonar, og Kristín Friðgeirsdóttir.

Námustyrkir úr

Námu Landsbankans

S JÖ námsmenn fengu styrk úr

Námunni, námsmannaþjónustu

Landsbanka íslands, 29. apríl sl.

Allir námsmenn sem eru félagar

í Námunni eiga rétt á að sækja

um þessa styrki. Tæplega 400

umsóknir bárust að þessu sinni

en félagar í Námunni eru tæp-

lega tíu þúsund.

Þeir sem hlutu Námustyrkinn

eru: Ágúst Sverrir Egilsson, í

doktorsnámi í stærðfræði við

U.C. Berkeley í Kaliforníu, Þor-

leifur Ágústsson, í doktornámi

í dýralífeðlisfræði við Gauta-

borgarháskóla, Kristín Frið-

geirsdóttir, nemandi á 3. ári í

vélaverkfræði við Háskóla ís-

lands, Þorsteinn Gunnarsson,

nemandi á fimmta ári í læknis-

fræði við Háskóla íslands,

Gústav Sigurðsson, nemandi á

tónlistar- og náttúrufræðibraut

við Menntaskólann við Hamra-

hlíð og á 8. stigi í klarínettuleik

við Tónlistarskólann í Reykja-

vík, Ingibjörg Rósa Björnsdótt-

ir, nemandi á fjórðu önn í félags-

fræðibraut við Fjölbrautaskóla

Suðurlands á Self ossi og íma

Þöll Jónsdóttir, fiðlunemandi

hjá herra og frú Vamos í Oberl-

in Ohio í Bandaríkjunum.

í dómnefndinni sem sá um val

á styrkþegum voru: Dr. Gylfi

Þ. Gíslason, fyrrverandi ráð-

herra, Haraldur Hallgrímsson,

formaður skólafélags Mennta-

skólans við Hamrahlíð, Sverrir

Hermannsson, bankastjórí,

Kjartan Gunnarsson, f ormaður

bankaráðs, og Kristín Rafnar,

útibússtjóri Vesturbæjarútibús

Landsbanka ísiands.

Hjónin Signý og Loftur fyrir framan bústaðinn sem þau hlutu

í vinning hjá Happdrætti DAS.

Vinningur afhentur

DREGIÐ var í Happdrætti DAS 9.

apríl sl. í vorpottinum. Aðalvinning-

urinn, sumarbústaður í Hraunborg-

um í Grímsnesi, kom á miða nr.

14230 í laufi. Eigandi miðans er

Signý Ágústa Gunnarsdóttir, Jöldu-

gróf 7, Reykjavík. Var bústaðurinn

afhentur fyrir skömmu.

Signý og Loftur Jens Magnússon

hjá Strætisvögnum Reykjavík, eig-

inmaður hennar, sögðust ætla að

eiga bústaðinn og njóta hans með

börnum og barnabörnum en þau

eiga 7 uppkomin börn. Loftur hefur

dyttað að ferðabíl sem hann hefur

átt í mörg ár'og ferðast mikið um

landið en nú gæti hann hætt því

og farið að njóta lífsins í bústaðnum.

Hátíð harmonikunnar

HÁTÍÐ harmonikunnnar verður

haldin á Hótel íslandi í kvöld,

föstudagskvöld 6. maí. Dagskrá

hefst kl. 20.15 og lýkur kl. 3.

Dagskrá hátíðarinnar er viðameiri

en dæmi eru um hérlendis. Tónleik-

ar verða frá kl. 20.15 til u.þ.b. 23.

Að loknu stuttu hléi hefst síðan

harmonikuballið og stendur til kl.

3.

Börn hefja tónleikana kl. 20.15.

Kl. 21 tekur við stórsveit Harmon-

ikufélags Reykjavíkur. Stjórnandi

er Karl Jónatansson. Einnig koma

fram hljómsveitir frá harmonikufé-

laginu Léttum tónum undir stjórn

Karls Adólfssonar og frá Harmon-

ikufélagi Rangæinga undir stjórn

Grétar Geirssonar. Þá koma fram

ýmsir harmonikuleikarar í einleik

og samleik.

Heiðursgestur kvöldsins er að

þessu sinni danski harmonikusnill-

ingurinn Filip Gade, en langafi

Filips var tónskáldið Jakob Gade

sem m.a. samdi hið heimsþekkta

verk, Tango-Jalousie. Að loknum

tónleikunum hefst harmoniku-

dansleikur.

Ríkisútvarpið er með beina út-

sendingu af fyrri hluta tónleikanna

og fyrri hluta dansleiksins.

Hafnar-

dagur í

Hafnar-

firði

HAFNARDAGUR verður í Hafn-

arfirði á morgun, laugardag.

Hafnardagurinn hef st við smá-

bátahöfnina með því að formaður

hafnarstjórnar, Eyjólfur Sæ-

mundsson, opnar Kænumarkað-

inn. Lúðrasveit Tónlistarskóla

Hafnarfjarðar leikur, hestar

verða teymdir undir börnum og

fiskabúr og botndýraker verða á

staðnum. Efnt verður til torfæru-

keppni á hjólum. Til sýnis verður

stangveiðibátur sem gerður verð-

ur út frá Hafnarfirði í sumar og

siglingaklúbburinn Þytur mun

bjóða fólki í siglingu. Félagar í

björgunarsveitinni Fiskakletti

sýna köfun o.fl. Fjörunesið verð-

ur með skemmtisiglingar milli

kl. 11 og 16.

Rani Sebastian

¦ RANI Sebastian kemur til

landsins helgina 6.-8. maí á veg-

um   safnaðarins   Orðs   lifsins.

Rani Sebastian

er frá Malasíu

en býr sem

stendur í Sví-

þjóð og kennri

þar á biblíuskó-

lanum Livets

Ord Bibelcenter

í Uppsölum,

stærsta biblíu-

skóla Evrópu. Á

kvöldbiblíuskóla

Orðs lífsins 6. maí mun Rani

Sebastian kenna um náðargjafir

Heilags anda, hverjar þær eru

og hvernig þær virka í lífi okk-

ar. Kennslan hefst kl. 20, vægt

námskeiðsgjald og veitingar inni-

faldar. Öllum er heimil þátttaka.

Almennar samkomur með Rani

Sebastian verða laugardaginn 7.

maí kl. 20.30 og sunnudaginn

8. maí kl. 11 og 20.30. Allir eru

velkomnir. Allar samverur fara

fram í húsakynnum Orðs lífsins

á Grensásvegi 8 í Reykjavík.

H FARIÐ verður í vorferð fj öl-

skyldunnar laugardaginn 7. maí

en hún er skipulögð af mæðra-

og feðramorgnum í Laugar-

neskirkju. Brottför verður frá

Laugarneskirkju kl. 10 árdegis.

Að þessu sinni er ferðinni heitið

í Vatnaskóg en þar verður farið

í leiki og höfð samvera.

¦   STJORN Landsamtaka

hjartasjúklinga hefur ákveðið

að efaa til merkjasölu dagana

6. og 7. maí og valdi kjörorð-

ið: Vinnum saman, verndum

hjartað. Á myndinni sést for-

maður LHS, Sigurður Helga-

son, afhenda Guðmundi Árna

Stefánssyni,         heilbrigðisráð-

herra, fyrsta merkið. Merkið sem

selt verður er rauða hjartað á

prjóni til að stinga í barminn eins

og verið hefur áður og kostar

merkið 300 kr.

¦   OPIÐ hús verður í leikskól-

um og skóladagheimilum í Graf-

arvogi laugardaginn 7. maí frá

kl. 10.30 til 12.30. Með opnu

húsi gefst tækifæri til að koma

í Grafarvoginn og kynna sér

starfsemi leikskólanna. Börn á

leikskólaaldri, foreldrar, systkini,

ömmur og afar eru öll velkomin.

¦   / VÖRSLU lögreglunnar er

margt óskilamuna svo sem reið-

hjól, barnakerrur, fatnaður,

lyklaveski, lyklakippur, seðla-

veski, handtöskur, úr, gleraugu

o.m.fl. Þeim sem slíkum munum

hafa glatað er bent á að hafa

samband við skrifstofu óskila-

muna Borgartúni 33 (inngang-

ur sjávarmegin) frá kl. 10-12

qg kl. 14-16 alla virka daga.

Óskilamunir sem hafa verið í

vörslu lögreglunnar í ár eða leng-

ur verða seldir á uppboði í upp-

boðssal Vöku á Eldshöfða 4-6

laugardaginn 7. maí. Uppboðið

hefst kl. 13.30.

¦   SVEINSPRÓF í framreiðslu

og matreiðslu voru haldin 4., 5.

og 6. rnaí í Hótel- og veitinga-

skóla íslands á Suðurlandsbraut

2. Framreiðslunemar sýna veislu-

borð af ýmsu tilefni og mat-

reiðslunemar sýna rétti úr ýms-

um hráefnistegundum, listræna

og fagurskreytta. Sýningin á

sveinsprófsverkefnum er opin al-

menningi í dag frá kl. 14 til kl.

15.

SUMARAÆTLUN M/S HERJÓLFS

Gildir frá 6. maítil 4. sept. 1994.

Frá

Vestmannaeyjum

Alla daga              08.15

Föstudaga

og sunnudaga      15.30

Auk þess á

fimmtudögum

íjúníogjúlí           15.30

Frá

Þorlákshöfn

12.00

19.00

19.30

Ferðir skipsins falla niður 22. maí (hvítasunnudag)

og 5. júní (sjómannadag).

Annan í hvítasunnu verða tvær ferðir eins og

á sunnudögum.

Þá getur áætlunin breyst dagana 29. júlítil 1. ág-

úst vegna Þjóðhátíðar Vestmannaeyja.

«í*

Ikriótfur h(.

Sími 98-12800, myndsendir 98-12991

Vestmannaeyjum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52